Morgunblaðið - 12.07.1968, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 1968
19
75 ÁRA:
Sveinbjörn. Jónsson
VINUR minn Sveinbjörn Jóns-
son, Hverfisgötu 88, á 7ö ára af-
mæli í dag. Þessi síungi sjentil-
maður stundar sundílþróttina enn
af krafti .Flesta daga ársins tek-
ur hann sér sundsprett í Sund-
höll Reykjavíkur. Sundið telur
hann vera sína mestu 'heilsulind.
Sem ungur maður synti Svein-
björn hið svokallaða Nýárssund,
sem fór fram hér í höfninni.
Hér fyrr á árum kenndi hann
mörgum sund í gömlu sundlaug-
unum.
Það er ekki ætlun mín með
þessum fáu línum að segja ævi-
sögu Bjössa, en svo er hann
kallaður af vinum.
★
Fæddur er Sveinbjörn í Litla-
hólmskoti í Rosmhvalshreppi á
Suðurnesjum 12 .júlí 1893, en
foreldrar hans, Jón Sigurðsson og
María Jónsdóttir, fluttu þremur
árum síðar til Reýkjavíkur og
bjuggu hér allan sinn aldur. Sem
unglingur var Sveinbjörn heilsu-
tæpur, en vegna þrautseigju
hans góðu móður og staðfastrar
trúar þeirra beggja, náði hann
þeirri hestaheilsu, sem enzt hef-
Lokað í dag
frá kl. 12 — 4 vegna jarðarfarar.
BÓKABÚÐ BBAGA BRYNJÓLFSSONAR
Hafnarstræti 22.
Skrifstofustúlka
með enskukunnáttu óskast strax.
Nánari upplýsingar í síma 16115.
Tliames Traider
í heilu lagi eða stykkjum til sölu. Nýupptekin vél, 6 cyl.
110 hestöfl, gírkassi, 3ja mán. gamall, drif 1 % árs.
Upplýsingar gefur Elías Finnbogason Grundarfirði.
Sími 93-8653.
ir honum fram á þennan dag.
Trúmaður hefir Sveinbjörn
ætíð verið og var og er mikill
aðdáandi sr. Haralds Níelssonar
og fylgismaður spíritismans hér
á landi.
Sem títt var um unga menn
í Reykjavík upp úr síðustu alda-
mótum fór Sveinbjörn fljótt til
sjós; var á seglskipum og kynnt-
ist lífi sjómanna, en af 'heilsu-
farsástæðum varð hann að
breyta til og fara í land. Um
nokkurra árabil var hann hjá
Kveldúlfi hf. og minnist hann
þeirra Thors-feðga ætíð með
þakklæti og virðingu.
Nálægt 1920 fór Sveinbjörn að
vinna hjá lögregluemibættinu í
Reykjavík. Þá var Jón heitinn
Hermannsson lögreglustjóri og
gegndi hann jafnframt tollstjóra-
embætti í þá daga. Hjá lögregl-
unni vann Bjössi í hart nær 40
ár og þjónaði sex lögreglustjór-
um. Sennilega eini lögreglumað-
urinn sem það hefir gert. Hans
aðalstarf hjá lögregluembættinu
frá upphafi var húsvarzla og
muna eldri Reykvíkingar sjálf-
sagt eftir Bjössa frá þeim árum.
Nú síðustu árin hefir hann
unnið hjá Sameinaða gufuskipa-
félaginu og lætur engan bilbug
á sér finna þrátt fyrir aldurinn.
Sveinbjörn er vinur vina
sinna og veit ég ekki tryggari
og óeigingjarnari mann heldur
en hann. Þeir fjármunir, sem
ryð og mölur fá grandað eru
lítils virði í hans augum. Hann
hugsar mikið um eilífðarmálin
og er alls ókvíðinn öðru tilveru-
stigi.
Ég óska honum innilega til
hamingju með afmælið og. vona
að hann megi enn um mörg
ókomin ár njóta góðrar heilsu
og lífshamingju.
A.S.
Ódýr dilkalifur
Seljum næstu daga ódýra dilkalifur frá kr. 40,00 per kg.
Nýtt hvalkjöt kr. 38,00 per kg, svið og folaldakjöt.
Afurðasala Reykhússins h.f.
Skipholti 37 (Bolholtsmegin), sími 38567.
Til sölu
Stór 2ja herb. íbúð á 3. hæð í sambýlishúsi við Mið-
bæinn. íbúðin er í fyrsta flokks ástandi, nýmáluð,
teppalögð, stórar svalir meðfram stofunni, hagkvæm
lán áhvílandi.
Glæsileg 6 herb. íbúð, 4—5 svefnherb. auk þess herb.
í kjaliara til sölu við Hvassaleiti, sem ný, öll teppa-
lögð, endaíbúð í fremstu röð. Ræktuð lóð, bílskúr.
Mjög hagkvæmt verð og greiðsluskilmálar.
Fasteigna- og lögfræðiskrifstofa,
Steins Jónssonar, Kirkjuhvoli,
Símar 14951, 19090, kvöldsími 23662.
IIANS
9>
ETI
I •
mn
n
s
Á
Á
SÍMI
20313
BANKASTRÆTI
4
Þar er fjör
— og gamanlð geymist bezt
á Kodak filmu i Kodak Instamatic myndavél.