Morgunblaðið - 30.07.1968, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 1968
Ratsjá Mjölnis var biluð
Sáu ekki Sæfaxa í tíma
Sjópróf vegna áreksturs milli
bátanna Sæfaxa og Mjölnis með
þeim afleiðingum áað Sæfaxi
sökk, fóru fram í Vestmannaeyj-
um. Það kom fram við sjóprófið,
að skipin sigldu í gagnstæða átt,
er áreksturinn var, Sæfaxi á
austurleið en Mjölnir á vestur-
leið. Veður var ágætt, en komu
á milli dimmir þokubakkar.
Ratsjáin í Mjölni var ekki í
lagi, og sáu skipverjar ekki Sæ-
faxa, þar eða þokan var svo
dimm er áreksturinn varð. Kom
Mjölnir á bakborðshlið Sæfaxa
og gekk inn í hann, svo að skip-
ið sökk á 7 mínútum.
Sæfaxamenn sáu Mjölni og
reyndu að beygja, en það var of
seint. Mjölnismenn komu ekki
auga á Sæfaxa fyrr en rétt áður
en þeir lentu á honum. Þeir
slógu undan, en of seint.
Sæfaxamenn fóru í gúmmíbát-
ana og voru teknir um borð í
Mjölni. Enginn meiddist ogvoru
allir vel á sig komnir, er þeir
komu um borð. Mjölnir var ó-
skemmdur og sigldi með þá til
V estmannaey j a.
Bæði skipin voru tréskip, og
eigendur báðir úr Vestmanna-
eyjum. Sæfaxa átti Sigfús John-
sen, skipstjóri var Sævar Ben-
ónýsson. Mjölni á Kristján
Gíslason, en Friðrik Friðriksson,
sem annars er stýrimaður, var
skipstjóri á bátnum í ferðinni.
Báðir bátarnir eru tryggðir hjá
félögum í Samábyrgð Islands á
fiskiskipum. Sæfaxi hjá Skipa-
tryggingum Austfjarða og Mjöln
ir hjá Bátaábyrgðarfélagi Vest-
mannaeyja.
Lítil veiði í gær
Síldarleitin á Dalatanga sagði
í gærkvöldi, að litlar fréttir væru
af veiði. Komið var aftur hæg-
viðri á miðin kl. 8 er leitar-
menn höfðu samband við Árna
Friðriksson, en óhagstætt veður
var í fyrrinótt og þurfti þá um
tima að hætta að losa yfir í
Síldarflutningaskipið Nordgaard
Fáein síldarskip eru á leið til
lands með afla Og flutningaskip
ið Haförninn er á leið út til
flotans.
Aðfaranótt sunnudags til-
kynntu 13 skip um afla, samtals
2.850 lestir, og aðfaranótt mánu
dags 6 skip með 745 lestir. Skip
in eru: Jörundur II Re 190 lestir
Fylkir RE 230, Þórður Jónasson
EA 250, Barði NK 170, Magnús
Ólafsson GK 250, Gullver NS
110, NáttfariH 150 Ásgeir RE
220, ísleifur VE 110, Gísli Árni
RE 370, Guðrún GK 230, Örn
RE 215, Ólafur Magnússon EA
150, Bergur VE 80, Arnar RE
80, Helga II RE 150, Ársæll Sig-
urðsson GK 70.
Nýft glœsilegt
skip til Dalvíkur
Hefur meðal annars ísvél og eimingarkerfi
Dalvík, 29. júlí.
Á FJÓRÐA tímanum í nótt kom
hingað nýtt skip, Loftur Bald-
vinsson, smíðaður í Hommelvik
í Noregi. Loftur er 448 lestir,
44,75 m. á lengd, 8,31 m á breidd.
Vél er 1400 ha MVM dieselvél.
Ganghraði í reynsluferð var
tæpar 13 sjómílur.
Allt er skipið hið glæsilegasta
og vandaðasta, jafnt utan sem
innan. Lest skipsins er skipt í
4 vatnsheld hólf. Loftur er bú-
inn fullkomnustu leitar og sigl-
ingatækjum. Einnig hefur skipið
ísvél og eimingarkerfi, til að
eima drykkjarvatn úr sjó. íbúð-
ir eru fyrir 21 mann, í eins til
þriggja manna klefum og eru.
þeir mjög vistlegir.
Þetta skip er glæsileg viðbót
við flota Dalvíkinga og má óska
útgerðarmanninum, Aðaisteini
Loftsyni, og skipstjóranum,
Ramóna og Sólarkaffi:
Opið dag og nótt
Nú þurfa borgarbúar og íbú-
ar nágrannabæjanna ekki leng-
nr að óttast að verða af því, að
fá sér eitthvað í svanginn þótt
komið sé yfir venjulegan lokun
artíma veitingastaða. Frá og með
ðeginum í dag verða tveir nýj-
Ir nætursölustaðir í Kópavogi
opnir nótt sem nýtan dag. Þar
geta menn fengið keyptan heit-
an og kaldan mat auk annarra
veitinga.
Að Auðbrekku 43 eru það
bræðurnir Finn og Leifur Jen-
sen, sem opnað hafa matsölustað
undir nafninu Sólarkaffi. — Við
leggjum áherzlu á að hafa á boð
stolum góðan heitan mat á sem
Banngjörnustu verði, sagði Finn
við fréttamann Mbl. Auk þess
bjóðum við upp á smárétti, svo
sem Hamborgara og annað góð-
méti úr grillinu. Kaffi kökur og
smurt brauð verður líka hægt
að fá hér, að nóttu sem degi.
Við höfum ákveðið að bjóða upp
á heimsendingarþjónustu og verð
ur gjald fyrir hana tuttugu krón
ur. Hér geta menn líka komizt
í fast fæði fyrir vægt verð og þá
valið milli þriggja heitra rétta
daglega. í fyrirtæki sendum við
■>mat þeim að kostnaðarlausu.
Húsnæðið er um 100 fermetr-
ar og sæti fyrir um 50 manns.
Húsið er nýbygging, matsalur-
inn hinn bjartasti og innrétting-
ar smekklegar.
Að Álfhólsvegi 9 eru þaðhjón
in Ástdís Hafliðadóttir og Tóm-
as Tómasson, byggingarmeistari
aem hafa opnað nýjan greiðasölu
stað undir nafninu Ramóna.
Frú Ástdís tjáði fréttamönn-
um að staðurinn yrði opinn tutt
ugu og fjórar stundir sólarhríngs
ins og unnið á þrískiptum vökt-
um. Þar verður hægt að fá keypt
an heitan mat og alls konar smá
rétti, svo sem Hamborgara, flesk
og egg og svo frv. Kaffi, kök-
ur og smurt brauð verður ávallt
til reiðu og afgreitt verður út í
bifreiðar eftir þörfum. í fram-
tíðinni mun staðurinn einnig
bjóða upp á steikur og kjúkl-
inga úr grillinu.
Ástdís hefur langa feynslu af
greiðasölu, hún var búsett í
Bandaríkjunum í 22 ár og rak
þar ítalskan matsölustað. Kaffi-
stofan Ramóna er einnig í ný-
byggingu og tekur um 100 manns
í sæti, salarkynni eru hin vist-
legustu.
Gunnari Arasyni, til hamingju
með farkostinn og góðrar veiði,
er Loftur fer á síldveiðar norð-
ur í haf innan skamms. — H.Þ.
- 1480 TONN
Frambald aí bls. 32
síld til söltunar 20>5 kr. fyrir 108
kg. Svo verðmismunurinn er
mikill.
Hásetahlutur hjá Kristjáni Val
geir er nú kominn í 47 þús. kr.
þennan mánuð. Er hann líkléga
næsthæsta skip í flotanum. Hann
og Gígja eru með líkan afla.
— R. S.
Blómadrottningin í Hveragerði
Stúlka úr Hveragerði
varð blómadrottning
Hveragerði 29 júlí.
Kvenfélag Hveragerðis hélt
sitt árlega blómaball síðastlið-
inn laugardag, og var þar að
venju kjörin blómadrottning.
Hlutskörpust í hópi giæsilegra
ungmeyja varð ein, sem hafði al
Vöruskiptajöfnuöur
Vöruskiptajöfnuðurinn fyrra
helming þessa árs, eða til júní-
loka, var óhagstæður um 1.572,8
millj. króna, sem er heldur
meira en í fyrra, þá var hann
óhagstæður um 1.505,7 millj. f
júnímánuði einum var vöru-
skiptajöfnuðurinn óhagstæður
um 715,8 millj. eða minna en í
fyrra, þá 885,6 millj.
- UMFERÐARSLYS
Framhald af bls. 32
mikið. í bílnum voru tveir menn.
Mennirnix töidu slg ómeiidda.
Alvarlegasta slysið varð á há-
degi á sunnmdag, er 11 ára dreng
ur frá Siglufirði varð fyrir bíl
í Skipagötu hjá Ferðaskrifstof-
unni Sögiu. Drengnjrkm var ný-
kominn út úr áætilunarbíl frá
Siglufirði og var að gamga vestur
yfir Skipagötu, er hann varð fyr-
ir bíl er þar bar að. Drenguir-
inn kastaðist í götuma og miun
ha<fa misst meðvitund um stund
og var lagður iinn í sjúkraihús
með áverka á höfði. — Sv. P.
Af innflutningi fyrstu 6 mán-
uði þessa árs, sem alls nam
3.677,0 millj., voru flutt inn
skip fyrir 174,5 millj., flugvélar
fyrir 132,9 millj., innflutnungur
til Búrfellsvirkjunar 214,5 millj.
og til íslenzka álfélagsins 102,6
millj. Á sama tíma í fyrra voru
þær tölur nokkuð öðruvísi. Þá
var flutt inn fyrir 584,0 millj.,
og af því skip fyrir 273,1 millj.
flugvélar fyrir 230,7 millj., til
Búrfellsvirkjunar fyTir 80,1
millj., en innflutningur til Ál-
félagsins ekki á blaði. En þess
ber að gæta, að tölur um inn-
flutning 1967 eru reiknaðar á
því gengi, sem gilti fyrir gengis-
breytinguna í nóvember 1967,
en tölur 1968 það gengi, er tók
gildi 24. nóvember 1967. Þá skal
þess getið, að allur innflutrting-
ur skipa og flugvéla á fyrri
helmingi 1968 og 1967 er talinn
með innfluttum vörum í
mánuði.
jum-
ist upp meðal blómanna í Hvera
gerði, Rósa Þorsteinsdóttir. Önn
ur í röðinni var Sigríður Vil-
hjálmsdóttir frá Keflavík. >■
Eins og venjulega var blóma-
ballið vel, sótt og fór skemmti-
lega og vel fram. G.M.
Bílveltur
fyrir austan
Á LAUGARDAGSKVÖLD urðu
tvær bílveltur fyrir austan. fjall',
en engan sakaði þó. Á Skeiða-
vegamótum valt Reykjavíkurbíll
og skemmdist hann mikið, Og
um nóttina valt bíll úr Rangárr
vallasýslu, er ekið var inn á
torgið við Tryggvaskála á Selr
fossi.
Þá varð á laugardag allharð-
ur árekstur milli bíla úr Hafnf
arfirði og Árnessýslu við Hvera
gerði. Engin meiðsli urðu á
mönnum.
í STUTTIIMÁLI
VÍSINDAMAÐUR LÁTINN
Göttinigen, 28. júlí (AP)
Þýzki vísindamaðurinn Otto
Hahn, sem hlaut Nóbelsverð-
laun í efnafræði árið 1944 fyr-
ir að sanna, að unnt væri að
kljúfa úraníumkjarna, lézt á
sunnudag í Göttingen 89 ára
að aldri, eftir langvarandi van-
heilsu.
Magnús
Bjartmar
Sigurður
Ásgeir
Guðmundur
Xónas
Herbert
Héraðsmót Sjálfstæö isf lokksins
um nœstu helgi á Ólafsfirði, Skjólbrekku og á Raufarhöfn
Ásgeirsson bæjar
UM næstu helgi verða haldin
þrjú héraðsmót Sjálfstæðisflokks
ins á eftirtöldum stöðum:
Ólafsfirði, föstudaginn 2. ág-
úst kl. 21 Ræðumenn verða Magn
ús Jónsson, fjármálaráðherra,
Herbert Guðmundsson, ritstjóri
og Ásgeir
gjaldkeri.
SkjóJbrekka, laugardaginn 3.
ágúst kl. 21 Ræðumenn verða
Magnús Jónsson fjármálaráð-
herra, Bjartmar Guðmundsson,
alþingismaður og Sigurður Sig-
urðsson, verzlunarmaður.
Raufarhöfn sunnudaginn 4.
ágúst kl. 21. Ræðumenn verða
Magnús Jónsson, fjármálaráð
herra, Jónas G. Rafnar, alþingis
maður og Guðmundur Hallgríms
son, lyfjafræðingur.
Skemmtiatriði annast leikarar-
Haraldsson og hljómsveit Ragn-
ars Bjarnasonar. Hljómsveitina
skipa Ragnar Bjarnason, Grettir
Björnsson, Árni Scheving, Jón
Páll Bjarnason og Árni Elfar.
Söngvarar með hljómsveitinni eru
Erla Traustadóttir og Ragnar
Bjarnason.
Að loknu hverju héraðsmóti
verður haldinn dansleikur, þar
sem hljómsveit Ragnars Bjarna-
sonar leikur fyrir dansi og söngv
nir Róbert Arnfinnsson og Rúrik arar hljómsveitarinnar koma fram