Morgunblaðið - 30.07.1968, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 1968
19
Þing Sjálfsbjargar gerði
ir um málefni öryrkja
10. þing Sjálfsbjargar, lands-
sambands fatlaðra var haldið að
Jaðri, dagana 8.—10. júni sl. Til
þingsins mættu 44 fulltrúar frá
níu félagsdeildum.
Reykjavikurdeildin sá um
þinghaldið, að þessu sinni, og
ávarpaði Sigurður Guðmunds-
son, formaður hennar, þingfull-
trúa áf þvi tilefni og lýsti ánægju
sinni yfir þeim árangri, sem
náðst hefur frá stofnun samtak-
anna og hvatti til áframhaldandi
samvinnu og baráttu fyrir hags-
munamálum fatlaðs fólks.
Formaður Sjálfsbjargar flutti
síðan skýrslu sína og fram-
kvæmdastjóra og kom m.a. eftir-
farandi fram:
Innan Sjálfsbjargar eru nú tíu
félagsdeildir með 873 virkum fé-
lögum. Starfeemi félagsins var
mikil á árinu, það verkefni sem
hæst bar var bygging Vinnu- og
dvalarheimilis Sjálfsbjargar að
Hátúni 12. Um þessax mundir
ér verið að ljúka steypuvinnu
við fimmtu og efetu hæð fyrsta
áfanga. Hafa nú alls verið lagð-
ar 13,5 millj. kr. í bygginguna.
Auk eigin fjár, sem aflað hefur
verið með merkja- og blaðasölu
og happadrættum, hefur Styrkt-
arsjóður fatla'ðra veitt styrki. Þá
veitti Alþingi á fjárlögum 1968
1,5 millj. kr. styrk í sama skyni
og Erfðafjárssjóður 3 millj. kr.
lán. Einnig er von á styrk frá
Svíþjóð.
í nóv. sl. var öllum sveitar-
stjórum skrifað og farið fram á
fjárhagsstuðning. Undirtektir
voru með ágætum.
Þá kom fram í skýrslunni, að
lögreglustjórinn í Reykjavík
hefur veitt samþykki sitt, til
þess að úthlutað verði merkjum
sem veita mikið fötluðum öku-
mönnum undanþágiu frá gildandi
ákvæðum um bifreiðastiJður.
Merki þessi má festa innan á
rúður bifreiða. Þau verða 12x18
cm að stærð og með bókstafnum
„P“ hvítum á bláum grunnii,
ásamt sfcrásetningamúmeri bif-
reiðarinnar og nafni ökumanns,
sem undanþágan gildir fyrir.
Er formaður hafði flutt skýrslu
sína gerði gjaldkeri Landssam-
bandsins, Eiríkur Einarsson grein
fyrir reikningum þess. Tekjur
námu 1,7 millj. kr. á árinu,
tekjuafgangur var 1 millj. kr.,
og hrein eign í árslok nam 3,9
millj. kr.
Þingið gerði nokkrar samþykkt
ir og verður hér getið um nokkr
ar þeirra:
Tryggingamálanefnd, ályktáði,
að endurskoðuð verði 13. grein
almannatryggingalaganna og
leggur sérstaka áherzlu á, að
breytt verði tekjuviðmiðun grein
arinnar; að örorkulífeyrisþegar
með mjög litla eða enga vinnu-
getu eigi rétt til örorkulífeyris-
auka, sem nemi 60% af hinum
almenna örorkulífeyri; að laun-
þegar, sem njóta örorkubóta og
verða atvinnulausir, eigi rétt á
dagpeningum úr atvinnuleysis-
tryggingasjóði; að lífeyrir verði
greiddur með börnum, sem eru
svo fötluð, að framfærandi þurfi
miklu til að kosta vegna fötlun-
ar þeirra, þó að um sé að ræða
böm, sem að öðrum kosti njóta
ekki barnalífeyris, Einnig verði
heimilað að hækka um allt að
100% barnalífeyri, þar sem á-
stæður eru sérstaklega slæmar;
að öryrkja sem er algjörlega
tekjulaus og dvelur á sjúkra-
húsi eða dvalarheimili, verði
sjálfum greitt allt áð 25% ör-
orkulífeyris.
Félagsmálanefnd gerði eftir-
farandi tillögur: Að landssam-
bandið haldi áfram að styrkja
fólk til nárns í sjúkraþjálfun og
öðru því námi, er snertir endur-
hæfingu, enda njóti það Starfs-
krafta þess að námi loknu eftir
samkomulagi, ella verði styrkur-
ályktan-
inn endurgreiddur; að unnið
verði að því, að öryrkjar njóti
betri lánakjara til húsbygginga
en nú gjörast; að leitast verði
við áð hafa samvinnu við arki-
tekta og aðra þá, er við skipu-
lags- og byggingamál fást, um
að tekið verði tillit til sérstöðu
fatlaðra.
Farartækj anefnd gerði eftir-
taldar tillögur: Að á næsta ári
verði úthlutað til öryrkja 350 bif
reiðum 4—5 manna, þar af 250
til endurveitinga; þingið leggur
áherzlu á að öryrkjar hafi frjálst
val bifreiðategunda og vill um
lei'ð vekja athygli á aðstöðumun
leigubílstjóra og öryrkja; þingið
leggur áherzlu á, að felldir verði
Framhald á bls. 24
Vörukaup
Heildverzlun óskar eftir að kaupa innlendar og erlend-
ar vörur. Matvara, vefnaðarvara, leikföng o.fl. Einstafc-
ar vörusendingar eða áframhaldandi viðskipti.
Vinsamlegast sendið tilboð til Mbl. fyrir 10. ágúst,
merkt: „Trúnaðarmál 8209“.
Hurðir - Hurðir
Innihurðir úr eik
Stuttur afgreiðslufrestur.
Kynnið yður verð og gæði.
HURÐIR OG KLÆÐNINGAR,
Dugguvogi 23, sími 32513.
Peysnbúðin Hlin auglýsir
Mikið úrval af peysum á alla fjölskylduna. Höfum alltaf
dömugolftreyjur í stórum númerum kr. 585,00. Enn-
fremur heilar og hnepptar ítalskar peysur, peysusett
610,00, skyrtublóssur, dömunáttföt. — Sendum í
póstkröfu.
HLÍN, Skólavörðustig 18.
Hef opnuð lækningnstofu
í Fischersundi (Ingólfsapótek). Viðtalstími 10—11.30 alla daga nema
laugardaga og þriðjudaga, þriðjudaga kl. 16—18.
Verzlunarstarf
Ábyggileg og reglusöm stúlka með góða framkomu,
ekki yngri en 25 ára, vön afgreiðslustörfum óskast nú
þegar. Upplýsingar á skrifstofu Ludvig Storr,
Laugavegi 15.
Berklavörn Reykjavík
Aðalfundur
verður haldinn að Bræðraborgarstíg 9 miðvikudaginn
31. júlí kl. 21.
DAGSKRÁ:
1. Venjuleg uðalfundarstörf.
2. Kosning fulltrúa á þing SÍBS.
3. Onnur mái.
Stjórnin.
Dráttarbraut
Keflavílcur Kf.
óskar að ráða vélvirkja eða menn vana vélavinnu. —
Einnig mann vanan rafsuðu. — Uppiýsingar í símum
1335 og 2278, Keflavík.
UTAVER
PLASTINO-KORK
Mjög vandaður parket-
gólfdúkur.
Verðið mjög hagstætt.
Frá landsþingi Sjálfsbjargar.
MAGNÚS SIGURÐSSON, læknir,
Forsala farmiða og upplýsingar inn á inótið daglega.
í Reykjavík: Góðtemplarahúsinu kl. 4- -9. Sími 13355.
í Hafnarfirði: Góðtemplarahúsinu kl. 5—7. Sími 50273.
fbúð/r til sölu m.a.
2ja herb. íbúð í smíðum í sambýlishúsi í Fossvogi.
3ja herb. íbúð sem ný í sambýlishúsi við Sólheima.
3ja herb. íbúð á jarðhæð við Skólabraut.
4ra herb. íbúð sem ný í háhýsi, mjög snotur, við Ljós-
heima.
4ra herb. rishæð við Grettisgötu.
4ra herb. jarðhæð við Laufásveg, mjög hagkvæmir
skilmálar.
Einbýlishús mjcg glæsilegt í smíðum á Flötunum,
yfir 200 ferm.
STEINN JÓNSSON. lögmaður.
Lögfræði- og fasteignaskrifstofa,
Kirkjuhvoli — Sími 19G90 og 14951.