Morgunblaðið - 30.07.1968, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 1968
23
Þytur bætti metið í 800 m stökki
setti nýtt Islandsmet í 800
metra stökki, í undanrásum.
Stökk hann brautina á 63,4
sek. ytur er 11 vetra gamall.
Gamla metið var, 64,5 sek.
— Fjórðungsmót austfirzkra
— hestamanna um s. I. helgi
Fjórðungsmót - auðstfirzkra
hestamanna var haldið um sl.
helgi að Iðavöllum. _Var veð-
ur hið ákjósanlegasta, bjart-
viðri alla daga, en mótið hófst
á föstudag með því að mætt
var með sýningarhross hjá
dómnefnd. Sjálft mótið var
sett daginn eftir af Pétri Jóns
syni EgUsstöðum.
Mikið f jölmenni var á mót-
inu og er áætlað að fjjöldinn
hafi verið nokkuð á annað
þúsund manns. Fór mótið í
alla staði vel fram. Dansað var
bæði á Iðavöllum og í Vala-
skjálf á laugardagskvöldið og
í Valaskjálf á sunnudagskvöld
ið.
Á laugardag fór fram sýn-
ing kynbótahrossa og gæðinga
hestamannafélaganna. Þá
voru einnig undanrásir kapp-
reiða og milliri'ðlar. Reyndist
nýji skeiðvöllurinn mjög vel
og er þar frábær yfirsýn fyrir
áhorfendur. Dálítið skýggði á,
að moldrok var frá vellinum,
en hestamenn hyggjast bæta
úr því hið bráðasta með rækt
un.
Á sunnudag var mótinu
fram haldið með sýningu kyn
bótahrossa og voru verðlaun
afhent. Aðeins var sýndur
einn stóðhestur með afkvæm-
um, Glói 11 vetra frá Ketils-
stöðum, Völlum. Eigandi er
Jón Bergsson frá Ketilsstöð-
um. Glói hlaut 7,55 í einkunn
og önnur vérðlaun.
Fjórir stóðhestar 4-6 vetra
voru sýndir án afkvæma. Þar
var hlutskarpastur Þokki 6
vetra frá Miðfelli, Nesjum í
Hornafirði, eign Hestamanna-
félagsins Hornfirðings. Hlaut
hann í einkunn 8.30 fyrir bygg
ingu, fyrir hæfileika 7,38 eða
7,82 í aðaleinkunn.
Hlutskörpust hryssa, er
sýnd var með afkvæmum var
Gamla-Blesa, 25 vetra gömul
frá Urriðavatni í Fellum, eig-
andi Ólafur Jónsson á Urriða
vatni. Hún hlaut í einkunn
7,62 fyrir afkvæmi 7,72 eða
7,69 í aðalenkunn. Fyrir kyn-
festu fékk Gamla-Blesa 8.60.
Svala sjö vetra jörp hryssa
frá Brunnum í Suðursveit
sigraði í flokki hryssa sex
vetra og eldri. Eigandi hennar
er Gísli Jóhannsson Brunn-
um. Hún fékk í einkunn fyrir
byggingu 8.30, fyrir hæfileika
8,47 eða 8,39 í aðalenkunn.
Umsögn um hana var á þá
leið, að hún væri fríð og fín-
byggð, viljagóð, lundprúð og
þjál. Hún hefði allan gang
og gangskipting væri með
ágætum.
Fluga fimm vetra frá Ey-
vindará í Eiðaþinghá, eigandi
Margrét Sveinsdóttir Eyvind-
ará, hlaut beztan dóm í flokki
unghryssa. Fyrir byggingu
fékk hún 8,10, fyrir hæfileika
7,90 eða 8 í aðaleinkunn.
Svipur frá Jaðri, ljósjarpur
Þytur Þorkels Steinars
Þytur Sveins K. Sveinssonar setur metið í 800 metra stökki,
hljóp á 63,4 sek. Knapi var Aðalsteinn Aðalsteinsson.
Þokki frá Miðfelli. Fékk beztan
voru án afkvæma.
stóðhesta, er sýndir
sex vetra gæðingur bar af í
góðhestakeppni og hlaut 8,40
í einkunn. Var honum veitt í
heiðursskyni Gæðingshornið,
en útibú Búnaðarbankans á
Egilsstö'ðum gaf það horn til
verðlauna bezta hesti, er fram
kæmi á mótum hestamanna
á Austurlandi. Eigandi Svips
er Ingimar Bjamason, Jaðri.
Umsögn um hann er: Mjög
glæsilegur hestur í reið, lund-
ljúfur, fjörmikill og fjölgeng
ur, en skortir nokkuð þjálfun.
Hólms frá Borgarfelli,
Skagafirði 10 vetra, eigandi
Einar Sigfússon Skálafelli,
Norðfirði varð hlutskarpastur
í keppni klárhesta með tölti.
Hlaut hann 7,30 í einkunn.
Eftir hádegi var mótinu enn
fram haldið og fór foam hóp-
reið hestamanna inn á leik-
vanginn. Síðan var helgistund
í umsjón séra Ágústs Sigurðs-
sonar í Vallarnesi. Þá flutti
Einar G. E, Sæmundsen, for-
maður Landssambands Hesta-'
mannafélaga ávarp, en var
sýning gæðinga og verðlaun
afhent, og var úrslitum lýst
hér að framan.
Að lokum fóru fram úrslit
kappreiða:
Sett voru tvö ný Islands-
met á mótinu, í 800 metra
stökki og 800 metra brokki.
Þytur Sveins K. Sveinssonar
Ellertssonar frá Eiðum setti
nýtt met í 800 metra brokki,
fór vegalengdina á 2,08 mínút
um. Hann er 5 vetra.
Að öðru leyti voru úrslit
þessi:
250 metra skeið:
1. Buska Guðmundar Gísla-
sonar Rvík. 27,2 sek.
2. Blakkur Ingimars Bjarnas.
Jaðri Suðursveit 28,1 sek.'
3. Skjóna Guðbjargar Þórisd.
Jaðri Völlum 29,2 sek.
4. Fluga Eyjólfs Stefáns. Höfn
Hornafir'ði 29,2 sek.
Enginn hestanna vann til verð
launa.
300 metra stökk:
1. Gula-Gletta Erlings Sig-
urðss. Laugarn. 22,7 sek.
2. Hólms Einars Sigfúss. Norð
firði 23,0 sek.
3. Leira Jóns V. Einarssanar
Hvanná 24,0 sek.
Allir hestarnir unnu til verð-
launa, sem voru 5000 kr., 2,500
kr. og 1000 kr.
250 metra folahlaup:
1. Sprettur Kristbj. Gunnl,-
dóttur Tókastöðum 20,4 sek.
2. Svipur Ingimars Bjarnas.
Jaðri Suðursv. 20,4 sek.
3. Reykur Þóris Ásmundss.
Jaðri, Völlum 20,5 sek.
Allir hestarnir unnu til verð-
launa, sem voru 4000 kr., 2000
kr. og 1000 kr.
800 metra stökk.
1. Þytur Sveins K. Sveinss.
Rvík. 64,3 sek. (Metið 63,4
sek. var sett í undanrás).
2. Reykur Jóhönnu Kristjáns-
dóttur Rvík. 65,0 sek.
3. Blakkur Jóhönnu Kristjáns
dóttur Rvík. 65.6 sek.
Allir hestarnir unnu til verð-
launa sem voru 10.000 kr., 5000
kr. og 2.500 kr.
800 metra brokk.
1. Þytur Þorkels S. Ellertss.
Eiðum 2,08,0 sek. (Nýtt ísl.
met).
2. Rauðstjarni Jóhanns Magn
ússonar Breiðav. 2,13,8 sek.
3. Sleipnir Gu'ðbjarts Pálss.
Rvík. 2,13,8 sek.
Allir hestar unnu til verð-
launa sem voru 3000 kr., 1,500
kr. og 750 kr.
Rotary-félagar
gróðursetia á
Rangárvöllum
Fimmtudaginn 4. júlí sl. fóru
rótarýklúbbfélagar Hvolhrepps í
landgræðsluferð upp á Rangár-
velli. Alls tóku þátt í þessum
leiðangri 20 félagar af 22, sem í
klúbbnum eru. Landgræðsla Is-
lands hefir girt um hálfan ann-
an hektara, er ber nafnið Kirkju
hóll, suð-vestur af Keldum. Sá
landskiki er að blása upp, m.a.
stórt jarðrof, sem þurfti að um-
bæta og verja svo að jarðvegur-
inn, sem í hólnum er fari ekki
á haf út, eins og svo margar
gras- og moldartorfur hafa farið
í nágrenni við Keldur. Frum-
kvæði að þessari ferð átti Páll
Sveinsson, landgræðslustjórd,
Kristinn Jónsson, tilraunastjóri
á Sámsstöðum og Klemenz Kristj
ánsson, Kornvöllum, áður á Sáms
stöðum.
Allir þeir, sem tóku þátt í
þessum ræktunarleiðangri, voru
mættir kl. 19 við Kirkjuhólinn
og hófst þá vinnan, sem fólgin
var í eftirfarandi framkvæmdum:
Stungið var niður og jöfnuð
rofabörð þau, sem voru að blása
upp, og lögu’ð svo, að hægt var
að sá grasfræi og dreifa áburði,
er sandgræðslan imdir forustu
Páls Sveinssonar gaf til þessarar
ræktunar.
Settar voru niður um 100
plöntur af viðju, bæði stiklingar
og 1 árs plöntur og tilbúinn
áburður borinn á.
Gróðursettar á þriðja hundrað
plöntur af Alaskalúpínu. Skóg-
rækt ríkisins að Tumastöðum
gaf bæði Viðjurnar og lúpínum-
ar.
Gróðursettar voru rúml. 100
plöntur af Alaskalúpínu, er komn
ar voru upp af fræi í vor. Þær
voru litlar en lífgóðar.
Gró'ðursettar voru 15 pl. af
hvítsmára, sem voru teknar úr
túni Kornvalla.
Sáð í 1-5 ferm. hvítsmára, sem
smitaður var með smáramold. Á
lúpínur og hvítsmára var úðað
natriummolybdat í þeim tilgangi
að vita hvort þessa efnis er þörf,
og var aðeins úðað á rúmlega
helming sáningar og gróðursettra
plantna. Voru þessar síðasttöldu
plöntur frá Kornvöllum.
1 ráði er, að í okt. í haust
verði sáð 2—3 kg. af Alaskalúp-
ínufræi og þá í raðir meðfram
austurhlíð girðingar þeirrar, sem
umlykur kirkjuhólinn. Er hér
verið að prófa sig fram með að
koma belgjurtum eins og Alaska
lúpínum og hvitsmára á þet.ta
ógróna svæði í nánd við hið
fornfræga býli Keldur á Rangár
völlum. Af hverju nefndur hóll
ber þetta nafn, Kirkjuhóll, veit
enginn, en tóknrænt er það víst
að þarna er byrjað á landgræðslu
starfi sem tekur belgjurtirnar
ásamt grastegundum í þjónustu
þess að græða upp örfoka grjót-
og sandsvæði, er síðar getur
orðið til bættra nytja fyrir þá,
sem landið erfa.
Allir klúbbfélagar unnu að
þessu fram að kl. 23 og voru
ánægðir yfir því að koma þessu
í verk. Veðrið var sérstaklega
gott og bætti það erfiðið, sem
fram var lagt.
(Frá Rótarýklúbb Hvolhrcpps).