Morgunblaðið - 30.07.1968, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 1968
25
- MIKIL LEYND
Framhald af bls. 1
al sovézku fulltrúanna vegna
þess að ljósmyndarar hafi ver
ið viðstaddir, en eitt af höfuð
skilyrðum Sovétmannanna
hafi verið algjör leynd skyldi
ríkja á fundunum. Sömu heim
ildir herma að Dubcek hafi
flutt fyrstu ræðuna. Gífur-
lega umfangsmiklar öryggis-
ráðstafanir hafa verið gerðar
I Cierna og umhverfis þorpið
og sovézkar þyrlur á sveimi
allstaðar í næsta nágrenni.
Sagt er að helztu kröfur
Rússa séu tvær, að þeir fái
að staðsetja hersveitir á vest-
urlandamærum Tékkóslóva-
kíu og að ritskoðun verði
aftur komið á í Tékkóslóva-
kíu. Þá er það sagt í Prag, að
Dubcek og stuðningsmenn
hans hafi ekki í hyggju að
gefa neitt eftir í sambandi
við hina nýju frjálslyndis- og
umbótastefnu sina.
Fundurinn getur staðið til
morguns.
Tilkynningin um að fundur-
inn væri hafinn var gefin út um
tveimur klukkustundum síðar,
bæði í Tékkóslóvakíu og Sovét-
ríkjunum. Var þá jafnframt sagt
að ekkert yrði frá viðræðunum
skýrt fyrr en í lok fundarins, og
síðustu fréttir nú í kvöld
hermdu að hann myndi að öll-
um líkindum standa fram eftir
nóttu og jafnvel til morguns.
Sjónarvottur í Cierna segir
svo frá, að í morgun hafi varla
verið hægt að þverfóta fyrir her-
mönnum og lögreglumönnum í
þorpinu og að áhorfendum og
fréttamönnum hafi verið haldið
í mörg hundruð metra fjarlægð
frá járnbrautarvagninum, sem
fundurinn var haldinn í. Segir
sjónarvotturinn að mikill fjöldi
tékkneskra embættismannabif-
reiða hafi staðið í röð við járn-
brautarsttiðina og nokkrir sov-
ézkir bílar. Auk sjálfra sendi-
nefndanna eru mörg hundruð
ráðgjafar og annað starfslið í
fylgarliðinu. Þorpið Cierna, er
rétt við landamæri Sovétríkj-
anna og Tékkóslóvakíu og er að-
alumhleðslustaður fyrir varn-
ing, sem kemur frá Sovétríkjun-
Um til Tékkóslóvakíu og öfugt.
íbúarnir eru aðallega sígaunar og
og af ungverskum ættum, enda
aðeins örfáir km. til landamæra
Ungverjalands. fbúum Cierna er
sagt mikið niðri fyrir vegna
þess að þorp þeirra hafi verið
valið sem fundarstaður, en orð-
rómur hafi verið uppi um þetta
síðustu daga. Flestir stjórnmála-
fréttaritarar telja að viðræðyrn-
ar muni aðeins standa í einn til
tvo daga og að ekki sé mikils ár-
angurs að vænta.
Dubcek trúir á skilning Rússa.
Alexander Dubcek, leiðtogi
tékkneska kommúnistaflokksins
sagði I ávarpi til þjóðarinnar sl.
laugardag að hann sé sannfærð-
ur um, að Rússar muni síðarmeir
skilja að hin nýja stefna í Tékkó
slóvakíu sé á engan hátt ógnun
hinum sósíalísku bandamönnum
Tékka, heldur þvert á móti eina
leiðin til að gera Tékkóslóvakíu
að traustum bandamanni og
landamæri Tékkóslóvakíu traust
ustu landamæri sósíalismans, )g
því sé það skylda tékknesku þjóð
arinnar að halda fast við og
fylgja til enda hinni nýju stefnu
og hvergi hvika frá settu marki.
Dubcek sagð að hann og sam-
starfsmenn sínir færu til fundar-
ins við sovézka leiðtoga til að
reyna að komast að samkomulagi
og tryggja varanleg skilyrði um-
bótastefnunnar. Hann sagði:
„Þetta er ósk þjóðarinnar, sem
fylkti sér um hina nýju stefnu
þegar í stað og af frjálsum
vilja“.
Josef Smrkovsky tekur í sama
streng.
Josef Smrkovsky, forseti tékkn
eska þjóðþingsins, sagði í ræðu
skömmu fyrir broittförina frá
Prag að tékkneska sendinefndin
gerði sér fyllilega ljósa þá
ábyrgð, sem á herðum hennar
hvíldi í viðræðunum, þar sem
væri framtíð Tékkóslóvakíu.
Sagði hann að hún myndi í við-
ræðunum í engu hvika frá grund
vallaratriðum hinnar nýju
stefnu og minntist sérstaklega á
ritfrelsi í þessu sambandi, en af-
nám ritfrelsis er önnur aðalkrafa
Rússa. Smrkovsky sagði: „Rit-
frelsi er grundvallaratriði í frelsi
borgaranna og það munum við
aldrei afnema“. Hann sagði einn
ig: „Ég get ekki trúað því að
við munum koma frá viðræðun-
um og færa ykkur slæmar frétt-
ir, mig hryllir við að hugsa um
slíkt, og ég trúi ekki að svo geti
farið“.
Stjórnmálafréttaritarar segja
mikla einingu ríkja meðal tékk-
nesku þjóðarinnar og að alda
þjóðarstolts fari um landið. Fáir
virðast trúa því að til hernaðar-
ihlutunar kunni að koma af
hálfu Rússa, en ein saga, sem
gengið hefur í Prag, bendir til að
þó sé eitthvað um slíkt. Sagan
segir, að er Smrkovsky var í
kurteisisheimsókn í Moskvu fyr-
ir mánuði hafi honum m.a. verið
sýnd eldflaugastöð. Segir sag-
an að gestgjafi Smrkovskys hafi
sagt við hann: „Þessar eldflaug-
ar eru handa ykkur og gegn
ykkur“.
Gretsjko hvetur Sovétherinn til
að auka barðagahæfni sína.
Sovétríkin hertu enn tauga-
stríðið gegn Tékkóslóvakíu nú
um helgina með nýjum árásum
og ógnunum í sovézkum blöð-
um og málgögnum, þar sem sov-
ézkir hermenn eru hvattir til að
auka bardagahæfni sína. Á sunnu
dag var haldinn hátíðlegur dag-
ur sjóhersins og í dagskipan í
tilefni dagsins sagði Andrei Gret
sjko marskálkur, varnarmálaráð
herra Sovétríkjanna, að Tékkó-
slóvakíumálið væri komið á ell-
eftu stundu og bað alla sovézka
hermenn að treysta bardaga-
hæfni sína. Þá sagði Moskvu-
blaðið Pravda að hættan, sem
stafaði af þróun mála í Tékkó-
slóvakíu færi sívaxandi. Pravda
sagði að borgarar og verkamenn
í Tékkóslóvakíu ættu að fara
eftir aðvörunum bræðra sinna í
öðrum löndum. Segir blaðið að
Tékkar hugsi um allt annað en
þá ógnun heimsvaldasinna er
yfir þeim vofi. Segir blaðið enn-
fremur að kommúnistar í bróð-
urlöndum Tékkóslóvakíu séu
ákveðnir í að verja og tryggja
einhug og samstöðu sósíalíska
samfélagsins.
í annarri grein endurtekur
Pravda kröfur Sovétstjórnarinn-
ar um að ritfrelsi ver’ði afnumið
aftur í Tékkóslóvakíu. Ræðst
blaðið harkalega á tékkneska
blaðamannafélagið og segir að
ar er þorpið hvergi merkt inn á
um að baktala og bera út til-
hæfulausar og ýktar ögranir
gegn Sovétríkjunum og Póllandi
um leið og þeir biðji um að vin-
áttuböndin við þessar þjóðir
verði treyst. Stjórnmálafréttarit
ara segja að hin hörðu ummæli
Pravda bendi til þess a'ð Sovét-
leiðtogarnir hafi ekki í hyggju
að slaka á sínum kröfum í við-
ræðunum við Tékka. Þá segja
þeir einnig að með árásum und-
anfarið hafi Sovétríkin verið að
byggja hugsjónalegan grundvöll
fyrir hugsanlegri hernaðaríhlut-
un í Tékkóslóvakíu með því að
segja að gagn-kommúnistísk
bylting sé yfirvofandi í landinu,
sem ógni öryggi allrar A-Ev-
rópu. Sagt er að daglegt líf í
Moskvu sé alveg með éðlilegum
hætti að því undanskildu að
fjöldi borgara hefur verið kvadd
ur út með varaliðinu til her-
þjónustu meðfram vesturlanda-
mærum Sovétríkjanna, sem er
augljós liður í taugastríðinu gegn
Tékkum.
I fréttum frá A-Berlín í dag
hermir að verið sé að flytja 75
þúsund manna sovézkt herlið frá
A-Þýzkalandi suður á bóginn í
átt til tékknesku landamæranna.
15 vestrænir kommúnistaflokkar
styffja Tékka
í frétt frá AP-fréttastofunni í
dag segir, að aðeins 3 vestræn-
inr komúnistatflokkar styðji stefn-
una sem mörkuð var í Varsjár-
bréftou, en 15 floikkjair, þar á með
ail sá ísienzki, styðji Tékka. Seg-
ir í fréttimni, að flokkamir þrír
er bréfið syrðji, „séu flestiir ólög-
legir eða hálfólöglegir". Þeir séu
v-þýzki kommúnistafilakMrinn,
sósíalistíski sametoingaflokkur-
inn í V-Beriín og leiðtogar gríska
kommúnistaflokksins sem séu í
útlegð og hafi verið stimplaðir
óiöglegir af leiðtogium flokksins
í Aþenu. Flokkarnir sem styðja
Tékka eru frá íslandi, Bretlandi,
Noregi, Portúgai, ítalíu, Frakk-
landi, Svíþjóð, Belgíiu, Dan-
■mörku, Ftonlandi, Auistunríiki,
Sviss, Spáni, SanMaxino og Kýp-
uir. Mika Spl'jak, forsætisráð-
herra Júgóslavíu, endurtók í dag
stuðntogsyfirlýsingu júgóslaiv-
nesku sjómarinnair við Tékka í
deilumni við Sovétstj ómina SpE-
jak sagði, að sósialiismi í mörg-
um lÖndum sýni styrk sinn og
rétt með því að grípa tdi nýrra
og lýðræðiislegra umibóta. Hann
sagði, að Júgósiavar álitu slíkar
aðgerðir auka hæfni sósíalismans
tifl. að leysa vandamói sín nú og
í framtíðinni
- TÉKKAR
Framhald af bls. 1
er sagður fara fram í járn-
brautarvagni, þar sem hann
stendur á teinum sínum í
Cierna, sem er örlítiH járn-
brautarbær, þar sem aðeins
eru um 20 hús, og stendur
bærinn rétt við landamærin.
Strangur vörður gætir fund-
arstaðarins nákvæmlega og
kemur í veg fyrir, að nokkr-
ir óviðkomandi fái að kom-
ast í nánd við hann.
„Literarni Listy", málgagn
rithöfundasamhands Tékkó-
slóvakíu, hóf á föstudag
undirskriftarsöfnun, þar sem
almenningur var hvattur til
þess að rita nafn sitt á skjal
með yfirlýsingu um stuðning
við leiðtoga sína á fundinum
og þeir eindregið hvattir til
þess að láta hvergi undan síga
í viðræðunum við sovézku
leiðtogana. í dag höfðu um
ein milljón manns skrifað
undir þessa yfirlýsingu og er
undirskriftasöfnunin ennþá í
fullum gangi.
Gert er ráð fyrir að Tító,
forseti Júgóslavíu, komi hing
að til Prag á miðvikudag og
Ceausescu, forseti Rúmeníu,
komi hingað á föstudag, til
þess að láta í ljós stuðning
við leiðtoga Tékkóslóvakíu.
Er greinilegt að almenningur
fagnar mjög komu þeirra og
telur stuðning þeirra geysi-
mikilvægan stjórnmálalega og
siðferðislega.
Vinsældir Rússa síþverrandi.
Það voru Rússar, sem kröfð
ust þess, að fundarstað yrði
haldið leyndum. Þess vegna
var ekkert sagt fyrir fram
fram hvar fundurinn yrði
haldinn, enda þótt tékkó-
slóvnesk stjórnarvöld hefðu
ekkert haft við það að at-
huga, að frá því yrði skýrt,
hvar og hvenær fundurinn
yrði haldinn. Þessi afstaða
Rússa hefur valdið því, að
þeir hafa enn sett stórlega
ofan í huga almennings. Hér
virðist fólk almennt vera ein-
dregið þeirrar skoðunar, að
sovézku leiðtogarnir hafi far-
ið mjög klaufalega að í við-
skiptum sínum við leiðtoga
Tékkóslóvakíu og einnig með
því að halda uppi jafn mikilli
taugaspennu gegn Tékkósló-
vakiu undanfarið og raun ber
vitni.
Stuffningur viff Dubcek
ótvíræffur.
Alls enginn klofningur er
talinn vera fyrir hendi í for-
sætisnefnd kommúnistaflokks
Tékkóslóvakíu um stuðning-
inn við aðgerðir Dubceks og
áframhaldandi sjálfstæðisher
ferð. Einhugur fólks um að
sýna í verki stuðning sinn
við Dubcek og stefnu hans,
svo sem með því að safna und
irskriftum og senda áskoranir
og á ýmsan annan hátt, er
vafalaust sterkasta vopnið
sem Dubcek og aðrir leiðtog-
ar landsins ráða yfir í viðræð-
unum við sovézku leiðtog-
ana.
Fá ekki aff taka þátt í
„Heimsmóti æskunnar".
Blöð hér skýrðu frá því í
gær, að æskufólki, sem verið
hefði á leið til „Heimsmóts
æskunnar" í Sofíu, höfuðborg
Búlgaríu frá Tékkóslóvakíu
í dag, hefði verið neitað af
yfirvöldum Búlgaríu um heim
ild til að fara inn í landið,
þótt sendiráð Tékkóslóvakíu
í Sofíu og fulltrúar Tékkósló-
vakíu í skipulagsnefnd móts-
ins hefðu skorizt í leikinn og
gert allt, sem þessir aðilar
gátu til þess að koma í veg
fyrir þetta bann.
Stuffningsmenn Novotnys aff
verki.
Talið er nú fullvíst að vopn
um þeim, sem fundust fyrir
nokkru ekki alllangt frá landa
mærum V-Þýzkalands hafi
verið komið fyrir af einbverj
um, sem vildi skapa ókyrrð
í landnu. Vopnin fundust, þar
sem þau höfðu verið falin í
skurði undir brú nokkurri.
Vopn og skotfæri, sem komið
hefði verið fyrir á slíkum
stað, mundu hafa eyðilagzt
í fyrstu rigningu á eftir. Þá
er enn fremur á það bent, að
engin leyniþjónusta myndi
hafa farið að svo barnalega,
að skilja eftir einkennismerki
sín á vopnunum. Er talið, að
einhverjir, sem styðja No-
votny, fyrrum forseta, hafi
staðið að því.
— 120 piltar...
Framhald af bls. 3#
Fram í 24. riðli, saman með: BK
Heid, Noregi, Efterslægtens BK,
Danmörku og Varde HK, Dan-
morku. — 1 C flokki er KR í 17
riðli ásamt IF Swithiod, Svíþjóð,
Vasterás HF 1, Svíþjóð og Al-
bertslund IF, Danmörku. FH er
í 19. riðli ásamt IFK Malmö,
Svíþjóð, Litslena IF, Svíþjóð og
Gislinge GF, Danmörku. Fram
er í 20. riðli ásamt IFK Nyköpr-
ing, Svíþjóð, IK Sund Svíþjóð,
Holte IF Danmörku og Testrup-
Márslet UF, Danmörku.
I kvennaflokki E, er Fram í
6 riðli ásamt Fredrikstad HK,
Noregi, Holbæk HK, Danmörku,
ASA, Danmörku. Og í F flokki
eru Framstúlkumar í 1 riðli
ásamt Bækkelagets Sportsklup
(en það félag sér um mótið)
Pedersborg GIF, Danmörku og
Padborg IF, Danmörku.
OSLO Cup 1965
Til gamans má geta að síðast
er keppni þessi fór fram urðu
etfirtalin félög sigurvegarar:
A fl. Fredensborg SB, Noregi.
B fl. LUGI, Lundi, Svíþjóð.
C fl. Kungl. Flottans IF, Karls-
krona, Svíþjó'ð.
D fl. engin keppni.
E fl. Virum Sorgenfri HK, Dan-
mörku.
F fl. Gislinge GF, Danmörku og
G fl. BK Freja, Kaupmannahöfn.
Féll nf hestbaki
EGILSSTÖðUM — Aðfaranótt
sunnudags féll maður Stefán
Medusa'lemsson Kerúlf frá Hrafn
kelsstöðum í Fljótsdal og slas-
aðist svo að hann missti meðvit-
und og var hann fluttur suður
með flugvél á sunnudag.
Hestamannamót var hér um
helgina, en slysið varð utan móts
svæðisins. Voru tveir menn sam
an á hestbaki, og lenti hestur
Stefáns í vír. Steyptist Stefán af
baki og fékk höfuðhögg.
Stefán var fluttur til Reykja
víkur og í Laindspítalann. Síð-
degis í gær var hann ekki kom-
inn til meðvitundar.
- BIAFRA
Framhald af bls. 1
úr höndum Biafra-hers, og séu
Biaframenn hvarvetna á undan-
hatdi.
Meðal matvæla, sem bíða flutn
ings frá Fernando Po tiil Biafra,
er talsvert magn af skreið frá
Noregi. í frétt frá Oostó er sagt,
að þrjár flugvélaT bíði aðgerðair-
lausar á flugvelili á eyjiunni, en
flugvélar þessar gætu flutt Bi-.
afrabúum um 100 lestir af skreið
daglega, og dregið mjög úr hung-
ursneyðinni.
- SÖSIALISMI
Framhald af bls. 3
orðið nýtt afl, sem skapar
nýja sögu.
Félagar Babirek, Bilak.Cer
nik, Dubcek, Koler, Kriegl,
Piller, Rigo, Smrkovsky, Spa
cek og Svestka (fulltrúarnir
11 í forsætisnefnd Kommún-
istaflokks Tékkóslóvakíu), fé
lagar Kapek, Lenart og Sim-
- on (varafulltrúarnir þrír)
vera kann að þið séu ekki
sömu skoðunar um allt. Sum-
ir ykkar, enda þótt þið befð-
ust saman í janúar, eru harð-
lega gagnrýndir fyrir mistök
fyrir þann tíma. Þannig er
hlutskipti stjórnmálamann
anna, og mánuðirnir sjö sem
liðnir eru frá því í janúar,
hafa sannað að enginn reynir
að breyta þessari gagnrýni í
blóðhefnd. Það yrði hrapal-
legt, ef einkaskoðanir ein-
hvers ykkar yrðu þeirri
ábyrgð yfirsterkari, sem þið
berið á þessari stundu á
14.361.000 manna þjóð, er þið
sjálfir tilheyriS.
Framkvæmið, skýrið, en
verjið sem einn maður þá
braut, er við höfum lagt á og
munum aldrei hverfa af lif-
andL Á allra næstu dögum
munum við fylgjast með eftir
væntingu með viðræðum ykk
ar, frá einni stund til annarr-
ar. Óþreyjufull munum við
bíða eftir tilkynningum ykk-
ar. Hugsið um okkur, skrifið
í okkar nafni örlagasíðu í
sög-u Tékkóslóvakíu. Skrifið
hana með gætni, en þó fyrst
og fremst með hugrekki.
Það yrði ógæfa okkar og
skömm ykkar, ef þessu gullna
tækifæri yrði sleppt. Við
treystum ykkur.
Jafnframt skjótum við máli
okkar til samborgara okkar
sem eru sömu skoðunar, með
þeirri ósk, að þeir styðji þenn
an boðskap.
Vkkar,
(eyða fyrir undirskriftir)
Prag, 26. júlí 1968.
Pavel Kohout, höfundur bréfs
ins.
- FRAM
Framhald af bls. 30
Stuttu síðar er hin umdeilda
vítaspyrna dæmd. — Varnarleik
maður ÍKF ætlaði að spyrna
fram völlinn en hitti ekki knött
inn sem aftur á móti snerizt
upp í hendi leikmannsins. Dóm-
arinn flautaði og dæmdi víta-
spyrnu. Helgi Númason fram-
kvæmdi spyrnuna. Markmaður
varði og knötturinn hrökk af
honum fram fyrir fætur Helga,
sem hann sendi að þessu sinni
örugglega í mark (1:1).
Keflvíkingar brugðust mjög
illa við þessum harða dómi. En
í síðari hálfleik átti Fram meira
í leiknum, þótt þeir skorúðu
ekki fyrr en á 78. mín. leiks-
ins, er Helgi skoraði upp úr
horni.
Á síðustu mínútu munaði
minnstu að Keflvíkingum tæk-
ist að skora, er markmaður Fram
hafði mistekizt að verja, en af
snarleik tókst honum að hrifsa
knöttinn er hann var á leið í
mark. Nokkrir áhorfenda vildu
telja að knötturinn háfi verið
inni, en hver dæmir leikinn
nema dómarinn og í þetta sinn
var það Magnús Fétursson, sem
dæmdi. Um dóma hans eru ekki
allir sammála, en það á ekki
við um þennan dómara einan.
Á.Á. - N