Morgunblaðið - 30.07.1968, Blaðsíða 32
RITSTJORIM • PRENTSMIÐJA
AFGREIÐSLA»SKRIFSTOFA
SÍMI 10.100
RITSTJORN • PRENTSMIÐJA
AFGREIÐSLA'SKRIFSTOFA
SÍIVII 10*100
ÞRIÐJUDAGUR 30. JULÍ 1968
Sprettan jókst
með vætunni
*
\ kalblettunum þýtur upp arfi
Mbl. hringdi í nokkra bændur
og fréttaritara til að frétta af
heyskaparhorfum. Með vætunni,
sem verið hefur víða um land
að undanförnu, hefur rætzt úr
Nýr forseti
teknr við em-
bætti 1. dgúst
DR. KRISTJÁN Eldjárn tekur
við embætti forseta íslands 1.
ágúst n.k. Athöfnin hefst í Dóm-
kirkjunni kl. hálf fjögur en af-
hending kjörbréfs fer sfðan fram
í sal neðri deildar Alþingis.
Þegar kjörbréf hefur verið af-
hent, munu forsetahjónin koma
fram á svalir þinghússins.
Þeir, sem ætla að vera við
kirkjuathöfnina, eru beðnir að
vera komnir í sæti fyrir kl. hálf
fjögur. í Alþingishúsinu rúmast
ekki aðrir en boðsgestir. Gjallar-
homum verður komið fyrir úti
svo að menn geti fylgzt me’ð því,
sem fram fer í kirkju og þing-
húsi. Lúðrasveit mun leika á
Austurvelli.
(Frá forsætisráðuneytinu).
sprettu, en kalblettirnir verða þó
ekki slegnir á þessu ári. Með
vætunni hafa þeir að vísu víða
grænkað, en það er arfi sem
þýtur þar upp, til lítillar ánægju
fyrir bændur. Víða hefur þessi
vætutíð að undanförnu bætt mik
ið úr, nú eru bændur að byrja
að slá og rigning ekki lengur
æskileg.
157 ha af dauðkölnum blettum
í Reykhólasveit
Sveinn í Miðhúsum 1 Reyk-
hólasveit kvað sprettu að lagast,
svo að heyskapur gæti orðið
Framhald á bls. 31
Grunnurinn á horni Ingólfsstrætis og Hallveigarstígs. Netin, sem lögð
sjást á myndinni.
yfir dýnamitið,
Sprenging í miðbænum
grjóthríðin buldi á götuntim og hús nötruðu
VEGFARENDUM og öðrum sem
staddir voru í nágrenni Skóla-
vörðustígs, á sjötta tímanum í
gær, brá heldur en ekki í brún,
þegar sprengjudruna kvað
skyndilega við og grjótinu
rigndi niður á götuna. Hér var
um að ræða sprengingu í grunni
á horni Hallveigarstígs og Ing-
ólfsstrætis. Þar er nú unnið að
byggingu á vegum Byggingar-
félags iðnaðarmanna og virðist,
Krístján Valgeir með 1480
tonn á 3 vikum
HásetahButur 47 þús. krónur
VOPNAFJÖRÐUR, 29. júlí —
Kristján Valgeir kom hingað á
laugardagr með 283 tonn af síld,
í síldarverksmiðjuna hér. Hefur
skipið aflað 1480 tonn á 3 vikum,
er það hefur verið á síldarmið-
unum norðaustur í hafi. Skipið
hefur lagt upp aflann í síldar-
móttökuskip, bæði til söltunar
og vinnslu í verksmiðjum í landi.
Þrisvar til söltunar.
Fréttama'ður blaðsins átti tal
við Hafstein Guðmundsson, skip
stjóra og spurði hann nokkurra
spurninga viðvíkjandi veiðunum.
Farið var á miðin um mánaða-
mótin júní—júlí. Siglingin að
landi tók 77 klst.
Hafsteinn sagði að aðalveiði-
svæðið í júlí hefði náð allt norð-
ur á 78. breiddargráðu. Hann
kvað vera mikinn aragrúa af
skipum á miðunum, sérstaklega
rússnesk og norsk. Ég spurði,
hvert honum fyndist síldin ganga
núna. Kvað hann hana að undan
förnu hafa gengið suður og vest
Shogafjarðar-
bótar fiska vel
Bæ, A-Skagafirði.
BÁTARNIR fiska sæmilega vel
núna. Frystihúsin taka enn við
fiski, en þar sem engin sala er
þaðan, fer nú að þrengjast um í
frystihúsunum.
ur, í átt að landinu. Annars
sagði hann, að sér litist illa á
þessa veiðia'ðferð til frambúðar
fyrir Islendinga og vera hálf
hræddur um að við værum að
ganga á stofninn. Ekki litist sér
sízt illa á að gera síldina svona
verðlitla með því að landa henni
í verksmiðjur. Hann sagði, að
norsk skip væru þarna og keyptu
síld til söltunar og borguðu fyrir
hektolíterinn 250 kr. Það eru um
90 kg. í hektolitemum. Á sama
tíma borga ísl. skip, sem kaupa
Framhald á bls. 2
Mörg umferðarslys á
Akureyri um helgina
AKUREYRI, 29. júlí. — Mörg
umferðaróhöpp urðu á Akureyri
og nágrenni nú um helgina. Hið
fyrsta varð kl. 3 aðfaranótt laug-
ardags, þar sem bílar skullu sam
an við framúrakstur og lentu út
af sitt hvomm megin vegarins.
Engin teljandi mciðsl urðu. Kl.
7 á laugardagskvöld valt lítill
fólksbíll í beygjunum vestan í
Vaðlaheiði. Bíllinn, sem var al-
veg nýr, skemmdist mikið, en
ökumann, sem var einn í bílnum,
sakaði ckki.
Um kl. 9 á laugardagskvöld
tók fólksbíl úr Reykjavik niðri
á stórum steini, sem stóð upp úr
götiuslóða að tjaldstæði Reykvík-
rnganna skammf otfan við Gderá.
Fólk í framsæti kastaðist fram
á mœlaborðið og var flutt í
sjúkrahús vegna höíuðmeiðsla.
Um svipað leyti fór bíR með
tveimux útlendinguim út atf veg-
inum við brýmar yíir Eyjatfjarð-
ará. Þeir meiddust ekki. Kl. 4 á
sunudagsnótt var folkisibíl ekið á
ljósastaur og skemmdist mjög
Framhald á bls. 2
sem varúðarráðstafanir séu held
ur af skornum skammti. Nokkrar
skemmdir urðu á þremur bílum
í grendinni og má telja mildi að
ekki urðu slys á mönnum.
Þegar fréttamaður kom á stað-
inn hitti hann að máli Magnús
Guðmundsson, starfsmann við
bygginguna. Magnús sagði ástæð
una fyrir óhappinu þá, að um-
búnaðurinn við sprenginguna
hefði verið miðaður við lausan
jarðveg, en augljóst væri að
tvístrast hefði hörð blágrýtis-
hella, sem ekki hefði sézt eða
verið búizt við.
Þarna hefði verið unnið ið
Læknir á
Reykhólum
VIÐ höfum héraðslæknir í sum-
ar, sagði Sveinn í Miðhúsum í
Reykhólasveit, er Mbl. spurði
hann frétta um daginn. Það eru
vissulega tíðindi þar í sveit, þar
sem enginn læknir hefur verið
þar í 2 ár. Jóhann Guðmunds-
son gegnir læknisstörfum nú í
4 mánuði. Við erum fegnir hvað
lítið sem er, sagði Sveinn í Mið-
húsum og bætti því við, að lækn
irinn hefði nóg að gera. Enda
skildist okkur að menn yrðu að
flýta sér að ljúka af öllum las-
leika fyrir veturinn.
sprengingum í langan tíma, um-
búnaðurinn verið fullnægjandi
og ekkert komið fyrir. Á Skóla-
vörðustíg mátti sjé grjóthnull-
unga og mulning á götunni og
svo mikill kraftur fylgdi spreng-
ingunni að grjóthríðin stóð nið-
ur á Laugaveg. í verzluninni
Pfaff hafði allt leikið á reiði
skjálfi og höfðu starfsmenn
verzlunarinnar hirt nokkra
steina frá götunni og slegið þeim
á vigt. Sá þyngsti vó 100
grömm en annar 80, má það tejj-
ast mesta mildi að enginn skyldi
Framhald á bls. 31
Síldveiðibann
við
Suðvesturland
Samkvæmt reglugerð nr. 37
22. febrúar 1968 um breytingu
á reglugerð um bann við veiði
smásíldar nr. 7 22. febrúar 1966,
eru síldveiðar bannaðar á tíma-
bi'linu frá 1. marz til 15. ágúst
næstkomandi á svæði fyrir Suð-
ur- og Vesturlandi frá linu, sem
hugsast dregin í réttvísandi suð
austur frá Eystra-Horni suður
um og vestur fyrir að línu, sem
hugsast dregin í réttvísandi norð
vestur frá Rit.
Að fengnum tillögum Hafrann
sóknastofnunarinnar og Fiskifé-
lags fslands hefur ráðuneytið
hinn 26. þ.m. gefið út reglugerð
um breytingu á áðurgreindri
reglugerð, þar sem bann viðsíld
veiðum á greindu svæði er fram-
lengt til 1. september næstkom-
andi.
(Frá Sjávarútvegsmálaráðuneyt
inu).
Varðskip með skurðlækni og
viðgerðarmenn á síidarmiðin
Um miðja vikuna fer varðskip
áleiðis til síldarmiðanna norð-
austur í hafi til aðstoðar við
síldveiðiflotann. Verður um borð
læknir vegna síldarsjómannanna
sem nú eru líklega allt að 1000
á miðunum, og einnig verða við-
gerðarmenn fyrir tæki skipanna.
Handlækningadeild Landspítal-
ans var beðin um að skipuleggja
Iæknaþjónustuna og hefur einn
af skurðlæknum sjúkrahússins,
Hannes Finnbogason, ákveðið að
fara í sumarleyfi sínu fyrstu vik
urnar, en síðan mun próf. Snorrl
Hallgrímsson sjálfur hafa í
hyggju að taka við. En erfitt er
að fá lækna til þessara hluta.
Um borð í varðskipinu Ægi er
aðstaða til þess að veita læknis-
þjónustu.