Morgunblaðið - 22.08.1968, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 196«
Steinvör á Hvamms-
tanga er áttræð í dag
STEINVÖR er fædd í Kambhóli,
sem er fjallakot framarlega á
Miðfjarðarhálsi. Þetta er kannski
orðið stórbýli nú á seinni hloita
tuttugustu aldar, en þegar Stein-
vör var í heiminn borin, var það
eitt með lélegustu kotum í V-
Húnavatnssýslu. Túnið gaf af
sér rúmlega hálft kýrfóður, en
kindabeit var úrvalsgóð og
fjallagrös nærtæk, en þau voru
fyrrum gott mannfóður.
Benóný Jónsson og Jóhanna
Guðmundsdóttir, foreldrar Stein
varar, bjuggu í Kambhóli. Þau
áttu 9 börn á palli og voru blá-
fátæk. En þau voru fluggáfuð,
hagmælt meira en í meðallagi og
atorkusöm. Um þau mátti segja:
„Þau áttu ekki af neinu nóg,
nema von og kvæðum“. Þau
voru bæði jafnvíg á að gera
glettnislega hringhendu um lítils
verða atburði í fjallakotinu, en
hver vísuhending var eins og
sóargeisli í skortinum og fátækt-
irnii. Símon Dalaskáld var þar
stundum gestkomandi. Þá var
einis og jólahátíð í baðstofukríl-
inu, þó veizlukosturinn væri
lítið annað en dökkur grasa-
grautur. Léttar og liprar vísur
t
Eiginkona mín og móðir
okkar
Guðlaug Guðjónsdóttir
frá Brunnastöðum,
Vestnrgötu 69, Akranesi,
andaðist að Sjúkrahúsi
Akraness 19. ágúst.
Elís Guðjónsson og börn.
t
Eiginmaður minn
Jóhann Jónsson
▼élstjóri,
andaðist á sjúkradeild
Hrafnistu 20. ágúst sl.
Fyrir hönd aðstandenda.
Þuríður Hallbjörnsdóttir.
t
Maðurinn minn og faðir
Jens Kristján
Kristjánsson
bifreiðastjóri,
Melgerði 36, Kópavogi,
varð brá'ðkvaddur 20. ágúst.
Þórdís Guðjónsdóttir,
Guðrún W. Jensdóttir.
flugu eins og sumarfiðrildi um
lágreistan kotbæinn. Jóhanna
húsfreyja var sálfræðingur.
Börnin hennar ung og mörg
voru hraust, heilsugóð og mat-
lystug. Fjallagrasagrauturinn var
rammur á bragð og krökkunum
þótti hany ekki sælgæti. Jóhanna
móðir þeirra vissi að þeim var
lífsnauðsyn að borða sem mest
af þessari kjamafæðu, þessvegna
skammtaðj hún hverju bami
fjórðahluta úr rúgköku ásamt
litlum tólgarmola, en það kjör-
meti máttu þau ekki bragða fyrr
en þau höfðu lokið grasagrautn-
um.
Frumbernska Steinvarar, sem
er áttræð í dag, leið við rýran
matarkost, en andleg verðmæti
voru þeim mun ríkulegri á af-
skekktu fjallabýli. Því til sönn-
unar er það, að systkinin henn-
ar mörg ásamt henni sjálfri, hafa
mikla skáldgáfu, sem er rómuð
af þeim sem ljóðlist unna.
Þegar Steinvör var 10 ára kom
gömul, kom marskálkurinn með
Ijáinn og sló stóran skára í
Kambhólskotinu og lagði Benó-
ný, föður hennar að velli. Jó-
hanna, móðir hennar, stóð þá
ein eftir með stóran barnahóp,
en únræðin, forsjá stórtrar
fjölskyldu, voru kistulögð
með húsbóndanum. Sveitar-
stjórn ráðstafaði heimilinu
mannúðlega og kom börnunum
fyrir í góðum stöðum. Hálfdán
Guðjónsson, prófastur á Breiða-
bólstað, tók Steinvöru til upp-
eldis og þar var hún til 17 ára
aldurs og þótti þá bera af ungum.
Lífsins kynngi kallaði úr ýms-
um áttum: Steinvör varð náms-
mey i Kvennaskólanum í Reykja
vík. Eftir skólavistina stundaði
hún barnakennslu á vetrum og
t
Hjartkær eiginkona mín
Katrín Sigurðardóttir
verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju föstudaginn 23.
þ.m. kl. 1.30 e.h.
Jörundur Sigurbjarnarson.
t
Faðir okkar, tengdafaðir og
afi
Sigurbjörn Sigurðsson
Stórholti 19,
verður jarðsunginn föstudag-
inn 23. ágúst kl. 3 síðdegis
frá Fossvogskirkju.
Börn, tengdabörn og bama-
böm.
átti margra kosta völ. Minnist
Steinvör jafnan þessara ára með
mikilli hlýju.
Þegar Steinvör var tuttugu og
fjögra ára gömul giftist hún Sig-
urði Pálmasyni, sem er þjóðkunn
ur maður að mikilli atorku og
góðum mannkostum. Eftir nokk-
ur misseri settust þau að á
Hvammstanga, þar sem Sigurður
opnaði sölubúð. Hann hafði þó
fleira í taki til að byrja með,
því hann var vel menntaður til
ýmsra starfa. Verzlunarrekstur-
inn var smár í sniðum til að
byrja með, en óx með hverju
ári. þvl Sigurður var úrræða-
mikill, orðheldinn svo af bar og
greiðafús. Vinsældir þeinra hjóna
urðu strax miklar í kauptúninu
og öllum sveitum, sem sóttu
þangað viðskipti. Sigurður hefur
alla ævi verið hamhleypa til
vinnu og rak löngum verzlun
sína með litlum aðkeyptum
vinnukrafti. Steinvör var líka
verkamikil og verkhög.
Ekki get ég lokið svo við þessa
litlu afmælisgrein, að ég drepi
ekki nokkuð á ævistörf þessara
merku hjóna; þ. e. að segja sjálft
þjóðprófið, sem hver og einn tek
ur með verkum sínum. Verzlun-
arrekstur Sigurðar Pálmasonar
hefur dafnað og aukizt hægum
en föstum skrefum fram á þenn-
an dag. Þó hefur hið rótgróna
lánsverzlunarfyrirkomulag verið
þungur hemill á allri verzlunar-
starfsemi. Aldrei veit ég til að
Sigurður hafi neitað fátækum
manni um vörulán, utan einu
sinni, að hann lokaði stórum
skuldareikningi fyrir örsnauðum
T
Útför
Sigurlínu Jónsdóttur
frá Hlíð, Austur-Eyjafjöllum,
fer fram frá Eyvindarhóla-
kirkju laugardaginn 24. ágúst
kl. 1.
Aðstandendur.
t
Útför
Guðrúnar
Guðmundsdóttur,
Háholti 23, Akranesi,
sem lézt í Sjúkrahúsi Akra-
ness laugardaginn 18. ágúst
sL verður gerð frá Akranes-
kirkju laugardaginn 24. ágúst
1968 kL 2 e.h.
Fyrir hönd systkina minna
og annarra vandamanna.
Guðrún Ólafsdóttir.
t
Eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma
Helga Jónsdóttir,
Kotvelli,
ver'ður jarðsungin frá Stór-
ólfshvolskirkju laugardaginn
24. ágúst. Húskveðja verður
frá heimili hennar og hefst
kl. 2 eftir hádegi.
Fyrir hönd vandamanna.
Sveinn Sveinsson.
t
Jarðarför föður okkar
Jóns Ólafssonar
frá Austvaðsholti,
fer fram frá Skarðskirkju
laugardaginn 24. ágúst kl.
14.30.
Minningarathöfn verður sama
dag kl. 10,30 í Fossvogskirkju.
Bílferð verður frá Umferðar-
miðstöðinni kl. 11,30.
Blóm afþökkuð en þeim
sem vildu minnast hins látna
er bent á Hjartavemd.
Börn hins látna.
barnamanni, sem átti, ekki fyrir
skuldum. En skuldarinn kunni
lagið á Sigurði og sendi konu
sína í búðina að biðja um vöru-
lán. Siguirður sagði sem var, að
um frekari lánsúttekt væri ekki
að ræða. Konan fór þá að gráta,
en við það fór Sigurði líka að
vökna um augu og jafnharðan
dró hann lokuna frá skuldareikn
ingnum og konan fékk þá og
framvegis það sem heimili henn-
ar þarfnaðist. Þess vil ég geta,
af því að ég er því fcunnugur,
að flestir eða allir vildu standa
í skilum við þennan hjartahlýja
mann, eftir því sem framast var
unnt.
Steinvör hefur staðið fyrir
stóru heimili, með miklum dugn-
aði og höfðingsbrag, meira en
hálfa öld. Oft hafa leitað skjóls
í hennar húsakynnum gamal-
menni og hrakningsfólk, en
henni er lagið að fara mildumn
móðurhöndum um hrjáða og
hrelda.
Steinvör er af þeim sem
þekkja til hennar, sjaldan nefnd
með föðurnafnL heldur ævinlega
„Steinvör á Hvammstanga".
Þetta kemur að einhverju leyti
til af því, að föðurnafnið er
svifaþungt og þó ekki síður
vegna þess, að hún hefur uim
hálfrar aldar skeið, gefið staðn-
um reisn og virðingu með verk-
um sínum og miklum persónu-
leik.
Ég, ásamt konu minni, færi
þessari áttræðu konu hugheilar
hamingjuóskir, með virðingu og
þökk.
Steinvör er hér í borginni um
þessar mundir og heldur til hjá
dóttur sinni og tengdasyni, að
Holtsgötu 6.
Magnús JónsKon.
Frú Þorbjörg Alberts-
dóttir — Minning
FRÚ Þorbjörg Albertsdóttir and-
aðist 14. þ.m .í sjúkrahúsinu í
Keflavík. Þar hafði hún dvalizt
í 9 ár, en þó jafnan 'haft nokkra
fótavist.
Þorbjörg var fædd 9. október
1890 að Skálum á Langanesi,
yngst 5 bama hjónanna Soffíu
Eymundsdóttur og Alberts Finns
sonar. Er Þorbjörg var 6 ára,
fluttist hún með foreldrum sín-
um til Bakkafjarðar og ólst þar
upp. Snemma þurftj. Þorbjörg
að fara að vinna fyrir sér eins
og títt var um ungmenni í þá
daga. Árið 1913 fluttist hún suð-
ur og settist að í Höfnum. Ári
síðar giftist hún Gissuri Magn-
ússyni. Þau keyptu húsið Sól-
heima í Kalmanstjarnarhverfi
og áttu þar heirna lengst af, en
síðustu árin bjuggu þau að
Klöpp i Höfnum. Mann sinn
missti Þorbjörg snemma árs
1954.
Ég kynntist þeim hjónum, er
ég var við sjóróðira að Kal-
manstjöm í Höfnum. Við Gissur
unnum báðir við sama bátinn
og bær þeirra var næstur við
Kalmanstjörn. Þdð var ekki ein-
göngu vegna legu sinnar, að bær
inn bar með réttu nafni Sól-
heimar, heldur hitt, að það var
ávallt ylur og birta í bænum,
þangað var notalegt að koma.
Bæði hjónin voru alúðleg, hress,
kát og gamansöm. Og ávallt
bauð Tobba kaffi. Það viirtist
alltaf vera heitt á könnunni hjá
henni. Og sannariega var það
gott, í fábrotnu hversdagslífi, að
koma í hlýtt og notalegt eldhús-
ið til Tobbu og njóta gestrisni
4
EG»R» KIKISINS
Ms. Esja
fer vestur um land 28. þ. m.
Vörumóttaka daglega til áætl-
umarhafna.
Kennarar
2 kennara vantar við barna-
og unglingaskóla úti á landi.
Góð skilyrði — húsnæði.
Uppl. gefur skólastjóri í sáma
82782 kl. 9—12 og 19—20
næstu daga.
t
Innilegar þakkir fyrir sam-
úðarkveðjur og margvíslega
vinsemd við andlát og jarð-
arför
Huldu Matthíasdóttur,
Túngötu 18, Keflavík.
Aðstandendur.
heninar og glaðværðar, sem
gerði alla léttari í lund. Hún var
þannig ávallt veitandi, þótt efn-
in væru mjög takmörkuð.
Þorbjörg var vel gerð, hrein
og bein, Ijúf og létt í skapi. Hún
kvartaði ekki, enda þótt hún
ætti stumdum við heilsuleysi að
stríða. Húm bjó yfir ríkum skiln-
ingi og trú á það, sem öllu ver-
aldlegu er dýrmætara.
Við, sem höfum átt því láni
að íagna að eiga um stund sam-
leið með jafn heilsteyptum og
góðum siamferðamanni og Þor-
björg var, þökkum hin traustu
og góðu kynni.
Páll V. Daníelsson.
SAMKOMUR
Fíladelfía.
Almenn samkoma kl. 8,30 á
fimmtudag.
ÍSLAND
Ætlið þér að dveljast erlend-
is um hríð? Eigið þér erlenda
vini, sem vilja fræðast um
ísland?
ísland, litskyggnuflokkur
Fræðslumyndasafnsins, er
gott veganesti og tilvalin gjöf.
50 valdar litskuggamyndir úr
öllum landshlutum, atvinnu-
lífi og menningarsögu.
Skýringar á dönsku eða
ensku. Plastrammax.
Smekkleg askja.
Verð kr. 500.
Fræðslumyndasafn
rikisins,
Borgartúni 7.
Símar 21571 og 21572.