Morgunblaðið - 22.08.1968, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 1968
KR-ingar í 2. umferö
án keppni viö Tékka?
KR-ingar sem urðu bikarmeist-
arar íslands í knattspymu á sl.
ári tilkynntu þátttöku sina í
Evrópukeppni bikarmeistaraliða
og drógust í 1. umferð á móti
tékkneska liðinu Siovan Brati-
slava.
Samkvæmt ákvörðun Evrópu-
sambandsins áttu ledkir liðanna
að fara fram í Rratislava 18.
september og í Reykjavík 2. okt-
óber. Höfðu KR-ingar áramgurs
laust reynt að fá leikdögum
breytt, en leikdagar eru mdðviku
dagar og óheppilegir hériendis
er haust er komið, en fengu synj
un.
Ef um áframhaldandi átök
verður að ræða í Tékkóslóvakíu
er mjög líklegt að ekkert verði
af þátttöku Slovam Bratislava í
keppninni í ár, og fara KR-ing-
ar í 2. umferð keppmihmar án
kappleiks.
Hver framvinda málsins verð-
ur, er ekki vitað á þessari
stundu, en málin munu skýrast
næstu daga.
Dorv/r enn beztir
á Norðurlöndum
EINS og flestir vita, keppa Norð
urlandaþjóðirnar fjórar, Ðan-
mörk, Svíþjóð, Noregur og Finn
land um Norðurlandabikar í
knattspyrnu. Keppnin er tvíþætt,
stendur önnur þeirra í eitt ár í
senn, en á hverju ári heyja lönd
in innbyrðis landsleiki sín á
Júgóslavar senda 75 manna
keppendahóp til OL í Mexi-
co og fremst í þeim flokki er
hin 20 ára gamla Vera Nic-
olic, sem á heimsmet í 800
metra hlaupi kvenna, 2:00.5
mín, sett fyrir tveim vikum.
Hún er eini heimsmethafi
Júgóslavíu.
milli, en einnig nær keppni yfir
4 ára tímabil, en á því keppa
löndin tvívegis hvort við annað,
heima og heiman.
Damdr unmu síðustu 4 ára
keppni með al’lmiklum yfirburð-
um en ný 4 ára keppni 'hófst sl.
vor. Bjuggust margir við að Dan
ir yrðu nú að láta í minni pok-
ann, þar sem mangir þeirra
landsldðsmanma hafa gengið yfir
í raðir atvinmumanma. En á ann-
an veg hefur farið, þó eigi sé
enn lokið keppni þessa ára. Tafl-
an lítur nú þannig út:
Danmörk 3 2. 0 1 9-4 4
Svíþjóð 1 1 0 0 2-1 2
Noiregur 2 10 1 5-6 0
Fimmland 2 0 0 2 2-7 0
Stúlkurnar í Kópavogi
byrjaðar í knattspyrnu
SUÐUR í Kópavogi er kven-
fólkið byrjað að æfa knatt-
spymu. Málið byrjaði á þann
veg að tvær stúlkur, Ihugðust
byrja knattspymuæfingar hjá
Breiðabliki, félaginu í kaup-
staðnum. Þær fengu synjun
vegna þess, að ekki var talið
heppilegt að þær þjálfuðu
með drengjunum og í þeirra
æfingatima.
I»ær stöllur vom ekki á þvi
að gefast upp og smöluðu þá
fleiri stúlkum saman sem
áhuga höfðu á knattspyrnu og
(engu þjálfara, Guðm. Þórð-
arson í Breiðabliki. ,
Stúlkurnar munu nær allar
vera í 2. floJkki í Val í hand-
knattleik svo að áhuginn á
knettinum er þaðan. Þær hafa
sótt æfingar vel og hvort sem
úr þessu verður sá kjarai sem
nægir til að kornia af stað
knattepymu ktvenna, þá er
þetta þó allavega fyrsti visir-
inn að slíku.
Stúlkuraar á myndinni eru
frá vinstri: Vigdís, Elín, Kaitr-
ín, Hrefna, Birgitta, Kristjana,
Hildur og Guðlaug Hjaltadótt
ir. Þær Hrefna og Kristjana
vora uppihaftsmenn að æfing
um flokksins.
Hverjir eiga að fara til Mexico
og hverjir að sitja eftir?
INNAN örfárra daga verður
Olympiunefnd íslands að taka
sína örlagaríku ákvörðun um
það hversu marga kieppendur
á að senda frá Islandi til Ol-
ympíuleikjanna í Maxico. —
Vandinn er mikill, þó um fáa
sé að ræða, og takmarkar rýr
ir sjóðir nefndarinnar fjölda
þátttakendg.
Málin standa nú svo að fjór
ir í hópi sundfólks, Ellen
Ingvadóttir, Hrafnhildur Guð
muindsdóttir, Guðmundur
Gíslason og Leiknir Jónsson
hafa náð þeim lágmörtoum, er
Sundsambandið setti.
Sömuleiðis hefur Guðmund
ur Hermannsson niáð lágmarki
er FRÍ setti í kúluvarpi og
segja má að Valbjöm Þorláks
son hafi einnig gert það, en
lágmarkið í tugþraut var sett
7200 einu sinni eða 7000 stig
tvívegis, en Valbjöm hefur
einu sinni náð 7184 stigum.
Jón Þ. Ólafsson hefur og
náð 2,06 í hástökki, en það
var sú hæð er tilskilið var að
ná tvívegia eða 2,09 einu
sinni.
í frjálsum íþróftum standa
og nálægt lágmörkum Þor-
steinn Þorsteeinsson í 400 m
hlaupi og skortir aðeins 2/10
úr sek, til að ná.
í lyftingum hefur Óskar Sig
urpálsson náð athyglisverðum
árangri en þar hafa ekki ver
ið sett lágmörk af innlendum
aðilum. Hann hefur hins veg-
ar náð lágmarki því er fram
kvæmdanefnd OL-leikanna
hefur sett fyrir þátttöku ef
eitthvert land ætlar að senda
tvo menn í keppni í hans lyft
ingaflokki.
Þar með munu mögulegir
þátttakendur íslenzkir upp-
taldir.
Og þar mieð hefst einnig
vandi Olympiunefndarnnar.
Hermann Guðmundsson einn
af stjórnarmönnum nefndar-
innar hefur sagt að ef allar
vonir nefndarinnar um fjár-
hagsstuðning rætist, þá muni
nefndin geta sent allt að fimm
keppendur, en að sjálfisögðu
er þörf fararstjóra með og því
fleiri eftir sem keppnisgrein
ar þátttakenda af fslands hálfu
eru fleiri. Gæti því allt að
einu dæmið orðið þannig að
þrír keppendux yrðu sendir
og þrír fararstjórar.
En dæmið liggur nú mjög
skýrt fyrir. Möguleikar eru
á að 4 fari í sundkeppnina,
3—4 í frjálsar íþróttir og 1 í
lyftingar. Níu er hæsta talan,
5 hafa náð lágmörkum og 2
næstum — auk lyftingamanns
ins.
Árangur sundfólksins bygg-
ist nú að verulegu leyti á
bættri aðstöðu, þar sem er
nýja laugin í Laugardal. Án
hennar er vafasamt að nokkur
úr hópi sundfóllksins hefði
náð lágmörkunum. Við getum
því glaðst veruiega yfir því,
að bætt aðstaða skapar betri
árangur og sannkölluð afrek.
Slíkt á að launa að verðleik
um en ekki að líta framhjá
Það verður því verulega erf
itt fyrir Sundsambandið að
gera upp á milli þeirra fjög-
urra er lágmörkunum hafa
náð, ef til þess kemur að Ol-
ympíunefndin segi svo til um,
að aðeins sé hægt að senda 2
eða 3 keppemdur í sund.
Það verður einnig erfitt fyr
ir FRÍ að velja — þó engan
veginn eins erfitt, að óbreytt-
um aðstæðum, — ef nefndin
segir svo til um að senda skuli
tvo keppendur í frjálsar í-
þróttir.
Og nú er komið að kjaxna
málsins. fsllenzkar íþróttir eru
ekki auðugri en »vo af afreks
fólki, að „aðeins" níu manns
hefur möguleika á þátttöku.
Ef Olympíunefndin getur
kostað fimm verða fjórir í
hópi afreksfólksins að sitja
eftir. Og það fellur í hlut sér
sambandanna að ákveða hver
á að sitja eftir. Slíkt er mjög
erfitt fyrir forráðamenn sem
hafa hvatt fóikið til marg-
faldra æfinga Olympíuleikj-
anna vegna — og svo verður
fólkið sem ákveðni og til-
skyldu lágmarki nær að sitja
heima og fær ekkert fyrir
sinn snúð.
íþróttir æfir fólk að vísu
ekki í því skyni að hafa eitt-
hvað ákveðið fyrir sinn snúð.
En þegar svo litlu munar sem
hér er, hvort sendir verða 5
eða 9, allt fólk í sama afreks-
flokki, þá hlefði Olympíunefnd
in átt að eiga einihvern vara-
sjóð, svo þétta fólk, sem er i
sérflokki á Íslandi, gæti þá
farið allt saman.
Og enn ér tækifærið til að
launa þeim fáu stjörnum, sem
enn halda frægðinni uppi í
íþróttum landsins. Án efa
myndu vinnuhópar og ýmsir
aðrir áhugamenn vilja leggja
sinn skerf fram til íslenzkrar
þátttöku í Olympíuleikum. —
Margt smátt gerir eitt stórt.
25 kr. á miann frá 10 þúsund
manns gerir það að yerkum
að allur hópurinn gæti farið
— og það með miklum glæsi-
brag. Þetta ættu forystumenn
að hugleiða vandlega, því tæki
færið er enn opið. — A. St.
Fiom vann í
2. flokki
VESTMANNAEYINGAR og
Fram léku tiil úrslita í lands-
móti 2. aldurstflokks' í knatf-
spymu. Fram vann með 3-1. Vest
mannaeyingar og KR léku til úr-
slita í 4. flokki og vaxð jafntefli,
1-1 og þarf að leika að nýju.
En þessir úrslitalei'kir sýna að
i Eyjamenn eiga mikið og gott úr-
val af yngri knattspymumönn-
um.
Úrslit í 3. flokki
í kvöld
í KVÖLD kl. 19,30 fer fram úr-
slitaleikur í 3. aQdursflokki pilta
í landsmóti KSÍ. TUl úrsilita leika
Valur og KR en bæði félögin
eiga mjög góð lið í þessum
flokki. Leikurinn fer fram á
Melavellinum.
Enska knattspyrnan
ÚBSLIT í vikunni:
Mánudag 1. deild:
West Ham ■ — Everton 1-4
2. deild:
Aston Villla — Millwall 1-1
Þriðjudag, 1. deid:
Burney — Southampton 3-1
Ipswich — Leeds United 2-3
Liverpool - - Stoke City 2-1
Nottinghm — Sheffield 0-0
Q.P.R. — Sundarland 2-2
2. deild:
BTÍstol C. - — Bolton 2-2
Bury — Cardiff
Charlton — Birmingham 3-1
Huddersfield — Norwich 2-2
Middlesbro — Crystal Pal. 4-0
Preston — Carlisle
Sheffield U . — Derby 2-0