Morgunblaðið - 25.08.1968, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 1968
IMiKgmfrfafrifr
Útgefandi Hf Arvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Sigurður Bjarnason fré Vigur
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Ritstjórnarfuiltrúi Þorbjörn Guðmundsson.
Fréttastjóri Björn Jóhannsson.
Auglýsingastjóri Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6. Sími 10-100.
Auglýsingar Aðalstræti 6. Sími 22-1-80
Askriftargjaid kr 120.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu. Kr. 7.00 eintakið.
ÓVISSA
að verður ljósara með
hverjum deginum sem
líður að kommúnistaríkin
eru ekki búin að bíta úr nál-
inni með innrásaraðgerðir
sínar í Tékkóslóvakíu. Mót-
spyrna Tékkóslóvaka fer dag
vaxandi og tekur á sig skipu-
legri mynd. Leynilegar út-
varpsstöðvar, sem færa sig
stað úr stað halda áfram út-
varpssendingum, nær algjör
samstaða virðist vera innan
kommúnistaflokks landsins
og almenningur sýnir inn-
rásarherjunum fyrirlitningu
sína á þann veg, að enginn
getur efast um. Þessi einhug-
ur tékkóslóvakísku þjóðanna
vegur þyngst og gefur mest-
ar vonir um að úr rætist.
Þá hefur það einnig vakið
athygli, að nokkur blæmun-
ur er á fréttum flokksblaðs-
ins Pravda og stjórnarblaðs-
ins Izvestía en hið síðar-
nefnda hefur skýrt frá því í
fréttum frá Prag að innrásin
mæti andstöðu fólksins í
landinu. Hugsanlegt er, að
þarna komi fram ágreining-
ur innan æðstu stjórnar
Sovétríkjanna, sem orðið get
ur Tékkóslóvakíu að liði.
Loks hafa önnur kommún
istaríki og þá sérstaklega
Rúmenía og Júgóslavía veitt
Tékkóslóvökum öflugan
stuðning og einnig er þýðing-
armikill stuðningur kommún
istaflokkanna í Frakklandi
og Ítalíu. Ennfremur hlýtur
sú almenna andúð, sem hið
glæpsamlega framferði
kommúnistaríkjanna í
Tékkóslóvakíu hefur mætt
um víða veröld að hafa ein-
hver áhrif, svo og sá álits-
hnekkir, sem Sovétríkin hafa
beðið af völdum þessa verkn
aðar.
Vera má að ekkert af þessu
hafi úrslitaáhrif á mennina í
Kreml, þótt frjálsir menn um
veröld alla geri sér vonir um
það, en spurningin nú er
fyrst og fremst sú, hvort stór
veldi kemst enn upp með það
á síðari hluta 20. aldar að
kúga smáþióð til hlýðni við
sig. Vonandi leiða næstu dag-
ar í Ijós, að þeir tímar eru
liðnir. Síðustu freffnir benda
til bess að hugsanlegt sé, að
hlutur Tékkóslóvaka fari
batnandi en allt er þó í
óvissu enn.
KAUPIN Á
SJÁLFSTÆÐIS-
HÚSINU
póst- og símamálastjórnin
hefur sent frá sér grein-
argerð vegna skrifa stjórnar-
andstöðublaðanna um kaup
Landssímans á Sjálfstæðis-
húsinu og kemur glögglega
fram af þeirri greinargerð,
að verðið á eigninni er í al-
gjöru samræmi við önnur
fasteignakaup, sem gerð hafa
verið í miðborginni og að
sumu leyti hagstæðara.
Verð lóðar og húss var 16,2
milljónir króna en bruna-
bótamat hússins er 12 millj.
króna. í fasteignakaupum
bæði ríkis og Reykjavíkur-
borgar hefur myndazt sú
venja að kaupa fasteignir á
brunabótamatsverði ef þær
eru í góðu ástandi en lægra
verð ef þau hafa verið göm-
ul og dýr í viðhaldi. Sjálf-
stæðishúsið er aðeins 22 ára
gamalt og í góðu ástandi,
enda aðeins nokkur ár síðan
verulegar lagfæringar voru
gerðar á húsinu.
í greinargerð póst- og síma
málastjóra kemur einnig
fram að miðað við gólfflöt,
sem byggja má á er lóðin
sem Sjálfstæðishúsið stend-
ur nú á keypt á mun hag-
kvæmara verði en lóðir, sem
ríkið keypti við Kirkjustræti
og Landssíminn við Thor-
valdsensstræti 6. Lóð Sjálf-
stæðishússins kostar skv. því
kr. 6.950 á fermetra, lóðimar
við Kirkjustræti kr. 9.834 á
fermetra og lóðir við Thor-
valdsensstræti 6 kr. 13.000 á
fermetra.
Loks kemur fram í grein-
argerð póst- og símamála-
stjóra, að talið hafi verið
nauðsynlegt að afla Land-
símanum frekara athafna-
svæðis í miðborginni nú þeg-
ar ekki sízt vegna þess að
verð lóða og fasteigna í mið-
borginni fer stöðugt hækk-
andi og mjög hagkvæmt að
byggja viðbyggingu við
Landsímahúsið á lóð Sjálf-
stæðishússins, m.a. vegna
þess að stigagangur er þegar
fyrir hendi og auðvelt að
tengja saman starfsemi í ný-
byggingu og því húsi sem
fyrir er. Verður þessi grein-
argerð póst- og símamála-
stjóra væntanlega til þess að
stóryrðaskrifum stjórnarand-
stöðublaðanna linni, enda eru
verði ef þau hafa verið göm-
þau tilefnislaus með öllu.
ÚLFAR í ÓVÆNTU
HLUTVERKI
ipékknesk-íslenzka félagið
efnir til mótmælafundar
í dag vegna árásarinnar á
11 fmj U TA N Ú R H IEIMI
eftir Dennis
Bloodworth
í KÍNA, eins og annars stað-
ar, er náinn kunningsskapur
undirrót fyrirlitningar. Lof-
söngvar til dýrðar Maó for-
manni verða sífellt umfangs-
meiri og milljónir Kínverja
eru að verða dauðleiðir á því
að tilbiðja hann.
Svo virðist sem vegsömun
Maós sé komin á stig nýrra
trúarbragða .Einbeiting þjóð-
arinnar að lestri verka hans
á hverjum degi til þess að fá
leiðbeiningar í öllum athöfn-
um, jafnvel í persónulegustu
fjölskyldumálum, hefur gert
Kínverja að einum stórfeng-
legum biblíusöfnuði. Stríðs-
menn sverja eiða frammi fyr-
ir myndum af gamla mann-
inum. Ódýrar altaristöflur
með úrdráttum úr guðspjöll-
um hans umhverfis fallega
mynd fást í næstu búð. í sum
um verksmiðjum safnast
verkamennirnir umhverfi.s
lítil Maóskrín þegar þeir
koma á morgnana og áður en
þeir fara á kvöldin.
Kínversk blöð hafa sagt
frá því, að íbúarnir í liflu
þorpi, sem hugsanir Maós
kom.u á fót, hefji dagsverkið
með því að safnast um mynd
hans og óska honum tíu þús.
ára lífs. Út.vaípsstöð úti á
landi skýrði frá því fyrir rúm
um mánuði, að járnbrautar-
lest hefði farið af teinunum
og skemmzt mikið. Margt
fólk var lokað inni í einum
vagnanna, sem vó salt á gljúf
urbarmi. Fólkið hrópaði
„Lengi lifi Maó formaður" í
staðinn fyrir að hrópa á hjálp
og þess vegna tóks-t að bjarga
því heilu á húfi.
Mikill kraftur fylgir orðum
Maós. Kona nokkur gekkst
undir meiriháttar uppskurð
og þurfti engrar deyfingar
við, vegna þess að maðuir stóð
skurðarborðið og las upp úr
bókum Maós.
Það er tvímælalaust, að ár-
óðursmáttur hugsana Maós
stuðlar að einbeitni og sjálfs-
aga Kínverja og dæmi eru
um hreystiverk trúaðra al-
múgamanna. En fáránleiki
kínverks áróðurs er stundum
slíkur, að hann gerir öll trú-
arbrögðin hlægileg.
Nýlega var ráðizt heiftar-
lega á stjórnendur kínverskr-
ar frímerkjaútgáfu og þeir
sakaðir um að útbreiða kapí-
talisma, afturhald og léns-
skipulag samkvæmt leiðbein-
ingum flugumanna Chiangs
Kaisheks. Þeir höfðu nefhi-
lega brugðið svolítið út af
þeirri venju að hafa mynd
Maós á öllum frímerkjum og
gefið út merki með fallegum
myndum og blómum og fisk-
um og nokkrum barnalegum
hópmyndum af feitum svín-
Maó Tse-tung.
Aðrir óvinir Maós hafa ver
ið sa-kaðir um geigvænlegt
samsæri um að breyta her-
skipinu Yangtse í olíuskip.
Skipið er heilagt vegna þess
að Maó var þrjá daga ,um borð
í því fyrir 15 árum.
Við höfum sannfrétt, að
blómvöndur sem Maó gaf
hópi verkamanna í Peking
fyrr í þessum mánuði, hafi
komið af stað æðisgengnum
fagnað'arlátum um allt landið
og jafnvel hafi allmargir full-
orðnir menn grátið af gleði.
Það eru farin að sjást
merki þess, að þessi fyrirgang
ur sé orðinn leiðigjarn sum-
um Kínverjum og sumir við-
urkenna jafnvel í einfcasam-
tölum, að þeir álíti verk Maós
í rauninni prýðileg svæfilyf.
Svo undarlega vill til, að í
tveimur kínversfcum stórblöð
um hefur sama prentvillan
komið fyrir, þar sem Maó hef
ur verið óskað „endalauss
ólífis“ í stað „endalauss lang
lífis“. Prentarar og prófarfca-
lesarar hafa síðan verið ákærð
ir fyrir að fremja glæpi við
þjóðina með því að hleypa
slíkum villum fram hjá sér.
f febrúar síðastliðnum var
aði Chou En-lai forsætisráð-
herra við því, að iðjuleysi
ætti sök á vaxandi skrílsæði
og ávítaði ungt fólk fyrir fjár
hættuspil og fyrir að hugsa
meira um ást en byltingu.
Blöð í Shanghai viðurkenndu
síðar að margir væru haldnir
„pólitískri þreytu“.
Fjárhættuspilamennska hef
ur farið stöðugt í vöxt síðan
dagblöð skoruðu á byltingar-
sinna síðastliðið haust að
berjast á móti „óhóflegri
spilamennsku“. í ritstjómar-
greinum hefur verið kvartað
yfir því, að „stétbarfjenduir“
hafi komið upp spilavítum
undir því yfirskini, að þar
væri um heilbrigða skemmt-
un að ræða. Sézt hefur til toll
varða að spila upp á sígarétt
ur og skömmtunarseðlar fara
oft sömu leiðina. Atvinnulaus
ir verkamenn og lífsleið ung-
menni sinna pókar í stað póli
tíkur.
í Svatov á suðausturströnd
inni ber mikið á þjófnuðum,
fjárhættuspilamennsku og
jafnvel vændi í stoemmtigörð
um og ungir menn storkuðu
Rauðu varðliðunum með vest
rænum fatnaði. Útvarpið í
Honan hefur sagt frá því, að
illviljuð öfl hafi notað fagrar
stúlkur til þess að spilla bar-
áttuanda öreiganma. í stór-
borgum eins og Kanton hafa
verið stofnaðar varðsveitir
til þess að hafa uppi á vasa
þjófum og koma í veg fyrir
ofbeldi á götum úti. Hermenn
hafa jafnvel skotið á reið-
hjólaþjófa. Frétzt hefur að
verkamenn hafi skrópað í
Maófræðitímum.
Eðli mannsins virðist vera
Þrándur í götu Maós. Menn
eru ekki allir nákvæmlega
eins.
(Þýtt og endursagt).
Tékkóslóvakíu. Sá fundur
verður vafalaust vel sóttur,
þar sem menn vilja votta
Tékkóslóvökum samúð sína
og stuðning vegna þessa of-
beldisverknaðar.
Hinu er ekki að leyna, að
ræðumannaval á fundi þess-
um er einkennilegt og ó-
smekklegt. Meðal ræðu-
manna eru menn á borð við
Þorvald Þórarinsson, Sverri
Kristjánsson og Björn Th.
Björnsson, svo og ýmsir
minni spámenn, sem hafa
stundað þá iðju alla sína ævi
að verja ofbeldisverk heims-
kommúnismans hvar og
hvernig, sem þau hafa birzt.
Stuðningur þessara manna
og fjölmargra annarra hefur
m.a. gert Sovétríkjunum
kleift að ráðast nú inn í
Tékkóslóvakíu. Þeir eru því
með nokkrum hætti sam-
ábyrgir með Rússum í of-
beldisverkum þeirra. Það er
býsna sérstæð vinátta í garð
Tékkóslóvaka, sem kemur
fram í slíku ræðumannavali.