Morgunblaðið - 17.09.1968, Qupperneq 2
2
MOBGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 1066
Unniö af krafti við gufu-
aflstöðina við Mývatn
Reynt að koma henni upp fyrir áramót
Nú er unnið að gerð gufu-
stöðvar í nánd við kísilgúrverk
smiðjuna við Mývatn til raf-
orkuframleiðslu. Annast Vermir
sf. verkfræðilegan undirbúning,
og snerl Morgunblaðið sér í
gær til Sveins Einarssonar, verk
fræðings, til að fá frekari fregn
ir af gangi mála.
Ákveðið var að byrja að reisa
þessa stöð nú í vor, að því er
Sveinn sagði, og var ákveðið að
Orkustofnunin sæi um að bora
eftir gufunni og byggja að-
veituæðar til rafstöðvarinnar,
en hins vegar mundi Laxárvirkj
unin byggja rafstöðina sjálfa.
Mun kaupa gufuna af Orku-
stofnuninni.
Var ákvörðun um þetta efni
tekin í maímánuði, og hófst þá
strax undirbúningur. Er nú ver-
ið að bora eftir gufunni, og
verða gufulagnirnar væntanlega
lagðar í lok nóvember. Þá stend
ur nú einnig yfir smíði stöðv-
arhússins. Varðandi borunina
má geta þess, að nú er við að
Ijúka við eina holuna, og mæld-
ist hitinn í henni 227 stig, en
það er mesti hiti sem mælzt hef
ur í slíkri borholu.
Rafstöðin mun standa í um
6-700 metrum fyrir norðaustan
kísilverksmiðjuna, og þarf að
leiða gufuna um 200 metra að
stöðvarbyggingunmi. Þessi stöð
er í rauninni tilraunastöð á
þessu sviði, og verður um 3 þús
und kílóvött. Er stefnt að því að
koma henni upp fyrir áramót.
Sveinn kvaðst sannfærður um,
að með þessu móti mætti afla
verulegrar raforku. Tffl að
mynda væri gífurlegan orku
forða að finna á Námafjalls-
svæðinu, og væri hann að sín-
um dómi talsvert meiri en feng
ist með virkjun Dettifoss.
Albanía segir sig úr
Varsjárbandalaginu
Belgrad, 16. sept. AP.
MOSKVUÚTVARPIÐ hafði sér-
staka útsendingu á albönsku á
laugardagskvöld og fjallaði um
þá ákvörðun Albana að segja sig
Sigurbjörg
með söltunar-
síld tO
Óluísfjurður
Ólafsfirði, 16. september.
SIGURBJÖRG kom með fyrstu
síldina hingað til söltunar í gær.
Var síldin óvarin, en þó var
ííægt að salta allmikið af aflan-
um, en einnig var talsvert fryst.
Var afli skipsins samtals um 120
lestir.
Þá kom Stígandi með 38 tunn-
ur hingað í dag, og fer það allt
1 frystingu.
— Fréttaritari.
- GRIKKLAND
Framliald af bls. 1
myndi koma aftur til Griklands
fyTÍr kosningarnar. Ráðherrann
svaraði því til, að hann væri
ekki spámaður, en hann teldi að
kcmungur myndi í síðasta lagi
snúa heim, fljótlega eftir fyrstu
þingkosningarnar. Störf þingsins
hæfust strax og ástandið í Grikk
landi væri orðið heilbrigt og gott
Hann sagði ennfremur, að það
væri ásetningur herforingjastjóm
arinnar að koma á nútímalegri
og góðri stjórnarskrá sem gerði
það kleift að fullkomna bylting-
una að eins miklu leyti og það
er hægt án þjóðþingsins.
úr Varsjárbandalaginu. Þar var
sagt, að úrsögnin væri það verð,
sem Albanir hefðu orðið að
gjalda húsbændum sínum í Pek-
ing. Ennfremur var sagt, að
vegna náinna tengsla Albana við
Kínverja hafi þeir í reynd verið
löngu hættir allri þátttöku í
Varsjárbandalaginu.
Albanir voru og bornir þeim
sökum, að hafa reynt að komast
yfir útbúnað bandalagsins, þegar
æfingar á þess vegum voru
haldnar í Albaníu árið 1961, og
ári síðar hafi þeir hætt virkri
starfssemi í þágu bandalagsins.
Myndin er tekin á árekstursstað.
Hurður úrekstur
HARÐUR árekstur varð á mót-
um Miklubrautar og Rauðarár-
stígs í gær, þegar olíubíl var ekið
aftan á Volkswagenbíl, sem kast
aðist við það, á annan bíl. Kona
sem var farþegi í Volkewagen-
bilnum, hlaut höfuðhögg og var
flutt í Slysavarðstofuna, en talið
var að hún fengi að fara heim að
lokinni læknisrannsókn.
Svo mikið var höggið, að sæt-
in í Volkswagenbílnum brotnuðu
aftur, en framendi bílsins gekk
inn í kistuna á þeim þriðja, sem
var Simca. Volkswagenbíllinn
skemmdist mjög mikið, Simcan
talsvert og framstuðari olíubíls-
ins bognaði um miðjuna.
lítulir reiðir við
Leif Eiríksson
I ÍTALSKA sögufélagið hefur
I tilkynnt að bílalest muni aka
að Hvíta húsinu í mótmæla-
I skyni, ef alvara verður gerð úr
| því að gefa út minningarfrí- ,
merki um Leif Eiriksson,
þrem dögum fyrir Kólumbus-
’ ardag.
Síðan Vínlandskortið fannst
|Og þar með fengust upplýs-
' ingar um að Leifur hefði kom
’ ið til Ameriku f jórum öld-
| um á undan Kólumbusi, hef-
r Ítalsk-Amerískum félög-
[um verið lítið um Leif gef-
' ið. Formaður sögufélagsins'
) hefur sagt, að það væri móðg j
| un við alla ítali að gefa frí- (
merkið út þrem dögum fyrir (
’ Kólumbusardag.
Mikil ferð á síldinni í vesturátt
1 síldarfréttum LtÚ um veið- Reykjaborg RE 20 Héðinn ÞH 50
ina sl. sólarhring segir, að veður Vörður ÞH 150 Örn RE 155
hafi verið gott. Veiðisvæðið er Ásberg RE 10 Guðbjörg ÍS 40
nú á 71. gráðu og á 50. gr. austur Tálknfirðingur BA 30 Gígja RE 130
lengdar. Mikil ferð er á síldinni Arni Magnússon GK 80 Fífill GK 120
í vesturátt og erfitt að ná henni. Eldborg GK 120 Brettingur NS 15
Kunnugt er um afla 19 skipa með Guðrún GK 90 Sléttanes ÍS 70
samtals 1380 lestir: Magnús NK 80 Faxi GK 100
Seley SU 25
Júlíus Geirmundsson ÍS 15 Harpa RE 80 Um síldveiðina sólarhringinn
Tóku 40 toiui uf hergögnum
— Meðal annars eldflaugabirgðir
í nánd við Saigon
Saigon 16. september. AP.
HERMENN frá Bandarikjunum
og Suðurvietnam fundu tæp
fjörutíu tonn af hergögnum norð
urvietnama á sunnudaginru Me'ð
al annars fundust miklar birgðir
af rússneskum 122 millimetra eld
flaugum 16 kílómetra frá Saigon
og er talið að átt hafi að nota
Líklegt að hafís verði
við strendur næstu ár
— segir Páll Bergþórsson, veðurfrœðingur,
er skilað hefur áliti til hafísnefndar
HAFÍSNEFNDIN svokallaða
mun væntanlega skila greinar-
gerð um ráðstafanir vegna hættu
á hafís við strendur landsins, er
lamað gætu samgönigur við nokk
ur byggðarlög. í áiiti nefndarinn
ar mun vera mælt með birgða-
söfnun. Við gagnasöfnun leitaði
nefndin m. a. til Páls Bergþórs-
sonar, veðurfræðings, og fékk álit
hans á líkum fyrir því, að hafís
legðist hér að landi á næstu ár-
um. Var Páll þeirrar skoðunar,
að fremur mætti gera ráð fyrir
að svo yrði.
Morgun blaðið sneri sér í gær
til Páls, og spurðist fyrir um á
hverju hann byggði þetta álit.
Jón Þorsteinsson nefndur í þriggjn
monnn nefnd fyrir neytendur
FULLTRÚAR neytenda í sex-
mannanefnd þeirri, sem sam-
kvæmt lögum nr. 101 frá 8. des.
1966 skal ákveða verð á landbún
aðarvörum, hafa lýst því yfir að
þeir muni ekki nota rétt sinn til
tilnefningar í þriggjamanna-
nefnd, er felldi fullnaðarúrskurð
nm verðlagsgrundvöll landbún-
aðarvara.
Samkvæmt ákvæðum 6. gr.
nefndra laga ber því félagsmála-
ráðherra að tilnefna mann í
nefndina af hálfu neytenda og
hefur Jón Þorsteinsson alþingis-
maður verið nefndur til þessa
starfs.
(Frá Félagsmáiaráðuneytinu).
Hann kvað erfitt að segja fyrir
um hafíshættuna á veturna og
vorin með nokkrum rökum fyrr
en kæmi fram í nóvember. Þó
mætti nokkuð marka hafishætt-
una á lofthitanum við Jan Mayen
síðar hluta sumars og fyrri hluta
hausts, og það sem liðið væri af
þessu tímabili nú benti fremur
til íss.
Páll sagði, að strax eftir 1960
hefði farið að bera á því að loft-
hiti færi minnkandi við Jan May-
en og Svalbarða og orðið greini-
legri hin síðustu ár. Þá hefði sjór
verið mjög kaldur og mikill haf-
ís t. d. 1965 og 1968 við strendur
landsins.
— Þetta finnst mér rökstyðja
það, að ekki sé rétt að gera ráð
fyrir svipuðu ástandi á næstunni
og á árunum 1920 til 1960, sem er
greinilegt hitatímabil og ís Þá
óvenju lítffll. Þess í stað finnst
mér eðlilegast að reikna með eins
konar meðalskilyrðum, sem finna
má með athugunum á skýrslu
Þorvalds Thoroddsens um veður-
far á sl. öld og fram til 1915 og
öðrum skýrslum, sem til eru eft-
ir það. Og að þessu fengnu virð-
ist mér ekkert líklegra en hafís
muni halda áfraim að vera við
strendur landsins á næstu árum.
þær til árása á hofuðborgina.
Þá fundust einnig vopnabirgð-
ir fyrir norðan Saigon og voru
þar á meðal sprengjuvörpur og
skriðdrekabanar. Harðir bardag-
ar geisuðu allt i kringum Saigon
um helgina því norðurvietnamar
vörðu hergögnin af mikilli hörku.
Búist hefur verið við árás á
Saigon xmdanfamar vikur og
telja menn að missir þessara her-
gagna muni seinka 'henni.
undan segir:
Kunnugt var um afla 17 skipa,
samtals 1160 lestir.
Ljósfari ÞH 30
Ásberg RE 25
Júlíus Geirmundsson ÍS 30
Guðbjörg ÍS 130
Sóley ÍS 20
Gunnar SU 40
Bergur VE 25
Héðinn ÞH 40
Harpa RE 120
Faxi GK 70
Þórður Jónasson EA 30
Sléttanes IS 40
Örn RE 175
Tungufell BA 50
Sveinn Sveinbjörnss. NK 45
Gígja RE 40
Gissur hvíti SF 250
Ökuhraði stóraukizt
20 ökumenn kœrðir á 3 klst. á
Reykjanesbraut fyrir of hraðan akstur
ATHUGANIR, sem gerðar hafa
verið á ökuhraða bifreiða í Rvík
og á nokkrum þjóðvegum, hafa
leitt í ljós þá staðreynd, að öku-
hraði virðist hafa aukizt mjög
mikið að undanförnu. Er hér um
að ræða mjög alvarlega stað-
reynd, þar sem skammt er liðið
frá gildistöku hægri umferðar og
framundan er hættulegasti tími
ársins í umferðinni. Frá því á
H-dag, 26. mai sl., hefur lögregl-
an í Reykjavík m. a. kært marga
bifreiðarstjóra fyrir of hraðan
akstur, eftir að ökuhraði bifreiða
þeirra hafði verið mældur með
ratsjá og fjölmargir bifreiðar-
stjórar hafa verið kærðir fyrir
of hraðan akstur af lögreglu-
mönnum á bifhjólum og bifreið-
um Iögreglunnar, eða samtals um
þrjú þúsund ökumenn.
Undanfarið hefur verið unnið
að hraðamælingum með ratsjá á
Reykjanesbraut og á þjóðvegum
í Arnessýslu og hafa þær mæl-
ingar verið framkvæmdar af lög-
reglumönnum í þjóðvegaeftirliti
ríkislögreglunnar og lögreglu-
mönnum frá Selfossi og Hafnar-
firði.
Á Reykjanesbnaut voru t. d.
kærðir 20 ökumenn á 3 klst., sem
óku á um og yfir 100 km hraða,
þar af einn á 130 km hraða. Á
vegum í Árnessýslu voru um sl.
helgi teknir noktorir ökumenn á
um og yfir 100 km hraða, og
margir eru óku á 80—90 km.
hraða. Sl. laugardag voru all-
margir ökumentn kærðir fyrir of
hraðan akstur í Reytojavík, en
akstursskilyrði voru þá slæm,
náttmyrkur og þotoa. Þá var m. a.
einn ökumaður kærður eftir að
hafa ekið á 120 km hraða eftir
Bæjarhálsi, annar á 110 km hraða
á Háaleitishraut, og margir öku-
menn voru kærðir eftir að öku-
hraði þeirra hafði verið mældur
á Miklubraut, Laugarásvegi,
Skúlagötu, Reykjavegi og fleiri
götum í borginni á 80—90 km
hraða. I langflestum tilfellum er
um að ræða unga ökumenn.
Embætti lögreglusftjóra og yf-
irsakadómara hafa svipt allmarga
ökumenn ökuleyfinu fyrir of
hraðan akstur og vítavert gá-
leysi.
Lögreglan vill skora á almenn-
ing að leggja henni lið, með því
að tilkynna tafarlaust til lögregl-
unnar of hraðan og vítaverðan
akstur.
Eftirlit með því að settar reglur
um ökuhraða séu virtar, verður
nú hert tffl muna, bæði hér í
borginni og á þjóðvegum lands-
ins. Verður m. a. haldið áfram
að mæla ökuhraða bifreiða með
ratsjá á þjóðvegum.
(Frá skrifstofu lögreglustjóra).