Morgunblaðið - 17.09.1968, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. SBPTEMBER 1968
19
LEIÐRÉTTIiMG
í SÍÐUSTU Desbók Mongiun-
blaðsins 33. Uhl., uirðu þsuu ledlðiu
mistölk að miilðuir féíH: í byrjiuin
giriejniaT Krigtjáms Jónssomar
„Bátstiaipi á Þorskiatfiiriði", seta-
dingiiin: f miegám dnáttuim stiuddist
ég þair við frásögn Snæbjatmair
í Hertgilsey.
ÓLmemgliu'ð er fynstia máLs-
gaieim 'gineiinairininar þaruniig: Áxið
1964 Skiritfaði ég gireim í bófcima
„Því igteyimd ég aidnei“ 111.
bimidó, lumdiiir ofaingneándni fyirir-
sögn. Þatr er sagt firá dmuklkmum
Gísflia Ólaássomiair firá Hvallláítriuim,
sem þá var ráðsimaður á Stað
á Reyfcjianesi. í megind'náJttiuim
studdlilst ég þar við firásögm
Snæfojamnar í Hergilsey, sam
hann skiráisetti aðeins 3—4 ámum
efitÍT slysið. Sömiuileiðis eir á eóm-
uim stað talað uim Djúpaiæk em
á að stamda DjúpadiaiL
Blaiðiið biðst afsökumiar á þeirn
miiistökiuim, sem þanna hatfa orðið
í setnimgiu gneiinairiinnair og próf-
ankialestni.
— Stúlka slasast
Framhald af bls. 32
send svo þaðan með sjúkraflug-
vél frá Tryggva Helgasyni til
Akureyrar. Hin börnin slösuð-
ust minna, hlutu skrámur og
brunasár.
Full ástæða er til að vara for-
etldra við samskonar hvellhettum
og þessari, sem geta orðið eftir
þegar klettar hafa verið sprengd
ir. En börn hafa mjög gaman
að safna þessum sprengjum, aem
verða eftir til að leika sér að.
Þess má geta að við athugun á
þeim vírum, sem börnin höfðu
safnað, komu í ljós tvær aðrar
virkar hviellhettur.
— Hákon.
- ÍÞRÖTTIR
Framhald af bls. 21
í annað skiptið, en þá bjargaði
Guðmundur markvörður með út
hlaupi, en Sigmar hitti í hitt
skiptið en skot hans var mátt-
laust og auðvarið.
Á 43. mín. náði B-liðið verð-
skuldaðri forystu er Baldvin
skoraði mjög laglega af Stuftu
færi þar sem hanm var óvald-
aður og gat lagt fyrir sig kmfitt-
in. Fékk hanmi mjög góða send-
ingu frá Jóhanni Reynissyni á
kantinum.
Á 2. mín síðari hálfleiks jafn-
aði Ólafur Lárusson fyrir A-lið
ið eftir góða aðstoð Thoódórs.
Nóði mú A-liðið betri tökum á
leiknum en tækifærin sköpuðust
þó ekki mörg. Ern er á leið tóku
B-liðsmenn aftur að gerast á-
gengir við A-markið.
Á 35. mnin. sótti B-iiðið v. meg-
in og gefið var fram á miðjuna
<t£l Hilmars, sem náði þó aðeins
að snerta knöttinn og komst Jó-
hann Reynisson við það í góða
Btöðu og skoraði. Víst má telja
að Jóhamn hafi verið rangstæður.
En þess er hinsvegar að gæta
að öllum virtist að dómarinn
sleppti augljósri vítóispyrnu á A
liðið 1 fyrri hálfleik. Má því
segja að metin hafi jafnast við
þetta hvað dóm snerti.
Tveim mín. síðar urðu mikil
mistök í vörn B-liðsins og komst
Thoódór í gott færi og jafnaði
3-3.
Virtist nú allt benda til frfam-
lengingar emi 2 mín. fyrir leiks-
lok kom úrslitamarkið úr að því
er virtist saklausu upphlaupi.
Jóhann gaf frá hliðarlínu inn á
völlinn og þar var Hilmar fyrir,
vippaði knettinum meir af vflja
en mætti fram hjá tveim varm-
armönnum og skaut af stuttu
færi, að því er virtist úr von-
lausu færi — en. mark varð það
samt og sigur B-liðsins tryggðiur.
B-iliðið átti sínar sterku stoðir
i Magnúsi markverði, Gunnari
Gunnarssyni miðverði, Þorgeiri
Guðmundssyni, Jóhanmi Reynis-
syni, Hilmari og Baldvin Bald-
vins 35011.
A-liðsmenn voru heldur væru
kærir f þessum leik — og
trúðu varla sínum eigin augum í
leikslok.
A. St.
- SJÓMENN
Framhald af bls. 3
izt á krei'k, að íslenzk síldveiði
skip hafi selt erlendum skip-
um síld?
— Já, ég veit að slíkar söl-
ur hafa átt sér stað, en ég
held, að magnið sé ekki mikið.
Ég veit t- d., að þremur Fær-
eyingum, sem ekkert fengu,
var hjálpað um síld, því mönn
um fannst hart að láta þá
sækja alla þessa leið til
einsfcis.
— Hvað getið þið saltað í
margar tunnur í ferð?
— Héðinn er 428 lestir og
við getum tekið 1600 tunnur
með okkur hverju sinni.
— Og dagafköst?
— Ætli við getuim ekki salt-
að í einar 300 tunnur á dag
og þá reikna ég með, að við
veiðum hráefnið sjálfir.'
— Ætlar þú aftur með tunn
ur og salt á miðim?
— Nei, nú er síldin að kom-
ast svo nærri, að við ætlum
að taka ís uim borð og reyna
að flytja síldina í ís til lamds.
— Heimir er ebki gamalt
skip?
— Nei hamn kom til lands-
ins í lok nóvember sl.
— Hvaða veiðar fóruð þið
þá á?
— Við fórum strax á síld
við Færeyjar, en fengum ekk-
ert sökum ótíðar. Þá fórum
við á net og söltuðum aflann
um borð. Vorum við eina
áhöfnim, sem það gerði. Fraim
til 1. maí var árangurtnn 275
lestir af fullsöltuðum saltfiski
og sigldum við með aflanm til
Esbjarg og seldum hann þar.
Aflaverðmætið á vetrarvertíð-
inmi var tæpar 6 milljónir og
hásetahluturinn 130.000 krón-
ur. Við erum á'kveðnir í að
salta um barð í vetur.
— Og hverju viltu spá um
síldveiðarmar núna?
—- Spámaður er ég ekki, en
ég leyfi mér að vera bjart-
sýnn, segir þessi duglegi skip-
stjóri að lokum.
— Tékkóslóvakía
Framhald af bls. 1
inu út í æsar til að unnt yrði
að halda síðan áfram á þeirri
braut, sem mörkuð hefði vetrið
umdanfarna mánuði.
Dubcek sagði emnfremur, að
stjórn hans hygðist gera viðeig-
amdi ráðstafanir till að kveða nið
ur amd sósíalisk öfl, sem hefðu
sig óeðlilega í frammi.
Tékkneska þjóðþingið hefur
formlega samþykkt, að staðfesta
Moskvusamkomulagið, svo og að
róa að því ölilum árum að
koma málum landsins í eðlilegt
horf.
NTB-fréttastofan sagði i kvödd,
að vaxandi óþols gæti meðal
tékkmeskra leiðtoga í garð yfir-
stjórnac sovézka hernámsliðsims
og hafi þeir borið fram skorin-
orð mótmæli vegna þess, að emn
eru skriðdrekar og brynvagnar
í miðborg Prag. Áreiðanlegar
heimildir segja, að unnið sé af
kappi að undirbúa fiumd æðstu
mamna Tékkósflóvakíu og Sovét-
ríkjanna. Þá segir í fréttinmi, að
Alexander Dubcek hafi vafcið at-
hygli sovézkra leiðtoga á því, að
það sé ekki í samræmi við
Moskvusamkomulagið, að skrið-
drekar og hermenn séu í útjörðr
um stærri borga. Sag.t er, að Old
rich Cernik, forsætisi-áðherra,
hafi afhent Kusnetsov, aðstoðar-
utainríkisráðherra Sovétríkjanna
mótmæli tékkmesku stjórmarinn-
ar er þeir ræddust við á laugar-
dagimn.
Yfirmenn sovézka hermáms-
liðsims í Tékkóslóvakíu tilkynntu
tékkneskum stjórmarvölldum í
dag, að vörusýning þeirra, sem
nú stendur yfir í Brno, verði
lokað, ef komi til and sovézkra
aðgerða. Sovézkum gestum á sýn
ingurmi hefur verið fálega tek-
ið og vitað er, að margir tékk-
neskir verkamemn neituðu að
vinna við uppsetningu sovézku
deildarinnar. NTB-fréttastofan
segir þetta ástæðuna fyriir því,
að sovézkir skreiðdrekar komu
komu aftur til miðborgar iBrno
í dag.
— Það er eitthvað
Framhald af bls. 5
höfnima: „Svona skip ætla ég
að eiga, þegar ég verð stór og
sigla á því í kring um heim-
• inn“.
Þeir höfðu ekki eins háleitar
hugmyndir félagar sem sátu nið
ur við slipp og skeggræddu
hvor við annann. Þeir sögðuat
hafa lent svolítið í því fyrir
nokkru, en það hefði nú bara
staðið lengur, en í upphafi var
ætlað. Við spurðum þá hvort að
þeim leiddist ekki aðgerðarleys
ið, en þeir voru ekkert á því
og einn svaraði: „Þetta er allt
saman ágætt, það er alltaf eitt
hvað sem kemur og eitthvað,
sem fer og ei'tthvað, sem hlær
og grætur, eins og Davíð skáld
frá Fagraskógi sagði vel“.
Nokkrir peyjar réru knálega
á árabát í höfninni og 'líklega
verður það ráðið á íslandi um
sinn, að róa. Róa að því öllum
árum að búa landið vel til sjáv
ar og sveita, bú það menningu,
atvinnutækjum og atvinnuveg-
um.
- ATHUGAR
Framhald af bls. 17
— Þú hefur semsagt víða far
ið?
— Já, ég fór á fjöll vestast í
Suðursveit, austan Breiðamierk-
urjökuls, svolítið á firðina fyrir
austan, t.d. á Gerpi. Svo var ég
efst á Jökuldal og gekk á Snæ-
fell. f Esjufjöllin í Vatnajökli
var létt að komast í þetta sinn,
því við fórum það í þyrlu. Það
tók 15 mínútur í stað 10 tíma, ef
maður þarf að ganga og bera
farangurinn. Þetta er í fyrsta
skipti sem ég fer í þyrlu, en það
er alveg tilvalið að nota þær,
til að komast á svona svæði. Ég
var eitthvað 5-6 vikur í ferðinni
í sumar.
— Og hvað ætlarðu nú að
glera við þessi gögn.
— Ég þarf að vinna úr gögn-
um, sem ég hefi safnað, og skrifa
skýrslu um þessar rannsóknir í
vetur. Útbreiðslukortin yfir
byrkningana koma líklega út á
næsta ári. Finnar tóku þau að
sér og eru unnin þar. Hvað fs-
land snertir, þau eru til frá
minni hendi. Útbreiðslukortin
halda svo áfram að koma út í
fram'tíðinni.
Þarmeð ljúkum við viðtalinu,
enda bíða Eyþóns sýnilega ýms-
ir fleiri, þegar hann er svona ný
kominn í bæinn úr sum'arferðun
um. — E. Pá.
- MINNING
Framhald af bls. 22
álit þitt á frjálsmannlegan og
falslausan hátt. Þú varst sáttfús
og fljótur að leggja þeim lið,
sem minna máttu sín, en óragur
að etja kappi við þá, sem þú
taldir að hefðu rangað málstað.
Þú varst mjög félagsl^mdur,
veittir hverju máli lið, sem þú
taldir gott og nytsamt, djarfur
í sólcn og harður í vörn. Þeir
sem þekktu þig bezrt munu aldrei
gleyma hvað þú varst mikill
drengskaparmaður, hjálpfús, bón
góður, getsrisinn og glaður.
Okkur félögum þínium á B.S.R.
er miki'll söknuður í huga, þegar
við kveðjum þig í hinzta sinni.
Það er komið stórt skarð og
vandfyllt í vinahópinn. Við filytj
um þér kveðjur og þakkir fyr-
ir liðnu árin og fyTÍr þartn, styrk
sem þú veittir samfökum okkar.
En þyngst er sorgin og sárastur
treginn hjá nánustu ættingjum
og venzlafólki þínu. Guð gefi
þeim styrk til að sjá þér að
baki og lifa án þín.
Góði vinur! Við hjónin kveðj
um þig með söknuði og trega.
En bjartar minningar fölna ekki
þó haustvindar blási og skamm
degisnóttin nálgist. Lifðu heill
fyrir handan gröf og dauða.
Jakob Þorsteinsson.
— Jafnaðarmenn
Framhald af hls. 1
anlega verða leiðtogi stjórnar-
andstöðunnar á þingi.
Kommúnistaflokkurinn hlaut
tæplega 140.000 atkvæði eða 3,1%
og 3 menn kjörna. Við síð-
uistu þingkosningar hlaut flokk-
urinn um 6,0% atkvæða og 8 þing
menn. Talið er fullvíst, að inn-
rás Sovétríkjanna í Tékkóslóva-
kíu eigi mikinn þátt í fylgis-
hruni flokksins, enda þótt for-
ingi hans Hermansson hafi for-
dæmt innrásina. NTB fréttastof-
an segir, að hefði verið kosið
eftir þeim reglum sem gert verð
ur í næstu kosningum, hefðu
kommúnistar ekki komið neinum
manni á þing.
Hægri flokkurinn fékk um
550.000 atkvæð, eða 12,2% og
29 menn kjörna en hafði áður
33. Þjóðarflokkurinn missti mjög
mikið fylgi, hann fékk nú rösk-
lega 627.000 atkvæði, eða 13,8
% atkvæða og 32 menn kjörna en
hafði áður 43.
Danskir stjórnmálamenn, með
Jens Otto Krag, fyrrum forsætis
ráðherra í broddi fylkingar, voru
meðal þeirra fyrstu, sem létu
í ljós álit sitt á úrslitum kosninig
anna í Svíþjóð á sunnudag.
Krag gat þess að hann ætti
afmæli í dag, mánudag, og naum
ast hefði hann getað fengið betri
afmælisgjöf. Krag taldi að úrslit
kosninganna væri mikill persónu
legur sigur fyrir Tage Erlander
forsætisráðherra, og Olof Palme,.
menntamálaráðherra. Krag kvað
ljóst að kommúnisitiar hefðu
goldið afhroð vegna inmrásar Sov
étríkjanna í Tékkóslóvakíu.
Ib Norlund, einin leiðtoga
danska kommúnistaflokksins
harmaði að vinstri menn hefðu
beðið ósigur, eins og hann orð-
aði það, og bætti því við að
afstaða Hermanssons, leiðtoga
sænskra kommúnista, til atburð-
anna í Tékkóslóvakíu, hefði orð
ið til þess, að menn drægju mjög
í efa raunverulega stefnu komm-
únistaflokksins.
Leiðtogar dönsku borgaraflokk
anna, með Poul Möl'ler, fjármála
ráðherra og íhaldsþingmann í
broddi fylkingar, hörmuðu að
Svíar skyldu ekki feta í slóð
Dana og Norðmanna, sem veittu
borgaraflokkunum fylgi til stjórn
armyndunnar í síðustu kosning-
um þar.
Sænsku blöðin skrifa að von-
um mikið um kosningarnar í dag
Stokkhólmsblaðið Expressen seg
ir að nú, að afstöðnum kosning-
um geti Jafnaðarmenn lækn-
ast af þeim æsingi sem einkennt
hafi flokkinn allar götur frá ‘66.
„Við gerum öll sænsku lýðræði
stærstan greiðann með því að
búa okkur undir kosningarnar
1970 án hugaróra og hræðslu-
aðgerða, en með málefnalegri at
hugun á eigin málum okkar og
sameiginlegum verkefnum. Þetta
mun gefa kjósendum þá völ, sem
bezt er og hreinust og þetta
krefst umhugsunar af hálfu Jafn-
aðarmanna og víðsýni stjómar-
andstöðunnar".
Aftenposten segir, að Jafnað-
armenn hafi ekki frá 1940
hlotið jafn mikla traustyfirlýs-
ingu kjósenda, en nú reyni á
hvernig þeim gangi að viðhalda
því trauati.
„Jafnaðarmenn hafa gengið
til kosninga með þá hugmýnda-
fræði að vopni, þar sem mest
áherzla er lögð á að þjóðfé-
lagið beri sjálft ábyrgð á lausn
mikilvægra þjóðfélags- og efna-
hagslegra vandamála. Hinn kost-
urinn, sem borgaraflokkarnir
halda fram, er hyggður á allt
öðrum hlutum. Þeir telja, að það
sé fjármagn einkarekstursins,
sem bezt sé að nýta til lausnar
þessum vandamálum, en þetta er
ekki trúlegt og því hefur sú
stefna ekki hlotið traust fólks-
ins.“
Aftonblaðið gegir einnig að út
lirtið varðandi kosningar 1970 sé
París 16. sept. NTB.
TIL átaka kom milli stúðenta og
lögreglu úti fjrir læknadeild
Parísarháskóla í dag. Allmgrgir
stúdentar höfðu safnazt saman
við bygginguna og hugðust koma
í veg fyrir að læknastúdentar
kæmust til prófa í deildinni.
gott fyTÍr Jafnaðarmenn, ef
traustyfiriýsingin nú verði notuð
til áframhaldandi róttækrar end-
urbótastefnu.
Gunnar Garbo, formaður
norska vinstri flokksins og for-
seti Stórþingsins, sagði í dag að
sigur Jafnaðarmanna hefði
ekki komið sér á óvart.
Hann taldi sérstaklega að afstaða
þeirra til utanríkismála
hefði verið meira traustvekjandi
en stjórnarandstöðunnar.
Trygve Bratteli, formaður
norsfea Verkamannaflokksins,
sagði í dag að hinn mikli sigur
Jafnaðarmanna hefði komið á
óvart.
„Eins og hlutirnir hafa gengið
til á síðustu mánuðum gátu menn
búizt við því að kosningarnar
myndu lekki fara illa fyrir þá.
En varla mun nokkur hafa bú-
izt við svo miklum sigri.“
Bratteli benti á, að sænskir
Jafnaðarmenn stæðu betur að
vígi en flokkarnir í Danmörku
og Noregi, þar eð sænski flokk-
urinn hefði ekki orðið fyrir barð
inu á innanflokksklofningi. Bratt
eli taldi mikilsverðast, að Jafn-
aðarmenn hefðu á undan-
gengnum tveimur árum lagt
grundvöllinn að lausn þeirra
vandamála, sem nýir tímar krefð
ust og það hafi verið á þessum
grundvelli, sem kjósendur hafi
lýst trausti sínu á þeim.
Formaður norska kommúnista-
flokksins, Reidar T. Larsen, rit-
stjóri, sagði í dag að ósigur
sænskra kommúnista hafi verið
mjög óverðskuldaður. „Tap og
sigur í þessum kosningum er
fyrst og fremst til komið vegna
ytri aðstæðna eins og t.d. ástands
ins í Tékkóslóvakíu“, sagði Lans
en.
Hann taldi einnig að meðal
verkamanna í Svíþjóð gæti á-
kveðins ótta við borgaralega
stjórn þar í landi, og taldi að þa'ð
væri ein ástæða fyrir hinurn
mikla kosmngasigri Jafnaðar-
manna og hinni mifclu kjörsókn.
Larsen sagði að einnig ætti ótam
komulag innan sænska kommún-
istaflokksins nokkra sök á hversu
fór. „Báðir armar flokksins eru
klofniir, og þekktir kommúnistar
í einstökum kjördæmum hvörttu
til að kjósa aðra lista. Slíkt verk-
ar ávalt neikvætt."
Finn Gustafsen formaður Sósi-
aliska Þjóðarflokksins í Noregi,
sagði að það mikilsverðasta varð
andi úrslit þessara kosninga sé,
að Svíar hafi snúið við af þeirri
leið, sem margir töldu stefna i
þá átt, að endir yrði bundinn
á vald Jafnaðarmanna á Norð-
urlöndum.
Svenn Stray, leiðtogi hægri-
manna í norska Stórþinginu, sagði
í dag, að atburðirnir síðustu vik
ur á sviði utanríkismála hafi
mjög stuðlað að sigri Jafnaðar-
manna í Svíþjó’ð.
Erlender lýsti því yfir í sjón-
varpsviðtali í kvöld, að hann
ætlaði að draga sig í hlé sem
flokksformaður á næsta lands-
fundi Jafnaðarmannaflokksins.
Hann kvaðst hætta afskiptum af
stjórnmálum fyrir næstu kosn-
ingar, sem verða haldnar 1970.
Erlander kvaðst .hafa orðið við
tilmælum síðasta landsfundar að
vera leiðtogi flokksins tvö ár
í viðbót, en nú tæki hann ekki
slíkri áskorun.
Ummæli foringja hægriflokks
ins, Holmberg, kosninganóttinia
um að sigur JafnaðarmannafLokks
ins stafaði einkum af óverðsfcuLd
aðri hjálp, sem hann hefði notið
af hálfu fjölmiðlunartækja, hefur
Leitt til þess að útvarpsstjóri
sænska, útvarpsins mun láta fara
fram könnun á fréttaflutningi í
útvarpi og sjónvarpi í sambandi
við kosningarnar.
Kom þá til slagsmála og börðust
prófglaðir læknastúdentar með
hnúum og hnefum til að ryðja
sér braut inn í skólann.
Lögreglan kom fljótlega á vett
vang og tókst að stilLa til friðar.
Það fylgdi fréttinni, aB langflest-
ir læknastúdentarnir hefðu kom
izt í prófin.
Átök við Pansarhtiskólu