Morgunblaðið - 17.09.1968, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 1968
23
við Kleppsveg og býr Hjálmar
þar enn.
Árið 1937 giftist Þorkell eftir-
lifandi konu sinni Jónu Sveins-
dóttur frá Heiði við Kleppsveg,
þar bjuggu þau hjónin um langt
árabil, og var heimili þeirra róni
að fyrir gestrisni, rausnarskap
og hjálpsemi.
í eðli sínu var Þorkell gleði-
maður. Hann var léttur í lund
og hrókur alls fagnaðar á gleði
stundum og frábær gestgjafi.
Þorkell var skemmtilegur
ferðafélagi og hafði mjög gam-
an af ferðalögum, enda ferðaðist
hann mikið um landið, hanmvar
vel fróður um náttúru íslamds
og örnefni, las jafnan bækur og
tímarit sem út komu um þessi
efni. Sérstaklega var Þorkell rat
vís, færi hann einhverja leið
einu sinni þá rataði hann þar
aftur, þótt áratugur væri liðinn
frá fyrri ferð. Sérstaklega var
gaman að fara með Þorkeli í
veiðiferðir, bæði vegna þess hve
hamm var fróður um umhverfið
og ána sem veiða átti í. Ég fór
með Þorkeli í mína fyrstu lax-
veiðiferð og ég minnist þess
hversu annt honum var um að
kenna mér, hvernig bezt væri að
bera sig til við veiðina, og ég
held að hainn hafi orðið glaðari
en ég þegar ég fékk minn fyrsta
lax, sem reyndar varð sá eini í
þessari ferð.
Við Þorkell fórum saman í
veiðiferðir og er mér sú síð-
asta minnistæðust kanski vegna
þess að hún varð hans síð-
asita veiðiferð, en það grunaði
hvorugan okkar að svo mundi
verða. Þorkell var hress og kát
ur að vanda og var svo sann-
arlega í essinu sínu, dró hvern
laximn á fætur öðrum, en ég
varð ekki var.
Um æfistarf Þorkels væri hægt
að skrifa langt mál, því svo
margvWleg störf hefur hann unn
ið eða tekið þátt í um dagana
og mun ég ekki í þessum lín-
um mínum reyna að telja það ali
upp, þó skal geta þess að má-
efni kirkjunnar voru honum eink
ar hugleikin, og hafa þau bæði
Jóna og Þorkell umnið mikið
Meðal verka sem hann áttihlut
að, má nefna að hann var einn
af stofnendum BræðrafélagsLaug
arnessófenar og aðal hvatamað-
ur að stofnun þess, og átti hann
sæti í stjóm þess í mörg ár. f
safnaðarstjórn Laugarnessóknar
um langt árabil og í Stjórn Kirkj
ugarða Reykjavíkur í mörg ár.
Allt frá því að við ÞorkeU
kynntumst hefur farið vel á með
okkur, hann var mér góður vin
ur og félagi og ekki síðri sem
tengdafaðir. Hjálpsemi hans og
greiðvirfeni var mikil og skipti
ekki máli hvort um var að ræða
skyldan eða óskyldan, hann leysti
jafnt úr því ef honum var það
mögúlegt.
Ég minnist þess með þakklæti
að hafa átt þess kost að kynn-
ast Þorkeli og eignast hann að
vini. Það er ekki nema eðlilegt
að fráfall jafn ágæts manins og
Þorkels sé fjölskyldu hans mik-
ill harmur, en það er huggun
í þeim harmi að eiga fagrar
minningar um góðan mann, og
örugga vissu um endurfund.
Ég votta konu hans, börnum
og öldruðum föður mína inni-
legustu samúð.
Megi guð styrkja þaiu í fram-
tíðinni.
Kristján Þorgeirsson.
Þorkell var búfræðingur frá
Hvanneyri, hann stofnaði og
rak raftækjavinnustofuna Teng-
il h.f. ásamt öðrum, vann skrif-
stofustörf eftir það, fyrst hjá
Raftækjadeild Sameinaðra verk-
taka og Segul h.f., en síðustu
árin í prentsmiðju Jóns Helga-
sonar.
Ungur giftist ÞorkeR Jónu
Sveinsdóttur frá Heiði og áttu
þau saman fimm börn sem öll
eru uppkomin. Hjónaband
þeirra var farsælt og samhent og
sérstök ánægja var að sjá þau
oftast eins og ný-trúlofuð.
Þorkell var einstaklega góður
félagi og vinur vina sinna, mátti
ekkert aumt sjá, og var ávalt
boðiirm og búinn til þess að
rétta fram hjálparhönd ef honum
fannst þess með þurfa. Hann var
maður vel af Guði gerður og
lagði enda gjörva hönd á margt.
Hann var eins og áður segir
búfræðingur að ment en stund-
aði þó lítið búfræðistörf, hins
vegar var hamm lemgi einskonar
fóstbróðir okkar rafvirkja og
rak um árabil fyrirtækið Tengil
sem annaðist framkvæmdir hér í
Reykjavík og víða út um land.
Hann var glaðlyndur og fél-
agslyndur og naut sín bezt í kát-
um félagsskap. Hann vildi njóta
lífsins og naut þess einis og föng
stóðu til.
Það er eins og ský dragi fyr-
ir sól um stund þegar vinir
manns og samstarfsmenn hverfa
snögglega úr förinni í blóma lífs
ins, þrátt fyrir þá vitund að
dauðinn er lokamark lífsins og
ferðalok okkar a'llra. Þú fyrr við
síðar skiptir ekki máli, af eigim-
girni hryggjumst við um stund,
en Oífið þyrpist áfram með nýja
samferðamenn og nýjar gleði-
stundir, en maðurinn er í raun-
inni ekki dáinn meðan minning-
in lifir og það er gott að minn-
ast margra góðra stunda í glöð-
um félagsskap, við þökkum þér
fyrir þær.
Gamli félagi, það var gaman
að lifa og nú er gott að fá að
sofa.
Vertu sæll.
J.A.V.G.
Pálmi Kristjánsson
kennari — Minning
LOKAÐ
eftir hádegi í. dag, vegna jarðarfarar
Vigfúsar Ingvarssonar.
BLIKKSMIÐJAN H/F., Skeifan 3.
Byggingarsamvinnufélag vélstjóra
Enn er nokkrum íbúðum óráðstafað í sambyggingu
sem félagið á aðild að í Breiðholti.
Teikningar eru þegar fyrir hendi.
Gatnagerðargjald er greitt.
Þeir sem óska frekari upplýisingar snúi sér sem fyrst
til skrifstofu Vélstjórafélagsins að Öldugötu 15.
STJÓRNIN.
PÁLMI Kristjánsson andaðist
að heimili síinu á Afeureyri 10.
september sl. — Hann var fædd
ur 16. sept. 1885 og var því tæp-
lega 83 ára er hann lést. For-
eldrar hans voru Kristján Frið-
finnsson og Friðrika Kristjana
Jósefsdóttir kona hans. Bjuggu
þau hjón á Sandhólum í Eyja-
firði, sem er frekar lítil jörð,
næst sunnan við prestsetrið
Saiurbæ. — Ekki kann ég frá
bernsfeuárum Pálma að segja,
en sennilega feefur hann ekki
átt gilda sjóði, er hann, innan
tvítugs lagði út á menntabraiut
sína á Akureyri. — Veturinn
1902—03 stundaði hann nám í
unglingaskóla hjá Ingimar Ey-
dal, en næstu árin er hann svo
í Gagnfiræðaskólanum á Akur-
eyri og lauk prófi þaðan vorið
1906. Ekki lagði Pálmi út í lang
skólagöngu, þótt vafalaust hefði
hann verið vej til þess gerður.
Það var nú svo á þessum ár-
um að unglingar hristu það ekki
auðveldlega fram úr ermi, að
fara suður til Reykjavíkur og
kosta skólagöngu sína vetrar-
langt. — Pálmi sneri sér fljót-
lega að barnakennslu. Lengst
var hann kennari í fæðingar-
hreppi sínum, Saurbæjarhreppi
eða um 45 ára skeið. Þá var þar
farskóli og þurfti kennarinn jafn
an að flytja sig milli staða á
tveggja vikna fresti. Það man ég,
að öllum þóttti gott, þegar
Pálmi kom á bæinn til að kenna
og við krakkarnir hlökkuðum
ætíð til þess. — Hann hafði sér-
lega gott lag á því, að vinna sér
traust og vináttu nemenda sinna
og fjölmargir þeirra hafa haldið
tryggð við hann æ síðan.
Pálmi kvæntist 31. október
1914 og var kona hans Frímanía
Margrét Jóhannesdóttir. Tvo
syni eignuðust þau hjón. Sá
eldri hét Tryggvi, fæddur árið
1916, en hann dó aðeins tveggja
mánaða gamall. 4. maí 1918
fæddist þeim aftur sonur
Tryggvi Gestur. Hann dó ungur
maður á Kristnes'hæli árið 1943.
Má nærri geta, að mikið áfall
var það fyrir þau hjónin Frím-
aaníu og Pálma að missa þarna
eina son sinn, sem var hinn
mannvænlegasti maður, enda
béiru þau aldrei barr sitt að
fullu eftir það.
Frímanía er látin fyrir nokkr
um árum. Pálmi átti lengst
heima í Hleiðargarði, mun hafa
flutt þangað 1917. Árið 1925
reistu þau hjón sér nýbýli áfast
við bæinn og nefndu Norðurbæ.
Þar var að vísu ekki hátt til
lofts né vítt til veggja, en oft
var þar samt setinn bekkurinn
og margt skrafað. Öllum þótti
gott að vera hjá þeim hjónum.
Ekki verður sagt að Pálmi
hafi safnað miklum veraldar-
auði um dagana, enda mun hug
ur hans meira hafa staðið til
fræðimennsku en fjáröflunar. —
íslenzk fræði og Íslandssagan
áttu hug hans. Oft man ég eftir
því, að þegar vetur gekk í garð
og um hægðist við útiverk, þá
tók Pálmi Sturlungu sína og las
langtimum saman, enda mátti
heita að hann kynni þá bók
spjaldanna á miilli. — Nokkur
ritstörf stundaðd Pálmi, þegar
tími vannst til. Hann vann t.d.
að þvi ásamt Angantý Hjálmars-
syni kennara, að skrásetja ör-
nefni allra bæja í Saurbæjar-
hreppi. Kom bók þeirra um
þetta efni út 1957 og heitir „ör-
nefni í Saurbæjarhreppi.“ Mun
þetta hafa verið mikið starf og
tafsamt, því að hreppurinn er
stór og bæjamargur. Ætla má,
og æskilegt væri, að fleiri fræði-
menn tækju sér þetta til fyrir-
myndar og söfnuðu ömefnum
hver í sinni sveit. — Þótt ekki
feæmi þetta út í bókarformi, sem
er dýrt nú á dögum, væri mik-
ili ávinningur í því fyrir hvem
hrepp, að eiga slíkt safn ör-
nefna sinna til í handriti. Ýms
fleiri ritverk hafði Pálmi á
prjónunum og munu þau vera
til í handriti. Má þar t.d. nefna
Skólasögu Saurbæjarhrepps,
Ferðasögu Eyítríinga til Suður-
lands 1950 og sögu Ungmenna-
félags Saurbæjarhrepps, en
Pálmi var einn af þeim er stofn-
uðu það félag árið 1911. Starf-
aði hann mikið fyrir þetta fé-
lag og var formaður þess lengi.
Þegar U ngmentiaf élagið átti
fknmtugsafmæli 1961, var Páimi
kjörinn heiðursfélagi þess. Ýms-
ar fleiri ritsmíðar voru á döf-
inni hjá honum, þótt ekki ent-
ist honum tími til að fullvinna
þær.
Aðalstarf Pálma var þó, sem
fyrr getur, uppfræ'ðsla æskunnar
og var áhugi hans á því efni
óþreytandi. Heima í Hleiðar-
gerði hafði hann nokkrum sinn-
um unglingaskóla hluta úr vetr-
um. Sóttu þá til hans m.a. þeir,
sem ætluðu að fara í Gagnfræða
skólann á Akureyri. Eftir að
Pálmi hætti kennslu í sveit
sinni aldursins vegna, fluttist
hann til Akureyrar. Átti hann
þar fjölda af kunningjum og
einnig býr þar bróðir hans, Odd
ur Kristjánsson byggingameist-
ari.
Pálmi var stór maður vexti og
heilsuhraustur alla tíð, nema
hvað sjóndepra sótti á hann síð-
ustu árin. Harm hafði gott lag á
því að vera hrókur alls fagnað-
ar, þar sem menn komu saman,
enda var hann ætíð vel heima í
öllum þeim málum, sem efst
voru á baugi á hverjum tíma.
Hann var átti góðar „fylgjur“
Frainhald & bls. 24
BÁTAR
BÁTAR
Nokkrir bátar eftir á gamla verðinu. Seldir með
góðum greiðsluskilmálum ef samið er strax.
Norskir grenibátar, íslenzkir og norskir plastbátar,
og franskir nælon-gúmmíbátar fyrir síldveiðiskip.
Notið tækifærið og eignizt bát á góðu verði.
'mnai Sfyzehbbon kf.
Suðurlandsbraut 16 - Reykjavik - Símnefni: »Volver« - Sími 35200
Bifreiðasala EGILS
sími 22240.
Notaðar bifreiðir til sölu.
Willy’s jeep árg. ’66, með blæjum og útvarpi.
Wiliy’s jeep árg. ’66 með mayershúsi, klæddur.
Willy’s jeep árg. ’67, með blæjum.
Willy’s jeep árg. ’66, með mayershúsi, ekinn aðeins
22 þús. km.
Willy’s jeep árg. ’66, með dísilvél lengri gerð.
Jeepster, árg. ’67, 6 cyl.
Jeepster, árg. ’67, 4ra cyl. með blæjum.
Humber Super Snipe árg. ’60 sjálfskiptur, skulda-
bréf koma til greina.
Hillman Super Minx station árg. ’66.
Ilillman IMP árg. ’64.
Singer Vogue árg. ’63.
Fiait 600 T árg. ’66, sendibifreið.
Rambler Classic árg. ’64 sjálfskiptur, góð kjör og
skipti koma einnig til greina.
Sunbeam Rapier árg. ’65, gott verð.
Consul 315 árg. ’61.
Taunus 17 M árg. ’66, skipti æskileg á nýlegum
góðum jeppa.
Tökum notaðar vel með famar bifreiðir í umboðssölu.
Ecjill ViHijálmsson hf.
Laugavegi 116.