Morgunblaðið - 17.09.1968, Side 32
1 77 00 Ktt slmtaI °g Mr
eruð tryggður
ALMENNAR
TRYGGiNGAR}?
ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 1968
Aðalverktakar annast gerð
Vesturlandsvegar
Elliðaárbrýrnar byggðar á nœsta sumri
EINS og skýrt var frá í Mbl. fyr-
ir nokkru hefjast framkvæmdir
við Vesturlandsveginn nýja um
mánaðamót. Verður Iagður veg-
urinn frá Ártúnsbrekku að
Höfðabakka og er vegspottinn
um kílómetri á lengd. íslenzkir
aðalverktakar munu annast
verkið, og var samið beint við
þá á svipuðum grundvelli og við
lagningu Reykjanesbrautar. Bú-
izt er við að lagningu þessa kafla
Síðan hífð upp á bryggjuna í Keflavík.
V.b. Huginn fékk síðu
tréskips í trollið
Skipstjórinn álítur hana vera af
sœnsk-byggðu skipi
Keflavík, 15. september.
1 MORGUN kl. 9.00 kom vélbát-
urinn Huginn VE-65, sem er eign
„Sjöstjörnunnar" til Keflavíkur
með um 10 metra langt og 2
metra breitt flak úr tréskipi.
Huginn var að veiðum með
trolli vest-norð-vestur af Eldey
í gærkvöldi um kl. 22.00—24.00,
og voru þeir búnir að taka 2
köst þegar trollið festist skyndi-
lega. Voru þeir um 5 tíma að ná
trollinu upp og var þá þetta
skipsflak í því og búið að rífa
og eyðileggja trollið.
Flaki'ð var það þungt að bóma
skipsins brotnaði, sem er jám-
bóma og gerð fyrir talsverðan
þunga. Gilsamir slitnuðu einnig
og erfitt var við að eiga.
Komið var vírum í flakið, og
það dregið á síðu bátsins til
Keflavíkur. Tók það um 5 klukku
stundir rúmlega. Flakið var síð-
an tekið með stórum krana og
flutt burt af bryggjunni til frek-
ari rannsóknar. Flakfð er af efri
hluta stjórnborðssíðu bátsins við
lestina og var innsíðan hvítmál-
uð en útsíðan mjög dökk.
Skipstjórinn á ,,Hugin“, Gunn-
ar Jónsson, taldi að flakið væri
úr sænskbyggðum bát, því að
byggingarlagið væri greinilegt.
Ekki verður án rannsóknar
fundið út af hvaða bát flakið er.
Menn voru að giska á m.b. Jón
Magnússon frá Hafnarfir'ði eða
Val frá Akranesi, sem fórust fyr
ir 15—20 árum á þessum slóðum,
að haldið er.
Gunnar skipstjóri sagði, að fest
ingar á þessu svæði væru mjög
tíðar og skemmdir á veiðarfær-
um einnig. Trollið hjá „Hugin“
eyðilagðist alveg — en slíkt troll
kostar um 40 þúsund krónur.
Flakið verður fyrst um sinn
geymt niðri við Vatnsnesvita.
— hsj —
Sjö ára stúlka slasast
er hvellhetta sprakk
Egilsstöðum, 16. september.
Á LAUGARDAGINN varð það
slys á Flúðum í Tunguhreppi,
að hvellhetta, sem notuð er við
sprengirugar, sprakk í höndum
barna, sem voru að leika sér
með sprengivír. Slasaðist sjö ára
stúlka alvarlega.
Tildrög slyssinis voru þau, að
fjögur börn voru að leika sér
með myndakíki í hierbergi í hús-
inu að Flúðum. Voru þau að
tengja í milli rafhlaðna með vír,
sem notaður er þegar klettar
eru sprengdir. Gættu börnin þess
ekki að virk hvellhetta var á
þræðinum, og um leið og neist-
inn frá rafhlöðunum hljóp í gegn
um hvellhettuna, þá sprakk hún.
Húsmóðirin hafði ekki verið
heima, en var að koma inn úr
dyrunum er sprengingin varð.
Þegar hún kom inn í herbergið
láu öll börnin í yfirliði, eða í
roti á gólfinu. Eitt barnið, Anna
Heiðlaug Bragadóttir, dóttir hjón
anna á Flúðum, slasaðist mikið.
Tættust á henni fingurnir og einn
ig mun annað augað vera mjög
illa farið. Var hún þegar flutt
í isjúkraskýlið á Egilsstöðum, og
Framhald á bls. 19
verði lokið í vetur.
Nýi vegurinn mun liggja rétt
við jarðhúsin, en þau munu þó
ekki þurfa að víkja. Hins vegar
verður að rifa íbúðarhúsið, sem
þar er.
Mbl. spurðist fyrir um hjá
vegamálastjóra, hvort í ráði
væri að hefja byggingu Elliðaár-
brúnna, og sagði vegamálastjóri,
að hann gerði ráð fyrir, að þær
yrðu byggðar á sumri komanda.
Hins vegar biðu þær fram-
kvæmdir ákvörðunar alþingis
um vegaáætlun næsta árs.
8 þús. kr. stolið
BROTIZT var inn í skrifstofur
Loftorku s.f., að Hólatorgi 2, um
helgina og var stolið þaðan um
8 þúsund krónum í peníngum.
Einnig var brotizt inn í olíu-
skipin Bláfell og Héðin Valdi-
marsson, sem lágu við Granda-
garð, og stolið tveimur sjónauk-
um og nokkrum sprittglösum.
Milljónaþjófnaöur
Hallarmúla
i
PENINGASKÁP með víxlum
veðskuldabréfum og ávísun, sam
tals að verðmæti nokkrar mill-
jónir króna var stolið úr skrif-
stofu fyrirtækisins Hallarmúla
s.f. um helgina.
Að því er eigendur Ha'llar-
múla, bræðurnir Erlingur og Að
alsteinn Hallssynir, tjáðu Morg-
unbláðinu í gær, var ekki full-
kannað, hversu mikil verðmæti
voru geymd í skápnum, en vit-
að var um tvö veðskuldabréf,
samtals að upphæð um 400 þús.
Keyptu gömlu SlS-verksmiðjuna í
Harrisburg fyrir 125 þ ús. dollara
Brœðurnir Sverrir og Ragnar Magnússynir hefja
framleiðslu fiskrétta innan tíðar
SVERRIR Magnússon, fyrrum
framkvæmdastj. fiskverksmiðju
SlS í Harrisburg í Bandarikjun-
um, hefur keypt hina gömlu verk
smiðju SÍS fyrir 125 þús. dollara
(ura 7,1 millj. króna) í félagi við
bróður sinn, Ragnar. Staðfesti
Sverrir þetta í símtali, sem Morg-
unblaðið átti við hann í gær.
Sverrir Magnússon sagði, að
nú væri unnáð að því að lagfæra
verksmiðjuna og væntanlega
yrði hún tilbúin til vinnslu eftir
5—6 vikur, enda yrðd hún að
vera tilbúin þá, þar sem samn-
ingar hefðu þegar verið gerðar
við kaupendur.
Sverrir sagði, að ársframleiðsl-
an gæti numið um 8 milljónum
punda með einnj vakt í verk-
smiðjunni og 16 milljónum
punda með tveimur vöktum.
Fyrst og fremst yrðu framleiddir
fiskstautar úr blokkfiski, en einn
ig væri í ráði að hefja fram-
leiðslu nýrra rétta, fiskikökur o.
fl.
Innifalið í kaupverðinu eru vél
ar að verðmætj um 75 þú®und
dollarar sem Sverrir kvað mundu
seljast fyrir 44.500 dollara í end-
uo-sölu.
Hið nýja fyrirtæki nefnist Pro-
pak Food Inc. Samband ísl. sam-
vinnfélaga hefur á leigu geymslu
rými í verksmiðjunni, en sem
kunnugt er hefur SÍS byggt nýja
verksmiðju vestra.
Sverrir Magnú'sson kvaðst
væntanlega kaupa fisk fyrir verk
smiðjuna af Bretum, Kanada-
mönnum, Færeyingum og Dön-
um. Sem íslendingur kvaðst hann
þó helzt vilja fá íslenzkan fisk
LEITARFLOKKAR voru kallað
ir út í gærkvöldi til að leita
konu, er farið var að óttast um
í berjamó i Heiðmörk. Konan
kom þó fram áður en leitin hófst,
og hafði hún misst áttirmar og
þurfti að leita bílanna, sem flutti
fólkið.
og kaupa hann á markaðsverði á
hverjum tima. Þó kvaðst hann
ekki 'gera ráð fyrir að sér byðist
fiskur að heiman.
Aðspurðuir kvaðst Sverrir ekki
hafa reynt að fá keyptan fisk
hjá SÍS.
kr., eima ávísun, sem hljóðar upp
á 16 þús kr. og svo voru í
skápnum víxlar, sem þeir bræð-
ur töldu að næmu samtáls 3 til
4 milljónum króna, en endanleg
upphæð þeirra lá ekki fyrir. Ein
ig var eitthvað af reikmingum í
skápnum.
„Allt eru þetta pappírar, sem
koma þjófunum að engu gagni,
sagði Aðalsteinn, og það er von
okkar, að þeir skili skápnum aft-
ur“.
„Þessi þjófnaður kemur til
með að kosta okkur gífurlega
vinnu, en við höfum í höndun-
um alla kaupsamninga að baki
víxlunum, og auðvitað reiknum
við með einhverju beinu tjóni“,
sagði Erlingur.
Þjófarnir brutust einnig inn í
Múlakaffi, sem er við hl iðina á
Hallarmúla s.f. Þar stálu þeir
18 kartonum af sígarettum,
nokkrum tugum af vindlaköss-
um og 5 kg. af niðurskornu
hangikjöti.
Ekki hreyfðu þjófamir við
neinu öðru í húsakynnum Hallar
múla en peningaskápnum og
mátti rekja slóð þeirra niður 1
kjaRara byggingarinnar og þar
út, en síðan hafa þjófamir sett
skápinn í bíl og ekið á brott.
150 þús. kr. ávísana-
fals og þjófnaöur
ÁVÍSANAÞJÓFNAÐIR og
ávísanafals fara sífellt vaxandi
og nýlega handtók rannsóknar-
lögreglan tvítuga stúlku, sem
við yfirheyrsiur viðurkenndi að
hafa selt 50 falsaðar og stolnar
ávísanir að upphæð samtals um
150 þúsund krónur Hæsta ávís-
unin hljóðaði upp á 14 þúsund
krónur.
Stúlkan kvaðst hafa stolið
megnimu af ávísanaeyðubGöðum-
um og nokkrum ávisunum af
karlmönnum á skemmtistöðum,
en einnig lagði hún andviirði eimn
ar ávísunar inm í banka og fékk
þar ávísanahefti, sem húm svo
falsaði úr.