Morgunblaðið - 18.09.1968, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. SEPT. 196®
Aoalfundur kjördæmis
rúðs S júlf stæðisf lokks-
ins ú Vestfjörðum
— Arngrímur Jónsson
Aðalfundur kjördæmisráðs
Sjálfstæðismanna á Vestfjörð
um var haldinn á ísafirði sl.
laugardag og hófst kl. 2 e.h.
Asberg Sigurðsson sýslu-
maður, formaður kjördæmis-
ráðsins setti fundinn og til-
nefndi Einar Ingvarsson úti-
bússtjóra til fundarstjóra.
Fundarritari var kjörinn
Finnur Th. Jónsson Bolungar
vík.
Mættir voru til fundarins
56 fulltrúar.
Avörp fluttu alþingismenn
irnir Sigurður Bjarnason frá
Vigur og Matthías Bjarnason.
kjörinn form. ráðsins
Bjamason Einari Ingvarssyni
þakkir fyrir góða fundarstjórn
og mikið og gott starf í þágu
vestfirzkra atvinnumála. Enn-
fremur þakkaði hann Ásberg
Sigurðssyni fyrir formennsku
hans í kjördæmisrá'ði sl. tvö ár,
en hann baðst undan endurkosn
ingu. Loks bauð hann nýkjörinn
formann kjördæmisráðs, Axn-
grím Jónsson velkominn til
starfa.
Hvatti hann til einhuga bar-
áttu Sjádfstæðismanna.
Amgrímur Jónsson sleit síðan
fundinum og þakkaði fulltrúum
fundarsetuna.
Mikill einhugur setti svip sinn
á þennan fund vestfirzkra Sjálf-
stæðismanna.
Sildin þokast vestur á bóginn, og er hún nú í kringum 500 milna fjarlægð frá tslandi. Jakob
Jakobsson, fiskifræðingur, telur, að síldin muni halda réttvísandi vestur unz hún mætir kulda
skilunum. Síðan muni hún fylgja þeim nokkurn veginn í átt til lands.
Arngrímur Jónsson.
Jónas Ólafsson á Þingeyri hafði
framsögu fyrir kjörbréfanefnd
og Högni Þórðarson ísafirði fyrir
allsherjamefnd, sem fjallaði tun
ályktun fundarins.
Guðmundur B. Jónsson, Bol-
tmgarvík, gerði grein fyrir reikn
ingum kjördæmisráðs og Finnur
Th. Jónsson las reikninga Vestur
lands. Guðfinnur Magnússon
gerði grein fyrir tillögum upp-
stillingamefndar.
í aðalstjórn kjördæmisráðsins
voru kjörnir með samhljóða at-
kvæðum:
Arngrímur Jónsson, skólastjóri
Núpi, formaður, og meðstjórn-
endur:
Ólafur Guðbjartsson, Patreks-
firði, Guðmundur B. Jónsson,
Bolungarvík, Guðfinnur Magnús
son, ísafirði og Vigþór Jörunds-
son, Hólmavík.
í varastjóm voru kosnir:
Gu’ðmundur Agnarsson, Bol-
ungarvík, Kristján Jónsson, ísa-
fixði, Magnús Guðmundsson,
Drangsnesi, Sigurður Guðmunds
son, Otradal, og Magnús Amlín,
Þingeyri.
í blaðstjóm voru kjömir: Finn
ur Th. Jónsson, Bolungarvík,
Ólafur Guðbjartsson, Patreks-
firði, Úlfar Ágústsson, ísafirði,
Þór Hagalín, Núpi og Jakob Þor-
valdsson, Drangsnesi.
1 flokksráð voru kosnir: Jóna-
tan Einarsson, Marzellíus Bern-
harðsson, Jóhannes Árnason,
Guðbrandur Benediktsson og
Magnús Amlín.
1 fundarlok flutti Sigurður
Opin keppni í
golii hjú GR
OPIN KEPPNI í golfi verður hjá
Golfklúbbi Reykjavíkurvelli
klúbbsins n. k. laugardag og hefst
kl. 1,30. Leiknar verða 18 holur
með forgjöf og í flokkum.
Völlurinn er enn í mjög góðu
ásigkomulagi og allir kyifingar
hvattir til keppninnar.
Verzlunarjöfnuður Bretlands
batnar stórlega
Pundið styrkist, verðbréf hœkka
London, 17. sept. NTB — AP.
UTANRfKISVERZLUN Breta
hefur tekið miklum umskiptum
til hins betra, og tölur, sem birt-
ar voru í London um þetta í dag
urðu til þess að sterlingspundið
styrktist gagnvart dollar, verð-
bréf á kauphöllinnj í London
hækkuðu verulega í verði og tal-
ið er að stefnu Harold Wilson,
forsætisráðherra í efnahagsmál-
um, sé mikU stoð að þessum tíð-
indum. f yfirlitj frá verzlunar-
málaráðuneytinu sagði að í ágúst
mánuði hefði hinn óhagstæði
viðskiptajöfnuður landsins minnk
að um úr 51 miUj. sterlingspunda
í 30 milljónir, en svo góð hefur
staðan ekki verið í heUt ár.
Útflutningur Breta í ágúst
jókst >um 27 millj. punda og nam
samtals 537 millj., en innflutning
ur minnkaði á sama tíma um 13
millj. punda, eða í 652 milljónir.
Mismunurinn á þessum tölum
liggur í duldum greiðslum.
Fréttirnar um þetta urðu til
þess að skráð gengi pundsins
gagnvart dollar hækkaði úr
$ 2.38590 í $ 2.38775 fyrir hvert
pund.
í viðskiptalífinu höfðu menn
beðið eftir ágústtölunum með
mikilli eftirvæntingu ,og vonazt
til þess að þær myndu gefa vís-
bendingu um hvert stefndi í efna
hagsmálum eftir Seðlabankafund
inn í Basel nýverið, þar sem
ákveðið var að veita Bretlandi
2.000 millj. dollara lán til stuðn-
ings sterlingspundinu.
Talið er að hinn bætti verzlun-
arjöfnuður munj koma stjórn
Wilsons sérlega vel. Fyrr í ár
Ihafði Wilson oftsinnis látið í það
skína, að einskonar efnahagslegt
undur myndi gerast, og því þarfn
aðist hann vissulega þess stuðn-
ings, sem felst í tölunum um
- FJOLGAÐ
Framhald af bls. 1
Ráðherrann bætti því við, að
liðsaukning þessi væri stundar-
fyrirbrigði, og táknaði ekki að
Bandaríkin hefðu uppi neinar
áætlanir um að auka herstyrk
sinn i Evrópu til langframa
vegna innrásar Svoétríkjanna og
Varsjárbandalagsríkjanna í
Tékkóslóvakíu.
Bandaríkjamenn höfðu áður
kvatt heim 34.00 manna lið frá
Evrópu til þess að gegna öðrum
störfum í Bandaríkjunum sjálf-
um, en áætlað hefði verið að
senda liðið aftur til þátttöku í
áðurnefndum heræfingum, sem
haldnar verða í þátttökuríkjum
Atlantshafsbandalagsins.
ágústmánuð.
Verzlunarmálaráðuneytið til-
kynnti í dag, að mest hefði út-
flutningsaukningin orðið til
Bandaríkjanna, en einnig hefði
nokkur aukning orðið í útflutn-
ingi til Efnahags- og Fríverzlun-
arbandalagslandanna. Verzlunin
við sterlingssvæðið dróst nokkuð
saman á öðrum ársfjórðungi
þessa árs, en jókst hins vegar
aftur í ágúst.
- SILDIN
Framhald af bls. 32
band vi'ð Jakob Jakobsson, fiski-
fræðing, og spurði hann um,
hvernig vænta mætti göngu síld
arinnar á næstunni. Hann sagð-
ist að vísu ekki hafa verið stadd
ur þar norður frá í rúma viku,
en sér virtist á öllu, að hún héldi
réttvísandi vestur næstu daga,
unz hún kæmi að hádegisbaug.
Síðan færi hún líklega að sveigja
suður á bóginn eftir að komið er
á vestlæga lengd, unz hún
væri komin suður af Jan Mayen.
Þá færi hún að hralda suður fyrir
alvöru. Jakob bjóst vfð, að síldin
kæmi þangað eftir u.þ.b. vrku.
- LEIKFELAGIÐ
Framhald af bls. 32
mar Helgason Hjálmar tudda.
Bæði Inga og Valdimar hafa far-
ið með nefnd hlutverk áður. Þor
steinn Gunnarsson og Valgerður
Dan leika Þórarin stúdent og Sig
rúnu. Meðal annarra leikenda
má nefna Steindór Hjörleifisson,
Kjartan Ragnarsson, Borgar
Garðarsson, Eddu Kvaran, Jón
Aðils og Guðmund Erlendsson.
Sveinn Einarsson leikhús-
stjóri sagði, að það nýmæli yrði
tekið upp í vetur, að leikhús-
unnendur gætu keypt áskriftar-
kort, er giltu á fjórðu sýningu,
á að minnsta kosti fimm leikrit-
um, og er ;þá veittur um 25 prs.
afsláttur. Næstu daga vterða slík
áskriftarkort til sölu í miðasöl-
unni í Iðnó. Þá hafa verið prent-
uð gjafakort og við framvísun
þeirra fær hlutaðeigandi tvo
miða á þá sýningu, sem hann kýs
sér.
Þrjú leikrit verða tekin
upp frá fyrra ári. Sýn-
ingar á Heddu Gabler hefj
ast um miðja næstu viku. Leik-
urinn var sýndur tuttugu og
tvisvar sinnum á sl. vori oftast
fyrir fullu húsi. Sú sýning hlaut
mikið lof leikhúsgesta og annarra
og eins og kunnugt er fékk
Helga Bachmann silfurlamp-
ann fyrir leiktúlkun sina á titil-
hlutverkinu.
Þá verður Leynimelur 13 tek-
inn aftur til sýninga. Hann var
frumsýndur seint á síðasta leik-
ári og sýndur við ágætar undir-
tektir. Loks verða hafnar sýning
ar að nýju á Koppalogni Jónas-
ar Árnasonar um miðjan októ-
ber. Sýningar á því leikriti eru
samtals orðnar 72.
- BORN FUNDU
Framhald af bls. 32
„Við vorum á leiðinni upp
í Skátaskála, sem er hérna
skammt frá, sagði Guðmund-
ur Þór, þegar blaðamaður
Morgunblaðisins spurði þau
systkini um fundinn.
„Ég hljóp fyrst," sagði Vil-
borg, „og þegar ég kom hérrm
í rústirnar, þá var ég svona
að grínast og spurði, hvort
þetta væri ekki Skátaskálinn.
Þá sá ég eitthvað niðri í -gryfj
unni“.
„Ég hljóp alveg á eftir Vil-
borgu“, sagði María,, og við
fórum ofan í gryfjuna og lyft
um upp strígapokanum. Þá
kom skápurinn í ljós og við
vissum ekki, hvað við átitum
að gera svo við kölluðum bara
á Sigurgeir".
Sigurgeir þessi er Óskars-
son og var hann í fylgd með
bömunum." Ég renndi strax
grun í, hvaða skápmr væri hér
á ferðinni", sagði Sigurgeir.
„Svo ég hringdi í eigendur
Híbýlaprýði og lét þá vita um
fundinn".
„Við komum auðvi.tað srtrax
á staðinn", sagði Aðalsteinn
Hallsson, annar eigandi Hí-
býlaprýði s.f., og okkur létti
heldur betur, þegar við þekbt
um þarna skápimn okkar
góða".
„Ég gat ekki stillt mig um
að opna skápinn, svona til að
ganga úr skugga um, að allt
væri á sínum stað“, sagði þá
Erlingur, bróðir Aðalsteins og
meðeigandi. „Og þarna voru
öll skjölin eins og við skild-
um við þau á laugardaig —
þjófarnir hafa ekki getað opn
að skápinn".
Nú var hafizt handa við að
ná skápnum upp úr gryfjunni
og gekk það greiðlega. Bömin
fylgdust að vonum með af
miklum áhuga og þegar við
fórum af staðnum, heyrðum
við annan hvorn Hallssoninn
segja: Þau eru meiri lukku-
sílin þessi krakkar.
Aðasteinn Hallsson gengur úr skugga um að ekki hafi verið
hróflað við innihaldi skápsins..