Morgunblaðið - 18.09.1968, Page 3

Morgunblaðið - 18.09.1968, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKU'DAGUR 18. SEPT. 1960 3 Norðmenn hætta hvalveiöum í Suður-íshafi HVALVEIÐUM Norðmanna í Suðurhöfum er sennilega lok ið fyrir fullt og allt. Árið 1930 stunduðu yfir tíu þúsund Norðmenn hvalveiðar, en 384 voru á sáðustu vertíð. Nú hef ur hvalveiðifélagið Kosmos ákveðið að gera ekki út fleiri leiðangra til Suður-íshafsins, vegna mikils verðfalls á af- urðum og sívaxandi rekstrar erfiðleika. Hvalveiðar Norðmanna eiga laniga sögu. f fornöld neru Norðmenn árabátum til hvala og höfðu spjót og skutla að vopnum. Árið 1863 var fyrsta skutulbyssan smíðuð í Töns- berg og sett í allstóran gufu- bát, sem stundaði veiðar und- an Finnmörku. Eftir það stunduðu Norð- menn veiðina einkum í Norð- ur-íshafinu, len hvölum þar fækkaði svo mjög, að öll hval veiði var bönnuð árið 1904. En einum áratug fyrr hafði Chr. Christensen, iðjuhöldur í Sandefjord, gert út leiðangra til Suður-íshafsins og stjórn- aði þeim C. A. Larsen, þekkt- ur fyrir siglingar um íshöfin. Þetta leiddi til þess, að Lar- sen stofnaði árið 1904 hval- veiðifélag í Buenos Aires, Compania Argentina de Pesca. Það starfaði a'llt fram yfir síðari heimsstyrjöldina. Um svipað leyti og hval- veiðar í Norðurhöfum voru bannaðar, keypti Christensen gamalt flutningaskip, um 2400 tonn, og breytti því í fyrsta hvalveiðimóðurskipið. Þá var aðeins sótzt eftir lýs- inu, en kjötinu var hent, vegna þess að lekki var unnt að geyma það. Norðmenn voru einir um hvalveiðar í Suður-íshafi fram um 1920, en þá slógust Bretar í hópinn og smám sam ' :• • Norskir hvalveiðibátar í Sandefjord. Merkum þætti í atvinnusögu Noregs er lokið. Hvalveiðimóðurskipið „Kosmos IV“. Um borð er fullkomin verksmiðja, sem ekki er vitað hvað verður um. an aðrar þjóðir. Veiðarnar jukuist gifurlega og verð fram leiðsluvörunnar lækkaði, jafn framt því sem menn fóru að óttast að hvölum yrði útrýmt. Árið 1936 komu norskir og brezkir hvalveiðimenn sér saman um takmörkun á veiði tíma og lágmarksstærð á hvölum sem mátti veiða. Ár- ið eftir var gerð alþjóðleg samþykkt um hvalveiðar í Suður-íshafi Árið 1928 stofnaði Anders Jahre hvalveiðifélagið Kesm- ois og átti það félag eftir að hafa mikil áhrif á atvinnu- líf Noregs. Smám saman tók það forystuna í hvalveiðum Norðmanna. Þá var farið að hafa dráttarbrautir um borð í skipunum ag draga hvalina um borð til vinnslu. Nýir Mercedes Benz eru aðalvinningarnir Sjálfstœðisflokkurinn efnir til glœsilegs landshappdrœttis SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR- INN hleypir nú af stokkun- um landshappadrætti. Er hér um að ræða óvenju glæsilegt happdrætti — vinningarnir eru tveir Mercedes Benz 220 fólksbílar og er verðmæti þeirra samtals 914 þúsund krónur. Bílarnir eru af ár- gerðinni 1969 og hinir fyrstu, sem koma hér á markaðinn. Verð happdrættismiðanna er aðeins 100 krónur, eða hið sama og verið hefur í undan- fömum landshappdrættum. Dregið verður í happdrætt- inu 5. nóvember næstkomandi. Miðar hafa þegar verið sendir Sjálfstæðismönnum víðsvegar um land svo og hér í bænum. Þá munu miðar verða seldir hér í miðborginni næistu daga — til að mynda úr happdrættisbílunum, þegar þeir koma á göturnar í lok vikunnar. Skrifstofa flokks- ins er í Sjálfstæðishúsinu við Austurvöll. Mikið ríður á að þetta landshappdrætti fái góðar viðtökur hjá stuðningsmönn- um, þar siem um þessar mund- ir reynir mjög á starf og styrkleika Sjálfstæðisflokks- ins. Fer hér á eftir hluti úr bréfi miðstjórnar Sjálfstæðis- flokksins, er hún fylgir happ drættinu úr hlaði: Andstæðingar flokksins veit ast hart að honum vegna örð ugleika efnahagislífins, er nú steðja að. f þeim ásökunum er þó öllu snúið við, því að enginn flokkur ræður við veðurfar, aflabrögð, verðfall á erlendum mörkuðum eða lok- un þeirra vegna innbyrðis borgarastyrjaldar. Hinsvagar eru íslendingar nú miklu fær ari en áður til að standast því líka örðugleika einmitt vegna stjórnarstefnu undanfarinna ára, svo sem söfnunar gjald- eyriisvarasjóðs og upphafs stóriðju. Nú ríður á, að Sjálfstæðis- menn sýni árvekni, herði bar áttuna fyrir góðum málstað og efli samtök sín. Mieð því móti munum við bezt koma í veg fyrir, að villt verði fyrir r _ '^rr y1) jllilll ft/ Z VERÐMÆTI KR.: 854.000,00 VERÐ KR.: 100 DREGIÐ 5. NÖVEMBER 1968 almenningi um hið sanna eðli hinna tímabundnu erfiðleika, sem nú er við að fást. Og með því móti munum við tryggja bezt, að ráðum og for ustu flokks okkar verði fylgt við úrlausn vandans. En nú sem fyrr þarf á fé að halda til reksturs flokks- ins og treystir miðstjórnin því á samhug og einbeittni Sjálfstæðismanna. Rœða inngöngu Bretn í E B E Lorndon, 17. sept. NTB. UTANRÍKISRÁBHERRA Belgíu, Pierre Harmel, og Michael Stew- art, utanríkisráffherra Bretlands munu á morgun ræffa á fundi í London nýjar ráffstafanir í þvi skyni aff færa Bretland nær Efna hagsbandalagi Evrópu. Belgia hefur aUtaf veriff fylgjandi því, aff Bretar fengju inngöngu í bandalagiff eins fljótt og unnt væri, en slíkt hefur alltaf strand aff á neitun Frakka. Joseph Luns, forsætisráffherra Hollands, átti samskonar viffræffur viff Stewart í London 30. ágúst sL Haft var eftir áreiðanlegum heimildum í Bretlandi í dag, að Stewart myndi skýra Harmel frá því, að Bretar óski eftir fullri aðild þrátt fyrir neikvæðar yfir- •lýsingar de Gaulles um þetta efni að 'undanfömu. Bretar eru einn- ig fúsir til þess að íhuga aðrar tillögur frá ríkjunum sex innan EBE, þ. e. s. ef þessar tillögur standa í sambandi við inngöngu Breta innan skamms. Þá mun Harmel einnig ræða við Stewart um ástandið milli austurs og vesturs eftir það, sem gerzt hefur í Tékkóslóvakíu svo og um málefni Atlantshafsbanda lagsins. Haft er eftir sömu heim- ildum, að utanríkisráðherrar að- ildarTÍkja Atlantshafsbandalags- ins muni koma saman til sérstaks fundar í Briissel snemma í nóv- ember til þess að ræða ástandið í Evrópu. Þá munu þeir Harmel og Stew- art sennilega taka fyrir á fundi sínurn viðræður þær, sem þeir áttu fyrir skömmu við rúmenska leiðtoga i Búkarest. STAKSTEIMAR Hvert fer unga fólkið?, Þaff hefur orffiff stöffugC meira áberandi á undanförnum árum, aff ungt fólk, sem hefur aflaff sér vífftækrar menntunar m.a. í öffrum löndum, leitar fyrst og fremst til opinberra. affila, ríkis, sveitarfélaga, lána- * stofnana og annarra opinberrat affila um störf aff námi loknu. Erlendis er þaff svo, aff atvinnu- fyrirtækin sitja um þá, sem út- skrifast úr beztu háskólunum og bjóffa þeim atvinnu, er hérlend- is virffist unga menntafólkiff fælast atvinnulífiff og leita sét rólegri atvinnu og meira örygg- is undir verndarvæng hins opin- bera. Smátt og smátt leiffir þessi þróun til þess aff hæfa starfs- krafta skortir til stjórnunar-* starfa í atvinnulífinu, en hint raunverulega stefnumörkun fyr- ir atvinnuvegina færist meir og meir í hendur háns opinbera„ sem hefur dregiff til sín hæfustxi starfskraftana- Auffvitaff et þetta engan veginn einhiýtt. Eit þaff er athyglisvert, aff þeir sent * mest kveður aff í atvinnulífinu. eru yfirleitt ekki langskóla— gengnir menn, heldur hinir, sent litla menntun hafa hlotiff, en hafa freistaff gæfunnar í örygg- isleysi atvinnulífsins, tekiff mikla áhættu og sigraff. Hvers vegna leitar unga fólkiff ekki til atvinnuveganna eins og í öffrun* löndum? Skipulag og jafnvægisleysi f affra röndina er ástæffai* vafalaust sú, aff atvinnufyrir-i fyrirtæki á íslandi eru enit þannig upp byggff, aff þau Ieita fremur eftir starfskröftum til f jölskyldunnar, sem á fyrir-j tækiff, heldur en utan hennarj Fyrirtækin eru einnig þaff smá*! aff þau hafa einfaldlega hvorkl bolmagn né rúm til þess aff ráða sénnenntað fólk. En einnig má búast viff, aff þaff jafnvægisleysi, sem er í islenzku atvinnulífi, þau skjótu umskipti, sem orffifl geta í örlögum fyrirtækja ©g dæmin sanna, fæli unga fólkið frá atvinnulífinu. Þaff leitar frekar þess öryggis, sem er fyrir hendi hjá opinberum affilum og þeirra áhrifa, sem þar standa til boffa þeim sem skara fram úcj Þaff hlýtur aff verffa eitt megin—i verkefniff í uppbyggingu ís-J lenzkra atvinnuvega á næsttf árum og áratugum aff breytá þessu og gera atvinnuvegunum kleift aff draga til síu hæfa off vel menntaffa menn. Aff vísu ertt starfandi ýmis konar samtök á vegum einstakra greina atvinnu— lifsdns, sem hafa Iaffaff til sátt unga hæfileikamenn, en þeir starfa ekki aff beinni stjóm atvinnufyrirtækjanna, heldur sem fulltrúar hagsmunasamtaka þeirra. Ungt fólk -atvinnulífið Þaff hefur meginþýffingu fyrir framþróun íslenzkra atvinnu- vega að okkur takist aff fá ungt fólk út í atvinnulífiff, aff draga c þaff frá hinu opinbera og út i iðandi hversdagslíf atvinnufyrir- tækjanna, sem valda kannskl erfiffleikum og áhyggjum, en gefa einnig mikiff í affra hönd, ef rétt er á haldið. Okkur tekst aldrei aff byggja atvinnulífiff upp svo vel sé, ef fólkiff meff mennt- unina situr á bak við skrifbor® á stjórnarskrifstofu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.