Morgunblaðið - 04.10.1968, Síða 5
MOKGtUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1968
5
Flytja ósekkjað korn til landsins
RÚM tvö ár eru nú síðan m.s.
Brúarfoss kom með fyrstu send-
inguna af ósekkjuðu komi til fs-
lands. í þessari fyrstu ferð lest-
aði Brúarfoss 250 tonn af ómöl-
uðu og' ósekkjuðu korni í Phila-
delphiu í Bandaríkjimum og kom
hann til Reykjavíkur 21. maí
1966. Hér var um tilraun að
ræða og magnið því ekki meira,
en þessir flutningar reyndust vel
og hafa þeir farið sívaxandi síð-
an, en kornið er malað hér á
landi og notað í fóðurblöndu.
Þegar m.s. Brúarfoss var smíð
aður á sinum tíma voru settar í
lestar hans sénstakar festinigar
svo setja mætti ‘þar upp til þess
gerð skilrúm, þegar skipið flytti
laust korn. Annað skip Eim-
skipafélags íslandis, Selfoss, er
búið sams konar lestabúnaði og
Brúarfoss.
Korninu er skipað út á þann
hátt, að slanga er lögð frá korn-
hiöðu út í skipið og korninu síð-
an blásið um borð. Einnig hefur
Eimskipafélagið orðið isér úti um
sérstakan blásara, sem notaður
er við losun og er korninu þá
blásið beint úr skipslestinni á
vörubíla.
Fer Lagercrantz
frá Dagens
Nyheter?
SKOÐANAÁGREININGUR með-
al aðalritstjóra Dagens Nyheter,
stærsta morgunhlaðsins í Svi-
þjóð, hefur leitt til þess, að ann
ar þeirra, Olof Lagercrantz, hef
ur í bréfi til blaðstjómarinnar
sagt upp samstarfi sínu við Sven-
Erik Larson, sem er hinn aðal-
ritstjóri blaðsins. bá var því enn
fremur haldið á lofti, að Lager-
crantz hafi fundizt hann sæta
vaxandi gagnrýni af hálfu eig-
enda meiri hluta hlutafjárins í
blaðinu, þ.e. Bonniersfjölskyld-
unnar.
Gert hefur verið ráð fyrir, að
blaðstjórnin myndi taka bráðlega
afstöðu til bréfs Lagercrantz.
Starfsmannafélag blaðsins hefur
hinsvegar lýst því yfir einróma,
að það óski þess, að Lagercrantz
verði áfram aðalritstjóri.
Því fyrirkomulagi var komið
á 1960, að aðalritstjórar blaðsins
skyldu verða tveir, en þá hætti
Herbert Tingsten prófessor, rit
stjórn blaðsins, eftir að komið
’hafði til deilu milli hans og eig-
enda þess. Það er á allra vitorði,
að Lagercrantz vil fylgja rót-
tækari stefnu í blaðinu, sem eink
um kemur fram á menningarsíð-
um þess. Leiðaragreinar blaðsins
hafa aftur á móti mótazt af stuðn
ingi Larssons við Þjóðarflokkinn.
Frá Stokkseyri
Afli góður fram
í ágústlok
’STOKKSEYRI, 2. október. — Frá
Stokkseyri hafa verið gerðir út
þrír bátar í sumar og tekinn
'hefur verið fiskur af þremur að-
komubátum. Afli var með bezta
móti fram til ágústloka, en þá
spilltist veður og september hef-
ur verið fremur lélegur.
Tveir 45 rúmlesta bátar eru nú
í smíðum fyrir Stokkseyringa í
Stykkishólmi og verður sá fyrri
væntanlega sjósettur um miðjan
þennan mánuð og afhentur eig-
endum fyrir áramót. En sá síð-
ari væntanlega fyrri hluta næsta
'árs. Útgerð frá Stokkseyri mun
Vera talin hvað erfiðust hér á
landi og gerir það mest ihafn-
'leysan. Er slæmt til þess að vita,
þar sem fyrir landi liggja beztu
fiskimið landsins. Væntanlega
istendur þetta þó til bóta og
’treystum við þar á skilning ráða-
manna fyrir því að hér þurfi að
gera hafnarbætur, svo að nýta
megi dugnað og atorku þess
fólks, sem hér býr, til hagsbóta
fyrir land og þjóð.
Mikil atvinna hefur skapazt
Við þurrkun sal'tfisks og verður
ihér fullþurrkaður saltfi’skur um
'170 tonn.
Nýr fram'kvæmdastjóri var ráð
inn fyrir hraðírystihúsið í sum-
ar. Er það Ásgrímur Pálsson frá
Keflavík.
Á vegum hreppsins hefur ver-
ið unnið að vatnsveitufnam-
kvæmdum og er því verki að
verða lokið. Er nú aðeins eftir
'að legg'ja vatn í þrjú 'hús í kaup-
túninu.
Furðanlega rættist úr með hey-
feng bænda og má segja að allir
bændur í hreppnum séu sæmi-
'lega heyjaðir. — S.J.
Dacca, Austur-Pakistan,
1. o'któber AP.
ELLEFU manns hafa látizt úr
kóleru í borginni Pabna, en þar
hafa komið upp 50 kólerutilfelli
síðustu tvo daga.
Brúarfoss lestar ósekkjað korn í Norfolkhöfn.
Norður-Ationtshafsþingið mun
ræða innrúsina í Téhkóslóvakíu
Sagði Matthías A. Mathiesen, forseti þess
á fundi með fréttamönnum í Brussel
Einkaskeyti til Morgunblaðs-
ins frá AP.
Brússel, 1 .október.
AFLEIÐINGAR innrásarinnar í
Tékkóslóvakíu, verða helzta um-
ræðuefni Norður-Atlantshafs-
þingsins, sem hefst hér 11.
nóvember. Norður-Atlantshafs-
þingið er samtök þingmanna í
aðildarríkjum Atlantshafs-
bandalagsins. Matthías Á.
Mathiesen, forseti sambandsins,
sagði á fundi með fréttamönn-
um, að áhrif innrásarinnar á
Atlantshafsbandalagið og valda-
jafnvægið í heiminum myndi
taka mestan tíma á ráðstefnunni.
Hann isagði að hr. B'lumenfeld
frá Þýzkalandi og bandaríski
þingmaðurinn Sherman Cooper,
myndu leggja fram skýrslu um
þessi mál. Meðal þeirra siem
ávörpuðu ráðstefnuna væru Hal-
vard Lange, Lyman Lemnitzer,
hershöfðingi, yfirmaður NATO í
Mið-Evrópu og Manlio Brosio,
framkvæmdastjóri NATO.
í Norður-Atlantshafs'þinginu
eru um 150 þingmenn frá öllum
aðildarlöndum NATO. Það er
aðeins ráðgefandi, en hefur úr-
skurðarvald í sambandi við
stsfnu eða aðgerðir Atlantshafs-
bandalagsins.
Kennsla hefst
7. okt. n.k.
Ballett fyrir byrjendur og
framhaldsnemendur.
Innritun daglega í síma
8-48-42. frá kl. 10—12 og
3—7.
alleítskólí
atrínar Guðjónsdóttur
Lindarbæ.
DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS
EINAINIGRUIMARGLER
BOUSSOIS
INSULATING GLASS
Mikil verðlœkkun
ef samið er strax
Stuttur afgreiðslutími.
10 ÁRA ÁBYRGÐ.
Leitið tilboða.
Fyrirliggjandi
RÚÐUGLER
4-5-6 mm.
Einkaumboð:
HANNES
ÞORSTEINSSON,
heildverzlun,
Sími: 2-44-55.
Vörugeymsla
v/Shellveg 244-59.
Harðtex
WISAPAN
Sponaplctur
frá Oy Wilh.
Schauman aJb
Vér eigum jafnan fyrir-
liggjandi hinar vel þekktu
finnsku spónaplötur í öll-
um stærðum og þykktum.
Caboon-plötur
Krossviður
alls konar.
OKALBOARD
(spónlagt).
VIALABOARD
Útvegum einnig allar ofangreindar plötur með stutt-
urn fyrirvara.
Einkaumboðið
ALLT MEÐ
EIMSKIP
JÓLA- OG NÝÁRSFERÐ
M.S. CULLFOSS
Viðkomuhafnir: Amster-
dam, Hamborg, Kaup-
mannahöfn og Thors-
havn.
Frá Reykjavík 23. des-
ember 1966. Komið aftur
8. janúar 1969.
Á næstunni ferma skip vo»
til íslands, sem hér segir
ANTWERPEN
Skógafoss 12 oiktóber
Reykjafoss 25. október
Skógafoss 4. nóvember *
ROTTERDAM
Reykjafoss 5. okt. *
Skógafoss 15. okt.
Selfoss 23. okt.
Reykjafoss 28. okt.
Skógafoss 6. nóv. *
HAMBORG
Reykjafoss 7. okt. *
Skógafoss 17. okt
Reýkjafoss 23. okt.
Selfoss 26. október.
Skógafoss 1. nóv. *
LONDON
Askja 4. okt. *
Mánafoss 14. okt.
Askj'a 28. okt.
HULL
Askja 7. okt. *
Mánafoss 11. okt.
Askja 25, okt.
LEITH
Askja 9. okt.
Mánafoss 17. okt.
Askja 31. okt.
NORFOLK
Fjallfoss 12. okt.
Brúarfoss*2. nóv.
NEW YORK
Fjallfoss 16. okt. *
Brúarfoss 6. nóv.
GAUTABORG
Lagarfoss 18. október *
Tungufoss 26. október.
KAUPMANNAHÖFN
Gullfoss 5. okt.
Lagarfoss 16. okt. *
Gullfoss 19. október.
Tungufoss 28. október.
Gullfoss 2. nóvember.
KRISTIANSAND
Gullfoss 6. okt.
Tungufoss 7. október.
Bak'kafoss 30. október.
GDYNIA
Tungufoss 4. október.
Bakkafoss 26. október.
VENTSPILS
Dettifoss 16. október.
KOTKA
Dettifoss um 15. október.
* Skipið losar í Reykja
vík, ísafirði, Akureyri
og Húsavík.
Skip, sem ekki eru merkt
með stjörnu, losa aðeins í
Rvík.
ALLT MEÐ
EIMSKIP