Morgunblaðið - 04.10.1968, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1968
7
Stjórnaði hér „welskum" háskólakór
í júlímánuði í sumar var hér
á ferðinni welskur háskólakór,
er fór víða um land og héli
söngskemmtanir. Aðallega voru
það brezk þjóðlög ,er kórinn
flutti, en þó vakti það eftirtekt,
að íslenzk þjóðlög voru líka á
söngskrá kórsins. En skemmst
er frá því að segja, að kórinn
skemmti undantekningarlaust
við góðar undirtektir áheyrenda
Söngstjóri kórsins var ungur
maður, John Hearne, sem nam
tónlist við þennan háskóla.
Hafði hann útsett lögin á söng-
skránni, enda velliðtækur radd-
setjari og tónskáld.
John Hearne er nú aftur kom
inn til landsins, og til lengri
dvalar að þessu sinni. Hann
fékk mikinn áhuga á landi og
þjóð, er hann var hér á ferð í
fyrra skiptið. Kynntist hann og
nokkrum tónlistarfrömuðum, og
vakti þá máls á því, að hann
hefði huga á því að fá hér
starfa við tónlistarfræðslu.
John Hearne
Meðal annara, sem Hearne
hitti hér, varRóbertA. Ottósson
söngmálastjóri Þjóðkirkjunnar,
og tók hann mjög vel í mála-
leitan Hearne. Kvaðst hann
skyldu athuga, hvort ekki væri
að finna lausa stöðu.
Og þegar Hearne var kom-
inn aftur til heimastöðvanna,
fékk hann bréf frá íslandi, þar
sem honum var tjáð, að hann
gæti fengið píanókennarastöðu
við Tónlistarskólann i Borgar-
nesi. Hearne lét ékki segja sér
það tvisvar, kom með allar
föggur sínar með Gullfossi fyr-
ir nokkrum dögum, og hefur nú
væntanlega tekið við starfa sín-
um í Borgarnesi.
„Ég er ákaflega ánægður með
að vera kominn aftur tU fs-
iands og hygg gott til glóðar-
innar með dvöl minni hér, tjáði
John Hearne Morgunblaðinu —
Auk kennslunnar vonast ég til
að geta kynnt mér rækilega is-
lenzk þjóðlög og ennfremur
unnið eitthvað að tónsmíðum."
Á
Hallgrímur Björnsson,
yfirkennari.
Sextíu ára, sæmd og þakkir hlýtur,
sannur og traustux góðra verka nýtur.
Stendur á tindi manndóms merku tíma,
margháttuð störfin ávallt vi'ð að glíma.
Athafnaþráin var í blóð þér borin,
blómstrandi kraftur lýsti upp æsku sporin.
Draumsýnir fagrar, hilling hárra vona,
hugsjónir glæstar landsins heztu sona.
Rætzt hafa draumar, afl í athöfn bundið,
áhugamáium djarft til sigurs hrundið.
Lífsstarfið göfugt: Islands æsku blóma
efla til lærdóms, þroska, vits og sóma.
Brúði þér valdir, afbragð ungra kvenna,
ættgöfgi beggja má í sonum kenna.
Hollráðir makar hverskyns vanda leysa,
heimilisgæfu á traustum grunni reisa.
Vinir þér senda kveðju í kærleiks anda,
kynbornar dísir vörð um hag þinn standa.
Enn muntu framtíð eiga langa og bjarta,
áfram þín reisn og glæsileiki skarta.
Halldór Guðjónsson.
að alltaf þætti honum skemmti-
legra að sjá til sólar þegar hann
vippaði sér út 1 morgunsárið, þótt
ekki blæddi úr því, eins og hjá
skáldinu Jónasi Svafár. Við, sem
búum í Reykjavík, megun vera
guði þakklátir fyrir fegurðina hér
við sundin bláu. Eiginlega ersama,
hvaða árstími er, alltaf er hér jafn
fallegt, og svo í Vesturbænum, sem
í Austurbænum, og sjálfsagt einnig
í nýju hverfunum, enda er von
allra, að ungu skáldin feti í fót-
spor Tómasar og yrki ljóð, þess-
um hverfum til vegsömunar.
En þegar ég kom niður í mið-
borgina í fögru veðri í gær, hitti ég
mann, sem sat í sólinni framan við
Iðnó og horfði á endurnar á Tjörn
inni stinga haus í ætið á Tjarnar-
botninum.
Storkurinn: Finnst þér ekki fall-
egt manni minn?
Maðurinn hjá Iðnó: Svo sannar-
lega. Þetta er hrein dýrð. Og mér
finnst einhvernveginn, að þessu
fuglalífi á Tjörninni ætti að við-
halda og auka, til yndisauka borg-
arbúum. Fátt getur skemmtilegra
en að sjá foreldra með börnum sín
um ganga um Tjarnarbakkana með
brauðmylsnu handa „Bra-bra.“
Mér er nú málið ofurlítið skylt,
sagði storkur og ég tek undir álit
þitt af heilum hug. Og þótt allt
hækki á þessum síðustu tímum, mun
ar varla um þau brauðkorn, sem
hrjóta af borði okkar, til að gleðja
andatetrin. Svo fer nú veturinn
senn í hönd, og þá mætti minnast á
Sólskríkjusjóðinn, en hann hefur
séð um það, að fuglakorn sé til
sölu í búðum. Þegar hart er í ári
hjá smáfuglunum, er okkur holt að
minnast þess, að guð elskar glaðan
gjafara.
VÍ8UKORINS
Hugsaðu um það, hringa láð,
hvað hlaust af vilja þínum.
Köld eru jafnan kvennaráð,
kemur að orðum mínum.
Ogmundur Pálsson biskup.
60 ára er í dag Haraldur Salóm-
onsson, pípulagningarmeistari.
Hann tekur á móti gestum á heim-
ili sínu Reynihvammi 4.
Endur á Tjörninni. Duggönd í miðið.
Píanókennsla Eins til þriggja herb. íhúð
Jónína Gísladóttir óskast strax. Reglusemi og
Grenimel 5, góðri umgengni heitið. —
sími 14971. Upplýsingar í síma 15792.
Píanókennsla Ung stúlka
Framhaldsnemendur talið 21 árs gömul óskar eftir at-
við mig sem fyrst. vinnu, margt kemur til
Gunnar Sigurgeirsson greina. Upplýsingar í síma
Drápuhlíð 34, sími 12626. 37247.
Eitt herbergi og eldhús Ekta loðhúfur
eða aðgangur að eldhúsi mjög fallegar á börn og
óskast á leigu. Reglusemi unglinga, kjusulag með
‘heitið. Húshjálp ef óskað dúskum. Póstsendum. —
er. Upplýsingar í síma Kleppsveg 68, 3. hæð til
92-6527 frá 1—5. vinstri, sámi 30138.
Landrover ’62 Vil kaupa Volkswagen
til sölu klæddur og vel ’65—’66. Upplýsingar í síma
með farinn. Sími 30070. 17626 eftir kl. 7.
Keflavík Keflavík
Síðbuxur útsniðnar ný- Beltispeysurnar komnar. —
komnar. Margir fallegir litir.
Verzlunin Edda. Verzlunin Edda.
Vön saumakona Keflavík
óskar eftir heimavinnu við Pils nýjar tegundir. Hvítar
breytingar og viðgerðiir á blússur vorum við að taka
alls konar fatnaði. Sími upp.
40026 e. h. Verzlunin Edda.
íbúð óskast Volvo vöruhíll, árg. ’55,
Ung hjón óska eftir lítilli 375, til sölu í stykkjum.
íbúð. Upplýsingar í síma Pall- og sturtulaus. Uppl.
22150. í síma 50335.
Bókhald Húsmæður athugið
Tek að mér bóbhald og Lagfæri og breyti fatnaði á
launaútreikninga. Tilboð börn og fullorðna.
merkt „100% þjónusta — Karín Frederiksen,
2138“ sendist Mbl. fyirir 15. Kárastíg 4 (bakdyr).
október. Geymið auglýsinguna.
Kvöldsaumanámskeið Bókhald
hjá Húsmæðrafél. Reykja- Tek að mér bókhald fyrir
víkur byrjar 11. október. lítil fyrirtæki. Tilboð send-
Upplýsingar í síma 16304 ist Mbl. merkt: „Heima-
og 34390. vinna 2054“.
Keflavík — Njarðvík Flatir — nágrenni
fbúð óskast fyrir barnlaust Sauma kjóladragtir, buxna
fólk. Uppl. í síma 2253. dragtir, kápur. Sími 52170.
Til leigu Saab 1964
ný fjögra herbergja íbúð. til sölu. Sími 51238 og
Sími 13243. 17926.
Sniðkennsla Keflavík — Suðumes
Síðdegis- og kvöldtímar Samkvæmiskjóiaefni, afgal
eru að hefjast. Nánari upp- on-kjólae., einl. og munstr-
lýsingar í 19178. uð. Svart terylene, nýjar
Sigrún Á. Sigurðardóttir, sendingar. Verzlun Sigríðar
Drápuhlíð 48. Skúladóttur, sími 2061.
Bezt að auglýsa í Húsasmiður óskar eftir atvinnu, vanur
Morgunblaðinu • — úti- og innivinnu. Sími 52564.
Jörð ftil sölu
Jörð í nágrenni Reykjavíkur er til sölu. Húsakynni
eru 1. flokks, nýbygging og jörðin er á mjög fallegum
stað. Selst aðeins félagssamtökum. Jörðinni fylgir
lax- og silungsveiði, sem ekki er í leigu.
Tilboð leggist á afgreiðslu Morgunblaðsins merkt:
„Jörð — 8998“ fyrir 15. okt. n.k.