Morgunblaðið - 04.10.1968, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1968
21
SVEINN KRISTINSSON SKRIFAR UM:
KVIKMYNDIR
HASKÓLABÍÓ
YFIRGEFIÐ HÚS
(This Property Is Condemned)
Framleiðandi: John Houseman
Leikst.jóri: Sydney Pollack
'Þessi á margan hátt sérstæða
mynd mun líklega ná talsverð-
um vinsældum. Hún er vel
byggð, mátulega hröð, þannig að
hún heldur áhorfendum ávallt
við efnið, og leikur er yfirleitt
góður, þótt ein persónan — og
það höfuðpersóna — í gervi
Natalíu Wood, sýnist ekki henta
sérstaklega vel því hlutverki,
sem henni er ætlað. Ég hefði
reynt að fá Jane Fonda, eða ein-
hverja léttúðarlegri kvenper-
sónu í það hlutverk. Nartalía er
nefnilega, þrátt fyrir töfrandi
fegurð sína, með „jómfrúarsvip“
eins og mamma hennar segir
líka við hana í reiðikasti.
Ekki fann ég neina pottþétta
skýringu á því, hversvegna höf-
uðpersónan reynist svo frámuna
lega lauslát sem raun er á. Hlelzt
er þó svo að skilja, að móðir
hennar hafi ekki beiltt hana
sem heppilegustum uppeldisað-
ferðum, en faðir hennar er ekki
heimilismaður, þegar myndin
hiefst. — Móðirin er líka ver-
gjörn nokkuð og á sér heljarmik
inn friðil, og sennilega hefur
hún haft talsvert fjármálavit,
því ekki á hún aðra ósk heit-
ari en dóttir hennar bindi trús's-
ur sínar við milljónara nokk-
urn, sem reynir að hressa upp á
heilsu sjúkrar konu sinnar með
því að halda fram hjá henni.
Móðurfriðill Natalíu gerir einnig
hosur sínar grænar fyrir henni,
og flækir það málið.
Snltfisksbirgðir
búnar í Álnsundi
Álasundi, 1. okt. NTB.
SALTFISKBIRGÐIR hér eru nú
á þrotum að afstöðnum fisksöl-
um til Kúbu og hefur það leitt
til þess, að mun auðveldara er að
taka á móti línufiski en fyrr í
haust. Þá hefur verið á löngu og
keilu einnig hækkað síðustu
daga. Fiskverkendur verða að
tryggja sér nýtt hráefni og gert
er ráð fyrir, að bátar, sem veiða
á línu, muni halda áfram veið-
um alveg fram að jólum. Veið-
in, sem fæst, nær allt að 50 tonn-
um.
Svo kemur Owen Legate til
sögunnar (leikinn af Robert
Redford). Hann gegnir því van-
þakkláta starfi að njósna um
vinnuhæfni járnbrautarstarfs-
manna á þessum slóðum. Þetta
er glæsilegur maður, á góðum
aldri, og fer ekki fram hjá því,
að Natalía litla festi auga á hon
um, jafnvel öðrum mönnum
fremur. Owen er ljóist að Nata-
lía er flöktandi fiðrildi í ásta-
málum og gefur henni til
kynna, að hann meti lítils ístöðu
leysi hennar. Samt hneigjast
hugir þeirra saman, og dag
nokkurn fallast þau í faðma í
heitum ástaratlotum.
En móðir Natalíu (Kate Reid)
er lítið hrifin af því, að dóttir
hennar festi ást á öðrum manni
en milljónaranum og reynir því
að spilla sambandi þeirra. Dótt-
irin fer þá eins konar millileið
og giftiat friðli móður sinnar, en
rænir fjármunum eiginmanns
síns á brúðkaupsnóttina og flýr
á fund Owens. — og er mikil
saga enn ósögð.......
Allir eru atburðir þessir sýnd-
ir í „flash back“. Það er þrettán
ára systir Natalíu, sem er að
segja ungum leikfélaga sínum
frá þeim ánægjuríku dögum, er
Natalía var enn í heimahúsum
og hafði ekki fengið „bólgu í
lungun“. Leikur þessarar ungu
telpu er frábær, hún tekur eftir
og veit sínu viti, er líka ófeim-
in að spyrja, ef henni
finnst eitthvað á skorta þekk-
ingu 'sína. — í sannleika sagt
virðist æskuheimilið ekki sér-
lega vel fallið til barnauppeldis.
Við vitum ekki, hvort það hefur
skaðað telpuna, í huga hennar
er efst þörfin að tjá sig um liðna
atlburði, og síðan stiklar hún eft-
ir járnbrautarteinunum til óvissr
ar framtíðar.
Kvikmynd þessi er gerð eftir
smásögu Tennessee Williams, en
ekki veit ég, hversu efnisþræði
hennar er trúlega fylgt. Kvik-
myndir gerðar eftir snjÖllum
smásögum geta verið sérlega vel
heppnaðar, en hitt er til, að
söguþráðurinn bindi of hendur
leikstjóra eða hugmynd sögu-
höfundar sé honum ekki nægi-
lega vel ljós. Einnig er til, að
hann velji ekki hentugar „týp-
ur“ í ákveðin hlutverk. —
Kannski er aðdragandi sögu-
þráðar þess, sem fram kemur í
myndinni rakinn nánar í smá-
sögunni. Útskýringar „Willie"
litlu nægja okkur ekki ávallt til
að fá viðhlítandi skýringar á
Tökum upp
í dag
hina margeftirspurðu
TAVA DAGS- og
KVÖLDKJÓLA.
Tízkuverzlunin
Rauðarárstíg 1.
viðbrögðum fólks í þes'sari
„condemned property“. —
Undir lokin nálgast mynd
þessi það, sem góðir tungumála-
menn og listskýrendur mundu
kalla ,,melodrama“ og gretta sig
í leiðinni. Melodrama er eitt
haiftúðugasta skammaryrði
margra, er um listir skrifa, og
raunar furða, hvað þeir hafa geð
á að taka sér slíkt óþverraorð
oft í munn. Nú er það svo, að
ef á annað borð skal tíunda
mannlegar tilfinningar á breið-
um grunni, án undandráttar, þá
eru það hrein skattsvik að telja
alls ekki fram sumar þær meg-
inkenndir sem í manneðlinu þró
ast, á meðan um aðrar er fjallað
af örlæti. Fyrir utan það, hve
slíkt er lítil jafnaðarmennska.
Þess má geta í leiðinni, að
„tilfinningasemi" er síður en svo
sérlega einkennandi fyrir þessa
mynd, þótt dapurlegur endir
geri nær óhjákvæmilegt, að
henni bregði fyrir.
Eigi veit ég, hver er höfundur
íslenzka textans í þessari mynd.
En það mun vera nokkuð djarf-
ur maður, að minnsta kosti
bregður hann fyrir sig setning-
um, sem ekki eru algengar í ís-
lenzku bókmáli. — Ég mundi
koma með dæmi, ef mig brysti
ekki kjark til þess.
Vnnir verhnmenn ósknst
í byggingavinnu. ’— Upplýsingar á staðnum.
Gagnfræðaskóli verknóms við Ármúla.
Ódýrt rúgmjöl í lausri vigt
í sláturtíðinni
Qpið til klukknn 10
öll kvðld viknnnnr
NÆG BILASTÆÐI
hjólbarðaverksmiðjurnar nota eingöngu þessa vél við að snjónegla
alla sína vetrarhjólbarða.
BIFREIÐASTJÓRAR
Látið okkur snjónegla alla hjólbarða yðar með hinni sjálfvirku, full-
komnu O.K.U. neglingarvél, sem við höfum í notkun á hjólbarða-
vinnustofu okkar. Með vélinni má snjónegla allar tegundir snjó-
hjólbarða. Nákvæmni hennar tekur öllum öðrum vélum fram.
Af annarri þjónustu okkar má nefna að við:
Skerum snjómynstur í hjólbarða, eins og undanfarna vetur.
Höfum sérstaka vél til að losa hjól undan stórum bifreiðum.
Höfum fullkomna ballancevél til að jafna misþunga í hjólbörðum
fólksbíla.
Seljum allar stærðir af snjóhjólbörðum. Sendum um allt land gegn
póstkröfu. — Viðgerðarverkstæði okkar er opið alla daga kl. 7.0—22.
Gúmmívinnustofan
Skipholti 35. — Reykjavík. — Sími 31055.