Morgunblaðið - 04.10.1968, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 196«
Nokkur biðröð hafði myndazt við verkstæði lögreglunnar í Síðumula, síðdegis á þriðjudag.
(Ljósm. Mbl. Sv. Þormar)
Skekkjur í stillingu og lélegar perur
MARGIR hafa komið með bíla
eína í ókeypis ijósaskoðun þá,
sem nú er framkvæmd í tíu bíla-
verkstæðum í Reykjavik. Á
mánudag voru athuguð ljós á
Tónskóli IMes-
kaupstaðar
Neskaupstð, 1. október.
TÓNSKÓLI Neskaupstaðar var
settur í dag í Egilsbúð. í vetur
stunda 37 nemendur nám við
skóiann og verður kennt á píanó,
orgel, blásturshljóðfæri og gítar.
Skólastjóri er tékknesk kona,
Milada Janderova að nafni, en
hún hi=fur kennt við tónlistar-
skóla í Prag undanfarin 10 ár,
en er nú flutt hingað ásamt fjöl-
tskyldu sinni. Er hún ráðin að
skólanum tii tveggja ára.
Aðrir kennarar við skólann
eru Haraldur Guðmundsson og
Jón Mýrdal. — Ásgeir.
607 bílum, 343 reyndust í full-
komnu lagi, en eitthvað var at-
hugavert við 264. Á þriðjudag
voru athuguð ljós á 774 bílum,
485 reyndust í lagi, en 289 í ó-
lagi. Enginn hefur til þessa
reynzt vera með ljós fyrir vinstri
umferð ennþá en þar sem eitt-
hvað er í ólagi í flestum tilfell-
um um smávægilegar skekkjur í
ljósastillingu eða lélegar perur
að ræða. Á sumum verkstæðanna
er þessum atriðum samstundis
kippt í lag fyrir bíleigendurna.
Minni aðsókn að
liskimannadeild
— Stýrimannaskólans í Reykjavík
STÝRIMANNASKÓLENN í
Reykjavik var settur 1. okt. í 78.
sinn. Aðsókn að fiskimannadeild
skólans er að þessu sinni minni
en síðastliðin ár, en góð að far-
mannadeild. Segir þar vafalaust
til sín tekjurýrnun fiskimanna
vegna örðuglcika sjávarútvegs-
ins, verðfalls og aflatregðu. Um
skólavist hafa sótt alls 166 nem-
endur, 96 farmenn og 70 fiski-
menn.
í vetur verða kennsludeildir
9 við skólann, 3 deildir fyrir 1.
bekk farmanna- og fiskimanna-
deilda, 2 deildir fyrir 2. bekk
farmannadeildar, 2 fyrir 2. bskk
fiskimannadeildar og 1 deild fyr-
ir 3. bekk farmannadeildar. Enn
fremur verður deild fyrir skip-
stjóraefni á verðskipum ríkisins.
Við skólann starfa að þessu
sinni 6 fastir kennarar auk skóla
stjóra og 13 stundakennarar.
• Asparagus
• Oxtail
• Mushroom
• Tomato
• Pea with Smoked Ham
• Chicken Noodle
• Cream of Chicken
• Veal
• Egg Macaroni Shells
• 11 Vegetables
• 4 Seasons
• Spring Vegetable
Bragðið leynlr sér ekki
MAGGI súpurnar frá Sviss
eru hreint afbraqð
MAGGI súpurnar frá Sviss eru búnar til eftir upp-
skriftum frægra matreiðslumanna á meginlandinu,
og tilreiddar af beztu svissneskum kokkum. Það er
einfalt að búa þær til, og þær eru dásamaðar af
allri fjölskyldunni. Reynið strax í dag eina af hinum
átján fáanlegu tegundum.
MAGGI
SUPUR
FRÁ
SVISS
Málverkasýning
við rœtur Heklu
FYRIR skömmu opnaði 21 árs
stúdent, Bjami H. Þórarinsson
málverkasýningu í einum skál-
anna við Búrfellsvirkjun. Er
þetta fyrsta sýning Bjarna, sem
vinnur í sumar við virkjunina,
og flest málverkanna hefur hann
unnið í frístundum sínum þar.
Sýningin hefur vakið mikla at-
hygli starfsmanna Búrfellsvirkj-
imarinnar og almenn ánægja er
þar ríkjandi yfir þessum við-
burði, sem er einsdæmi þar. Sýn
ing Bjama mun enn verða opin
um nokkurt skeið í Camp 2. Að-
gangseyrir er enginn, en allar
myndimar eru til sölu.
Búlgarar gela út
Norðurlandalrímerki
BÚLGARAR hafa nýlega gefið
út frímerkjasamstæðu, sem á að
tjá óskir þeirra um bætta sam-
vinnu við Norðurlöndin. Frímerk
in eru tvö og er annað með stíl-
færðri mynd af norrænu svön-
unum fimm, en á hinu er mynd
af búlgaskri rós. Áletrun á frí-
merkin er bæði á búlgörsku og
Norðurlandamálunum og á þeim
eru nöfn allra Norðurlandanna.
Tíu merki af hvoru ver'ðgildi,
5 og 13 stotinki, eru í örk í lóð-
réttri röð, en á milli þeirra er
reitur með mynd af brú og dúfu.
Handrið brúarinnar er myndað
af fánum Norðurlandaþjóðanna
og undir brúnni er áletrun, til
skiptis á búlgörsku og einhverju
Norðurlandamálanna.
(Frá Landssambandi ísl.
f rímerk jasafnara).
Annað búlgarska frímerkið og millireitur. A millireittnum er
áletrunin á íslenzku, en eitthvað hafa Búlgarar átt í erfiðleikum
með málið, því þarna stendur: Samvinnu milli Norðurlöndum.
Verðlistinn
Fastnrdð NATO
íslenzk Irímerki ræðir aukinn
VERÐLISTINN, íslenzk frímerki
1969 er kominn út hjá ísafoldar-
prentsmiðju. Er það jafnframt
12. útgáfa verðlistans, sem hefur
á undanförnum árum fengið
margar viðurkenningar á alþjóða
sýningum, m. a. Wipa 1965,
Amphilex 1967, Sipex 1966 og
Praga 1968. Höfundur verðlistans
er Sigurður H. Þorsteinsson og
getur hann þess í formála bók-
arinnar, að þrátt fyrir gengis-
lækkun sl. árs verði ekki allar
verðbreytingar í fullu samræmi
við hana, enda hafi ýmsar verð-
sveiflur orðið á markaðinum, er
ekki réttlæti það.
í frímerkjaverðlistanum, ís-
lenzk frimeirki. er getið um verð
allra frímerkja frá því að fyrst
var byrjað að gefa þau út hér-
lendis 1873. Að þessu sinni eru
stimplar felldir niður í listan-
um, en höfundur getuir þess, að
verið sé að endurskoða þann
ihluta listans og muni hann verða
tekinn í bó'kina aftur að ári.
Hinn vandaði verðlisti, ís-
lenzk frímerki, mun vafalaust
nú sem áður verða vinsæl hand-
bók frímerkjasafnara, bæði hér-
lendis og erlendis, en texti bók-
arinnar er bæði á íslenzku og
ensku.
' BIRGIR ÍSL GUNNARSSON1
HÆSTARÉTTARLÖGMAÐUR
LÆKJARGÖTU 6B SÍMI22120
hernaðarmóll
Brússel, 1. október. AP.
FASTARÁÐ NATO kom saman
í dag til að ræða hvort auka ætti
hernaðarmátt Atlantshafsbanda-
lagsins vegna innrásar Varsjár-
bandalagslandanna í Tékkósló-
vakíu. f ráðinu eiga sæti sér-
stakir ambassadorar frá öllum
aðildarlöndunum. Óstaðfestar
fréttir herma, að ráðið muni
kanna skýrslur um stjórnmála-
legt, hernaðarlegt og fjármála-
legt ástand Iandanna innan banda
lagsins og einnig um afleiðingar
innrásarinnar. Sagt er að Banda-
ríkin telji valdajafnvægið hafa
breytzt eftir innrásina, en að
Bretar telji það óbreytt.
Gert er ráð fyrir að ráðstefn-
an taki þrjá daga og að niður-
stöðurnar verði notaðar til grund
vallar umræðna á utanríkisráð-
herrafundi NATO, sem hefst í
New York á mánudag.
Tókíó, 1. 0kt. AP
TOKÍÓ hélt í dag hátíðlegt ald-
arafmæli sitt sem höfuðborg Jap
ans. Borgin, sem nú hefur um 11.
millj. ibúa, varð aðsetur keisar-
ans og opinber höfuðstaður Jap-
ans 1968. Fyrri ihöfuðborg lands-
ins var Kyoto í suðvesturhluta
landsins.