Morgunblaðið - 04.10.1968, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 196B
Áhugaleysi ríkti á velli
og á áhorfandapöllunum
í fyrstu leikjum Reykjavíkurmótsins
í handknatteik
ReykjavíkurmeistaramótiS í
handknattleik hófst í fyrrakvöld
með þremur leikjum í meistara-
flokki karla. Allir leikirnir áttu
það sameiginlegt að vera tilþrifa
litlir og bera þess ljósan vott að
keppnistímabilið er að hefjast.
Svo virðist sem bæði leikmenn
og áhorfendur hafi takmarkaðan
áhuga á mótinu, en í gærkvöldi
voru sárafáir áhorfendur.
saman við áhugaleyisi var ekki
von á góðu. Beztu menn í liði
Þróttar voru Guðmundur Gúst-
afsson markvörður og Sigurður
Pétursson, en hjá Víkingi væri
helzt að tilnefna Jón Hjaltalín
og Þórarin.
ÍR—ÁRMANN 15—12.
ÍR-ingar tóku mikla forustu í
byrjun leiksins en á síðustu mín
útum fyrri hálfleiks, náði Ár-
mann nokkuð góðum leikkafla og
tókst að jafna metin, þannið, að
í hálfleik -stóðu leikar 8—7 fyrir
ÍR. Hið sama endurtók sig í síð
ari hálfleik, en þá skoruðu ÍR-
ingar 7 mörk í röð, en síðan Ár-
mann 4 síðustu mörkin. ÍR-liðið
er mjög skemmtilegt og var ó-
heppið að vinna ekki þennan
leik með meiri mun.
Beztu menn liðsins voru Brynj
óifur og Ágúst. Ármannsliðið
virðist fremur þungt og æfingar-
lítið, en á vafalaust eftir að koma
Framli. á IUs. 25
Það virðist gróflega stjakað við Ellert er fyrra mark fyrra hálf
leiks er skorað.
Þróttur — Víkingur 12-11.
Leikur Þróttar og Víkings var
ailan tímann mjög jafn. Sjaldan
munaði nema einu marki. Fram
an af höfðu Víkingar frumkvæð-
ið, en það snérist við í síðari
hálfleik, en þá höfðu Þróttarar
yfirleitt forustu. í hálfleik var
staðan 6 — 4 fyrir Þrótt.
Segja má að sigur Þróttar hafi
komið nokkuð á óvænt og er
ekki ólíklegt að þeir nái því
marki að leika í 1. deild að ári.
Annars voru Víkingar óheppnir
i þessum leik, og þegar það fór
jBenfica
situr hjá
)— og fer án
Ikeppni i 3. umferðj
BENFICA, meistaralið Portú- \
1 gals, sem vann Valsmenn með |
I 8:1 á nú öruggt sæti í 3. um-1
) ferð keppninnar um Evrópu-
i bikarinn — eða 8 liða úrslita ]
Jkeppni. í gær var dregið um I
I það, hvaða lið leika saman í |
12. umferð. Verða leikirnir þar ,
,6 milli 12 liða en tvö lið sitja'
’ h já og komast án keppni í {
13. umferð. En þetta stafar af.
)því, að þjóðirnar sem innrás'
| gerðu í Tékkóslóvakíu drógu *
[ sig til baka frá þátttöku í |
i keppninni.
Dregið var í Genf (aðal-,
i skrifstofum Evrópusambands- ’
; ins) í gær og úrslit urðu þessi:
| Keppni meistaraliða:
j AEK, Aþenu — AB, Kaup-
mannahöfn
1 Ajax, Amsterdam — Fener-)
bache, Istanbul
| Real Madrid — Rapid Vínar)
borg
1 Spartak Trnava — Reipas,
Finnlandi
| Manc. Utd. J Anderlecht,
Belgiu
f Glasgow Celtic — Zvezda,
Júgóslavíu
) AC Milan og Benfica sitja hjá.'
’ Bikarmeistarar:
Austurrísku meistararnir eða |
)Ado Haag Hollandi mætir FC ,
l Köln.
’ Dunfermline — Olympiakos
) Freja Randers — Sliema,
Möltu
Lyn Noregi — Nörrköping
Oporto, Portúgal — Slovan
Bratislava
Dynamo Bukaresti — West
Bromwich
AC Torino og Barcelona sitja |
hjá.
Viðtal við Einar Sœmundsson form. KR:
LEIKIR KR 0G 0LYMPIAK0S
VORU JAFNIR 0G SKEMMTILEGIR
Dómararnir dœmigerðir ,,heimadómarar4
FYRIR skömmu átti Mbl. viðtal
við Einar Sæmundsson formann
KR, sem var einn af fararstjór-
um liðsins er fór til Grikklands
og keppti þar við gríska meistara
liðið Olympiakos í Evrópu-
keppni bikarmeistara. Sem kunn
ugt er sömdu KR-ingar við
Grikkina um að báðir leikimir
færu fram úti, gegn því að Grikk
irnir greiddu fyrir þá ferðakostn
að báðar leiðir og uppihald í
Grikklandi.
— Við fórum utan 17. sept.
og héldum þá fyrst til London,
sagði Einar, — en flugum síðan
þaðan beint til Aþenu. í hópn-
um voru 16 leikmenn, Peiffer
þjálfari og þrír fararstjórar sem
voru auk mín, þeir Sigurgeir
Guðmannsson og Haraldur Gísla
son.
— Fyrri leikurinn fór fram í
Pyrus, hafnarborg Aþenu, föstu
daginn 20. sept. Aðstæðurnar
voru fremur óhagstæðar fyrir
okkur. Hitinn var 30-35 stig og
völlurinn mjög harður, þar sem
ekki hafði komið dropi úr lofti
þarna síðan 15. ágúst. Við vor-
um hins vegar ,ekki svo forsjál-
ir að hafa með okkur malarskó,
sem hefðu átt miklu betur við.
Áhorfendur að leiknum voru um
25 þúsund.
— Leikurinn var nokkuð
jafn. Við áttum þó miklu meira
í fyrri hálfleik og áltti þá t.d
Eyleifur hörkuskot í þverslá og
ennfremur vörðu Grikkirnir á
línu. Á síðustu sek. hálMeiksins
var tekið horn á KR og upp úr
því skoruðu Olympiakos, á þann
hátt að einn sóknarleikmaður
þeirra notaði öxlina á Ellert er
hann stökk upp til að skalla. í
síðari hálfleik sóttu Grikkirnir
svo heldur meira og skoruðu
annað mark úr hornspyrnu þeg
ar leiktíminn var úti. Vorum við
mjög óánægðir með það mark,
þar sem við höldum að boltinn
hefði aldrei farið út fyrir enda-
mörk þegar hornspyrnan var
dæmd.
— Síðari leikurinn fór svo
fram í Saloniki að viðstöddum
um 15 þúsund áhorfendum.
f.R.-ingar sækja að marki Ármanns í fyrrakvöld.
Þarna var svalara í veðri en völl
urinn var jafnvel ennþá harð-
ari. Sá leikur var ekki eins
skemmtilegur og sá fyrri. Bæði
liðin áttu þó hættuleig tækifæri,
en KR-ingar höfðu ekki heppn-
ina með sér og náðu engu út úr
þeim, en Olympiakos skoraði
hins vegar tvö mörk.
— Olympiakos ,er afvinnu-
mannalið og mjög vinsælt í
Grikklandi. Leikmennirnir voru
greinilega í mjög góðri þjálfun
og virtust leggja mikið upp úr
stuttu spili og að leika á and-
stæðinga sína. KR-ingar allir
börðust mjög vel, og gáfu þeim
lítið eftir. Ef nefna ætti einstaka
leikmenn, átti Ellert Schram
mjög góðan leik og var það mál
ma-nna að í fyrri leiknum hefði
hann verið bezti maður vallar-
ins. Þá sýndi Gunnar Felixson
mikinn baráttuhug. Við urðum
íyrir því óhappi snemma í fyrri
leiknum að Þórólfur Beck nef-
brotnaði og varð hann að fara
út af. Hann byrjaði reyndar að-
eins í síðari leiknum, en varð
snemma að hverfa af leikvelli.
— Dómaratríóið var búlgarskt
og voru þeir sannkallaðir heima
dómarar — dæmdu eins og þeir
töldu að félli í jarðveg hjá áhorf
endum.
— Móttökur Grikkjanna voru
mjög góðar og ferðin ánægjuleg.
Þrátt fyrir að við töpuðum báð-
um leikjunum, held ég að segja
megi að íslenzk knattspyrna
hafi í engu sett niður í þessari
ferð, sagði Einar Sæmundsson að
lokum.
— stjl.
Hún fær manninn meö
NorBmenn önduðu léttar og hafa
veika von um verðlaun
ALLIR sem fylgjast með Norð-
urlandamótinu í þrautum karla
og kvenna hér í sumar, muna
eftir norska sigurvegaranum í
fimmtarþraut kvenna, Berit
Berthelsen. Hún hefur náð mjög
góðum árangri og er meðal ann-
ars meðal fremstu langstökkvara
heims í röðum kvenna.
Um tíma var óvíst hvort hún
færi til keppni í Mexiko, því
þangað sagðist hún ekki fara
nema maður hennar og þjálfari
færi líka.
Hún fékk ósk sína uppfyllta.
Hann var að vísu ekki tilnefnd-
ur sem leiðtogi eða þjálfari, en
för hans var „bjargað“ á annan
hátt og OL-nefndin norska lotf-
aði aðstoð við að útvega honum
húsnæði og aðra aðstoð.
Norðmenn önduðu léttar, því
Berit Berthelsen er stærsta von
þeirra um verðlaun á þessum
leikum, eða jafnvel að hljóta
stig í hinni óopinberu stiga-
keppni.
Bændatfiíma CB í
ffoJfí á lauffardaff
„Bændaglíma“ verður síðasta
stóra keppnin á golfvelli Golf-
klúbbs Reykjavíkur, en með
henni lýkur sumarstarfinu hjá
klúbbnum. Keppnin hefst kl. 1.30
á laugardaginn en keppnin hefst
samtímis á öllum teigunum 12
sem á er keppt.
Að lokinni keppni eða um kl.
19.30 hefst hóf í skálanum fyrir
kylfinga og konur þeirra.
Þátttöku í „bændaglímunni“
ber að tilkynna til bændanna,
Kristins Hallssonar í síma 32444
og Lárusar Arnórssonar sími
13678 fyrir föstudagskvöld.
„Bændaglímur“ Golfklúbbsins
hafa ætíð verið skemmtilegar
enda létt yfir mönnum á slíkri
hópkeppni þó alvaran búi undir
niðri.