Morgunblaðið - 15.10.1968, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 1»&8
31
— Geimfarar
Framhald af bls. 1
Upprunalega var ætlunin að
sjónvarpa frá Apollo-7 á laug-
ardag, en þegar til átti að taka
neitaði Schirra að setja sjónvarps
vélina í gang. Hann sagði að
geimfararir ættu eftir að borða,
hann væri sjálfur kvefaður og
neitaði að taka bátt í sjónvarps-
þætti. Var því sjónvarpsþættin-
um frestað þar til í dag. Virtust
geimfararnir þrír í bezta skapi,
og sáust myndirnar mjög greini-
lega í sjónvarpstækjum á jörðu.
Sjónvarpssendingin hófst
klukkan 10.44 að staðartíma í
Houston, og voru fyrstu mynd-
irnar nokkuð ógreinilegar. Sagði
Donald K. Slayton, yfirmaður
geimfaraskrifstofunnar í Houst-
on, að myndirnar ættu eftir að
batna eftir að sjónvarpstökuvél-
in um borð í geimfarinu hitnaði,
og reyndist það rétt. Sáust geim
fararnir fyrst veifa spjáldi, sem
á stóð: „Haldið áfram að senda
póstkort og bréf“, og öðru með
áletruninni: „Halló frá fallega
Appollosalnum, hátt uppi yfir
öllu“. Þá sást Donn Eisele þar
sem hann stóð uppréttur og hlæj-
andi klæddur hyítum geimfara-
búningi í miðjum stjórnklefanum,
en Schirra hallaði sér útaf
hægra megin við hann.
Það var Cunningham, sem
kveikti á sjónvarpsvélinni, og
beindi hann henni að glugga
geimfarsins, svo áhorfendur
fengu að sjá niður til jarða.r
Fyrir neðan skýin mátti greina
strandlengju Texas og Louisi-
ana, og skömmu síðar einnig Flo-
rida.
Niðri í aðalstöðvum í Texas
sagði Slayton: „Sjáið Eisele
þetta er góð mynd. Hann er á
hreyfingu og sést mjög greini-
lega“ Þá bætti einn af starfs-
mönnunum við: „Þú hefur
gleymt að raka þig í morgun,
Eisele".
Um það leyti sem sjónvarps-
sendingunni lauk hófu geimfar-
arnir 46. hringferðina umhverf-
is jörðu, og hafa þeir alls far-
ið rúmlega milljón mílna —
1.600.000 kílómetra — vegalengd
frá því að þeim var skotið á loft
síðastliðinn föstudag. Alls eiga
þeir að fara 163 hringferðir, eða
um 6,5 milljón kílómetra, áður
en þeir lenda Apollo-7 þriðju-
daginn 22. þessa mánaðar.
Geimfararnir gerðu að gamni
sínu í dag í viðtölum við eftir-
litsstöðvarnar á jörðu niðri.
Sagði Schirra að þeir væru létt-
ir í skapi, og getur það stafað
af því að þeir anda að sér
hreinu súrefni í ferðinni. Tekið
var eftir því að geimfararnir
höfðu breytt röðinni á stjórn-
tækjum á mælaborði í geimfar-
inu, og var þeim bent á að röð
tækjanna væri ekki rétt.
Schirra varð fyrir svörum og
sagði: „Við vorum að bíða eftir
að þið kæmuð auga á þetta. En
við erum svo léttlyndir að þið
verðið að líða okkur það“.
Þótt geimferðin hafi í aðal-
atriðum gengið mjög vel, hefur
þó smávegis bilana orðið vart í
geimfarinu, _og er þar helzt að
nefna bilun* sem varð í dag á
rafkerfinu. Var geimfarið þá
statt yfir Rauða hafinu, og
leiddi bilunin til þess að raf
magnslaust varð í því um stund
arsakir. Ekki töldu stjórnendur
tilraunastöðvarinnar í Houston
bilunina hættulega, því þó geim
förunum hefði ekki tekizt að lag-
færa bilunina fljótlega, er Ap-
ollo-7 búið rafhlöðum, sem
nægja geimfarinu í 12 klukku-
stundir, og er það meira en nóg
til að ná farinu heilu og höldnu
til jarðar. En geimförunum tókst
að lagfæra bilunina til bráða-
birgða, og seinna að gera við
hana með aðstoð frá jörðu.
Fengu þeir allar nauðsynlegar
upplýsingar frá sérfræðingum í
Houston.
Ferð Apollo-7 hefur að von-
um vakið heimsathygli, og er
fylgzt með hverju orði, sem frá
geimförunum þremur kemur. En
fréttamenn reyna einnig að fylgj
ast með fjölskyldum geimfar
anna niðri á jörðinni. Gengur
það nokkuð erfiðlega, því eigin-
konurnar vilja helzt ekkert
Hvei hlýtoi bókmennta-
veiðlnun Nóbels?
Stokkhólmi, 14. okt.
(NTB).
TILKYNNT verður á hádegi
n.k. fimmtudag, hver hlýtur
bókmenntaverðlaun Nóbels að
þessu sinni, og segir „Afton-
bladet" sænska, að mestar
líkur bendi til þess að vestur-
þýzki rithöfundurinn Giinter
Grass verði fyrir valinu.
Fleiri koma þó tiil greina,
að sögn blaðsins, og þá helzt
þeir Claude Simon frá Frakk
landi og sovézka ljóðskáldið
Évgenjý Évtúsjenko. Meðal
rithöfunda,
koma til greina, nefnir blað-
ið Bretana Robert Graves,
Graham Greene og W. H.
Auden og írann SamueQ. Bec-
kett.
Það er sænska Akademían,
sem ákveður hver skuli hljóta
bókmenntaverðlaunin. Karo-
linska stofnunin ákveður
hinsvegar hver hlýtur læknis
fræðiverðlaun Nobels, og
verður sú ákvörðun tekin á
miðvikudag. Hinn 30. þessa
mánaðar, verður svo ákveðið
hverjir hljóta verðlaunin í
efna- og eðlisfræði.
Bandarisku geimfararnir í Apollo-7 sendu í gær sjónvarps-
myndir beint úr geimfarinu og gátu sjónvarpsáhorfendur víða
um heim fylgzt með störfum á hafnarinnar. En þessi beina sjón
varpssending var óskýr eins og meðfylgjandi mynd, sem sýnir
geimfarana (talið frá vinstri) Walter Cunningham, Donn Eis-
eia og Walter Schidda, ber meðsér.
segja. Einn er það þó, sem er
reiðubúinn til að ræða við frétta-
mennina einstaka sinnum, og það
er Jon Eisele, sonur Donn Eisele.
Jon verður fjögurra ára mánu-
daginn 21. þessa mánaðar, það
er daginn áður en pabbinn á að
lenda. Hann er alveg sannfærð-
ur um að allt fari vel af því
að „pabbi er alltaf í eldflaug-
um“.
Á laugardag ræddi hann við
fréttamenn, og var þá kominn í
náttfötin. Á sunnudag náðu
fréttamenn aftur tali af honum
úti á götu, og sagði Jon þá að
ekkert gerði til þótt pabbinn
yrði ekki við á afmælinu. „Hann
verður að fljúga þessum eld-
flaugum", sagði Jon. „Það er það
sem hann gerir bezt — betur
en nokkur annar“. Ekki segist
Jon sjálfur hafa komið um borð
í eldflaug „vegna þess að ég er
ekki nógu gamall". En hann ætl
ar að verða geimfari, og „pabbi
ætlar að kenna mér“, segir hann.
- VAKA
Framhald af bls. 32
stud. med., Finnur T. Stefáns-
son stud jur., og Jóhann Berg-
mann stud. polyt.
í kosningunum í fyrrá hlut
B-listinn 21 atkvæði umfram
lista Vöku en árið áður munaði
19 atkvæðum.
Helztu stefnumál Vöku í kosn
ingunum voru þríþætt. Fyrst og
fremst lagði Vaka áherzlu á, að
stúdentar hæfu öfluga sókn fyr-
ir hagsmunamálum sínum og Há
skólans með margvíslegum ráð
stefnu- og fundarhöldum. M.a.
er krafizt aukinna áhrifa stúd-
enta í stjórn Háskóla íslands, að
stjórnarvöld grípi til'róttækra að
gerða til að koma húsnæðismál-
um Háskólans í viðunandi á-
stand, og a'ð félagsheimili stúd-
enta verði risið innan tveggja
ára.
Einnig 'var lögð áherzla á, að
Stúdentafélag Háskólans beitti
sér fyrir umræðum um stjóm-
málalíf þjóðarinnar, en Vaka tel
uir nauðsynlegt að fá verði nýj-
an grundvöll þar, og verði það
bezt gert með því, að skipta land
inu niður í einmenningskjör-
dæmi.
Þá var lögð mikil áherzla á
stöðu íslands me'ðal Sameinuðu
þjóðanna. Stefna Vöku í þéim
málum er m.a., að Island verði
áfram í Atlantshafsbandalaginu,
og að varnarsamnmgurinn verðj
endurskoðaðuir hið bráðasta.
Af helztu stefnumálum B-list-
ans m.a. má nefna kröfu um
námslýðræði, en í því felst, að
námsfólk fái stóraukin áhrif á
stjórn skólanna, og uppbyggingu
skólanna.
í utanríkismálum er m.a. lagt
til, að tekin verði upp sjálfstæð
ari utanríkisstefna, a‘ð her verði
hér ekki á friðartímum og ítar-
lega endurskoðun fari fram á að-
ild íslands að Atlantshafsbanda-
laginu.
Þá var ennfremur lögð áherzla
á róttækar umbætur í atvinnu-
málum þjóðarinnar og m.a. hald
ið fram, að efling innlendra at-
vinnuvega sé meginforsenda efna
hagslegs sjálfstæðis þjóðarinnar.
Báðir listar lögðu fram ítar-
lega starfsáætlun fyrir Stúdenta
félagið í vetur og lögðu þeir á-
herzlu á að haldið ydði í hví-
vetna samkomulag um hátíða-
höldin 1. des. 1968, en mikil á-
herzla er lögð á, að eining ríki
þann dag.
Norræna sýningin
á Akureyri
Akureyri, 14. október
NORRÆNA list og handiðna'ðar
sýningin, sem opnuð var á Akur
eyri sl. laugardag, verðuir opin
að Hótel KEA og í Landsbanka
salnu mtil 27. október kl. 14-22
laugardag og sunnudaga, en 17-22
aðra daga. — Sv. P.
- SÍLDIN
Framhald af bls. 32
til BÚR, Akurey með rúm 120
tonn til Hraðfrystistöðvarinnar,
Gísli Árni með 91 tonn, en var
áður búinn að landa í Garði,
og Reykjaborgin með 45 tonn.
Til Grindavíkur komu þrírbát
ar: Arnfirðingur með 50—60tonn
Þórkatla með 80—90 tonn og
Hrafn Sveinbjarnarson með 50
tonn. Aðrir Grindavíkurbátar
lönduðu í Keflavík og Hafnar-
firði. Ekki var byrjað að salta
í Grindavík í gær, en síldin
fór í frystingu.
Til Vestmanneyja komu tveir
bátar, Gjafar með 170—180 tonn
og Gideon með um 70 tonn. Fór
það í frystingu, en söltun er í
undirbúningi í Eyjum.
Til Akraness komu Höfrung-
ur III með 111 tonn, Jörundur
II með 63 tonn, Höfrungur II
með 40 tonn, Skírnir með 47
tonn, Haraldur með 37 tonn, Sig
urfari með 40 tonn, Óskar Magn
ússon með 12 tonn og Sólfari
með 40 tonn. Fór aflinn í salt
og frystingu.
Til Keflavíkur komu 11 bátar
með 800 tonn. Hæstir voru Jón
Finsson með 130 tonn og Ingi-
ber Ólafsson með 137 tonn.
Tii Hafnarfjarðar komu 4 bát-
ar með 247 tonn. Hæstur var
Geirfugl, sem landaði hjá Norð-
urstjörnunni. Annað fór í hrað-
frystingu. Bílar fóru með síld
til Keflavíkur og Reykjavíkur.
Sjá frásögn af síldarverkun á
bls. 10.
- SUÐURNES
Framhald af bls. 2
— Hvernig verður rann-
sóknym háttað?
— Þessar stöðvar eins og
hér, eru ákaflega fullkomnar
og að miklu leyti sjálfvirkar.
Eftir að búið er að skjóta
gervitunglinu á loft er reikn-
að út hvenær gervitunglið fer
yfir svæði stöðvarinnar hér
og niðurstöðurnar síðan sett-
ar á sérstakar gataræmur.
Gataræmurnar, sem eru gerð
ar til viku í senn koma síð-
an til með að stjórna móttöku
loftnetinu þannig að það snýst
í átt að gervitunglinu þegar
það fer yfir íslandssvæðið.
Allar upplýsingar frá gervi-
tunglinu fara síðan inn á seg-
ulband og þaðan eru þær unn
ar. Þjóðverjarnir hafa samið
við Raunvísindastofi^jnina
um þessar rannsóknir hérlend
is, en starfsmenn Landsímans
í Gufunesi munu sjá um dag-
legan rekstur stöðvarinnar.
Við njótum góðs af þessum
rannsóknum, því við fáum not
af öl'lum upplýsingum, sem
þar koma fram. Við höfum
verið að gera rannsóknir á
sömu og líkum sviðum og
þessar rannsóknir beinast að
og því kemur þetta sér vel.
Auk þess að við fáum aðgang
að öllum upplýsingum, sem
fram kunna að koma greiðir
Geimvísindastofnunin fyrir
alla þjónustu í þessu sam-
bandi, sem innt er af hendi
hérlendis.
Það kemur sér einnig vel
fyrir Land.imann að geta tek
ið þátt í þessu rannsóknar-
starfi, því að þróunin er í bá
átt að fjarskipti eiga í æ rík-
ari mæli eftir að fara fram i
gegn um gervihnetti og gefst
þarna kostur á að kynnast
þeirri tækni, sem við þetta er
notuð.
— Hvenær verður stöðin hér
tilbúin?
— Stöðin hér verður tilbú-
in fyrir áramót og þá verður
byrjað að reyna hana með því
að nota önnur gervitungl, því
að allt verður að vera í full-
komnu lagi þegar þessi fyrsta
þýzka gervitungli verður skot
ið á loft.
— Er ekki mikill akkur fyr
ir ykkur að gata fylgzt með
rannsóknum, sem þessum?
— Þetta er gullið tækifæri,
því að sjálfir höfum við ekki
fjárhagslegt bolmagn til slíkra
rannsókna, og t.d. ein slík
stöð, sem er í Gufunesi kostar
10-15 milljónir króna. N.ú,
sem oft áður, njótum við þess
hvað laadið er vel staðsett
fyrir ýmsar rannsóknir og í
þessu tilfelli eruom við í mii|ja
norðurljósabeltinu. Móttöku-
stöðin verður hér í tvö ár, að
minnsta kosti, en það er áætl-
aður tími fyrir þessa rann-
sókn.
Heilsufar
óvenju gott
ÓVENJU gott heilsufar er í borg
inni um þessar mundir, sagði
Bragi Ólafsson, aðstoðarlæknir
hjá borgarlækni, er Mbl. spurðist
fyrir um heilsufar í borginni í
gær. — Við erum einmitt nýbún-
ir að fara yfir skýrslUr og á þeim
er ekkert óvenjulegt, bætti hann
við. Það er ekki nema eitfhvað
hafi stungið sér niður núna um
helgina.
Hemómsóiin
bumsýnd
KVIKMYND R;ynis Oddssonar,
Hernámsárin „1940-45 + 67/68,
síðari hluti, verður frumsýnd í
Nýja Bíói í Reykjavík og Nýja
Bíói á Akureyri kl. 9 í kvöld,
þrið j udagsk völd.
Þess má geta, að í kvikmynd-
inni er getraun, „Hver er mað-
urinn?“. Kvikmyndin er stöðvuð
andarak tvisvar sinnum og kem-
ur þá fram á léreftinu spurning-
armerki utan um andlit.
Getraunin felst í því, að þskkja
andlitin og skrifa nafn viðkom-
andi á þar til gerða getrauna-
miða, sem fylgja öllum aðgöngu-
miðum.
Verðlaun eru 17 daga ferð til
Mallorca og eir hún á vegum
ferðaskrifstofunnar Sunnu. Ferð
in er fyrir tvo.
Hálka og ölvun
olli 7 bílveltum
Mikið var að gera hjá lög-
reglunni í Hafnarfirði á sunnu-
dagsmorgun vegna ölvaðra bíl-
stjóra og á mánudagsmorgun
vegna glerhálku á Reykjanes-
braut. Þetta olli 7 bílveltum,
og auk þess þurfti að aflífa hest,
sem hljóp fyrir bíl og olli slysi
á mönnum.
Hesturinn hljóp fyrir bíl á
Reykjanesbrautinni. Varð að af-
lífa hann, en þrír Svisslending
meiddust. Bíllinn var mjög mik-
ið skemmdur.
Á sunnudagsmorgun kl. 5.40
valt bíll á Suðurgötu móts við
knattspyrnuvöllinn. Piltur meidd
ist lítiliega. Stúlkan við stýrið
Virtist 'undir áhrifum áfengis.
Kl. 21 varð árekstur milli þriggja
bíla í Engidal, sá sem olli árekstr
inum stakk af, en lögreglan fann
hann og var hann drukkinn.
í gærmorgun var svo komin
glerhálka á Reykjanesbraut fyr
ir sunman gjaldskýlið. Vegna hálk
unnar ultu þrír bílar og fóru
út af og skemmdust allir mikið.'
Fyrsti áreksturinn varð kl. 5
um, 3 km. sunnan við Straum.
Ökumaður slapp ómeiddur.
Næsta velta varð kl. 7.36 er Volks
wagen bíll fór út af og fór
tvær veltur við Kúagerði. Og
kl. 8.55 valt annar bíll 3 km
sunnan við Kúagerði og fór
hálfa aðra veltu með hjón og
barn. Skarst maðurinn á hönd-
um og höfði.
Loks varð árekstur í gær á
gatnamótum Bárukinnar og Brött
kinnar í Hafnarfirði.