Morgunblaðið - 26.10.1968, Síða 19

Morgunblaðið - 26.10.1968, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARÐAGUR 26. OKTÓBER 1968 19 Unga stúlkan fremst á myndinni var ein af ræðumönnu^ kvöldsins. Hluti kórsins á bak við. - ÆSKULYÐSVIKA Framhald af bls. 20 Kristilegra skólasamtaka, — KSS. — Við röbbuðum stutt lega við hann um starf sam- takanna — Hvert er mar’kmið og starf ykkar samtaka? — Markmiðið er: „Skóla- æskan fyrir Krist“. Starfið fer aðaliega fram hér í húsi KFUM og K og á hverjum laugardegi er sameiginlegur fundur fyrir pilta og stúlkur. Þar safnast félagarnir saman til þess að eiga sameiginlega stund um þau mál, sem þeim eru ksérust. Félagarnir eru úr öllum framhaldsskólum borg- arinnar og þeir kjósa sér stjórn úr hópnum. Sigurbjörn Sveinsson. Einu sinni á vetri er hald- inn útbreiðslufundur, þar sem öllum framhaldsskóla- nemum í Reykjavík og n'á- grenni er boðið á sérstakan fund til þess að kynnast starfi samtakanna. Einnig eru haldnir kynningarfundir í nok'krum gagnfræðaskólum borgarinnar og svo hefur t.d. nýlega verið í Réttarholts- og Hagaskóla. Þá má ef til vill segja að hápunktur starfsins sé þegar haldið er kristilegt skólamót yfir 'bænadagana og það mót er í Vatnaskógi. Aðalmark- miðið með því er, að boða Guðs orð og þar hafa margir unglingar átt sínar mestu ánægjustundir í lífinu. Þarna er mikið sungið, að góðra fs- lendinga sið. Sumarstarfið er aðallega fólgið í því að haldnir eru biblíulestrar á hverju föstu- dagskvöldi, en þar er venju- lega tekið fyrir visst efni eða rit í Biíblíunni í ákveðinn tíma. Á þann hátt reynum við að skilja Biblíuna sem bezt með aðstoð okkur eldri manna. Við notum auðvitað tím- ann, þegar vel viðrar og för- um í hópferðir til náttúru- skoðunar. Við endum síðan starfsárið með öðru skólamóti á haustin, en einnig kemur ársrit sam- tákanna út á haustin, yfir- leitt, en það heitir Kristilegt skólablað, og er nú nýkomið út. í því er t.d. grein um Cliff Richard og hans kristi- lega starf, svipmyndir frá stai'ii Kristilegra skólasam- taka o.m.fl., sem varðar unga fólkið. ,,Viljum tá sem flesta til starfa" Jón Dalbú Hróbjartsson er kórformaður æskulýðskórsins í KFUM og K og hann starf- ar einnig mikið á öðrum svið um félagsstarfseminnar. Við röbbuðum stuttlega við Jón um kórinn og æskulýðsstarf- ið almennt: — Æskulýðskórinn hefur fastar æfingar einu sinni í viku og alls eru um 40 ung- lingar í kórnum. Við syngjum íslenzk lög, dönsk, norsk og sænsk og einnig ensk og am- erísk og þá m.a. negralög. Lögin eru öll með kristileg- um textum. Kórinn syngur á æskulýðssamkomum og al- mennum samkomum og svo þar, sem hann er beðinn að syngja, en til þess hefur hann farið í ferðir út á land. Stjórnandi kórsins í vetur er Geirlaugur Árnason, en hann tók við af stofnandanum, Kristínu Þór. Þá starfar einn- ig blandaður kór og kvenna- kór, svoi og margir smærri sönghópar. Þættir starfsins í heild byggjast á barna- og unglinga starfinu, sem hefur aðstöðu á 6 stöðum í borginni og Kópa- vogi. Sérstök aðaldeild, sem í eru félagar eldri en 17 ára, hefur sjálfstæða fundi og svo eru almennar samkomur á sunnu- dögum árið um kring. Á sumrin rekur félagið svo sumarbúðastarf fyrir börn og unglinga í Vatnaskógi og Vindáshlíð. — Er æskulýðsvikan, sem nú stendur yfir, fastur liður í starfinu? — Já, æskulýðsvikan er fastur liður og þá eru sam- komur á hverju kvöldi í eina viku. Samkomurnar eru mið- aðar við hæfi ungs fólks, það er margt ungt fólk, sem tek- ur til máls og það er mikið sungið. Allt starfið í KPUM og K er sjálfboðastarf og nýtur fé- lagið engra fjárhagslegra styrkja frá því opinbera. Unga fólkið í félögunum er mjög áhugasamt í starfinu og eyðir flestum sínum frístund um í kristilega starfið. Unga fólkið heldur hópinn í fjöl- þættri starfsemi og unir sér vel í því starfi. Það er ávallt markimiðið að fá sem flest ungt fólk til þess að kynnast starfi þessara kristilegu fél- laga og kynnast þeim boð- skap, sem þau byggja á og við viljum fá eins marga og hægt er til þess að starfa með okk- ur. Það er rétt að taka fram að félögin eru ekki sértrúarfé- lÖg, heldur félög leikmanna innan íslenzku þjóðkirkjunn- ar. Við vonum að sem flest ungt fólk sjái sér fært að kynnast starfi okkar og starfa með okkur að því að vinna æskuna fyrir Krist. — Á. J. israelsk listakona gest ur T ónlistarf élagsins ÍSRAELSKA listakonan Hadassa Schwimmer píanóleikari kemur hingað tii Reykjavíkur nú um helgina og heldur tónleika á vegum Tónlistarfélagsins n.k. mánudags- og þriðjudagskvöld kl. 7 í Austurbæjarbíói. Á efnisskránni eru verk eftir Haydn, Chopin, Bela Bartok og Pranz Liszt. Eins og fyrr getur er Hadassa Schwimmer ættúð frá ísrael, hún NANCY-bækurnar eru eftirlætis- bækur allra ungra stúlkna. — ■ HÚSSTJÓRNARBÓKIN sparar yður tíma og peninga. Jóna bjargar vinum sínum heitir nýja bókin um Jónu. — En nýja PÉTUR MOST-bókin heitir Pétur stýrimaður. — Spennandi bók. er fædd í Tel Aviv og þar byrj- aði hún 6 ára gömul að læra píanóspil. Tólf ára gömul hélt hún fyrstu tónleika sína í ísra- elska útvarpið og sama ár lék hún opinberlega með hljómsveit um. Hún lauk burtfararprófi í píanóspili frá Tónlistarakademí- imni í Tel Aviv. Þar næst fór Hadassa Schwimmer til Briissel og stundaði þar framhaldsnám í 3 ár á Konúnglega tónjistarskól- anum í Brússel og lauk þaðan meistaraprófi með „Premier prix avec distinction“ í píanó- spili og kammermúsik. Kennari hennar var hinn frægi Chopin- spilari Stefan Askenase. Hún hefir einnig unnið til verðlauna fyrir píanóleik sinn bæði í París og Berlín. Hadassa Schwimmer hefir einnig stundað nám hjá Geza Anda í Luzern og hjá Klaus Linder í Basel. Hún hefir hald- ið fjölda tónleika í ýmsum lönd- um. Nú er hún ráðin píanókenn- ari við Tónlistarháskólann í Zúrich í Sviss. Þessir tónleikar á mánudags- og þriðjudagskvöld eru haldnir fyrir styrktarfélag Tónlistarfé- lagsins, en að þeim loknum muri Hadassa Shwimmer halda tón- leika á ísafir'ði og víðar út um land. nverfaffundBir um aargarmáleffrtij GEIR HALLGRÍMSSON BORGARSTJÓRi RODAR TIL FUNDAR UM BORGARMÁL MEÐ ÍBÚUM SMÁÍBÚÐA- BÚSTAÐA- HÁALEITIS- OG FOSSVOGSHVERFIS SUNNUDAGINN 27. OKT. KL. 3 E.H. í DANSSAL HERMANNS RAGNARS í MIDBÆ VIÐ HÁALEITISBRAUT Borgarstjóri flytur ræðu á fundinum um borgarmálefni almennt og um málefni hverfisins og svarar munnlegum og skriflegum fyrirspurnum fundargesta. Fundarstjóri verður Hilmar Guðlaugsson, múrari og fundar- ritari Arnfinnur Jónsson, kennari. (Fundarhverfið er öll byggð milli Kringlumýrarbrautar og Elliðaáa, sem takmarkast af Suðurlandsbraut í norður og b æjarmörkum Kópavogs og Breiðholti í suður). Reykvikingar | Sækjum borgarmálaiundina

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.