Morgunblaðið - 12.11.1968, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. NÓVEMBER 1968
að án óeðlilegrar tollverndar.
Með almennri örvun atvinnu
starfsemi og auknu svigrúmi í
gjaldeyrismálum er þess loks að
vænta, að gengisbreytingin geti
átt mikilsverðan þátt í því að
bæta atvinnuástandið og koma
í veg fyrir samdrátt framleiðslu
og framkvæmda og þá alvarlegu
aukningu atvinnuleysis, sem nú
virðist framundan, ef ekkert er
að gert. Þessi og önnur markmið
gengislækkunarinnar munu þó
því aðeins nást, að hagstæðum
áhrifum hennar á starfsemi at-
vinnuveganna verði ekki eytt
með hækkunum kaupgjalds og
innlends framleiðslukostnaðar.
Hjá því verður ekki komizt, að
svo mikil gengislækkun hafi í för
með sér ýmsa erfiðleika og komi
í fyrstu við hagsmuni margra
aðila. Engu að síður verður að
vona, að hún valdi ekki sundrung
og dýrkeyptum kjaradeilum, held
ur verði mönnum hvatning til
þess að gera sameiginlegt átak
til þeirrar framleiðsluaukningar
og verðmætasköpunar, sem ein
getur búið íslenzku þjóðinni bætt
lífskjör í framtíðinni. Gæti þá
vel svo farið, að þjóðarbúið nái
sér fyrr eftir undanfarna erfið-
leika en flestir þora nú að gera
sér vonir um.
Vígð ný bdk-
hlnðo Amts-
bdkosaínsins
d Akureyri
SL. LAUGARDAG var vígð hin
mikla og glæsilega bókhlaða
Amtbókasafnsins á Akureyri. —
Var margt manna viðstatt hús-
vígsluna, og ræður fluttar. Bók-
hlaðan nýja er við Brekkugötu
og þykir ákaflega glæsilegt hús.
Arkitekt er Gunnlaugur Halldórs
son. Nánar verður sagt frá bók-
hlöðunni, safninu og vígslunni i
næsta blaði.
— Gengi krónunnar
Frá blaðamannafundi í Seðlabankanum í gær. Dr. Jóhannes Nordal, formaður bankastjórnar
Seðlabankans tilkynnir gengisbreytinguna. Við hlið hans sitja Davið Ólafsson, bankastjóri og
Björn Tryggvason, skrifstofustjóri.
Framhald af bls. 1
hefur inn vegna sitórfram-
kvæmdanna við Búrfell og í
Straumsvík. Jafnframt hefur
verið gripið til margvíslegra ráð
stafana til þess að aðstoða sjáv-
arútveginn og tryggja áfram-
haldandi rekstur hans, þrátt fyr-
ir sívaxandi örðugleika, sem
hinn stórfelldi tekjumissir hef-
ur haft í för með sér.
Eftir því sem lengra hefur lið-
ið, hefur þó reynzt erfiðara að
verja þjóðarbúið fyrir afleiðing-
um þeirra algjöru umskipta,
sem átt hafa sér stað í sjávar-
útveginum. Hafa því samdráttar
áhrif þau, sem áttu sér upptök
í lækkandii útflutningstekjum,
smám saman breiðzt út um hag-
kerfið og stöðnun og síðar sam-
dráttur fyigt í kjölfarið. Með
versnandi greiðslujöfnuði og
minnkandi gjaldeyrisfoxða hef-
ur svigrúmið til þess að halda
uppi eftirspurn og atvinnu
minnkað jafnt og þétt. Er nú svo
komið, að allt er í hættu sam-
tímis: greiðslustaða og efnahags-
legt öryggi þjóðarinnar út á við,
lífskjör almennings og skilyrð-
in fyrir því, að hægt sé að
tryggja nægilega atvinnu.
Til þess að bægja þessum hætt
um frá dyrum er óhjákvæmilegt,
að nú verði gripið til róttækra
efnahagsráðstafana, er hafi það
meginmarkmið að skapa atvinnu
vegunum á ný viðunandi af-
komu- og vaxtarskilyrði. Er það
skoðun bankastjórnar Seðlabank
ans, að gengisbreyting hljóti að
verða einn meginþáttur slíkra
ráðstafana, enda verður ekki séð,
að unnt sé eftir öðrum leiðum
að ná þeim marfcmiðum, sem nú
eru brýnu3t í íslenzkum efnahags
málum, en þau eru bætt atvinnu
skilyrði, aukin framleiðsla og
hagstæður greiðslujöfnuður við
útlönd.
Sú gengislækkun, sem nú hefur
verið ákveðin, mun í fyrsta lagi
skapa útflutningsatvinnuvegun-
um á ný viðunandi rekstrargrund
völl, svo að tryggt verði, að öll
tækifæri til framleiðsluaukning-
ar, betri nýtingar og fjölbreytt-
ari framleiðslu, verði notuð til
hins ýtrasta. Við ákvörðun geng
isins hefur verið að því stefnt,
að sjávarútvegurinn verði rekinn
hallalaust og án rekstrarstyrkja,
og hefur þar m.a. verið stuðzt
við víðtækar upplýsingar um af-
komu hans, sem einkum hefur
verið unnið að á vegum Efna-
hagsstofnunarinnar.
Gengisbreytingunni -er þó vissu
lega ekki einungis ætlað að bæta
stöðu sjávarútvegsins, heldur
mun hún einnig hafa örvandi
áhrif á fjölmargar aðrar fram-
leiðslugreinar, einkum í iðnaði,
þar sem hvatning til framleiðslu
aukningar og til útflutnings ætti
að skapast í skjóli hagstæðara
gengis. Áhrifamáttur gengisbreyt-
ingar er fyrst og fremst í því
fólginn, að hún breytir hlutföll-
unum á milli innlends og er-
lends kostnaðar í öllum greinum
þjóðarbúskaparins, jafnt í fram-
leiðslu sem neyzlu. Hvarvetna
hvetur hún til meiri gjaldeyris-
öflunar, jafnframt því sem öll
verðhlutföll færast íslenzkri vöru
og þjónustu í hag. Það er ein-
mitt slíkur tilflutningur eftir-
spurnar frá erlendum til inn-
lendra framleiðsluþátta, sem er
nauðsynlegur til þess, að jafn-
vægi geti náðst að nýju í greiðslu
viðskiptum við útlönd eftir hina
stórfelldu lækkun útflutnings-
tekna, sem átt hefur sér stað
undanfarin tvö ár. Gengisbreyt-
ingin mun þannig styrkja stöðu
þjóðarbúsins út á við og skapa
skilyrði þess, að á ný endur-
heimtist traust manna innanlands
og utan á íslenzkum gjaldmiðli.
Með gengisbreytingunni ættu
ný tækifæri að geta skapazt til
að auka fjölbreytni útflutnings-
atvinnuveganna og koma á fót
vaxandi framleiðslugreinum við
hlið sjávarútvegsins. Eigi íslend
ingar ekki að bíða varanlega
hnekki í baráttu sinni fyrir bætt
um lífskjörum vegna þeirra efna
hagsáfalla, sem þeir hafa nú orð
ið fyrir, verður á næstu árum
að eiga sér stað mikil aukning
útflutningsframleiðslu og gjald-
eyrisöflunar.
Þótt margvísleg tækifæri séu
tvímælalaust enn ónotuð í sjáv-
arútveginum, er engu að síður
ljóst, að í framtíðinni verður í
vaxandi mæli að treysta á auknar
gjaldeyristekjur af annarri starf
semi. Sú þróun, sem orðið hef-
ur að undanförnu sýnir, að gjald
eyrisöflun þjóðarinnar getur
ekki áfram hvílt svo að segja
eingöngu á einum atvinnuvegi,
sjávarútveginum, en flestar aðr-
ar greinar notið verndar og góðra
lífskjara í sfcjóli hans. íslendingar
standa nú frammi fyrir því mikla
verkefni að gera iðnaðarfram-
leiðslu landsins samkeppnishæfa,
ekki aðeins á innanlandsmark-
aði, heldur einnig erlendis. Þetta
verður hins vegar aldrei gert,
nema á grundvelli gengis, sem
er hagstætt innlendri framleiðslu
þannig að hún geti vaxið og dafn
Um þessar mundir er að hefjast framleiðsla hérlendis á rafgeymum undir hinu heimsfræga
vörumerki CHLORIDE. Hér er um að ræða samvinnu, sem tekizt hefur með rafgeymaverk-
smiðjunni Pólar H/F og brezka risafyrirtækinu Chloride Electrical Storage Co. Ltd.
Samband íslenzkra samvinnufélaga hefur haft milligöngu um þessa samvinnu, en það
hefur um árabil haft á hendi aðalumboð Chloride hérlendis.
ChlortÖe
RAFGEYMAR
Þessi samvinna hefur m. a. það f för með sér, að nú geta Pólar nýtt að vild allar tæknl-
nýjungar Chloride, en á rannsóknarstofum þeirra vinna yfir 300 manns og auk þess opnast
nú Chloride notendum alþjóðleg þjónusta Chloride fyrirtækjanna.
Chloride rafgeymirinn framleiddur af Pólum H/F mun innifela allar þær tæknilegu nýjungar,
sem hafa gert Chloride heimsfrægt á þessu sviði.
Jafnvel enn mikilvægari er þó sú staðreynd, að ýmsir hiutar framieiðslunnar, sem of dýrt
er að framleiga hérlendis vegna takmarkaðs fjölda munu fást frá Chloride á mun lægra
verði vegna fjöldaframleiðslu þeirra fyrir heimsmarkaðinn.
Bein afleiðing þessarar samvinnu er veruleg verðlækkun, sem er mismunandi eftir gerðum.
Rétt stærð rafgeymis verður fáanleg fyrir allar tegundir bíla, báta og dráttarvéla.
Einnig hafa verið gerðar ráðstafanir til framleiðslu á geymum til margvíslegra annarra nota.
Pólar H/F munu framleiða 37 tegundir Chloride rafgeyma, sem panta má frá verksmiðjunni
beint eða Véladeild S.Í.S.
SMÁSALA: Umboðsmenn um land allt.
HEILDSALA:
Pólar H/F, Einholti 6, Reykjavík Pósthólf 809 Símar 18401 og 15230.
Véladeild S.Í.S., Ármúla 3, Reykjavík — Pósthólf 180 — Sími 38900.
Framleiðsla: PÓLAR H.F.