Morgunblaðið - 15.11.1968, Page 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. NÓVBMBER 1968
Húsbyggjendur
Milliveggjapl., góður lager
fyrirl. Einnig hellur, kant-
steinar og hleðslusteinar.
Hellu- og steinsteypan sf.,
við Breiðholtsv. Sími 30322.
Loftpressur — gröfur
Tökum að okkur múrbrot
og sprengingar og einnig
gröfur til leigu.
Vélaleiga Símonar Símon-
arsonar, sími 33544.
Bifreiðastjórar
Gerum við allar tegundir
bifreiða. — Sérgrein hemla
viðgerðir, hemlavarahlutir.
Hemlastilling hf,
Súðavogi 14. - Sími 30135.
Kaupið ódýrt!
Allar vörur á ótrúlega
lágu verði.
Verksmiffjusalan
Laugavegi 42 (áður Sokka-
búðin).
Sófasett
Sófasett með nælonáklæð-
um, greiðsluskilmálar.
Nýja bólsturgerffin,
Laugavegi 134, sími 16541.
Ljósafoss
Laugaivegi 27, sími 16393.
Önnumst heimilistækjavið-
igerðir, rafmagnstækjavið-
gerðir, alls konar raflagna-
viðgerðir og nýlagnir.
Golfkennsla
Kenni byrjendum og
lengra komnurn. Opið eftir
miðdaga og á kvöldin.
iÞorvaldur Ásgeirss., Kópa-
vogsbraut 89 (ekki í síma).
Til sölu
Lítið gallað sófasett er til
■sölu á framleiðsluverði.
BóLstrun Kristjáns Sigur-
ijónssonar, Grettisgötu 10 B.
Svefnsófar
norsk tegund til sölu á
gamla verðinu. Klæðum og
'gerum við bólstruð hús-
'gögn. Bólstrunin Barma-
'hlíð 14, sími 10255.
Sníð og máta kjóla
'Er við frá kl. 4—6.
Jónína Þorvaldsdóttir,
Rauðarárstig 22.
'Bóndi úti á landi
óskar eftir ráðskonu í vet-
ur eða lengur, má hafa
barn .Tilboðum gkilað fyrir
1. desember merktum
„Reglusemi — 6646“.
Keflavík
Til sölu glæsilegt einbýlis-
hús við Heiðarbrún í
Keflavík.
Fasteignasalan Hafnarg. 27,
Keflavík, s. 1420 og 1477.
Miðstöðvarketill
Óska eftir að kaupa notað-
an miðstöðvarketill iy2—
2ja fermetra. Upplýsingar
í síma 82340.
Vörubílstjórar
Óska eftir að kaupa 1%—
2ja tonna notaðan vökva-
krana fyrir vörubíl. Uppl.
í síma 82340.
Einkamál
Kona á bezta aldrí óskar
að kynnast manni á aldrin-
um 40—45 ára. Nafn og
uppl. sendist Mbl. merkt
„Trúnaðarmál 2396“.
STorkurinn sagffi ...
Og svo kom ég þá út I morgun-
friska goluna, andaði að mér blæn
um, — og það var þá búið að
fella gengið. Sýnir þetta okkur
ekki, mínir elskanlegu, hvað geng-
ið er fallvalt, í rauninni en þegar
það er fellt að beztu manna yfir-
sýn, ber ökkur hinum að halda
okkur á mottunni og taka ofan.
Meira að segja heyrði ég leigu-
bílstjóra einn gauka því að mér,
að hann tryði því, að í þetta sinn
yrði „fellingin" til þess að lyfta
okkur. Eitthvað fannst mér orð-
ræða hans afstæð, en fannst ekki
mönnum hér áður hann Einstein
(ekki hann Eysteinn) tala i af-
stæðingskenningum? Mætti segja að
leigubílstjórinn hefði barasta rétt
fyrir sér.
í það minnsta kemur þetta ekk-
ert við okkur fuglana. Við sting-
um saman nefi undir væng að
venju, ef ha/in blæs eitthvað á móti
úr útnorðri, og ég hef þær spurnir
af Húsöndinni minni að austan, að
hún sé sæl í sinni þessa daga, enda
gekk á með jarðskjálftum þar í
nágrannasveitunum á dögunum, en
hana sakaði ekki grand. Guð sé
lof! Stundum skrifar hún mér bréf
og þar er talað fuglamál eingöngu
sem engum öðrum er ætlað að
skilja.
En þá var svo komið málum,
að ég lét það eftir mér í sudda-
hráslaganum á sunnudag að fljúga
suður öll hraun framhjá illalykt-
andi sorphaugum Hafnfirðinga, þar
sem einhverjir litlir „Pétrar Hoff-
mannar" voru að leita að skeið-
um og Fálkakrossum í drasllnu
og sóðaskapnum. (Ofurlitil spurn-
ing: Gætu Hafnfirðingar ekki feng
ið sér „Airwick": eins og þeir með
ilmlyktina í Klettsstrompinum?)
Brátt var Sveifluháls yfirunninn
og ég renndi mér fram hjá Stefáns
höfða til Krísuvíkur, þar sem beisl
uð gufan sýnir okkur bezt mátt
móður jarðar, framhjá Grænavatni
sem i árdaga varð til í einu sprengi
gosi, djúpt frá iðrum jarðar, og
þeytti á loft allskonar gabbrói og
fleiru forngrýti, en það sama merki
lega vatn hugðust Hafnfirðingar
nota sem „Klóak" fyrir Krýsuvík-
úrbúið, en var forðað á síðustu
stundu. Og þar rétt hjá hinu merka
jarðarundri sat maður á vegkanti
með hönd undir kinn og sitarði
í gaupnir sér.
Storkurinn: Og gleðst yfir ein-
hverju, manni minn?
Maffurinn hjá Grænavatni: Já, og
hef ástæðu til. í mörg ár spillti
Vegagerðin gróðri meðfram veg-
um, skildi eftir sig auðn og flög
meðfram þjóðvegum. Þá tók Al-
þingi rögg á sig og fyrirskipaði
þeim að græða upp sárin. Hér og
raunar víða annars staðar hef ég
séð merki þessarar þörfu löggjaf-
ar. Að fáum árum liðnum verður
komið kafgras meðfram öllum veg
um. Einasta, sem ég óttast, að ekki
sé sáð nógu langt frá vegi.
Ég er þér sammála manni minn
sagði storkurinn. Þetta var þörf
lagasetning, þótt hins vegar sé það
Skrýtið, að lagasetningu þyrfti til
að fá menn til að ganga snyrti-
lega um hina eldgömlu ísafold
okkar. Skyldu nú bændur hætta að
reka fé á afrétt og fjöll en beita
því í þess stað á vegkantinn?
Ekki veit ég sagði storkur, flaug
í snatri upp, og yfir Trölladyngju
og Keili á heimleiðinni og söng
við raust:
„Söm er hún Esja,
samur er hann Keilir,
allt frá Ingólfsdögum."
Minningar sp j öld
Minningarspjöld Kristniboffsins í
Konsó og KFUM og K, fást á
aðalskrifstofunni Amtmannsstíg 2b
sími 17536 og 13437.
Gengið
Nr. 126 — 12. nóvember 1968.
1 Bandar.dollar 87.90 88,10
1 Sterlingspund 210,00 210,50
1 Kanadadollar 81,94 82,14
100 Danskar kr. 1.169,30 1.171,96
100 Norskar kr. 1.230,66 1.233,46
100 Sænskar kr. 1.698,64 1.702,50
100 Finnsk mörk 2.101,87 2.106.65
100 Franskir fr. 1.767,23 1.771,25
100 Belg. frankar 175,27 175,67
100 Svissn. fr. 2.043,60 2.048,26
100 Gyllini 2.416,08 2.421,58
100 Tékkn. kr. 1.220,70 1.223,70
100 V-Þýzk m. 2.211,43 2.216,47
100 Lírur 14,10 14,14
100 Austurr. sch. 339,78 340,56
100 Pesetar 126,27 126,55
100 Reikningskrónur-
Vöruskiptalönd 99,86 100,16
1 Reikningsdollar
Vöruskiptalönd 87,90 88,10
1 Reikningspund
Vöruskiptal. 210,95 211,45
Áheit og gjafir
Gjafir og áheit til Grindavíkur-
kirkju árin 1966 og 1967.
Ár 1966: Agnes Jónsdóttir 200,
SS OG MÞS 1000, NN Keflavík
1000, SG 200, 100, Valgerður Sig-
urðard. 200, NN 100, Guðrún Steins-
dóttir 500 Hörður G. Helgason 500,
Ólafur Sigurðsson 500, Samtals kr.:
3900,00.
Ár 1967: Minningargjöf um hjón
in frá Hæðarenda, gefin af börnum
þeirra 100.000, Þórdís Sigurðard.
100, Agnes Jónsdóttir 1000, Rósa
Þorsteinsd. 300, SSÞ 2000, Þórdis
Sigurðard. 100, NN 1000 100, SS
og MÞS 2000 S.Sigurðsson 500,100,
Rósa Benediktsd. 400, Ólafur Sig-
urðsson 425. Samtals kr. 108025,00
Sóknarnefnd færir gefendum sín
ar beztu þakkir fyrir þann hlý-
hug og ræktarsemi til kirkjunnar,
sem hinar ágætu gjafir bera vitni
Þrúgur reiðinnor
Á morgun, laugardag, gl. 13.30,
sýnir Kvikmyndaklúbbur Listafé-
lags M.R. hina frægu mynd eftir
John Ford „Þrúgur reiðinnar“.
Myndin er gerð í Bandaríkjunum
1940 og lýsir þjóðfélagsbreytingun-
um í kjölfar iðnbyltingarinnar.
Gætið yffar, vakið og biðjið,
sagði Jesús. (Mark., 13,33)
í dag er föstudagur 15. nóvember
og er þaff 320. dagur ársins 1968.
Eftir lifa 46 dagar.
Árdegisháflæði kl. 2.05
orðið
Upplýsingar um læknaþjónustu í
borginni eru gefnar í síma 18888,
símsvara Læknafélags Reykjavík-
ur.
Læknavaktin í Heilsuverndarstöð-
inni hefur síma 21230.
Slysavarðstofan I Borgarspítalan
um er opin allan sólarhringinn.
Aðeins móttaka slasaðra. Sími
81212 Nætur- og helgidagalæknir er
í síma 21230.
Neyðarvaktin svarar affeins á
virkum dögum frá kl. 8 til kl. 5
sími 1-15-10 og laugard. kl. 8-1.
Keflavíkurapótek er opið virka
daga kl. 9-19, laugardaga kl. 9-2
og sunnudaga frá kl. 1-3.
Borgarspítalinn í Fossvogi
Heimsóknartími er daglega kl.
15.00-16.00 og 19.00-19.30.
Borgarspítalinn í Heilsuverndar-
stöðinni.
Heimsóknartími er daglega kl. 14.00
-15.00 og 19.00-19.30.
Kvöld- og helgidagavarzla I Iyfja-
búðum I Reykja'. ík
•Mkuna 9.-16. nóvember er í
Háaleitisapóteki og Laugavegsapó-
teki.
Næturlæknir í Hafnarfirði aðfara
nótt 16. nóv. er Jósef Ólafsson,
sími 51820.
Næturlæknir í Keflavík
12.11 og 13.11 Ambjörn Ólafsson,
14.11 Guðjón Kiemenzson,
15.11, 16 11 og 17.11 Kjartan Ólafs-
son,
Ráðleggingarstöð Þjóðkirkjunnar
um hjúskaparmál er að Lindar-
götu 9, 2. hæð. Viðtalstími læknis
miðvd. 4-5, Viðtalstími prests,
þriðjudag og föstudag 5-6.
Framvegis verður tekið á móti
þeim, sem gefa vilja blóð í Blóð-
bankann, sem hér segir: mánud.
þriðjud., fimmdud. og föstud. frá
kl. 9-11 f.h. og 2-4 e.h. Miðviku-
daga frá kl. 2-8 e.h. og laugardaga
frá kl. 9-11 f.h Sérstök athygli
skal vakin á miðvikudögum vegna
kvöldtlmans
Bilanasími Rafmagnsveitu Rvlk-
ur á skrifstofutíma er 18-222 Næt-
ur- og helgidagavarzla 18-230.
A.A.-samtökin
Fundir eru sem hér segir: í fé-
lagsheimilinu Tjarnargötu 3c:
Miðvikudaga kl. 21. Föstud. kl. 21.
Langholtsdeild, í Safnaðarheimili
Langholtskirkju, laugardaga kl. 14.
Orð lífsins svara í síma 10000.
I.O.O.F. 1 = 15011158% =
K1 Helgafell 596811157 VI — 2
FRÉTTIR
Geffverndarfélag fslands.
Geðverndarþjónustan nú starf-
andi á ný alla mánudaga kl 4-6
síðdegis að Veltusundi 3, simi
12139.
Þessi geðverndar- og upplýsinga-
þjónusta er ókeypis og öllum heim
Kirkjunefnd kvenoa Dómkirkj
unnar hefur fótaaðgerðir fyrir aldr
að fólk fimmtudaga frá kl. 9-12 í
Hallveigarstöðum, gengið inn frá
öldugötu. Tímapantanir í síma
13908.
Kirkjukór Nessóknar
í ráði er að kirkjukór Nessókn-
ar flytji kórvtrk að vori. í því
skyni þarf har.n á auknu starfs-
liði að halda. Söngfólk, sem hefur
áhuga á að syngja með kirkju-
kórnum er beðið um að hafá sam-
band við organista kirkjunnar,
Jón ísleifsson, sími 10964 eða for-
mann kórsins, Hrefnu Tynes, sími
13726 eða 15937.
Spakmœli dagsins
Enginn er sá konungur, sem á
ekki einhvern þræl aff forföffur, né
nokkur sá þræll, sem getur ekki
rakiff ætt sína til einhvers kon-
ungs. Helen Keller.
VÍSUKORN
Ort um Ijá.
Lúinn fyrir leggstu nú,
ljóst þig má ei trega.
Mínu veika þrótti þú
þjentir haganiega.
Sigríður Jónsdóttir.
sá NiEST bezti
Sigurður Kristjánsson, bóksali, fór eitt sumar með Benedikt S.
Þórarinssyni í skernm: i ferðalag, og tóku þeir með sér Gunnlaug
prentara, sem var mjög drykkfelldur og tæplega með réttu ráði
við vín.
Þegar þeir höfðu verið nokkra daga í ferðinni, komu þeir að
Kolviðarhóli. Vildi Benedikt fara til Reykjavíkur, en Sigurður af-
tók það og refð með Gunnlaugi austur í Grafning.
Morguninn eftir rakst maður á þá við Grafningsveginn. Var þá
Gunnlaugur með skógarhríslu og lék á hana ems og fiðlu, en Sig-
urður kvað rímur hástöfum við undirleikinn.
— Jæja, elskan! Þá erum viff komin aff litla fallega hvíta húsinu okkar!!!