Morgunblaðið - 15.11.1968, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1968
15
BERKLAVÖRN REYKJAVK heldur
félagsvist
í danssal Heiðars Ástvaldssonar, Brautarholti 4
laugardaginn 16. nóv. kl. 8.30. — Góð verðlaun.
Ger/ð jólainnkaupin
tímanlega í ár
Leikföng í miklu úrvali. Allt á gamla genginu.
Sportvöruverzlun Búa Petersen,
Bankastræti.
íslcnzkar handunnar vörur
til vina yðar erlendis.
íslenzkur heimilisiðnaður
Laufásvegi 2.
V erkamonnaiélagið
DflGSBRUN
Félagsfundur verður haldinn í Iðnó sunnudaginn
Vi
17. nóvember kl. 2 e.h.
Dagskrá:
I. Félagsmál.
II. Efnahagsráðstafanir ríkisstjórnarinnar og
tillaga um uppsögn kjarasamninga.
III. Ónnur mál.
Félagsmenn eru beðnir að fjölmenna og sýna skírteini
við innganginn.
STJÓRNIN.
Menntamálaráb-
herra flytur fyrir-
lestur i Lundúna-
háskóla
LUNDÚNAHÁSKÓLI hefur í
tilefni fimmtíu fcra afmælis Norð
urlandadeildar sinnar boðið fyrir
lesurum frá Norðurlöndum til
fyrirlestrahalds um málefni Norð
urlanda.
Frá íslandi hefur háskólinn
bo'ðið dr. Gylfa Þ. Gíslasyni,
menntamálaráðherra og mun
hann halda þar fyrirlestur
fimmtudaginn 14. þ.m. um ís-
lenzkt fullveldi fimmtíu ára.
Ráðherrann fór utan í morgun
og mun koma aftur á laugardag.
(Menntamálaráðuneytið,
13. nóvembe* 1968).
Víðtæk ljósastill
ing ó Akureyri
Akureyri, 13. nóv.
Að frumkvæði lögreglunnar
sg bifreiðaeftirlitsins á Akureyri
fór fram ljósaathugun bifreiða á
6 viðgerðaverkstæðum í bænum
í fyrrakvöld og í gærkvöldi. Alls
voru 522 bílar færðir til skoð-
unar. Fyrra kvöldið reyndust 125
bílar með rétt stillt ljós, en hið
síðara 176. Eitthvað var athuga-
vert við ljósabúnað 109 bíla
fyrra kvöldið og 112 síðara kvöld
ið.
í dag hafa mjög margir bíla-
eigendur látið athuga ljós bif-
reiða sinna, þannig að Ijóst er að
þessi ókeypis ljósaskoðun hefur
ýtt við mönnum og mælzt vel
fyrir meðal bifeiðaeigenda.
Sv. P.
«
Nýr amerískur
VALE lyftari
fyrirliggjandi á
gamla genginu, ef
samið er strax.
Lyftarinn er með
Continental diesel-
vél og reykeyði.
Lyftigeta 8000 lbs.
Lyftihæð 6 metrar.
Grjótagötu 7. Sími 24250.
Fræðslufundur
um stjórnmál
f Sjálfstœðishúsinu á Selfossi
kl. 2 eftir hádegi laugardag 16. nóv.
Dr. Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra
flytur erindi og svarar síðan fyrirspurnum
fundarmanna.
Allir sjálfstæðismenn og aðrir velkomnir.
Sjálfstæðisfélögin í Árnessýslu.
REGLUGERÐ
um endurgreiðslur
innflutningsgjalda
samkv. 4. gr. laga nr.
68-1968 um innflutn-
ingsgjald o.fl.
1. gr.
Innflytjendur vöru, sem innflutningsgjald skv. 1. gr.
laga nr. 68/1968 hefur verið greitt af og flutt hefur
verið inn með erlendum greiðslufresti með leyfi réttra
stjórnarvalda eiga rétt á endurgreiðslu gjaldsins að
því marki sem eftirtöldum skilyrðum er fullnægt:
1. Að kaupverð vara, sem um ræðir hafi verið greitt
í íslenzkum banka hinn 12. nóv. 1968 eða síðar.
Eigi 1. málsliður þessa töluliðs einungis við hluta
sendingar, endurgreiðist innflutningsgjaldið hlut-
fallslega að því leyti sem varan greiddist með
nýju gengi.
2. Að innflytjandi leggi fram:
2. 1. Frumrit aðflutningsskýrslu (bleikt eintak)
með kvittun tollstjóra um greiðslu inn-
f lutningsgj aldsins.
2. 2 Innkaupsreikning með áritun gjaldeyris-
banka.
2. 3 Afreikning banka á andvirði gjaldeyris
(ásamt víxli).
2. gr.
Nú hefur innflytjandi fengið innflutningsgjaldið end-
urgreitt af öðrum orsökum en greinir í 1. tl. 1. gr.,
svo sem vegna útflutnings vörunnar eða þess háttar,
og kemur þá ekki til endurgreiðslu samkvæmt reglu-
gerð þessari.
3. gr.
Endurgreiðslan fer fram hjá ríkisféhirði, Arnarhvoli,
Reykjavík, enda sé umsókn skrifleg og studd full-
nægjandi sönnunargögnum.
4. gr.
Krafa um endurgreiðslu innflutningsgjalda skv. reglu-
gerð verður því aðeins tekin til greina, að henni sé
lýst innan tveggja mánaða frá dags. á afreikningi
banka sbr. 1. gr., lið 2. 3.
5. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 4. gr.
laga nr. 68/1968 og öðlast þegar gildi.
Fjármálaráðuneytið, 13. nóv. 1968.
Magnús Jónsson
/Jón Sigurðsson.