Morgunblaðið - 07.02.1969, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1969.
réttumyndir
UZ YMSML
Efnt var til mótmælafundar fyrir framan aðalstöðvar S.Þ.
i New York eftir að íraksstjórn hafði látið hengja fjórtán menn,
sem sakaðir voru um njósnir í þágu ísraels. Á fundinum var
fáni íraks brenndur til að sýna andúð fundarmanna á aftök-
unum.
WVWOOfw -
Vinir forsetanna: A myndinni sést Iengst til vi nstri hundurinn Tína, nýr hirðhundur Hvíta
hússins. Síðan koma Fala, hundur Johnsons, Scotty, sem cr eftirlætishundur Roosewelts og
lengst til hægri er Charlie, sem var samtíða Jo hn F. Kennedy í Hvíta húsinu.
Fimmtugur ástralskur áhugaflugmaður, Robert Baudin sést
hér fljúga vél sinni rétt við Sydney-brúna, og tilkynnti að
hann hefði í hyggju að fremja sjálfsmorð. Mönnum tókst þó
að fá hann ofan af því áformi og þegar hann lenti var hann
leiddur fyrir rétt ákærður fyrir svik og brall af ýmsu tagi.
Franco þjóðarleiðtogi Spánar hefur haft í ýmsu að snúast undanfarið, vegna vaxandi ókyrrðar
meðal stúdenta og verkamanna á Spáni, enda lýsíi hann yfir neyðarástandi fyrir nokkru og
lætur nú fangelsa menn unnvörpum. Um síðustu helgi brá Franco sér í útreiartúr og snarast
hér á bak reiðskjóta sínum.
Dodge yfirbyggingin á þessum kappakstursbíl losnaði af þegar
hann valt á 200 kílómetra hraða, í hinni árlegu kappaksturs-
keppni gamalla bíla í Pómona í Kaliforníu. Ökumaðurinn missti
stjórn á farartækinu með þessum afleiðingum. Sjálfur var
hann í sérstöku „búri“ sem verndaði hann svo vel að hann
fékk ekki svo mikið sem skránu.
CETIÐ ÞÉR CERT BETRI
INNKAUP >
Aðeins krónur 14,50 i smásölu
Tékknesk þingmannanefnd hefur verið í heimsókn í Moskvu. Hér sést Podgorny, forseti So-
vétríkjanna taka á móti sendinefndinni.