Morgunblaðið - 15.04.1969, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUB 15. APRÍL 1969
Norðurlandamót
í handknattleik
Á FUNDI Norrænna hand-
knattleiksleiðtoga, er haldinn
var 1 Helsingfors um helgina
var ákveðið að efni skuli til
Norðurlandamóts í handknatt
leik. Var jafnframt ákveðið
að fyrsta Norðurlandamótið
skyldi fara fram í Málmey í
Svíþjóð 2.—4. janúar n.k.
Ekki var ákveðið á fundinum
hvort keppnin skuli fara
fram árlega, eða annað hvort
ár.
Þá var jafnframt ákveðið
að Norðurlandamót drengja
innan 18 ára aldurs fari fram
3.— 5. npríl n.k.
ísland hefur lengi barizt
fyrir því að efnt skuli til
slíks móts, en hingað til hafa
Norðurlöndin verið fremui
áhugalítil. Er þessu ákvörðun
því mikið gleðiefni fyrir ís-
lenzka handknattleiksmenn
og handknattleiksunnendur.
Lið Menntaskólans í Reykjavík er sigraði í skólamótinu í knatt,pyrnu
Londsliðið
— Fiam 2:0
ÍR og KR berjast á botninum
— en FH stefnir að fullu húsi stiga
- Valur-KR 20-20 og FH-ÍR 23-19
Knattspyrnulandsliðið lék æf-
ingaieik við Fram á sunnudag-
inn. Úrslit leiksins urðu sigur
landsi'.ðsins, 2:0, eftir heldur lé-
legan leik við slæm vallarskil-
yrði. Óiafur Lárusson og Her-
mann Gunnarsson ikoruðu mörk
in.
Landsliðsmenn eiga nú stranga
daga framundan, þar sem eru
aefingar fyrir leikinn við Arsen-
al, sem verður í byrjun maí. Eru
fimm æfingaleikir áformaðir og
verður sá fyrsti á miðvikudags-
kvöldið og þá leikið við Kefla-
vik.
Unglingalandsliðið átti að leika
á Akrane i á sunnudag, en af því
varð ekki.
Á SUNNUDAGSKVÖLD fóru
fram tveir leikir í 1. deild ís-
landsmótsins í handknattleik. FH
sigraði ÍR með 23 mörkum gegn
19 og KR og Valur gerði jafn-
tefli, 20:20. Eftir þessa leiki vaxa
bví líkurnar á því að ÍR og KR
verði að leika um fallsætið í 2.
deild og verður það örugglega
hörð barátta. FH stefnir hins
vegar að því öruggum skrefum,
að sigra í deildinni með fullu
húsi stiga. Slíkt hafa þeir oft
gert áður, síðast fyrir þremur
árum, en árið áður höfðu þeir
lent í þriðja sæti í íslandsmót-
'nu, eins og í fyrra.
Leikur KR og Vals var mjög
skemmtilegur og vel leikinn.
Sýndu bæði liðin á tíðum ágæt-
an handknattleik o.g þó einkum í
vörninni. Valur hafði undirtökin
í fyrri hálfleik og átti Hermann
Gunnarsson drýgstan þátt í þvi.
í hálfleik var staðan 13:11 fyrir
Val. Eftir 7 mínútur í síðari hálf
leik tókst svo KR að jafna, 15:15,
og eftir það var leikurinn mjög
jafn. Tókst Valsmönnum einu
iinni að ná tveim mörkum yfir,
»9:17, en undir lok hálfleiksins
jöfnuðu KR-ingar svo. Áttu Vals
menn síðasta tækifærið í leikn-
um, en Karl Jóhannsson var vel
á verði sem endranær. Braut
hann á Hermanni á miðjum velli
og afstýrði þannig hættunni.
í Valsliðinu áttu beztan leik
þeir Hermann Gunnarsson og
Jón Karls^on, sem var mark-
hæstur þeirra með 5 mörk. Emil
Karlsson átti mjö,g góðan leik í
KR-liðinu, svo og þeir Karl Jó-
hannsson, er skotaði 8 mörk os
Hilmar Björnsson er skoraði 7
mörk.
Óli Olsen og Björn Kriitjáns-
son dæmdu leikinn sæmilega.
í leik ÍR og FH leit lengi út
fyrir að ÍR-ingum tækist að
stöðva sigurgöngu FH-inga.
Höfðu ÍR-ingar vissulega mikiu
að keppa að, því auk heiðursins
á sigri yfir íilandsmeisturunum
hefðu 2 stig verið þeim mjög dýr
mæt í fallbaráttunni.
ÍR hafði forystu í leiknum
lengst af og léku oft ágætlega.
Var það ekki fyrr en að um 10
mín. voru eftir að leiknum, sem
FH-ingar tóku á honum stóra
sínum og sigu örugglega Iram
úr. Voru þeir félagar, Geir og
Örn og Hjalti, sem mestan þátt
áttu í því, en þeir voru sem fyrr
beztu leikmenn FH-liðsins, í ÍR
liðinu áttu þeir Vilhjálmur og
Ágúst beztan leik, en liðið í heild
nær oft mjög skemmtilegum
leik, og furðar menn á því að ÍR
skuli ekki vera komið með nema
4 stig í vetur.
AKRANES 0G KEFLAVÍK sigr-
uðn í Litlu bikuikeppninni
— líflegir leikir í Kópavogi og Keflavík
Lundsliðið í köifuknuttleik vulið
FJÖLMARGIR áhorfendur lögðu
leið sina í Kópavog á sunnudag-
inn og fylgdust þar með leik
heimamanna við Akurnesinga. í
Litlu bikarkeppninni, sem hófst
þennan dag. Leikurinn var fjör-
lega leikinn og lyktaði honum
þannig, að Skagamenn sigruðu
verðskuldað með fjórum mörk-
um gegn tveimur. Bæði liðin
sýndu athyglisverðan leik, eink-
um virðist framlina Skagamanna
lífleg og líkleg til afreka í sum-
ar.
Lið Kópavogs hefur einnig tek
ið miklum framförum. í því eru
að stofni til ungir og efnilegir
leikmenn, sem óhætt mun að
spá velgengni í 2. deildar keppn
inni í sumar.
Guðjón Guðmundsson skoraði
fyrsta mark leiksins eftir horn-
spyrnu á mark Kópavogs. Var
Kópavogsmarkvörðurinn þar illa
á verði og hefði auðveldlega átt
að ná knettinum. Guðmundur
Þórðarson, bezti maður Kópa-
vogsliðsins, jafnaði síðan, en
Matthías Hallgrímsson og Guð-
jón Guðmundsson breikkuðu bil-
ið aftur upp í 3:1. Skömmu fyrir
lok hálfleiksins skoraði svo Þór-
ir Hreiðarsson fyrir Kópavog, og
var staðan því 3:2 fyrir Akranes
í hálfleik.
í síðari hálfleik sóttu Kópa-
v'Ogsmenn svo heldur meira, en
eigi að síður voru það Skaga-
menn sem skoruðu eina mark
hálfleiksins. Var þar Björn Lár-
usson að verki með lúmsku skoti
af löngu færi.
I Keflavik léku heimamenn
við Hafnfirðinga og sigruðu verð
skuidað með 2 mörkum gegn
engu, þrátt fyrir markmanns-
raunir sínar, en báðir aðalmark-
verðir liðsins meiddust í leikn-
um og urðu aðrir leikmenn að
hlaupa í skarð þeirra.
Keflvíkingar sóttu mun meira
í leiknum og áttu mörg hættuleg
tækifæri sem þeim tókst ekki að
nýta nema tvívegis. í fyrri hálf-
ieik er Friðrik Ragnarsson skor-
aði og í síðari hálfleik er þeir
fengu dæmda vítaspyrnu, sem
Sigurður Albertsson skoraði úr.
Víðavungs-
hlaup ÍR
VÍÐAVANGSHLAUP ÍR fer
fram á sumardaginn fyrsta að
venju. Verður keppt um fallega
vorðlaunabikara í þriggja, fímm
og tíu manna sveitum. Þátttöku-
lilkynningar þurfa að hafa bor-
izt Ka:li Hólm, íimi 33100, i síð-
asta lagi fyrir 20. þ.m.
LANDSLIÐ Körfukhattleiks-
sambands íslands hefur valið
landsliðið, sem taka á þátt í Evr-
ópumeistarakeppninni í Svíþjóð
í maí næstkomandi. Valdir voru
10 leikmenn til keppninnar, og
er liðið þannig skipað:
Birgir Örn Birgis, Ármanni
Brynjólfur Markússon, KR
Einar Bollason, Þór
. Gunnar Gunnarsson, KR
Jón Sigurðsson, Ármanni
Kolbeinn Pálsson, KR
Kristinn Stefánsson, KR
Sigurður Helgason, KFR
Þórir Magnússon, KFR
Þorsteinn Hallgrímsson, ÍR
Tveir nýliðar eru í liðinu að
þes$u sinni, hæsti körfuknatt-
leik.-maður íslands, Siigurður
Helgason, KFR, sem er 209 cm
á hæð, og Brynjólfur Markús-
son, KR, einn af efnilegustu
yngri mönnunum. Yngsti leik-
maður liðsins er Jón Sigurðsson
Ármanni, sem er 18 ára, og vakið
hefur athygli fyrir fjölhæfni í
körfuknattleiknum. Sá, sem leik-
ið hefur flesta landsleiki er Birg
ir Örn Birgis, en hann hefur leik
ið alla landsleiki íslands frá
upphafi, 23 að tölu. Meðalihæð
liðsins er 190 cm. og meðalaldur
25 ár.
Allstrangt æfingaprógram
hefur verið gert fyrir liðið, og
samkvæmt því munu verða
leiknir fjórir æfingaleikir í viku
hverri fram að keppni, og auk
þess ein æfing í viku.
Á sunnudaginn kemur mætir
landsliðið pressuliði í keppni. Má
vænta þess, að íþróttafréttamenn
geti teflt fram sterku liði, því
mjög margir góðir leikmenn
munu sitja eftir heima, þegar
landsliðið fer. utan, vegna náms
og annars. Leikurinn fer fram á
Nesinu kl. 16.00.
Það er dýrt fyrirtæki að taka
þátt í slíkri keppni, og hefur því
K.K.Í. sett af stað ýmiss konar
fjáröflunarstarf. Meðal annars
hafa verið gefin út númeruð
styrktarkort, sem seld eru fyrir
upphæð frá kr. 100. Innan
skamms verður dregið úr núm-
erunum, sem seld verða, og hlýt-
ur handhafi vinningsnúmersins
ferð til Svíþjóðar með landslið-
inu. Er vonazt til, að fólk sýni
þfes;u máli skilning, og styrki
landsliðið okkar til keppni í
sinni fyrstu Evrópumeistara-
keppni.
Menntoskólinn
sigiaoi i
skólakeppni
MENNTASKÓLINN í Reykja-
vík sigraði í fyrstu skólakeppn-
inni í knattspyrnu er fram fer
í langt árabil. Lék hann til úr-
slita við Háskóia íslands á sunnu
daginn. Leikurinn var mjög jafn
oig í lok venjulegs leiktíma, var
staðan 2:2. Hvorugu liðinu tókst
að skora í framlengingunni og
varð því að efna til vítaspyrnu-
keppni til þess að úrslit fengjust.
Skoraði Menntaskólinn úr öll-
um sínum spyrnum og Háskól-
inn úr fjórum fyrstu. Síðasta
spyrna Háskólamanna var hins
vegar illa framkvæmd og átti
maikvörður Menntaskólans auð-
veit með að verja.
M0LAR
I V-ÞÝZKALAND og Wales
| léku landsleik í knattspyrnu
j í Frankfurt. Jafntefli var 1-1.
. Leikurinn var „vináttuleikur“
en ekki liður í ncinni keppni.
| HOLLAND vann Luxemborg
4-0 í síðari leik landanna í
undankeppni HM í knatt-
* spyrnu. f fyrri leiknum sigr-
uðu Hollendingar einnig 2-0.
í sama riðli (8. riðli) hefur
Búlgaría unnið Holland 2-0,
en Pólverjar hafa ekki hafið
leiki sina.
NEWCASTLE er komið í und ,
anúrslit Borgakeppni Evrópu.
Liðið tapaði siðari leiknum'
gegn Setubal Portugal með |
1-3, en hafði unið fyrri leik-j
inn 5-1 og hefur því 2 marka ,
sigur úr viðureigninni.
Látið ekki sambandið við
viðskiptavinina rofna
— Auglýsið -
Bezta auglýsingablaðið