Morgunblaðið - 15.04.1969, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 15.04.1969, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUB 15. APRÍL 1969 Norðurlandamót í handknattleik Á FUNDI Norrænna hand- knattleiksleiðtoga, er haldinn var 1 Helsingfors um helgina var ákveðið að efni skuli til Norðurlandamóts í handknatt leik. Var jafnframt ákveðið að fyrsta Norðurlandamótið skyldi fara fram í Málmey í Svíþjóð 2.—4. janúar n.k. Ekki var ákveðið á fundinum hvort keppnin skuli fara fram árlega, eða annað hvort ár. Þá var jafnframt ákveðið að Norðurlandamót drengja innan 18 ára aldurs fari fram 3.— 5. npríl n.k. ísland hefur lengi barizt fyrir því að efnt skuli til slíks móts, en hingað til hafa Norðurlöndin verið fremui áhugalítil. Er þessu ákvörðun því mikið gleðiefni fyrir ís- lenzka handknattleiksmenn og handknattleiksunnendur. Lið Menntaskólans í Reykjavík er sigraði í skólamótinu í knatt,pyrnu Londsliðið — Fiam 2:0 ÍR og KR berjast á botninum — en FH stefnir að fullu húsi stiga - Valur-KR 20-20 og FH-ÍR 23-19 Knattspyrnulandsliðið lék æf- ingaieik við Fram á sunnudag- inn. Úrslit leiksins urðu sigur landsi'.ðsins, 2:0, eftir heldur lé- legan leik við slæm vallarskil- yrði. Óiafur Lárusson og Her- mann Gunnarsson ikoruðu mörk in. Landsliðsmenn eiga nú stranga daga framundan, þar sem eru aefingar fyrir leikinn við Arsen- al, sem verður í byrjun maí. Eru fimm æfingaleikir áformaðir og verður sá fyrsti á miðvikudags- kvöldið og þá leikið við Kefla- vik. Unglingalandsliðið átti að leika á Akrane i á sunnudag, en af því varð ekki. Á SUNNUDAGSKVÖLD fóru fram tveir leikir í 1. deild ís- landsmótsins í handknattleik. FH sigraði ÍR með 23 mörkum gegn 19 og KR og Valur gerði jafn- tefli, 20:20. Eftir þessa leiki vaxa bví líkurnar á því að ÍR og KR verði að leika um fallsætið í 2. deild og verður það örugglega hörð barátta. FH stefnir hins vegar að því öruggum skrefum, að sigra í deildinni með fullu húsi stiga. Slíkt hafa þeir oft gert áður, síðast fyrir þremur árum, en árið áður höfðu þeir lent í þriðja sæti í íslandsmót- 'nu, eins og í fyrra. Leikur KR og Vals var mjög skemmtilegur og vel leikinn. Sýndu bæði liðin á tíðum ágæt- an handknattleik o.g þó einkum í vörninni. Valur hafði undirtökin í fyrri hálfleik og átti Hermann Gunnarsson drýgstan þátt í þvi. í hálfleik var staðan 13:11 fyrir Val. Eftir 7 mínútur í síðari hálf leik tókst svo KR að jafna, 15:15, og eftir það var leikurinn mjög jafn. Tókst Valsmönnum einu iinni að ná tveim mörkum yfir, »9:17, en undir lok hálfleiksins jöfnuðu KR-ingar svo. Áttu Vals menn síðasta tækifærið í leikn- um, en Karl Jóhannsson var vel á verði sem endranær. Braut hann á Hermanni á miðjum velli og afstýrði þannig hættunni. í Valsliðinu áttu beztan leik þeir Hermann Gunnarsson og Jón Karls^on, sem var mark- hæstur þeirra með 5 mörk. Emil Karlsson átti mjö,g góðan leik í KR-liðinu, svo og þeir Karl Jó- hannsson, er skotaði 8 mörk os Hilmar Björnsson er skoraði 7 mörk. Óli Olsen og Björn Kriitjáns- son dæmdu leikinn sæmilega. í leik ÍR og FH leit lengi út fyrir að ÍR-ingum tækist að stöðva sigurgöngu FH-inga. Höfðu ÍR-ingar vissulega mikiu að keppa að, því auk heiðursins á sigri yfir íilandsmeisturunum hefðu 2 stig verið þeim mjög dýr mæt í fallbaráttunni. ÍR hafði forystu í leiknum lengst af og léku oft ágætlega. Var það ekki fyrr en að um 10 mín. voru eftir að leiknum, sem FH-ingar tóku á honum stóra sínum og sigu örugglega Iram úr. Voru þeir félagar, Geir og Örn og Hjalti, sem mestan þátt áttu í því, en þeir voru sem fyrr beztu leikmenn FH-liðsins, í ÍR liðinu áttu þeir Vilhjálmur og Ágúst beztan leik, en liðið í heild nær oft mjög skemmtilegum leik, og furðar menn á því að ÍR skuli ekki vera komið með nema 4 stig í vetur. AKRANES 0G KEFLAVÍK sigr- uðn í Litlu bikuikeppninni — líflegir leikir í Kópavogi og Keflavík Lundsliðið í köifuknuttleik vulið FJÖLMARGIR áhorfendur lögðu leið sina í Kópavog á sunnudag- inn og fylgdust þar með leik heimamanna við Akurnesinga. í Litlu bikarkeppninni, sem hófst þennan dag. Leikurinn var fjör- lega leikinn og lyktaði honum þannig, að Skagamenn sigruðu verðskuldað með fjórum mörk- um gegn tveimur. Bæði liðin sýndu athyglisverðan leik, eink- um virðist framlina Skagamanna lífleg og líkleg til afreka í sum- ar. Lið Kópavogs hefur einnig tek ið miklum framförum. í því eru að stofni til ungir og efnilegir leikmenn, sem óhætt mun að spá velgengni í 2. deildar keppn inni í sumar. Guðjón Guðmundsson skoraði fyrsta mark leiksins eftir horn- spyrnu á mark Kópavogs. Var Kópavogsmarkvörðurinn þar illa á verði og hefði auðveldlega átt að ná knettinum. Guðmundur Þórðarson, bezti maður Kópa- vogsliðsins, jafnaði síðan, en Matthías Hallgrímsson og Guð- jón Guðmundsson breikkuðu bil- ið aftur upp í 3:1. Skömmu fyrir lok hálfleiksins skoraði svo Þór- ir Hreiðarsson fyrir Kópavog, og var staðan því 3:2 fyrir Akranes í hálfleik. í síðari hálfleik sóttu Kópa- v'Ogsmenn svo heldur meira, en eigi að síður voru það Skaga- menn sem skoruðu eina mark hálfleiksins. Var þar Björn Lár- usson að verki með lúmsku skoti af löngu færi. I Keflavik léku heimamenn við Hafnfirðinga og sigruðu verð skuidað með 2 mörkum gegn engu, þrátt fyrir markmanns- raunir sínar, en báðir aðalmark- verðir liðsins meiddust í leikn- um og urðu aðrir leikmenn að hlaupa í skarð þeirra. Keflvíkingar sóttu mun meira í leiknum og áttu mörg hættuleg tækifæri sem þeim tókst ekki að nýta nema tvívegis. í fyrri hálf- ieik er Friðrik Ragnarsson skor- aði og í síðari hálfleik er þeir fengu dæmda vítaspyrnu, sem Sigurður Albertsson skoraði úr. Víðavungs- hlaup ÍR VÍÐAVANGSHLAUP ÍR fer fram á sumardaginn fyrsta að venju. Verður keppt um fallega vorðlaunabikara í þriggja, fímm og tíu manna sveitum. Þátttöku- lilkynningar þurfa að hafa bor- izt Ka:li Hólm, íimi 33100, i síð- asta lagi fyrir 20. þ.m. LANDSLIÐ Körfukhattleiks- sambands íslands hefur valið landsliðið, sem taka á þátt í Evr- ópumeistarakeppninni í Svíþjóð í maí næstkomandi. Valdir voru 10 leikmenn til keppninnar, og er liðið þannig skipað: Birgir Örn Birgis, Ármanni Brynjólfur Markússon, KR Einar Bollason, Þór . Gunnar Gunnarsson, KR Jón Sigurðsson, Ármanni Kolbeinn Pálsson, KR Kristinn Stefánsson, KR Sigurður Helgason, KFR Þórir Magnússon, KFR Þorsteinn Hallgrímsson, ÍR Tveir nýliðar eru í liðinu að þes$u sinni, hæsti körfuknatt- leik.-maður íslands, Siigurður Helgason, KFR, sem er 209 cm á hæð, og Brynjólfur Markús- son, KR, einn af efnilegustu yngri mönnunum. Yngsti leik- maður liðsins er Jón Sigurðsson Ármanni, sem er 18 ára, og vakið hefur athygli fyrir fjölhæfni í körfuknattleiknum. Sá, sem leik- ið hefur flesta landsleiki er Birg ir Örn Birgis, en hann hefur leik ið alla landsleiki íslands frá upphafi, 23 að tölu. Meðalihæð liðsins er 190 cm. og meðalaldur 25 ár. Allstrangt æfingaprógram hefur verið gert fyrir liðið, og samkvæmt því munu verða leiknir fjórir æfingaleikir í viku hverri fram að keppni, og auk þess ein æfing í viku. Á sunnudaginn kemur mætir landsliðið pressuliði í keppni. Má vænta þess, að íþróttafréttamenn geti teflt fram sterku liði, því mjög margir góðir leikmenn munu sitja eftir heima, þegar landsliðið fer. utan, vegna náms og annars. Leikurinn fer fram á Nesinu kl. 16.00. Það er dýrt fyrirtæki að taka þátt í slíkri keppni, og hefur því K.K.Í. sett af stað ýmiss konar fjáröflunarstarf. Meðal annars hafa verið gefin út númeruð styrktarkort, sem seld eru fyrir upphæð frá kr. 100. Innan skamms verður dregið úr núm- erunum, sem seld verða, og hlýt- ur handhafi vinningsnúmersins ferð til Svíþjóðar með landslið- inu. Er vonazt til, að fólk sýni þfes;u máli skilning, og styrki landsliðið okkar til keppni í sinni fyrstu Evrópumeistara- keppni. Menntoskólinn sigiaoi i skólakeppni MENNTASKÓLINN í Reykja- vík sigraði í fyrstu skólakeppn- inni í knattspyrnu er fram fer í langt árabil. Lék hann til úr- slita við Háskóia íslands á sunnu daginn. Leikurinn var mjög jafn oig í lok venjulegs leiktíma, var staðan 2:2. Hvorugu liðinu tókst að skora í framlengingunni og varð því að efna til vítaspyrnu- keppni til þess að úrslit fengjust. Skoraði Menntaskólinn úr öll- um sínum spyrnum og Háskól- inn úr fjórum fyrstu. Síðasta spyrna Háskólamanna var hins vegar illa framkvæmd og átti maikvörður Menntaskólans auð- veit með að verja. M0LAR I V-ÞÝZKALAND og Wales | léku landsleik í knattspyrnu j í Frankfurt. Jafntefli var 1-1. . Leikurinn var „vináttuleikur“ en ekki liður í ncinni keppni. | HOLLAND vann Luxemborg 4-0 í síðari leik landanna í undankeppni HM í knatt- * spyrnu. f fyrri leiknum sigr- uðu Hollendingar einnig 2-0. í sama riðli (8. riðli) hefur Búlgaría unnið Holland 2-0, en Pólverjar hafa ekki hafið leiki sina. NEWCASTLE er komið í und , anúrslit Borgakeppni Evrópu. Liðið tapaði siðari leiknum' gegn Setubal Portugal með | 1-3, en hafði unið fyrri leik-j inn 5-1 og hefur því 2 marka , sigur úr viðureigninni. Látið ekki sambandið við viðskiptavinina rofna — Auglýsið - Bezta auglýsingablaðið

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.