Morgunblaðið - 16.07.1969, Side 5
MORGLWBLAÐiÐ, M3f>VlKUDAGUR 1«. JÚLá
c--l • •- ^Í-Iy.v^tí.T
y ' •
SÍSÍfíi
• :.•
tunglfararnir í dag ?
Hér á eftir fer frásögn af því hvernig ráðgert er, að fyrsti
dagur tungferðar Apollo 11 líði. Þess er vænzt, að í dág
beini tunglfararnir þrír, Neil A. Armstrong, Michael Coll-
ins og Edwin E. Aldrin, geimfari sínu af jarðarbraut áleið-
is til tunglsins. Þar til geimferðinni lýkur verður daglega
birt frásögn af því helzta, sem fyrirhugað er að tungfararn-
ir taki sér fyrir hendur.
1. DAGURINN HEFST. Ein-
hvern tíma á milli klukkan fjög
ur og fimm um morguninn 16.
júlí, 1969, eftir bandarískum
dagsaukatíma (milii 08:00 og
09:00 eftir Greenwich meðal-
tíma), hefst sá hildarleikur er
marka skal fyrstu lendingu
manna á tunglinu.
ÞaS er á þessum tíma, sem
aðalstjörnur leiksins — banda-
rísku geimfararnir þrír, sem
þessu tímamótahlutverki gegna
— eru vaktir tii að búa sig
undir hina mikil vægu för.
Um leið og flugáætlun
Apollo-11 farsins er gerS ná-
kvænnari í öllum atriðum sið-
ustu dagana fyrir geimskotið,
verður fótaferðartími geimfar-
anna ákveðinn upp á raínútu.
2. MORGUNVERÐUR GEIM-
FARANNA. Skömmu eftir fóta
ferð í bandarísku geimstöðinni
á Kennedyhöfða á Florida,
g.anga geimfaramir að morgun-
verðarborði í matsal Geimferða
byggingarinnar en í þeirri
byggingu eru áhafnaríbúðir,
þar sem geimfarar búa tneðan
beðið er brottfarar.
Samkvæmt venju bjóða
geimfaramir nokkrum' gestum
að snæða með sér morgunverð
fyrir flugið — venjulega tveim
ur eða þremur embættismönn-
um og einum eða tveimur nán-
um vinum. Það er staðgóður
morgunverður á matseðlinum.
Hver geimfari kýs sér yfirleitt
appelsínusafa, spæld egg,
steik, ristað brauð með smjöri
og kaffi svo eitthvað sé nefnt.
3. LÆKNISSKOÐUN. Geim-
faramir gangast undir hrað,a
en nákvæma Iikamsskoðun hjá
geimferðalæknum. Heilsufar
hvers geimfara verður að full-
nægja vissum kröfum — að
öðrum kosti verður að fresta
fluginu eða þjálfaður varamað-
ur að koma í stað hins sjúka
geimfara. (Geimflugi Apollo-9 í
marz s.l. var frestað um þrjá
daga vegna veirusýkingar á-
hafnarinnar.)
4. „BÚNINGSATRIÐIÐ.“ —
Stöðv.arstarfsmenn hjálpa geim
förunum að klæðast geimferða-
búningunumi. Þetta er ekki
eins auðvelt og að klæða sig í
venjulegan fatnað. Litlir skynj
arar eru festir við hömndið á
brjósti hvers geimfara. Þeir
senda upplýsingar um hjart-
slátt og andardrátt til ’mæli-
tækja, sem útvarpa þeim sjálf-
krafa til jarðar. Læknar við
stjómstöðina i Houston, Texas
fylgjast með líkamlegu ásig-
komulagi hvers geimfara nærri
hvert augnablik á meðan á flug
inu stendur.
Það er einnig tímafrekt að
klæðast hinum fyrirferðarmikla
hlífðarfatnaði. Hann er jafn
nærri því að vera vél og fatn-
aður — inniheldur sitt eigið
gerfi-andrúmsloft, talstöðvar-
tæki og útbúnað til eyðingar á
úrgangsefnum líkamans. Innan
undir þrýstihlífarbúningnum
em geimfaramir í „siveruflík-
un»“, sem era nærföt sniðin í
likingu við íþróttaföt.
5. AÐ SKOTPALLINUM. 1
hvítum geimferðabúningum sín
um ganga geimfararnir — Neil
A. Armstrong, Michael Collins
og Edwin E. Aldrrn — út Úr
byggingunni og heldur hver
þeirra á liylkinu með lífkerfi
sínu eins og lítilli ferðatösku.
Þessi útbúnaður er tengdur
með slöngu við op í geimbún-
ingnum, dælir lofti gegnum
búninginn og stjórnar hitastig-
inu í honum.
Geimfaramir stíga upp í
vagn, sem flytur þá að skot-
pallasvæði 39. Á skotpalli A
stendur öflugasti og jafnframt
furðulegasti farkostur verald-
ar og ber við rísandi sól —
Apollo geimfarið og Saturn-5
burðarflaugin, sem em til sam-
ans 109 nnetrar á hæð og vega
3.100 tonn.
Klukkan er nú hálf-sjö að
morgni og árdegissólin er að-
eins örfáum gráðum ofan við
sjóndeildarhringinn, í um það
bil sömu hæð og hún verður
yfir tunglinu meðan á viðdvöl
geimfaranna stendur þar.
6. ANNRÍKI Á GEIMSTÖD-
INNI. í nágremii skotpalla-
svæðisins ríkir asalaus, þraut-
þjálfuð og útreiknuð önn.
Hundruð manna hafa verið þar
að störfumi í margar klukku-
stundir. Undirbúningsatriðin
eru óteljandi. — Hin marg-
víslegu handtök spanna allt frá
aflestri tækja og mæla, sem
gefa til kynna ástand tækja-
búnaðar í eldflaug og geim-
fari, til þess að dæla nærri
fjómm milljónum lítra af fljót
andi súrefni, fljótandi vetni
og öðru hreyfilseldsneyti í eld
flaugargeyma, sem eru svo stór
ir að þeir gætu gleypt þrjá
stóra flutningavagna hlið við
hlið.
Einnig eru um 200 manns að
störfum í skotbyrginu og við
flugstjórnina í Kennedy geim-
stöðinni þar sem umsjón er
höfð með undirbúningi og flug-
taki. Hundruð skynjara í eld-
flauginni flytja upplýsingar um
þrýsting, hitastig og aðra áríð-
andi starfsemi til verkfræðinga
og tæknifræðinga, sem fylgjast
á þann hátt með ástandi eld-
flaugarinnar þar til henni er
skotið á loft.
7. JARÐARBÚAR HORFA A
GEIMSKOTIÐ. A meðan hafa
um 2000 fulltrúar fjölmiðlana
útvarps- og sjónvarpsmenn i
hreyfanlegum upptökuvélum og
fréttaritarar dagblaða og tíma-
rita — komið sér fyrir tæpa
fimm kílómetra frá skotpalla-
svæðinu. Öryggisreglur heim-
ila engum að vera nær svæð-
inu þegar geimskot á sér stað,
að frátöldum þeim sem staddir
eru í skotbyrginu. Fáeinum
fréttamönnum sem annað hvort
eru valdir með lilutkesti eða af
eigin hópi, er leyft að dvelja í
skotbyrginu sem eins konar
fréttamiðstöð. í skotbyrginu,
sem er að nokkru leyti neðan-
jarðar og varið gegn skotbloss-
anurn af margra tonna jarðlagi
off þykkum veggjum, er hægt að
horfa á flugtakið gegnum hring
sjá eða í innanhússjónvarpi.
Frá þessum stað er yfiramsjón
höfð með eldflaug.arskotinu. M
8. GEIMFARIÐ MANNAÐ.
Geimfararnir þrír fara nú í
lyftu sem er inni í skottum-
inum samhliða eldflauginni og
flytur hún þá upp á göngu-
brú, sem liggur að geimfarinu
í 99 metra hæð frá jörðu. (Fyrr
um morguninn hafa staðir þeirra
inni í geimfarinu verið setnir
nsönnum úr varaáhöfninni —
geimförunum James A. Lovell,
Willam A. Anders og Fred W.
Maise — sem vaktir voru níu
klukkustundum fyrir geimskot-
ið til að yfirfara stjómkerfi
geimfarsins.)
Aðaláhöfninn gengur nú yfir
brúna inn í geimf,arið. Arað
strong sezt í vinstra sætið,
Collins í miðju og Aldrin til
hægri — og þeir spenna sig
fasta. Vallarstarfsmenn óska
þeim góðs gengis með klappi á
arm eða öxl. Síðan er lúgugati
geimfarsins lokað og læst. Nú
eru tvær klukkustundir og
fjörutíu mánútur til flug-
taksins, sem áætlað er klukk-
an 9:3) (eða 13:32 GMT).
Framhald á bls. 25
Á síhœkkandi súlu af eldi og
reyk rís flaugin fil himins