Morgunblaðið - 16.07.1969, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 1069
13
■n thi rr rmrrr-iiT
Þegar að þvi kom að hanna stjómfar Apollo þurfti að taka fjölmargt
með í reikningnn. Klefinn er bjöllulaga og er um 12 feta hár og þver-
málið er svipað, og hann vegur um 13 þúsund pund. Þar er komið
fyrir hinum flókna útbúnaði ferðarinnar, tækjum og tólum, svo og
föggum geimfaranna þriggja, allt frá tannburstum til margbrotinna
myndavéla. Aður en geimfarið byrjar innflugið inn i gufuhvolfið er
aftari hluti geimfarsins skilinn frá og brennur hann upp á skammri
stundu. Tunglferjan sjálf er ámóta stór og tveggja hæða hús, vegur
16 lestir og minnir á pöddu að lögun. Ferjan hefur eigin eldflaugar, sem
koma ferjunni á loft þegar tunglfaramir halda á brott af tunglinu, en
þá verður lendingarfóturinn losaður frá og skilinn eftir á tunglinu.
I Mercury og Gemini ferðum höfðu geimförin verið send á braut um
jörðu. En þegar hafizt var handa um Apollo-áætlunina var Ijóst, að
héðan í frá yrði jarðarbraut aðeins áningarstaður á lengri og hættu-
meiri leið. Það lá i hlutarins eðli. að tunglið sem næsti nágranni jarðar-
innar yrði fyrir valinu. en síðar tækju við enn víðtækari könnunarferðir
til fjarlægari hnatta og að lokum til annarra sólskerfa. Til þess að ná
þvi marki þurfti að hanna nýja tegund geimfara og kröftugri eld-
flaugar til að koma sliku fari áleiðis til tunglsins. Þá varð og að vinda
bráðan bug að þvi að reisa rannsóknarstöðvar á jörðu niðri og full-
komna þurfti fjarskiptanetið og færa það enn frekar út.
Sérfræðingar bandarisku geim-
ferðastofnunarinnar hafa smám
saman gert nákvæma uppdrætti
og kort yfir meginhluta tungls-
ins. Með fyrri geimskotum hafa
Bandaríkjamenn viðað að sér mik-
ilsverðri þekkingu og aflað sér
ómetanlegrar reynslu, sem hefur
gert þetta verk kleift. Tunglflaugar
þeirra hafa sent þúsundir mynda
til jarðar af tunglinu og færðu þar
með ótrúlega mikinn og áður ó-
þekktan fróðleik til jarðar um
þennan næsta nágranna okkar.
Segja má, að um 99% af yfirborði
tunglsins hafi verið kannað á
þennan hátt og myndir þær, sem
þannig bárust voru tíu sinnum
skýrari en þær beztu, sem áður
höfðu náðzt frá rannsóknarstöðv-
um á jörðinni.
Apollo 11 hefur verið komið fyrir
í trjónu Satúmus V og rástalning-
in hefur staðið í nokkra daga.
Þann tima hafa öll tæki verið
reynd og þrautprófuð og lag-
færðar þær skekkjur, sem
hafa komið í Ijós á síðustu
stundu. Geimfaramir Aimstrong,
Aldrin og Collings hafa komið sér
fyrir í stjómklefanum og lokataln-
ing hefst. Á sömu sekúndu og
henni lýkur hefur Satúmus V sig
þyngslalega á loft, og með ógur-
legum gný og eldspýjum hefst nú
mesta ævintýraför mannsins: ferð-
in til tungisins. Þegar Apollo
11 nálgast tungiið ern hreyflamir
ræstir til að komast á tungibraut
og síðan er fyrirhugað að famir
verði nokkrir hringir um tunglið
meðan öll tæki geimfarsins eru
reynd og prófuð. Að því loknu eru
hreyfla-mir ræstir á ný og er geim-
farið nú 69 mílur frá yfirborði
tunglsins. Þegar hér er komið
sögu eiga geimfaramir að hvílast
I átta klukkustundir. Siðan klifra
þeir Armstrong og Aldrin um
borð í tunglferjuna, ræsa hreyflana
og losa hana frá móðurskipinu.
Tunglfirrð er þá 50 þúsund fet.
Ahöfn Apollo 10 gerði þetta á
undan þeim. En þegar því sleppir
og þrátt fyrir ótal tilraunir má nú
segja, að geimfaramir séu upp á
sjálfa sig komnir og enginn getur
ábyrgzt að ferðin takist. Þegar
ferjan er komin í fimm þúsund
feta hæð dregur Armstrong
hægt úr hraða ferjunnar. Þeg-
ar hún er í 500 feta hæð er
hraðinn 3 fet á sekúndu. Við-
vörunarljós kviknar, Armstrong
slekkur á vélinni, smáhnykkur og
þeir em lentir. Maðurinn hefur
haldið innreið sína í nýja veröld.
Þegar geimfaramir hafa hvílzt í ákveðinn tíma býr Armstrong sig
undir að stíga út. Hann opnar lúguna á ferjunni og fetar sig niður stig-
ann, ellefu þrep og hann stendur á tunglinu. I skugganum er frostið
200 gráður, þar sem þeir ná ekki til er hitinn 200 gráður. Vegna bún-
ingsins verður Armstrong hitamunarins ekki var. Hann stendur um
stund og horfir yfir hrikalegt landslagið. hrjóstugt, brúnt land og gíg-
amir blasa við augum, hvert sem litið er. Hann athugar, hvort búning-
urinn sé ekki í bezta lagi og siðan hefst tunglgangan, sem óhjákvæmi-
lega verður nokkuð sérstæð vegna þyngdarleysisins. Hvert skref hans
og hver hreyfing hefur verið skipulögð og æfð með það fyrir augum,
að ekkert óvænt geti komið fyrir. Armstrong á að taka jarðvegssýnis-
horn og hann á að taka myndir og gera fjölþættar athuganir. Aldrin
réttir honum myndavél og brátt er röðin komin að honum að stíga út.
Þá em liðnar 40 mínútur siðan Armstrong paufaðist niður stigann.
Aldrin hefur nú vanizt tunglgöngunni og hann tekur einnig til óspilltra
málanna. Þeir taka myndir hvor af öðrum við jarðvegssýnishoma-
söfnun, mynda landslagið og tunglferjuna og framkvæma yfirieitt allar
þær athuganir, sem þeir hafa fengið þjálfun í. Þeir eiga að halda sig
innan 300 feta radíusar frá ferjunni. Aldtin fer i tunglferjuna er hann
hefur dvalizt þar í 1 klst. og 35 mínútur og Amistrong fer á hæla
honum og hefur dvöl hans á tunglinu verið 2 klst. og 20 mínútur. Nú
eiga þeir að hvílast og búa sig undir annan mjög hættulegan hluta
ferðarinnar, brottförina af tungíinu, stefnumótið við Collins og sam-
tenginguna.