Morgunblaðið - 16.07.1969, Page 14
IMeil Armstrong er stjórnandi ferðarinnar og hann verður væntanlega
fyrstur manna til að stíga fæti á tunglið. Hann er fæddur árið 1930 og
á að baki langan og góðan feril sem geimfari og flugmaður. i Kóreu-
styrjöldinni gat hann sér mikinn orðstír sem hugdjarfur og leikinn
orrustuflugmaður.
Eldflaugin Satúrnus V flytur geim-
farana í Apollo 11 til tunglsins og
var hún hönnuð sérstaklega til að
þjóna því hlutverki. Er hvort
tveggja jafn stórkostlegt, stærð
hennar og verkefni. Flaugin er 110
metrar á hæð eða svipuð og 36
hæða hús. Við brottflug vegur hún
um 3 þúsund lestir. Til að lyfta
sér frá jörðu þarf hreyfill fyrsta
þreps að framleiða um tuttugu
sinnum meiri þrýsting en báknið
Atlas-Mercury. Obbinn af þunga
flaugarinnar eru knýiefnin. Satúm-
us V er hátindur á þróunar-
ferfi, sem hófst fyrir nær því
áratug. Fyrstur var Satúmus I,
sem kom mannlausum Apollo
stjómklefa á braut umhverfis
jörðu árið 1964. Með Satúm-
usi I fékkst reynsla af fljótandi
vetni og loxi, sem eldsneytis-
blöndu. Næstur kom svo Satúm-
us I B, sem hafði nægilegan þrýst-
ing til að koma mönnuðum Apollo
stjómklefum á lága umferðarbraut
um jörðu í æfingarskyni. Satúrmis
V er síðastur og öflugastur þess-
ara risaeldflauga.
Geimfararnir Walter Schirra, Donn Eisele og Walter Cunningham f
Apollo 7 var fyrsta mannaða ferð Apolloáætlunarinnar. Þeir æfðu
stefnumót og samtengingu við þriðja þrep eldflaugarinnar úti í geimn-
um og þeir tóku sjónvarpsmyndir, sem sendar voru beint til jarðar og
sjónvarpsnotendur um allan heim áttu þess nú kost að fylgjast með
ferð þeirra, sem stóð i tíu daga. Næsta Apolloferð verður lengi i minn-
um höfð, en þá stýrðu geimfaramir Frank Borman, James Lovell og
William Anders í fyrsta skipti af jarðarbraut og héldu til tunglsins, fóru
umhverfis það og sneru til jarðar, heilir á húfi og með ótrúlegan fjölda
mynda og mikilsverðan fróðleik. Næsta áhöfn lagði upp í Apollo 9 þann
3 marz í ár, um borð voru þeir James McDivitt, David Scott og Russel
Schweickart. A myndinni er áhöfn Apollo 8.