Morgunblaðið - 16.07.1969, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1(6. JÚDÍ 106®
15
Geimfarinn Neil Armstrong vorður fyrsti maðurinn, sem stígur faeti
sínum á tunglið. Edwin Aldrin verður annar. Þriðji áhafnarmaður Apollo
11. er Michael Collins, en hann verður um> Ityrrt í móðurskipinu og
stjómar för þess, meðan félagar hans dveljast á- tunglinu. En margar
hendur hafa stuðlað að því að allt utlit er fyrir að einn elzti draumur
mannkynsins rætist. Svo umfangsmikið er starfið, sem innt hefur verið
af hendi á síðustu árum, svo margar eru þær hendur. sem þar hafa
lagt hönd á plóginn. Hugv'rt, dirfska og snilli þúsunda og sameiginlegt
átak virðist í þann veginn að bera ávöxt.
Hvar eru þeir núna? Hvað er að
gerast? Svörin fást nær því sam-
stundis, þrátt fyrir þá órafjarlægð
sem skilur geimfarana í Apollo 11
frá hnettinum okkar. Stórkostleg
afrek hafa verið unnin á sviði
fjarskipta. og segja má að í hverj-
um krók og kima jarðarkringlunnar
séu stöðvar að störfum, sem hafa
samband við geimfarið og áhöfn
þess. Þær fylgjast með ferð fars-
ins og skiptast á upplýsingum við
áhöfn þess. Hinn mikli aragrúi
fjarskiptahnatta sem hafa verið
sendir upp siðustu ár auðveldar
þetta verk mjög og nú er vand-
inn aðeins að velja á snaggara-
legan og réttan hátt þann bezta
og fullkomnasta.
Saturnus V tilbúinn til flugtaks.
Framtíðarsýn. Þannig hugsa bandariskir vísindamenn sér að geimstöðv
amar líti út.
Tuttugu og tveimur klst. eftir að
tunglferjan lenti hefur hún sig upp
að nýju. Enn einu sinni ríður á
miklu að öll tæki starfi samkvæmt
áætlun og ekkert fari úrskeiðis.
Ferjan hefur sínar eigin eldflaugar
til flugtaksins og lendingarfóturinn
er skilinn eftir sem framtíðarlend-
ingarpallur fyrir tunglför. Þeir
stýra síðan ferjunni að stjómfar-
inu, samtenging gengur að óskum
og félagamir tveir skríða aftur inn
í það með sinni dýrmæta farm.
Enn eru famir nokkrir hringir um-
hverfis tunglið, en siðan eru
hreyflamir ræstir og heimferðin er
hafin. Hættan er ekki liðin hjá,
þegar geimfarið kemur inn í gufu-
hvolfið má engu skeika, svo að
farið hendist ekki aftur á tungl-
braut eða brenni upp til agna.
Þegar það er farsællega afstaðið
breiða fallhlífar geimfarsins sig
von bráðar út og það svífur niður
að haffletinum, þar sem fjölmörg
skip og flugvélar hafa beðið og
líður nú ekki á löngu unz tungl-
faramir eru komnir um borð.
För Apollo 10, sem hófst þann 18.
mai sl. var síðasta tilraunin fyrir
sjálfa tunglferðina. Apollo 10
hringsólaði umhverfis tunglið,
Stafford og Ceman klrfruðu um
borð í tunglferjuna og stýrðu
henni niður að yfirborði tunglsins,
en Young stjómaði móðurskipinu
á meðan. Þegar ferjan nálgaðist
yfirborð tunglsins gerði skyndi-
legur veltingur vart við sig og um
stund leit út fyrir að hörmulegur
atburður væri að gerast. Geim-
förunum tókst að rétta ferjuna við
og þeir tóku myndir af yfirborði
tunglsins i minni fjarlægð en
nokkru sinni fyrr. Að loknu ætlun-
arverki var stýrt aftur til móður-
skipsins, ferja og skip tengd sam-
an á ný og er geimfaramir voru
komnir um borð var hreyfill tungl-
ferjunnar ræstur og hún losuð frá
og hún þaut á braut umhverfis
sólu. Undirbún'mgi var nú lokið,
fleiri ferðir voru ekki fyrirhugaðar
fyrr en Apollo 11 yrði skotið á
loft þarm 16. jútí.
Dýrmætasti jarðvegur heimsins — 50 pund af tungli — verður næstu
mánuði á eftir i brennidepli. Visindamenn og sérfræðingar munu rann-
saka hann á alla handa máta. Sýnishomin verða fyrst flutt í Tungl-
rannsóknastöðina í Houston í Texas. Síðan verður þeim skipt í 140
skammta, sem visindamönnum i Bandaríkjunum og viðar gefst kostur
á að rannsaka frá líffræðilegu, landfræðilegu og jarðeðlisfræðilegu sjón-
armiði. Sérstakur viðbúnaður er við hafður og um sýnishornin búið í
þar til gerðum hylkjum. Nokkur hluti sýnishornanna verður settur i
hylki, ósnertur, og geymdur eins og hann kom fyrir af tunglinu. A
næstu árum gefst jarðarbúum kostur á að skoða þennan hluta tungls-
ins, þessa gráu steinhnullunga, sem svo mikið erfiði var lagt á sig til
að ná í og flytja heim til jarðarinnar.
I undirbúningi eru níu mannaðar tunglferðir, ef för Apollo 11 heppnast.
I þeim ferðum verða gerðar æ ítarlegri rannsóknir og smám saman
komið fyrir þar mælitækjum og fleiru er að gagni má koma við þær
athuganir, sem taldar eru nauðsynlegar. Síðar er ráðgert að koma upp
geimstöð um það bil 200 milur frá jörðu. Ætlunin er að geimfararnir
geti hafst við í þessum geimstöðvum án þess að vera í sérstökum geim-
búningum. Þeir eiga að dveljast i geimstöðinni i 28 daga, en snúa þá
aftur til jarðar og næsti hópur leysir þá af hólmi, og þannig koll af
kolli. Síðan verður dvölin lengd i 56 daga. Samkvæmt geimferðaáætlun
Bandarikjamanna verður ekki látið staðar numið, þótt tungli sé náð.
Gangi allt að óskum er gert ráð fyrir, að menn leggi upp í förina til
Marz árið 1980. Frá örófi alda hefur mannskepnan látið sig dreyma
um að komast til stjarnanna. Ef geimförunum i Appolo 11 tekst lend-
ingin á tunglinu og heimferðin, má ætla að þessi fjarlægi og furðulegi
draumur hafi að nokkru rætzt.