Morgunblaðið - 22.07.1969, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚLÍ 1&6®
Jónas Jónsson framkvæmdastjóri.
YígrstöSTvamar era þrjár.
Verksmiðjan á Kletti, Faxaverk
smiðjan og skrifstofan staðsett
í Hafnarhvoii við Tryggva-
götu. Þaðan sem sér vítt yfir
höfnina og líf hennar, skip og
menn, og þar er aðsetur fram-
kvæmdastjórans, Jónasar Jóns
sonar sem tók við starfi fram-
kvæmdastjóra Síldar- og fiski-
mjölsverksmiðjunnar árið 1953.
Þeir menn sem vinna við sjáv-
arútveginn þurfa að vera stór-
huga og áræðnir til þess að sú
atvinnugrein fylgist með þróun
mála og sú hefur verið stefna
Síldar- og fiskimjölsverksmiðj
unnar, enda miklar breytingar
og framfarir í rekstri fyrirtæk
isins, miðað við hvert tímabil
góðra og slæmra ára í vinnsl-
unni. Ef ekki væru til þessir
stórhuga athafnamenn væri
ekki eins gott að lifa á fs-
landi og það er í dag. Við
spjölluðum stuttlega við Jónas
Jónsson framkvæmdastjóra um
starf hans hjá Síldar- og fiski-
mjölsverksmiðjunni og fer
spjallið hér á eftir:
— Ég byrjaði að vinna hér
hjá Síldar- og fiskimjölsverk-
smiðjunni árið 1953 en þá hafði
ég jafnframt á höndum stjórn
Síldarbræðslunnar h.f. á Seyð-
isfirði, en ég var meðeigandi í
því fyrirtæki. í tvö ár hafði
ég með höndum framkvæmda-
stjóm þessara beggja fyrir-
tækja, en 1955 seldum við Síld
arbræðsluna h.f. og þá kom ég
alkominn hingað til Reykjavík
ur.
— Hver er saga verksmiðj-
unnar í stærstum dráttum?
— Síldar- og fiskimjölsverk
smiðjan var ein af fyrstu fiski-
mjölsverksmiðjunum sem byrj-
aði á því að fullnýta allt hrá-
efnið og til þess voru meðal
annars keypt svokölluð soð-
kj arnatæki. Með tilkomu
þeirra tækja náðist allt þurr-
efni úr hráefninu, en áður
hafði hluti af því farið for-
görðum.
Klettsverksmiðjan var um-
byggð árið 1947 úr beinaverk-
smiðju yfir í síldar- og fiski-
mjölsverksmiðju og þá er það
sem núveirandi nafn kemst á
verksmiðj una.
Næsta framkvæmd að ráði
fyrir utan ýmsar endurbætur
á verksmiðjunni, var það að á
árinu 1955 voru keyptir tveir
togarar til fyrirtækisins, þeir
Geir og Hvalfell, en fjórir að-
aleigendur Síldar- og físki-
mjölsverksmiðjunnar voru fjög
ur stærstu frystihúsin í Reykja
vík og þótti eðlilegt og æski-
legt að fyrirtækið hæfi útgerð
með það íyrir auigum að afla
hráefnis fyrir frystihúsin og
verksmiðjuna sjálfa.
1 byrjun ársins 1956 voru
fest kaup á þriðja togaranum,
Aski. Árið 1960 voru fest kaup
á fjórða togaranum, Austfirð-
ingi, sem hafði legið nokkurn
tima hér í höfninni. Var hann
umskírður og nefndur Haukur.
Þrír fyrst töldu togararnir
hafa nú verið seldir til Belgíu.
— Hvenær keypti fyrirtækið
Faxaverksmiðjuna?
— Á árinu 1963 festi fyrir-
tækið kaup á Faxaverksmiðj-
unni í Örfirisey, en eigendur
þess voru Reykjavíkurboirg og
Kveldúlfur h.f. Eins og kunn-
ugt er hafði Faxaverksmiðjan
staðið lengi óstarfhæf og við
þurftum að endurbyggja verk-
smiðjuna með nýjum vélakosti
og var það ærið fyrirtæki og
kostnaðarsamt.
Um þetta leyti var hlutafé
félagsins aukið verulega.
Á árinu 1964 var Faxaverk-
smiðjan algjörlega umbyggð og
var hún tilbúin til vinnslu í
febrúar 1965.
Á árinu 1964 var það að hin
merka tilraun var gerð af þeim
feðgum í Bolungarvík Einari
Guðfinnssyni útgerðarmanni og
hans sonum og Haraldi Ás-
geirssyni verkfræðingi að nota
tankskip með sérstakri gerð
sogdæla til þess að umskipa
síld úti á síldarmiðunum frá
veiðiskipunum yfir í flutninga-
skip og flytja á þann hátt síld-
ina í land til vinnslu í verk-
smiðjunum. Þegar hér var kom-
ið sögu hjá þessum mönnum
vorum við komnir í vandræði
með öflun hráefnis til vinnslu.
Forr áð amönnum Síldar- og
fiskimjölsverksmiðjunnar á
Kletti þótti þessi síldarflutn-
ingatilraun í upphafi mjög at-
hyglisverð ag fylgzt var með
henni af miklum áhuga. Strax
og það sýndi sig að fyrsta til-
raun þeirra Bolungarvíkur
feðga og Haralds sýndi góðan
árangur, einnig við nokkuð
slæm veðurskilyrði, þá sann-
færðust forráðamenn verk-
smiðjunnar hér um að þarna
væri möguleiki sem vert væri
að sinna. En eitt virtist ljóst í
spjallað við
Jónas Jónsson,
framkvœmda-
stjóra Síldar- og
fiskimjöls-
verksmiðjunnar
Séð yfir Faxa-
verksmiðjuna í
Örfirisey og
Vesturhöfnina.