Morgunblaðið - 08.04.1971, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 08.04.1971, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1971 Lok handknattleiksvertíðarinnar: Dönsku meistararnir, Efterslægten leika hér þrjá leiki * — við Islandsmeistarana FH, Hauka og Val — Fyrsti leikurinn í íþróttahúsi Hafnarf jarðar í dag talið að félagið hafi aldrei áður haft eins góðu liði á að skipa, né þjálfara, en sá er John Björ'klund sem einnig er þjálf- ari danska landsliðsins. Efterslægten hefur komið áð- ur í keppnisför til íslands. Það var árið 1955, er liðið kom hing að í boði KR. Gerði það þá jafn- tefli við gestgjafa sína, vann úr valslið Hafnarfjarðar og Reylkja vikur, en tapaði fyrir landslið- inu 12—18. LEIKMENN Leikmenn Efterslægten eru eft irtaldir: 1. Benny Nielsen, markvörður. Hefur leikið 10 landsleiki og er í æfingaliði fyrir Olympíuleik- ana. 2. John Picknik, markvörður, 19 ára. 3. Vagn Olsen, fyrirlíði 28 ára. — 6 landsleikir, þar af einn við ísland s.l. sunnudag. Er I æf- ingaliði fyrir Olympíuleikana. 4. Sören Jensen, 28 ára. Hef- ur leikið 15 landsleiki og var m. a. í danska silfurliðinu í heims- meistarakeppninni 1967. 5. Max Nielsen, 31 árs. Hef- ur leikið 76 landsleiki. Hann var í danska silfurliðinu 1967 og markhæsti maður Danana í heimsmeistarakeppninni í Frakk landi s.l. vetur. Er í æfingaliði fyrir Olympíuleikana. 6. Ole Kristensen, 25 ára. 7. Arne Andersen, 26 ára. Hef ur leikið 82 landsleiki, m.a. báða landsleikina við ísland um s.l. helgi. Hann var i danska silfur- liðinu á H.M. 1967 og er í æf- ingaliði fyrir Ol. 8. Tom Lund, 25 ára. Hefur 'leikið 2 lamdsleiki og er í æfinga- liði fyrir Olympíuleikana. 9. Knud Erik Balleby, 26 ára. Er í æfingaliði fyrir Ol. 10. Bjarne Bötker, 25 ára. 11. Henrik Dahl, 28 ára. 12. Jörgen Brahtz, er talinn einn af beztu markvörðum Dana. Leikur hér fyrstu leiki sína með Efterslægten. Var áður með II. deildar liðinu Gullfoss. Einn þekktasti leikmaður Eft erslægten er Max Nielsen, en hann hefur áður komið liingað sem leikmaður MK 31. Nlel- sen byrjaði að leika með Efterslægten s.l. haust, en þar mnnu honum hafa verið boðin betri kjör en hann hafði hjá MK-Sl. Bandarískir íþróttamenn keppa í Kína Fyrstu íþróttasamskipti þjóðanna síðan 1949 Nagoya, Japan, AP. TEKIZT hafa samningar um að bandaríska borðtennisliðið, sem tók þátt í heimsmeistara- keppninni í iþróttinni, sem ný- lega er lokið í Japan, fari í keppnisför til Kína. Verður þetta i fyrsta skiptið síðan 1949 sem Keppt um sendiherrabikarinn: Islendingar sigruðu — í tveimur fyrstu leikjunum SÖGULEGRI og skemmtiIegTÍ handknattleiksvertíð lýkur nú um páskana með leikjum Dan- merkurmeistaranna, Efterslægt- en við beztu lið Islands. Er það vissulega vel til fallið að þetta séu síðustu leikirnir, þar sem JtJ verður hægt að segja að spenn an hafi haldizt frá fyrsta leik til hins síðasta. Fyrsti leikur Efterslægten fer fram í dag og leikur liðið þá við Hauka úr Hafnarfirði, sem urðu i fjórða sætinu í íslandsmótinu i handknattleik. Fer leikurinn fram i hinu nýja íþróttahúsi Hafnarf jarðar og verður þarmeð fyrsti stóri handknattleiksleikur inn sem þar fer fram. Smíði hússins er nú að mestu Iokið, og allir sammála um að húsið sé hið ágætasta, þótt minna megi það ekki vera. Þannig má t.d. búast við að margir þurfi ffrá að hverfa Jjegar Hafnar- ffjarðarliðin leika þar heimaleiki i 1. deild íslandsmótsins næsta vetur. Keppnin í iþróttahúsi Hafn- firðinga hefst kl. 16.00 í dag með forleik í 4. flokki pilta, þar sem Hafnarfjarðarliðin FH og Hauk- ar mætast. Hálfri klukkustundu siðar flytur svo Matthías Á. Mathiesen alþingismaður ávarp, en að þvi ioknu kynnir Hermann Þórðarson handknattleikslið Hauka og Efterslægten sem síð- an hefja keppni. Dómarar í leiknum verða tveir kunnir FH- ingar, þeir Ingvar Viktorsson og Birgir Bjömsson. Næsti leikur Efterslægten verð ur svo á iaugardaginn, og má segja, að það sé sá leikur liðs- ins sem beðið er með mestri ó- þreyju, en þá mætir það F.H. Það verða sem sagt Danmerkur meistaramir og íslandsmeistam- ir sem leiða saman hesta sína. Fæst þar með samanburður á beztu liðunum á Islandi og í Dan mörku. Sá leikur hefst kl. 15.30 og dómarar i honum verða þeir Jón Friðsteinsson og Haukur Þorvaldsson. Forleikur verður i 2. flokki kvenna og leika þar UMFN og FH. Á mánudaginn 12. apríl tekur svo Efterslægten þátt 1 afmæl- íshraðmóti Hauka, sem einnig fer fram í Hafnarfirði. Taka sex lið þátt í þessu móti og verður keppt um bikar sem vinnst til eignar. Dregið hefur verið um röð liðanna sem mætast í fyrstu umferð og verða Jjau þessi: Fram — FH KR í I deild KR sigraði Ármann með 19 mörkum gegn 10 í úrslitaleik f H. deild íslandsmótsins í hand- knattleik, sem fram fór í Laug- ardalshöllinni i gærkvöldi. Leikur KR þvi f fyrstu deild næsta ár. Staðan í leikhléi var 8—6 fyrir KR. Vaiur — Haukar KR — Efterslægten Dómarar 5 hraðkeppnimótinu verða Magnús V. Pétursson, Val ur Benediktsson, Eimar Hjartar- son og Eysteinn Guðmundsson. Síðasti leikur Danmerkur- meistaranna verður svo í Laug- ardalshöllinni á þriðjudagskvöld- ið og mætir liðið þá Val. Hefst sá leikur kl. 20.30 og dómarar í honum verða þeir Karl Jóhanns son og Bjöm Kristinsson. Þar má búast enn einu sinni við hörkuleik og verður fróðlegt að sjá hvemig hið leikandi og Skemmtilega Valsiið kemur út í viðureigninni við Danmerkur- meistarana. EFTERSLÆGTEN Vera kann að Efterslægten sé elzta handknattleikslið heims, en það var stofnað 1. október 1920 af nemendum úr menntaskólan- um Efterslægten. Á árunum 1925—1931 var félagið bezta hand knattleikslið Danmerkur, en á Jjessum árum var aðeins keppt í Danmörku. Siðan hafa skipzt á skin og skúrir í sögu félagsins. Það lék um tíma i 3. deild, en komst upp í 1. deild keppnistímabilið 1968—1969 og hafnaði þá í fjórða sæti í deildinni. Keppnistímabil- ið 1969—1970 varð það í öðru sæti, en nú í ár rauf það fimm ára sigurgöngu HG og hreppti Danmerkurmeistaratitilinn. Er Golfmenn GOLFSAMBANDIÐ gengst fyrir sýningu góðrar golfmyndar í Domus Medica, þriðjudaginn eft ir páska, eða 13. april kl. 8.30. Verður sýnd ein af myndunum úr flokknum Shells Wonderful World of Golf. Margir kallaðir — f áir útvaldir MEIRI en lítill áhugi virðist vera hjá ungum knattspyrnu- mönnum að komast í Faxaflóa úrval það sem keppa á í Skot- landi dagana 4.—10. júlí n.k., en þar fer þá fram knattspyrnumót sem piltar, 17 ára og yngri taka þátt í. KSI. skrifaði til félaganna á Faxaflóasvæðinu og bað þau að tilnefna pilta til undirbúnings æfinga fyrir ferðina og hefur nú verið boðuð þátttaka 60 pilta, sem munu hefja æfingar á Þrótt arveliinum nú um páskahelg- ina. Úr þessum stóra hópi verða síðan valdir 14—15 til fararinn- ar og má því með sanni segja að margir séu kaílaðir, en fáir verði útvaldir. Tveir leikir hafa nú verið leiknir í hinni árlegu Sendi- herrabikarkeppni, sem er keppni milli Varnarliðsins á Keflavikurflugvelli og Reykja- vikurúrvals í körfuknattleik. Báðir þessir leildr hafa verið leiknir suður á flugvelli og hef- ur islenzka liðið sigrað í bæði skiptin. Áður en þessi keppni hófst nú, var reiknað með þvi, að Vamarliðsmenn myndu reynast skeinuhættir í vetur, því vitað er að lið þeirra hefur sjaldan verið sterkara en nú. Fyrri leik- urinn sem búinn er, var leik- inn s.l. sunnudag, og þá sigraði islenzka ldðið mieð 91:81. Siðari leikurinn var svo leik- inn í fyrrakvöld, og var sá leik- ur frábærlega vel leikinn af beggja hálfu. Vamarliðið hafði frumkvæðið framan af, og komst t.d. í 12 stiga forustu um miðjan fyrri hálÆieik 32:20. En með mikilli ákveðni tókst ísienzka liðinu að minnka muninn niður í fímm stig fyrir leikhlé 38:33. Fram að miðjum síðari hálfDeik var leikurinin mjög jafn, og skildi aðeins eitt stig 'liðiin þegar (hál'flei'kuiriinmi var hálfnaður. En þá upphófst glæsi legur leikkafli hjá islenzka lið- inu, og með mjög glæsilegum leiftursóknum sem báru árang- ur í hiverri ein.ustu sókn að heita nnátti tiókst liðinu að ná ytfir- burðastöðu á síðustu mín. leiks- ins og sigra verðskuldað með 83 stigum gegn 69. Þetta er í fimmta skiptið sem þessi keppni fer fram, og hefur íslenzka liðið borið sigur úr býtum í ödl hin skiptín. Mikill áhugi er fyrir þessari keppni suður á Keflavikurflug- velli, mun meiri en hefor verið hjá okkur hingað til, og til gamans má geta þess, að í hvert einasta skipti sem leikið er þar suður frá er útvarpslýsing þar frá leikjunum í heiid. gk. þessar þjóðir hafa iþróttaleg samskipti, en undanffarln ár hef ur Kina verið mjög lokað land fyrir íþróttasamskipti. fþrótta- fólk þaðan hefur ekki tekið þátt í alþjóðlegum keppnum og iþróttamönnum annarra þjóða hefiu- ekki verið boðið Jjangað til keppni. Samningaviðræður um keppn- isför þessa hafa staðið að und- anfömu í Nagoya í Japan og hafa verið mjög vinsamlegar. Munu 15—16 bandarískir íþrótta- menn, auk fararstjóra og frétta- manna fara til Kína og keppa þar nokkra leiki við heimamenn dagana 10. og 11. apríl. Talsmaður Kínverjanna i Jiess um samningaviðræðum, Sung, sagði við fréttamenn eftlr að samningar höfðu tekizt, að Bandarikjamenn hefðu margsinn is óskað eftir því að fá að koma í keppnisför til KSna og þeim hefði verið boðið til þess að íþróttamenn landanna gætu lært hver af öðrum, og til þess að auka vináttu landanna. Talsmaður Bandarikjamanna, Steenhoven, tók i sama streng. Hann sagði að bandariska keppnisfólkið hiiakkaði tl fiarar- innar, og lauk miklu lofsorði á kínverska iþróttafólkið, sem stendur í fremstu röð í þessari íþróttagrein. Bandarisku keppendurair segjast vonast til þess að með ferð þessari hefjist samskipti milli landanna á fleiri sviðum íþrótta, og að þaö geti sýnt K5n- verjum þá hlið á Bandarikja- mönnum sem Jæir séu lítt kunn- ugir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.