Morgunblaðið - 18.04.1971, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. APRÍL 1971
,Patton6 hlaut
sjö Óskara
George C. Scott hlaut verðlaunin
þrátt fyrir neitun að taka við þeim
„PATTON" var ríkjandi kvik-
mynd á Óskarsverðlaunahátíð-
inni i Hollywood s.l. finuntudags
kv., og hiaut þar samt. 7 verðlaun.
Mesta athygli vekur þó veiting
verðlaunanna til leikarans Ge-
orge C. Scott í titilhlutverkinu,
en hann hafði lýst þvi yfir fyr-
irfram, að hann mundi ekki veita
þeim viðtöku og teldi verðlaun-
in einskisverð. Glenda Jackson,
brezk leikkona hlaut Óskarinn
fyrir beztan leik i kvenhlutverki
f myndinni „Ástfangnar konur",
sem gerð er eftir sögu T). H.
ILawrence. John Miils og Helen
Fyrir verðlaunaveitinguna
hafði Scott lýst því yfir, að hann
gæti ekki veitt verðlaununum
viðtöku, þar eð það væri niður-
lægjandi að tefla leikurum sam
an í samkeppni, og Óskarsverð-
launaveitingin væri „hreinn
skrípaleikur". Úthlutunamefnd-
in hefur lýst því yfir eftir veit-
inguna, að hún mu'ni geyma
styttu Scotts um ókomna fram-
tíð, ef svo færi að hann viidi
veita þeim móttöku siðar.
Lillian Gish hlaut sérstök verð
laun fyrir langan og dyggan
Hayes hlutu -verðlaunin fyrir
beztan leik í aukahlutverkunum
— hann í myndinni „Ryans
Daughter" en hún f „Airport".
„Patton" hlaut Óskarinn sem
bezta mynd ársins og Franklin
.1. Schaffner verðlaunin fyrir
ieikstjóm í þeirri mynd.
Þrjú þúsund manns voru sam
an komin í Tónlistarhöllinni í
Los Angeles til að fylgjast með
Óskarsverðiaunahátíðinni, sem
sjónvarpað var samtimis um öll
Bandarikin. Mikil eftirvænting
var, er Goldie Hawn, Óskarshafi
frá því i fyrra, opnaði umslag-
ið með bezta karlleikaranum, og
um leið og hún stundi upp: „Guð
minn almáttugur — það er Ge
orge C. Scott" lustu menn upp
fagnaðarópi og á eftir fylgdi
mikið lófaklapp.
starfsferil innan kvikmyndanna,
en segja má að hún hafi verið
á hvita tjaldinu frá því að þær
stigu sín fyrstu reikulu spor,
og meðal annars aðalleikkona
og náin vinur D. W. Griffiths.
í>á hlutu þeir Frank Sinatra og
Orson Weiles einnig sérstök
verðlaun.
Ekki er iaust við að ofurlítið
hlakki i aivarlega þenkjandi
kvikmyndaunnendum yfir hrak-
förum „Love Story" og „Airport"
á þessari Óskarsverðlaunahátið.
Þær höfðu hlotið samtais sjö út-
nefningar hvor, en lyktirnar
urðu að þær hlutu ein verðiaun
hvor — „Love Story" fyrir bak-
grunnstónlist og „Airport" verð-
Igunaveitingu til Helen Hayes
fyrir beztan leik i aukahlutverki.
'
Þannig getur lágfóta leikið sauðkindina illa.
Skothús í stað þess
að bera út eitur
dýrin fara ógjarnan í gegn-
um gaddavírsgirðingu.
Skyttiurmar note haglahyss- ,
ur ameð sjónauka. Nokkrir
eita tófurnar uppi með því
að rekja slóð þeirra og má 1
í því sambandi geta þess að
Sigurður Ásgeirsson vann 7
dýr á 5 dögum með því að
rekja slóðir um Rangárvalla-
afrétt. Fyrstu árin, sem þessi I
háttur var hafður við veið-
arnar, veiddust um 4000 dýr
en hin siðari ár eru felld
um 2000 dýr á ári. Refa-
skinn eru ekki í tízku nú og
því fæst tiltölulega lítið fyr-
ir skinnin nú.
Menn nota ýmis ráð til
þess að elta uppi tófuna.
Sem dæmi nefndi Sveinn t
Einarsson, veiðistjóri, að
Guðmundur Sigurðsson, Hof-
stöðum, hefði skotið 7 tófur
með því að elta þær uppi á
vélsleða. Margir fleiri refa-
banar hafa tekið vélsleða í
sína þágu.
Þá gat Sveinn þess að
Snorri Jóhannesson, Lauga-
landi i Reykholtsdal, hefði í
vetur skotið 10 tófur frá
skothúsi, Knútur Eyjólfsson,
Hvammi á Landi 5 og margir
fleiri hafa skotið 5 til 10 refi
í vetur.
-
mmt
Sigurður Ásgeirsson við skothús sitt.
UM PÁSKANA har svo við
i Blöndudal innst í Húna-
vatnssýslu, að Einar Guð-
laugsson, Blönduósi, drap 7
refi á einni nóttu og að auki
einn mink. Er ekki vitað til
þess að refaskytta hafi áður
fengið svo mikinn feng á
einni nóttu. Allt voru þetta
fullvaxin dýr, 2 læður og 5
refir. Einar vann dýrín úr
skothúsi, sem hann hefur
komið sér upp og á 8 vetr-
um hefur hann alls banað 77
refum.
Samkvæmt upplýsingum
Sveins Einarssonar, veiði-
stjóra, eru nú alls um 20
skothús á svæðinu frá Mýr-
dal vestur um og í Skaga-
fjörð. Hafa skytturna,r feng-
ið í vetur allt að 20 til 30
dýr og sem dæmi má nefna
að Sigurður Ásgeirsson í
Steinmóðarbæ, V-Eyjafjöll-
um, hefur í vetur failt tæp-
iega 20 dýr — allt tófur.
Menn tóku upp þá aðferð
að gera sér skothús, er eitur
bann var samþykkt á Al-
þingi fyrir nokkrum árum.
Hafa menn siðan borið út
æti handa refnum í nám-
unda við skothúsin — venju
lega heilan hest á haustin.
Þá er girt að skothúsinu og
legið í því næturlangt, þeg-
ar vindátt er hagstæð. Girð-
ingar eru notaðar, þar eð
Þórður Pétursson, refaskytta frá lfúsavik með vélsleða simm.
V estmannaey ingar
eignast leikhús
f GÆRKVÖLDI frumsýndi Leik
félag Vestmannaeyja leikritið
GuIIna hliðið eftir Davíð Stefáns
son í leikhússal á annarri hæð
Félagsheimilis Vestmannaeyja-
bæjar. Markar leiksýning þessi
tíma.mót í sögu leikfélagsins í
Eyjum, því að með sýmingunni
í þessum sai hefur leikfélagið
nú í fyrsta sinn eignazt góða að
stöðu undir starfsemi sína, en
það hefur starfað í 60 ár.
Félagsheimilið var upphaf-
lega byggt af templurum í Eyj-
um, en hefur verið mörg ár i
smíðum. Vestmannaeyjabær hef-
ur tekið við húsinu undir féiags-
starfsemi, og nú hafa íþróttafé-
lögin, skátahreyfingin og mynd-
listarskóiinn þar aðstöðu undir
starfsemi sína.
Miklar breytingar hafa verið
gerðar á ieikhússalnum til að
hann henti sem bezt til leikrita-
ílutnings. Er salurinn hinn vist-
iegasti, tekur 200 manns í sæti.
Ljósabúnaður er einn hinn full-
komnasti í leikhúsi hérlendis,
og kostaði yifir % milljón, og er
þá kostnaður við uppsetningu
ekki talinn með. Gefur hann gíf
uriega möguleika til lýsingar í
leikritafl utnin gi.