Morgunblaðið - 30.10.1971, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1971
5
Kvöldvaka
Skíðaskólans í Kerlingarfjöllum verður haldin fimmtudaginn 4.
nóvember í Súlnasal Hótel Sögu. Hefst kl. 8,30.
Kvikmyndasýning frá sumrinu. — Hópsöngur. — Dans.
Nemendur skólans fyrr og síðar og gestir þeirra velkomnir.
Skíðaskólinn í Kerlingarfjöllum.
Havana Skólavörðustíg
MEDICO: PÍPAN
MEDICO: SÍGARETTUMUNNSTYKKTN
FARA SIGURFÖR UM HEIMINN.
MEDICO: FILTERINN LOSAR YÐUR VIÐ
AI.LA SÓSU OG ANNAN ÓÞARFA SEM
í TÓBAKINU ER. — LÍTID INN.
Hugleiðingar fréttaritara og
fréttir úr Skagafirði
Bæ á Höfðaströnd 17. okt.
Oft hefi ég leitt huga að
fréttaþjónustu fjölmiðla úti um
landsbyggðina og hvers virði
hún sé búandi fólki í borg og
bæ, já jafnvel í sveitunum þar
sem atburðirnir gerast sem sagt
er frá. Ekki ósjaldan hefi ég
íengið þakkir og hvatningu frá
burtfliuttum héraðsbúum fyrir
fréttir að heiman, sem mér
finnst þó slælega og of sjald-
an gert. Ég vil nú segja þessum
kunningjum að fréttir liggja
ekki alltaf á lausu. Það er eins
og fói'k hrökkvi stundium i kút,
eí beðið er um fréttir í blöð, ég
tala nú ekki um, ef beðið er um
upplýsingar um slys, þá vill eng
inn láta hafa eftir sér. Satt er
það, að alltaf þarf mikla varúð
um fréttaflutning slysa og ekki
ósjaldan fáum við ekki að birta
neitt, enda sjáum við ekki mik-
ið af slysafréttum í blöðum úr
sveitum. Ég álít ekki rétt athug
að hjá fólki að vilja ekki að
slikt sé birt. Við fréttaritarar úti
um iand erum bundnir öðrum
störfum og vitanlega lí’ka mis-
jafnlega upplagðir eða áhuga-
samir um slikt, jafnvei nærtæk-
ar fréttir fara fram hjá okkur.
Við erum nefnilega eins og þið,
^em engar fréttir hafið, ef um
er spurt, eða eins og þið, sem ég
hefi skrifað eða talað við og
beðið um að mér séu sendar al-
rnennar fréttir úr byggðarlag-
inu. Smávegis árangur hefir
þetta borið, en of sjaldan. Frétt
ir úr heimahögum eru nefnilega
kærkomið iestrarefni, en þessar
linur skrifa ég einmitt vegna
beiðni um meiri fréttir úr Skaga
firði.
Og hú reyndi ég að hrista af
mér slenið og fór fram í Skaga-
fjörð til að hlusta. Hvað er að
frétta, spurði ég. Ekki nokkurn
skapaðan hlut, var svarið. Og
þó er t.d. Steinsstaðaskóli fuLlset
inn. Þar er bæði heimavist og
heimangöngutilhögun. Verið er
að byggja smíðahús við skólann
og félagsheiimili er í byggingu
rétt hjá. Þarna er gróandi þjóð-
Líf, nóg um ungt fólk. Manni
virðist því að pil’lan sé ekki
mjög mikið notuð þar fremra,
enda er þarna kjarnafólk, sem
nauðsyn er að beri ávöxt.
Það rýkur úr jörðinni á þess-
um slóðum enda er ylrækt að
aukast. Þrir gróðurhúsabændur
eru með nokkur gróðurhús og
einn framleiðandi er að bætast
við. Manni virðist þarna miklir
möguleikar. Verzlun er, starf-
rækt af Sveini á Varmalæk, sem
veitir góða þjónustu nærliggj-
andi byggð. Annars er þarna
þéttbýlt og víða myndarlegt
heim að líta. Það er raunar svo
komið að aðbúnaður á flestum
heimilum er að verða sambæri
legur því sem gerist í velmegun
kaupstaðanna, svo að ekki þarf
fólkið að flytja þess vegna úr
sveitunum.
Ég spurði um heyfeng og væn
leika f járins á sl’áturhúsi.
Heyskapur gekk yfirleitt vel
en er þó eitthvað misjafn eins
og alltaf vill vera jafnvel þó
góðæri sé. Sláturfé reyndist bet
ur en áður þótt ekiki sé vitað um
meðalvigt og ásetningur búfjár
er meiri en áður, sérstaklega
lambalíf. Ég hitti Svein á
Varmalæk, sem sagðist vera dag
hvern að lóga stórgripum úti á
Sauðárkróki. Miryiir mig að
hann segðist vera búinn að lóga
um 176. Sveinn kaupir nokkuð
af þessu þvi að ekki mun hann
eiga eins mörg hross og Sigur-
mon í Kolkuósi, sem einu sinni
var sagt um að hann ætti um
1400 hross, en vitanlega voru
það miklar ýkjur.
Ég sá nokkum vélakost ná-
lægt Reykjafossi. Mér var sagt
að þar mundi vera unnið að
laxastiga, en ekki hafði ég þar
nógu glöggar fréttir.
Ég skauzt í Hegranésið, þar
eru þeir iangt komnir með bygg
ingu félaggheimilis og skóla,
sem er í þann veginn að hefja
starfsemi. Félagsheimilið mun
taka í sæti megnið af búendum
hreppsins svo að segja má að
þar sé byggt af stórhug og hugs
að til framtíðar. Heyfengur var
góður í hreppnum og vigt á
sláturfé betri en siðastliðið ár;
Annars heyrði ég um vigt á
þyngsta og léttasta lambi, sem
lógað var á Sauðárkróki, en það
mun vera 35 kg og 5 kg. Þar
er mikill munur afurða. 1 hér-
aðinu er nú hvítleitt í fjöllum
en rautt á láglendi. Má telja
haustið got.t þó að nokkuð hafi
verið óstillt.
APÓTEK
Stúlka óskast. Þarf helzt að vera vön störfum i apóteki.
Tilboð með upplýsingum um menntun, aldur og fyrri störf
óskast send Mbl. fyrir 3. nóvember merkt: „3. nóvember
— 3144".
Lón úr byggingalúnasjóði
Kópavogskaupstaðar
Umsóknarfrestur er til 15. nóv. 1971 og eru umsóknareyðu-
biöð afhent á skrifstofu bæjarins í félagsheimilinu.
Skilyrði til lána úr sjóðnum er m a. 5 ára búseta í bænum,
og þeir, sem hafa flesta á framfæri genga fyrir að öðru jöfnu.
BÆJARSTJÓRINN.
Lokoð vegna ilutnings
MÁNUDAG OG ÞRIÐJUDAG.
OPNUM AFTUR MIÐVIKUDAGINN 3. NÓVEMBER
I NÝJU HÚSNÆÐI LÁGMÚLA 5 — „Globtts-húsinu-
OG BREYTIST JAFNFRAMT SÍMANÚMER OKKAR
I 85811.
IGELANDIG PHOTO
iHIÍÍ ifflE
MATSWIBELUNDJR.
Björn.
Nýtt steinhús við Sunnuflöt
A£ sérstökum ástæðuni er til sölu nýtt steinhús á
1600 ferm. lóð á góðum stað við Sunnuflöt í Garða-
heppi. Húsið er um 250 ferm. hæð, sem er skáli,
stofur, húsbóndaherbergi, 5 svefnherb., rúmgott
eldhús með borðkróki, baðherbergi og þvottaher-
bergi. Inn af svefnherb. hjóna er sturtuhað, 2 hand-
laugar og sérstakt fataherbergi. Arin í stofu. Harð-
viðarinnréttingar.
Kjallari er undir húsinu um 150 ferm. og er þar
snyrtileg 2ja herb. íbúð o. fl. Sérinngangur er í
kjallaraíhúðina. Þá fylgir eigninni bílskúr fyrir 2
bíla, upphitaður og raflýstur. Lóð ræktuð. Ýmis
eignaskipti koma til greina, t.d. að taka upp í góða
5—7 herh. sérhæð og jafnvel fleira en eina íbúð í
borginni eða Hafnarfirði. Eignin getur orðið laus
fljótlega. Nánari upplýsingar gefur
NÝJA FASTEIGNASALÁN
Laugvegi 12.
| Sími 24300, utan skrifstofutíma 18546.