Morgunblaðið - 30.10.1971, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1971
Læknamiðstöð á Egilsstöðum
er nú foklield, en hún er fyrsta
læknamiðstöðin á fslandi, sem
mótuð hefur verið frá grunni
sem slík. Egilsstaðamiðstöðin
er teiknuð fyrir tvo lækna og
tengd núverandi sjúkraskýli
staðarins með tengibyggingu.
Læknamiðstöðin er tvær hæð-
ir og er hvor hæð 360 ferm., en
samtals er nýtanlegur gólfflöt-
ur brúttó að fermetratali 588.
Morgunblaðið átti nú fyrir
skömmu viðtal við arkitektana,
sem mótað hafa þessa læknamið
stöð. Þeir eru Manfreð Vil-
hjálmsson og Þorvaldur S. Þor
valdsson, en hjá þeim á stof-
unni starfar Kjartan Á. Kjart-
Likan af byggingunum á Gálgás. Læknamiðstöðin er efst til vinstri og þar fyrir neðan íbúðarhúsnæði, þá elliheimili, sam-
sett úr litlum byggingaeininguni og lengst til liægri er kirkjan.
Læknamiðstöö á Egilsstöðum;
Eykur öryggi
íbúa á Héraði
Spjallað við arkitektana, sem
mótað hafa læknamiðstöðina,
þá Manfreð Vilhjálmsson
og Þorvald S. í»orvaldsson
ansson, húsgagnaarkitekt. Þeir
Manfreð og Þorvaldur sögðu
að læknamiðstöð væri aðallega
hugsuð til þess að leysa þau
vandamál lækna, að allt þeirra
starf sé ekki meira eða minna
greypt inn í einkalíf þeirra.
Hingað til hafa læknar orðið
að hafa biðstofur og móttöku
sjúklinga jafnvel inni á heim-
ilum sínum — þeir hafa verið
frá þvi i striðslok og með bygg
ingu læknamiðstöðvarinnar má
segja að hér sé risið lítið
sjúkrahús, þar sem unnt er að
framkvæma minni háttar skurð
aðgerðir, veita sængurkonum
þjónustu, o.s.frv.
Þeir félagar töldu læknamið-
stöðina mjög vel í sveit setta á
Egilsstöðum. Legan er miðsvæð
is í héruðunum, góð samgöngu
Grunnteikning fyrstu hæðar læknamiðstöðvarinnar og sjúkraskýlisins.
Arkitektarnir Manfreð Vilhjál msson
valdsson. — Ljósm.:
Þorvaldur
Ben.
einir í héruðunum og ekki haft
þá aðstöðu að geta borið sig
saman og ráðfært sig við stétt-
arbræður.
Læknum þykir það mikill
akkur, að vera ekki einir í hér
aði. Þeir geta að einhverju
marki skipzt á og leyst hver
annan af, svo að möguleikar
eru á eðlilegum frítíma. í
læknamiðstöðinni er lítil íbúð,
sem m.a. er hugsuð með það
fyrir augum, að hýsa stað-
gengla lækna, þurfi þeir að
bregða sér frá um einhvern
tíma. Einnig er unnt að hýsa í
henni lækna með sérmenntun,
sem koma í héraðið og dvelja
þar um tíma.
Það eru bæði læknishéruðin
á Fljótsdalshéraði, sem standa
að læknamiðstöðinni. Á Egils-
stöðum hefur verið sjúkraskýli
tengsl til allra átta og á staðn
um vel búinn flugvöllur. Flug-
völlurinn með tengslum til full
komnari sjúkrahúsa, veitir mik
ið öryiggi, ef alvarlega sjúk-
dóma ber að höndum, eða slys,
og um leið eykur læknamið-
stöðin mjög á öryggi þeirra, er
um flugvöllinn fara.
í læknamiðstöðinni verð-
ur og aðstaða fyrir tannlækna,
augnlækna og fleiri, sem opnar
möguleika á sérfræðiþjónustu
fyrir fólkið. Þar er lyfsala,
sem læknarnir annast á meðan
íbúafjöldi krefst ekki sérmennt
aðs apótekara á staðnum.
Ríkið reisir læknamiðstöðina.
Arkitektarnir hafa notað er-
lendar fyrirmyndir að lækna-
miðstöðvum til þess að styðjast
við, þótt ýmislegt erlendis
henti að sjálfsögðu ekki Islend
ingum. Hafa þeir þá ráðfært
sig við landlækni og ýmsa
lækna og reynt að finna hent-
ugustu og beztu lausn á hverju
vandamáli. Sænskar læknamið-
stöðvar eru að þeirra sögn
mun stærri séu þær ætl-
aðar tveimur læknum.
Að baki hverri stöð í Sví
þjóð eru allt að 8000 íbúar,
svo að Ijóst er að framkvæmd
sem þessi hlýtur að verða mun
dýrari Islendingum, svo sem
raunar öll samfélagsleg þjón-
usta önnur.
Manfreð Vilhjálmsson og
Þorvaldur S. Þorvaldsson
sögðu, að mótun þessarar
læknamiðstöðvar hefði orðið
þeim mun erfiðara verk, en
þurft hefði, þar eð heilbrigðis-
stjórn vantaði áætlanagerð um
læknamiðstöðvar. Fram hefði
þurft að fara undirbúningur
og rannsókn á því, hvernig
æskilegast væri að þær störf-
uðu. Þessi læknamiðstöð á
Egilsstöðum hlýtur því að
verða prófsteinn á slíkar stöðv
ar — sögðu þeir, og við vonum
að í henni felist engar stór-
syndir. Hún er nú í endurskoð
un hjá samstarfsnefnd og fram
kvæmdadeild Innkaupastofnun
ar ríkisins. Þeir félagar lofuðu
mjög störf og áhuga Þorsteins
Sigurðssonar, héraðslæknis,
sem starfað hefur um árabil á
Héraði. Læknirinn í hinu hér-
aðinu er nýkominn til starfs-
ins.
Byggingakostnaður miðstöðv-
arinnar ásamt endurbótum
sjúkraskýlisins miðað við síð-
ustu áramót er áætlaður tæp-
lega 20 milljónir króna. Þá á
eftir að setja ýmis lækninga-
tæki i húsin.
Þeir félagar Iétu þess getið,
að komið hefði fram nýtt sjón-
armið meðal lækna á Héraði
nú í sumar. Ferðamannastraum
ur var þar mjög mikill og leit-
■p llill mxmrw I# 1
• L JLLJUL :r: _ :□
1 11 n TT 11 ii, r
m. ffl m 3
fflfflE!
Aðalhlið læknamiðstöðvarinnar.
uðu ferðamenn mjög til lækn-
anna, m.a. urðu þar slys og í
þvi sambandi má geta þess að
aðstaða er til slysavarðstofu-
reksturs í læknamiðstöðinni.
Er það mikið öryggi fyrir Egils
staðabúa og ferðafólk um Hér-
að.
Eins og áður er getið hafa
bæði læknishéruðin á Héraði
sameinazt um þessa læknamið-
stöð, en í þeim eru 10 hreppar.
Á efri hæð læknamiðstöðvar
innar er aðstaða fyrir skoðun,
rannsóknir, og öll aðgerðarað-
staða fyrir lækna, ásamt skrif-
stofum þeirra, biðstofu og mót-
tökuaðstöðu. Á neðri hæð er
lyfsala með sérinngangi, tann-
læknastofa og aðstaða fyrir
aðra sérfræðinga, sem koma í
stuttar heimsóknir, biðstofa og
funda- og kaffistofa starfs-
fólks og lækna.
Endurbætur hafa farið fram
á sjúkraskýlinu og lögð á það
áherzla að koma sjúkrastofum
fyrir á efri hæð þess i beinum
tengslum við læknamiðstöðina,
þannig að unnt sé að aka
sjúklingum á milli til rann-
sókna og aðgerða. Á neðri hæð
er komið fyrir matreiðslu,
þvottaaðstöðu ásamt gestaher-
bergi og íbúð hjúkrunarkonu.
Sjúkraskýlið er um 480 ferm.
Bæði húsin verða rafhituð. Þá
má geta þess að læknamiðstöð-
in verður nátengd dvalarheim-
ili aldraðra á Egilsstöðum og
verður skammur spölur milli
stofnananna.
Byggingaframkvæmdir við
læknamiðstöðina voru boðnar
út vorið 1970 og sér Bygginga-
Framh. á bls. 17