Morgunblaðið - 17.10.1973, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 17.10.1973, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. OKTOBER 1973 Silfurlampinn o g Strútur vöktu mesta athygli — á listmunauppboðinu í gær SILFURLAMPINN umdeildi var afhentur öðru sinni f gær, og hlaut hann að þessu sinni Kristján Guðmundsson, strætis- vagnsstjóri. Kom honum ekki til hugar að neita að taka við gripn- um og var sú afstaða skiljanleg, þegar þess er gætt, að Kristján hafði boðið 43 þús. kr. f lampann á uppboði og fengið hann sleginn sér. Raunar er útlit fyrir, að enn kunni að standa nokkrar deilur um lampann, þvf að faðir Kristjáns, Guðmundur Amason kaupmaður, taldi sig eiga engu minna tilkall til lampans, þar sem hann hafði f raun og veru kallað boðin til uppboðshaldar- ans. Lampinn var boðinn upp á list- munauppboði Sigurðar Benediktssonar hf. í SUlnasal Hótel Sögu í gær, að viðstöddu fjölmenni. Var lampinn nr. 24A á uppboðsskránni, á eftir málverk- um núlifandi lista manna, en á undan listaverkum látinna lista- manna. Allur ágóði af sölunni skyldi renna til minningarsjóðs frú Stefaníu Guðmundsdóttur, leik- konu, en sjóðurinn styrkir leikara til utanferða og náms. Félag ísl. leikdómenda, eigandi lampans, ákvað að láta bjóða gripinn upp, þar sem Baldvin Halldórsson hafði ekki fengizt til að veita hon- um viðtöku, sem frægt er orðið. Er kom að uppboði lampans, voru menn orðnir vel heitir, bún- ir að bjóða f 24 listaverk og auð- heyrilega ólmir í meira. Tilkynnt var, að smíðaverð lampans hefði verið nálægt 20 þús. kr., og kom því ekki á óvart, að fyrsta boð skyldi verða 20 þús. kr. Gekk sið- an greitt — 25 þUs. — 30 — 35 þús., en síðan léttu boðin á sér standa. Mælti uppboðshaldarinn þá: „Þetta verður ekki á næsta uppboði," og fóru þá að nýju að koma boð í gripinn. Gekk á með þúsund króna hækkun allt upp í 43 þús., en hærra vildi enginn fara. Framhald á bls. 31. Aldrei meiri veiði í Norðursjónum Sfldveiðarnar f Norðursjónum hafa sennilega aldrei gengið bet- ur en einmitt um þessar mundir. Sex til tfu bátar selja að jafnaði á dag f Hirtshals og Skagen fyrir 15—22 milljónir króna. 1 gær seldu átta bátar í Hirtshals fyrir samtals 17.4 milljónir. Meðal- verðið er mjög jafnt, eða f kring- um 28 krónur. Samkvæmt upplýsingum Niels Jensen umboðsmanns íslenzku sfldveiðibátanna í Hirtshals eru bátamir mest á veiðum við Hjalt- land þessa dagana. Veiðisvæðin eru tvö, annað vestan við eyjamar, hitt austan við þær. Veiðiferðin tekur bátana varla skemmri tlma en viku, því rUmir tveir sólarhringar fara í siglingu hvora leið. Veðrið í haust hefur verið með betra móti, alla vega ef miðað er við síðustu ár, en þá hefur tíðin spillt fyrir veiðunum. Þessir bátar seldu í Hirtshals í gær: Dagfari ÞH 1939 kassa fyrir 2.1 milljón, Keflvíkingur KE 1703 kassa fyrir 2.1 milljón, Höfrungur 3. AK 2012 kassa fyrir 2.2 milljón- ir, Asberg RE 2242 kassa fyrir 2.8 milljónir, Bjami Ölafsson AK 1641 kassa fyrir 1.9 milljónir, Skarðsvík SH 1134 kassa fyrir 1.2 milljónir, Albert GK 2014 kassa fyrir 2.3 milljónir og Jón Finns- son GK 2327 kassa fyrir 2.7 milljónir. Rjúpnaveiði hafin RjUpnaveiði hófst á mánu- daginn var, og brugðu þá marg- ir skjótt við og fóru með al- væpni um fjöll og firnindi í leit að rjUpu. Þrátt fyrir tilmæli Slysavamafélagsins til veiði- manna um að fara nU varlega á fjöllum uppi, var þyrla Land- helgisgæzlunnar fengin til leit- ar að rjUpnaveiðimanni strax á fyrsta degi. Fann hún rjúpna- veiðimanninn fljótlega og reyndist allt vera I lagi hjá hon- um — veiðihugurinn hafði að- eins tafið för hans til byggða. En það er víðar en á höfuðborg- arsvæðinu, sem veiðihugurinn segir til sín. Að sögn frétta- ritara MbL á HUsavík þustu heimamenn þar upp um f jöll og firnindi strax á mánudag, og lá við, að vinnustaðir tæmdust svo almenn er rjUpnaveiðin orðin þar. Námskeið í þak- áklæðningu I dag verður fræðsludagur um meðferð áklæðninga á þök og veggi, þar sem sérstaklega verður fjallað um frágang og festingar. Erindi verða flutt og sýnikennsla mun fara fram I hinum nýju hUsakynnum Bygg- ingaþjónustu Arkitektafélags Islands að Grensásvegi 11. Lögfræðifyrirlestrar Dr. Knud Waaben, prófessor í refsirétti við Háskólann í Kaupmannahöfn og formaður danska refsilagaráðsins, er væntanlegur til landsins í boði Háskóla Islands. Hann flytur hér tvo fyrirlestra, þann fyrri I dag kl. 17.30 og fjallar hann um efnið: „Nyere udvik- lingslinier i Kriminalpolitikk- en“, en hinn síðari föstudaginn 19. þ.m. kl. 11 árdegis og f jallar sá um efnið: „ökonomiske for- brydelser". Kvefsótt Samkvæmt upplýsingum að- stoðarborgarlæknis SkUla Johnsen, herjar nú allskæð kvefsótt á Reykvíkinga, og falla hraustustu menn í valinn. Sagði SkUli, að hver læknir til- kynnti nú um 10 slfk tilfelli að meðaltali í viku hverri, og yrði það að teljast óvenju mikið. Hins vegar benti hann á, að þetta væri sá árstími, sem kvef- ið væri hvað aðgangsharðast hér á landi. Einnig hefur orðið vart hálsbólgu 1 borginni í nokkrum mæli, en þó ekki meira en venja er til á þessum árstíma. Elngar aðrar farsóttir hafa stungið upp kollinum, svo að heitið geti. Bandaríkin: Góður markaður fyrir óðalsost 40 tonn hafa verið flutt á markað þar Hinn nýi skuttogari Skag- strendinga, Arnar HU 1, kom til heimahafnar þann 15. október s.l. Arnar er nfundi og sfðasti skuttogarinn, sem ts- lendingar sömdu um kaup á frá Japan I fyrra. Þessi mynd var tekin af Arnari, þegar hann kom til heimahafnar á sunnudaginn. „BORIS” tSLENZKUR óðalsostur hefur nú unnið sér markað í Bandaríkj- unum. Hann hefur verið fluttur út þangað I um eitt ár, og sala gengið ágætlega. Mjög gott verð hefur einnig fengizt fyrir ostinn þar vestra, að sögn Óskars Gunn- arssonar, framkvæmdastjóra Osta- og smjörsölunnar. Öðalsosturinn er nýjasta osta- tegund Osta- og smjörsölunnar. Var byrjað að flytja hann Ut fyrir u.þ.b. ári og hefur salan verið mjög góð. Kvað Óskar hafa feng- izt um 100% hærra verð fyrir ostinn á bandaríska markaðinum en annars staðar. AIls hafa verið flutt Ut 30—40 tonn af óðalsosti til Bandarfkjanna, og verðmætið er um 8 millj. króna. Hlýr september SEPTEMBER var fyrsti sum- armánuðurinn í ár, sem reynd- ist hlýrri en f meðalári. í Reykjavík var meðalhitinn í september 8,8 stig, sem er 0,2 stigum fyrir ofan meðallag, væta var 98 millimetrar, sem er 36% yfir meðallag og sólskin var tæpt meðallag. Á Akureyri var hitinn í september 8,7 stig, sem er 0,9 yfir meðallag, þar rigndi 33 miilimetra, sem er 71% af meðallagi. Óskar sagði, að í raun mætti segja, að framleiðsla óðalsostsins væri enn á byrjunarstigi. Tvö mjólkurbU annast framleiðsluna — mjólkurbUið á Akureyri og Sauðárkróki, og hefur framleiðsl- an hjá þeim gengið allvel upp á sfðkastið. Er stefnt að þvf, að framleiðsla þessara mjólkurbUa á óðalsosti verði aukin. Hins vegar kvað Óskar þar vera ljón á vegin- um, þar sem framleiðsla óðalsosts krefðist meira hUsnæðis en önnur framleiðsla. Þetta stæði þó til bóta hjá mjólkurbUinu á Akur- eyri, þar sem verið væri að byggja nýtt mjólkursamlagshUs. Sem fyrr segir er óðalsosturinn hvað nýjasta ostategundin hér- lendis. Óskar kvað ostinn vera islenzkt afbrigði af svonefndum „emmenthalerosti", en hliðstæð afbrigði væri að finna í nágranna- löndunum. Hann var þá spurður að því, hvort reynt hefði verið að selja fleiri osta Ur landi. Hann kvað það í bígerð — nU væri verið að kanna með Utflutning á tilsett- er og port salud-ostum Osta- og smjörsölunnar. Um innanlandsmarkaðinn sagði Óskar, að hann væri mjög vax- andi, og ágæt sala hefði verið í ostum hér innanlands að undan- förnu. Væri reiknað með 7—8% neyzluaukningu hér á þessu ári, sem þætti allgott miðað við, að ostasalan hefði stöðugt aukizt frá ári til árs undanfarið. DANIELS ÁSÖGU í 2. sæti í Feneyjum Danlel Stefánsson, barþjónn á Hótel Sögu, náði góðum árangri í kokteilkeppni evrópskra bar- þjóna, sem haldin var f Feneyjum fyrir skemmstu. Kokteill hans „Boris“ varð f öðru sæti f bessari keppni, en sigurvegarinn var júgóslavneskur. i samtali við við Morgunblaðið sagði Daníel, að ítölsku barþjóna- samtökin hefðu efnt til hátíðar í Feneyjum og í þvf tilefni boðið fulltrúum 18 landa til þessarar kokteilkeppni. Til leiks mættu keppendur frá 16 löndum, og íslenzki barþjónaklúbburinn sendi Daníel til keppni, enda hefur hann verið afar sigursæll f keppni heima fyrir að undan- förnu. „Ég mætti þarna með kokteilinn minn frá Vodka- keppninni Boris eins og ég kalla hann," sagði Daníel. „NU Boris lfkaði vel og ég var efstur að stigum allt þar til tveir keppendur áttu eftir að blanda, en þá skauzt JUgóslavinn fram Ur mér sem nam einu stigi. Keppnin Framhald á bls. 31. Andersen og Bække- lund með sinfóníunni Aðrir tónleikar Sinfóniuhljóm- sveitar Islands á þessu starfsári verða haldnir n.k. fimmtudags- kvöld kl. 20.30 í Háskólabiói. Stjórnandi hljómsveitarinnar verður norski hljómsveitarstjór- inn Karsten Andersen, og einleik- ari landi hans Kjell Bækkelund. Á efnisskránni verða að þessu sinni Passacaglia Páls Isólfssonar, Sínfónía nr. 88 eftir Hayden, Pfanókonsert eftir Gerzhwin og Kjell Bækkelund Daphne og Chloé, svfta nr. 2 eftir Ravel. Karsten Andersen hefur verið ráðinn aðalhljómsveitarstjóri Sfn- fóníuhljómsveitarinnar á þessu starfsári. Hann fæddist í Fredrikstad f östfold og stundaði fyrst nám í fiðluleik.. Fyrst kom hann fram á tónleikum í Aukaen í Osló með Filharmoníuhljómsveit- inni þar, aðeins nftján ára gamall, og var þá ráðinn starfsmaður hennar. Meðan hann lék með þessari hljómsveit tók hann að fást við hljómsveitarstjórn og árið 1945 var hann ráðinn hljóm- sveitarstjóri í Stavanger. Eftir nfu ára starf f Stavenger réð hann sig til tónlistarfélagsins Harmoní- en í Bergen, bæði sem listrænn forstjóri og hljómsveitarstjóri. Andersen hefur stjórnað mörgum beztu hljómsveitum Evrópu t.d. í Svfþjóð, Danmörku, Englandi. Þýzkalandi og Sovétríkjunum. Hann er Isiendingum að góðu kunnur. þvf á Listahátíð 1972 stjórnaði hann Sinfóniuhljóm- sveitinni og einnig á hijómleikum á s.l. starfsári. Einleikarinn Kjell Bækkelund hefur verið talinn í fremstu röð Karsten Andersen — hann verður aðalstjórnandi hljómsveitarinnar f vetur. norrænna píanóleikara um langt skeið. Hann er fæddur 1930 og nam píanóleik hjá Nicolai Dirdal f Osló og víðar. Atta ára gamall lék hann með fílharmónisku hljóm- sveitinni í Osló og var þá álitinn undrabam. Hann hefur hlotið fjölda verfk launa á tónlistartiátíðum. 1959 fékk hann t.d. verðlaun frá „Kands Discofil Forening" ásamt Erling Blöndal Bengtson. Hann hefur leikið sem einleikari með f jölda hljómsveita víða um heim.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.