Morgunblaðið - 01.12.1973, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. DESEM^ER 1973
13
Ógnvekjandi frásögn, sem veiklað fólk
ætti ekki að lesa.
Per Hansson: trúnaðarmaður
NAZISTA NR. 1
„Tfu byssuhlaup beindust að manninum, sem á að skjóta.
Tfu vfsifingur kreppast um gikkina . . . Það er nfstandi kalt
og bjart veður . . . Aftökusveitin stendur kyrr og jörðin er
auð, grjöthörð og ufin af langvarandi frosti." Þannig hefst
þessi bók, sem er skjalfest og sönn frásögn um föðurlands-
svikarann Henry Rinnan, Norðmanninn, sem varla átti sinn
Ifka meðal þýzkra Gestapomanna, sakir grimmdar og
mannvonzku, manninn, sem skrikaði fótur á götu samfé
lagsins fyrir stríð og á hernámsárunum hugsaði aðeins um
hefnd. — Og Gestapo veitti honum færi á hefnd.
HAilBÓ®.
PJjETUIRSSON
Sól
a,f lofti
liðup...
Skapföst og þrekmikil, hreinskiptin og
svarahrein.
Halldór Pletursson:
SÓL AF LOFTI LÍÐUR
Minningar Þorbjargar Guðmundsdóttur, Ijósmóður. frá Ól-
afsvfk.
Lffsreynslusaga Þorbjargar Guðmundsdóttur er saga mikill-
ar og strangrar baráttu við áföll og erfið kjör, saga
mikilhæfrar og gáfaðrar konu. sem af óvenjulegu þreki,
skapfestu og sálarró barðist lifsbaráttu sinni, konu, sem
voru ætlaðir þyngri baggar að bera en flestum samferða-
mönnum öðrum. Þorbjörg kemur viða við i sögu sinni og
segir sögur af merkum samtiðarmönnum, svo sem stór-
bóndanum og sveitarhöfðingjanum Óla á Stakkhamri, séra
Árna Þórarinssyni og Einari Þorkelssyni, og fagur þáttur er
um ekkjuna Steinunni Kristjánsdóttur, móður Jóhanns
Jónssonar skálds.
Dulrænn spekingur og mannvinur
segir frá.
Ólafur Tryggvason:
HINN HVÍTI GALDUR
Höfundur segir um efni og tilgang bókarinnar: „I bók
þessari er sagt frá fleiri furðulegum atburðum en í fyrri
bókum mínum, atburðum. sem ég hef sjálfur lifað . . . Ég
hafði skráð þessa atburði af ýmsum ástæðum, en ekki
hugsað mér að þeir yrðu prentað mál . . . Efni bókarinnar er
að hálfu leyti frásagnir af staðreyndúm, gæddar Iffsmætti
lifandi reynslu, þar sem tveir heimar eru I eðli sínu ein
óskipt heild . . . Tilgangur bókarinnar og ætlunarverk er að
vekja menn til umhugsunar ..." Þetta er fögur bók að efni
og hollt lesefni leitandi sálum.
SIGVALDI
HJ’ALMARSSON
Hvass penni, hispurslaus og sanngjarn.
Slgvaidl Hjálmarsson:
AÐ HORFA OG HUGSA
Úrval greina íhuguls manns um margvisleg efni: Lifsspeki
og póiitik, alþjóðamál og umhverfisvernd, dýr og dýra-
vernd, ný Iffsviðhorf, sem skapazt hafa vegna uppgötvana I
visindum og tækni og hið svo kallaða unglingavandamál.
AÐ HÓRFA OG HUGSA á erindi við alla þá, sem horfa
opnum augum á umhverfi sitt, hafa löngun til að sjá
hlutina i réttu Ijósi og bregðast við vandamálum af mann-
dómi og góðvild. Höfundurinn er hvass penni, sem hirðir
lítt um vinsældir eða óvinsældir, en flettir miskunnarfaust
ofan af hégómaskap, grimmd og sjálfsblekkingu.
SrHHSr* AD
ORFA
OG
? HUGSA
■ -
M.J 1' M’#
\iK M ,-:l
H/ETTULEGUR ARFURÍ^
Ástarsagan fagra og skemmtilega.
Theresa Charles:
HÆTTULEGUR ARFUR
Brennt barn forðast eldinn, — og Lavinía Fernteigh bjóst
ekki við að hún mundi nokkurn tlma upplifa ástina eftir
þau miklu vonbrigði, sem hún hafði orðið fyrir. En svo kom
þessi leyndardómsfulla auglýsing, sem öllu breytti. „Ef ég
hef erft peninga, þarf ég ekki að snúa aftur til sjúkrahúss-
ins og hitta Pétur lækni", hugsaði Lavinia, — en það var
gifurlegt áfall fyrir hana að frétta um arfinn og hið
dularfulla hús, Tröllaskóg. — og í Tröllaskógi, þessu húsi
leyndardómanna, hlóðust ævintýrin upp, æsileg og spenn-
andi.
Hið rauða lífsblóð góðs skáldskapar.
Þðroddur Guðmundsson:
LEIKID Á LANGSPIL
„Þóroddur Guðmundsson er þegar kominn í fremstu röð
islenzkra Ijóðskálda", segir Jakob Jóh. Smári, skáld.
„Hann á i Ijóðlist sinni undraþýðan og mjúkan streng, sem
snertir lesandann notalega, er hugljúfur og angurvær og
býr yfir duldu seiðmagni," segir séra Benjamin Kristjáns-
son.
„Fáa veit égsem ganga á vit hennar hátignar listgyðjunnar,
af slfkri lotningu". segir Guðmundur Böðvarsson, skáld.
„Undir hringabrynju rims og hátta slær trútt hjarta, I
Ijóðum höfundar streymir hið rauða lifsblóð góðs skáld-
skapar og fagurrar listar," segir Gestur Guðfinnsson,
skáld.
Ofanritað er úr ritdómum um Sólmánuð Þörodds Guð-
mundssonar, — en hið sama má með sanni segja um hina
nýju Ijóðabók hans. Leikið á langspil.
Metsölubók ársins er umtöluð og umdeild.
RAGNHEIDUR BRYNJOLFSDOTTIR
Frá mlðllssambandl Guðrúnar sigurðardöltur á Akureyrl
RACi NHF.l Ð U R
B R V N I Ö L F S I) ÖTT
Um margt í lífi Ragnheiðar Brynjólfsdóttur
hefur menn greint á og mörgum spurningum
hefur verið ósvarað. Svörin er að finna í
þessari bók, því nú hefur Ragnheiður sjálf
rakið áhugaverðasta þáttinn í ævi sinni, í
sérstæðurstu bók, sem gefin hefur verið út á
íslandi. Saga Ragnheiðar er saga átaka og
ásta, átakanlegra þjáninga og dýpstu sorgar.
sannfærandi frásögn um mátt hins mikla
kærleika, sem einskis krefst, en fórnar öllu,
— jafnvel lifi og sálarheill.
RAGNHEIÐUR BRYN JÓLFSDÓTTIR er
þegar seld í fleiri eintökum á þessu hausti en
nokkur önnur íslenzk bók, — og verður
trúlega uppseld löngu fyrir jól.
FRÁ MiÐILSSAMBANDI
GUÐRÚNAR
SIGURÐARDÓTTUR