Morgunblaðið - 01.12.1973, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 1973
€IÍ0Í
FORVITNILEG BÓK UM PÓLITÍSKA VIDSJÁRTÍMA
Á MILLI WASHINGTON OG MOSKVA
MINNINGAÞÆTTIR EMILS JÓNSSONAR FYRRUM RÁÐHERRA
Emil Jónsson, fyrrum ráðherra, var um ára-
tugaskeið einn svipmesti stjórnmálamaður
þjóðarinnar. Hann segir hér sögu sína, sem
án efa er mörgum forvitnileg og vís til að
vekja deilur, því alltaf stóð styrr um Emil.
Hann segir frá störfum í Hafnarfirði, á Al-
þingi og í ríkisstjórnum, frá kynnum af inn-
lendum og erlendum ráðamönnum og fjallar
ítarlega um utanríkismál, sem nú eru í
brennipunkti. Það verða ekki allir sáttir með
það, sem Emil Jónsson hefur að segja, en
allir, sem einhver afskipti hafa af stjórnmál-
um eða hafa áhuga á þeim málum, verða að
eignast þessa bók og lesa, hvar í flokki sem
þeir standa.
Þjóðleg, fróðleg og skemmtileg.
Oscar Clausen: SÖGN OG SAGA
Þetta annað bindi safnritsins Sögn og saga geymir margar
minnisverðar frásagnir. Hér er langur þáttur um séra
Sigurð Gunnarsson á Hallormsstað, náinn vin og samherja
Jóns Sigurðssonar forseta, þáttur er um fyrstu innlendu
kaupmennina í Reykjavík og upphaf verzlunar í Stykkis-
hólmi, langur þáttur er um Ólaf Árnason sýslumann í
Barðastrandarsýslu, sem var ríkur maður og dómharður og
fróðlegur þáttur er um dætur og tengdasyni Skúla fógeta.
Galdramannaþáttur er úr Grímsey og f rásagnir eru af ríkum
Breiðfirðingum, auk fleiri frásagna og þátta.
— Sögn og saga á því erindi við alla, sem þjóðlegum
fróðleik unna.
Sjófróður og skemmtilegur sögumaður.
Ragnar Ásgelrsson:
SKRUDDA II
Þetta annað bindi af Skruddu hefur að geyma sögur, sagnir
og kveðskap úr Húnavatns- til Rangárvallasýslu og er
skemmtilegt og fróðlegt, svo sem við er að búast, því
Ragnar var mikill smekkmaður á íslenzkt mál, prýðilega
ritfær og með næma eftirtekt og skarpskyggni á þjóðleg
einkenni. Hann var sjófróður sögumaður, sem safnaði að
sér miklu magni sagna og sérstæðra vísna á ferðum sínum
sem erindreki Búnaðarfélags íslands. Fyrsta bindi af
Skruddu kom út í fyrra, en lokabindið kemur út á næsta
ári. Þessi nýja útgáfa á Skruddu Ragnars Ásgeirssonar er
stóraukin og endurbætt.
Horfnir atvinnuhættir og mannlíf á
Suðurlandi.
Jðn Glsiason:
ÚR FARVEGI ALDANNA
í þessari bók kennir margra grasa: Hér er m.a. þáttur úr
sögu sunnlenzkra höfuðbóla og eru þar skráðar sagnir úr
Laugardalshverfi f Hraungerðishreppi f Flóa, þáttur er um
árflóðið mikla í Hvítá 1889 og fróðlegur þáttur er um
örnefni og horfna atvinnuhætti á Suðurlandi. Þá er hér
einnig að finna valdar þjóðsögur úr safni séra Steindórs
Briem, prests í Hruna, og er bókin góður viðauki við áður
útgefin sagnasöfn, — kjörbók þeirra, er þjóðlegum fróðleik
unna.
jón eisusen • TJP4.
rriÁjwBsox
Öndvegisverk í nýjum búningi.
A.x^iDjA.isrisrA.
Ellnuorg Lðrusdötllr:
FÖRUMENN l-ll
Förumenn Elfnborgar verður ávallt talið eitt helzta ritverk
þessarar mikilvirkju og vinsælu skáldkonu. Uppistaða sög-
unnar er sveitarlffslýsing frá sfðustu öld, þættir úr sögu
Efra Ás ættarinnar, skapgerð hennar og Iffsskoðanir, en
inn á milli er ofið myndum úr lífi sérkennilegra förumanna,
er hátternis vegna og umkomuleysis urðu utanveltu við
samfélag annarra manna. Þegar Förumenn komu fyrst fyrir
almenningssjónir fékk þetta mikla ritverk Elínborgar mjög
lofsamleg ummæli og var skáldkonunni Ifkt við Selmu
Lagerlöf og Sigrid Undset.
FÖRUMENN
SKUtxwaÁ
ÍSLENDINGA SÖGUR
MEÐ NÚTÍMA STAFSETNINGU
Eina heildarútgáfa íslendinga sagna og þátta, sem prentuð
hefur verið með lögboðinni nútfmastafsetningu og auð-
veldar því öllum að njóta bókanna til fulls. Út eru komin 8
bindi af þessari vönduðu heildarútgáfu og þar með er lokið
útgáfu allra sagnanna, en á næsta ári kemur lokabindið,
sem hefur að geyma nafnaskrá við sögurnar og atriðisorða-
skrá, en slík skrá er alger nýlunda við útgáfu íslendinga
sagna
Eftir áramót verðum við að láta binda nýtt upplag
sagnanna og þá hækkar verð þeirra. Frestið því ekki að
kaupa þessa veglegu heildarútgáfu, en bækurnar er einnig
hægt að fá með afborgunarkjörum, kr. 1.000.00 á mánuði.
ISLENZKAR FORNSÖGUR
Skemmtilegar mannlýsingar og skyndi-
myndir af atburðum.
Magnús Gestsson: ÚR vestur-
BYGGÐUM BARDASTRANDARSÝSLU
Sagt er frá sérstæðum og eftirminnilegum mönnum, t.d.
Helga í Raknadal, Erlendi ríka á Látrum, Niels Björnssyni
frá Hvallátrum, Þórði Guðbjartssyni á Patreksfirði, Guð-
mundi Jónssyni, með auknefnið vinnumaður, Gunnlaugi
Kristóferssyni frá Brekkuvelli, Eiríki á Konungsstöðum og
Jóni bónda i Breiðavík. Einnig koma við sögu Björn i
Sauðlauksdal, Snæbjörn í Hergilsey og séra Þorvaldur
Jakobsson. Auk þess er hér að finna óvenju kjarngóðar og
magnaðar draugasögur, svo sem þær gerast svæsnastar á
Vestfjörðum og frásagnir eru af álagablettum. sjóskrimsl-
um og merkum draumum. — Þetta er bók, sem allir hafa
gaman af að lesa.
ÖSAGDi R
HI.UTiP.
UM SKALDlO
A ÞRÖM
<•: :
Úr dagbókum mannsins, sem varð kveikjan að Heimsljósi Halldórs Laxness.
Gunnar M. Magnúss: ÚSAGÐIR HLUTIR UM SKÁLDIÐ A ÞRÖM
Áður óprentaðar og forvitnilegar frásagnir frá
samtíð Magnúsar Hj. Magnússonar af persónu-
legum kynnum hans af merkum mönnum og
sérkennilegu fólki. Stórfróðlegir þættir um fræði-
manninn Sighvat Grímsson Borgfirðing stórbónd
ann Þorvald á Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum,
gáfumanninn Friðbert í Hraunakoti og Steindór í
Botni, síðasta útilegumanninn, sem var á Vest-
fjörðum, — auk margvíslegs annars efnis.
Skáldið á Þröm var alþýðuskáld og sístarfandi
fræðimaður, sem Halldór Laxness hefur gert
ódauðlegan.
SKUGGSJÁ
STRANDGÖTU 31 — SÍMI 50045 — HAFNARFIRÐI