Morgunblaðið - 01.12.1973, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 01.12.1973, Blaðsíða 34
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 1973 34 Fimleika- hátíð FIMLEIKAHATÍÐ á vegum Iþróttakennarafélsgsins verður á dagskrá í Laugar- dalshöllinni á morgun frá klukkan 14,30 til 17.30. Alls munu 800 manns koma fram á sýningunni í fjölmörgum flokkum vfðs vegar að af landinu. Er þessi sýning hin þriðja sinnar tegundar og hafa tvær hinar fyrri vakið mikla og verðskuldaða athygli. Er fólki bent á að mæta tímanlega svo ekki mvndist troðningur við inn- ganginn. Myndin er af ungum stúlkum á einni af fyrri fimleikasýningunum. — hefði sænska liðið verið í sama gæðaflokki og undanfarin ár ÁSGEIR Sigurvinsson hefur leikið með aðalliði Standard Liege alla sfðustu leiki og staðið Tap í landsleik í handknattleik gegn Svfum er rauninni ekki svo slæmur árangur sé munurinn ekki meiri en eitt mark. En ef landsleikurinn í fyrrakvöld er hafður í huga þá verður að segjast eins og er, að íslen/ka liðið lék þennan leik alls ekki nógu vel. Svfarnir virtust gjörsamlega áhugalausir fyrir leiknum og frammistaða þeirra var eftir þvf. En eins og svo oft áður þurfti fslenzka landsliðið að vera heldur lakara en andstæðingurinn. Svfar hafa undanfarin ár staðið feti framar fslendingum og verið meðal alsterkustu handknatt- leiksþjóða f heimi, en nú er Bleik hins vegar brugðið og sænska landsliðið virðist ekki margra fiska virði frekar en það íslenzka. Með sama áframhaldi á íslenzka landsliðið ekki mikið erindi í úr- slitakeppni HM í handknattleik. Ef ekki verður stökkbreyting á leik islenzka landsliðsins fram að þeim tíma verða sögurnar af þeirri ferð aðeins sorgarsögur. Það, sem af erþessu keppnistíma- bili hefur landslið okkar leikið 7 landsleiki, unnið tvo, tapað fjór- um og gert eitt jafntefli. Ekki góður árangur ef haft er í huga, að þær þjóðir, sem við eigum eftir að leika við í vetur, eru allar sterkari eða jafnsterkar þeim þjóðum, sem við höfum mætt til þessa. Landsleikurinn við Svía hafði vissulega ýmsa kosti til að bera. Skal þar fyrst nefnd hetjuleg frammistaða Ölafs Benedikts- sonar í markinu, varzla sem Ölafs Tékkar unnu Á OPNA borðtennismótinu sem nú stcndur yfir f Svfþjóð unnu Tékkar heimsmeistara Svía, 3:0, í gær. Ba>ði Stellan Bengtson og Kjell Johannsson töpuðu. Þá unnu Ungverjar Kfna 3:0 og Norðmenn meðsömu tölu. Kfnverska liðið kemur sem kunnugt er hingað til lands á mánudaginn. er því miður allt of sjaldgæf hjá islenzkum handknattleiksmark- vörðum, en vonandi fyrirboði þess sem kemur. Varnarleikur liðsins var einnig góður og hann verður hróss en ekki aðfinnslu. Þá eru líka kostirnir við lands- leikinn upptaldir. í sókninní var íslenzka liðið ekki sannfærandi, leikur liðsins ekki nægilega ógnandi á köflum og nýting léleg hjá flestum. Lfnu- menn jafnt sem langskyttur áttu i vandræðum með að finna leiðina framhjá hinum frábæra mark- verði Svíanna. Ekki er ástæða til að ráðast á einstaka leikmenn í íslenzka lið- inu. Eins og nú standa sakir eru örfáir menn sjálfsagðir í liðið, en um hina má deila. Þeir, sem að mati undirritaðs eru sjálfsagðir, eru Björgvin, Axel og Ólafur, þá áttu bæði Gísli Blöndal og Viðar Símonarson ágætan ,leik gegn sænska liðinu og virðaát nokkuð öruggir um sæti sin. Talað hefur verið um að breiddin í íslenzkum handknatt- leik sé alltaf að aukast, en ef til vill er meðalmennska ágætt orð fyrir þessa sömu breidd. Hand- knattleikurinn hefur að minnsta kosti sjaldan verið eins daufur og um þessar mundir og fátt, sem laðar fólk að leikjum. Fólk er orðið þreytt á handknattleiknum og orsökin gæti einmitt verið sú, að okkur hefur farið aftur í i'þróttinni. Tveimur beztu handknattleiks- mönnum okkar hefur verið haldið fyrir utan þetta spjall, þeim Ólafi H. Jónssyni og Geir Hallsteins- syni. Þessir burðarásar íslenzks handknattleiks geta breytt ís- lenzka landsliðinu mikið og ef til vill verður það þeirra frammi- staða að íslendingar fara ekki illa út úr komandi Iandsleikjum, en ósköp er illa komið fyrir islenzk- um handknattleik, að hann skuli vera sviplaus án þessara tveggja manna. .ajj Bikarkeppni KKÍ BIKARKEPPNI Körfuknattleiks- sambands íslands hefst í janúar. Þátttökutilkynningar þurfa að hafa borizt fyrir 10. desember n.k. i pósthólf 864. Luther-skólanum veitt Frá Kristni Jörundssyni: íslenzka körfuknattleikslands- liðið fékk langþráða hvíld frá keppni og ferðalögum, er það kom til Luther’s háskólans. Þar vorum við i fjóra daga, og móttökurnar voru hreint frábærar, eins og þær hafa alls staðar verið í Banda- rikjunum. Leikurinn viðLuther fór fram i íþróttahúsi, sem háskólinn á, og í því eru 3 körfuknattleiksvellir, hlið við hlið, með samtals 18 körf- um. Þarna er líka sundlaug og fleiri herbergi með íþróttaáhöld- um í. í kringum liðið, eins og öll önnur lið, sem við höfum leikið við, starfa 3—4 menn, ásamt þjálfara. Eru þeir aðstoðar- þjálfarar, sjúkraþjálfarar, sem vefja menn og sv. fr. Fyrri hálfleikur leiksins við Luther var mjög jafn framan af og eftir 5 mínútna leik stóð t.d. 94 fyrir okkur og um miðjan hálf- leikinn höfðum við enn yfir 24-22. Eftir það sigu Bandaríkja- mennirnir svo frammúr og í hálf- leik höfðu þeir 47-37 yfir. íslenzka liðið var óheppið með skot í seinni hálfleiknum, enda þreytan farin að segja til sin. Bandaríkjamennirnir sigu jafnt og þétt fram úr og lauk leiknum 97-62, þeim í vil. Stigahæstir í íslenzka liðinu voru þeir Þórir Magnússon með 17 stig og Kristinn Jörundsson með 13 stig. Þórir var einnig val- inn maður leiksins og fékk að launum körfubolta við mikinn fögnuð áhorfenda. íslenzka liðið lék fyrri hálfleik- inn vel, og sagði þjálfari banda- ríska liðsins, að íslendingarnir hefðu komið sér mjög á óvart, en hans lið hefði hins vegar haft Sigurvinsson (18) le meilleur! „SIGUR” HJÖRTU SIGRAR BELGA sig með miklum ágætum. Hann er nú orðinn fastur maður í aðallið- inu og hefur vakið mikla athygli upp á síðkastið, ekki aðeins fyrir góða leiki, heldur einnig fyrir hinn unga aldur sinn. Asgeir er ekki nema 18 ára og telst það til tíðinda, að svo ungur leikmaður komist í aðallið sterks félags eins og Standard Liege. Ásgeir gengur nú undir nafn- inu ,,Sigur“ í Belgíu cg hann hefur svo sannarlega sigrað hjörtu Belga. 1 þremur síðustu leikjum lios síns hefur Asgeir skorað tvö mörk, annað með þrumuskoti frá vítateig og hitt með skalla frá vítapunkti. Annars segir Ásgeir, að kollspyrnurnar séu ekki sín sterkasta hlið, en hann hefur fengið sérstaka með- ferð í þeim efnum undanfarið. Ásgeiri gengur rétt sæmilega með frönskuna, „ég er farinn að skilja sæmilega en að tala, það er annað mál,“ segir Ásgeir sjálfur. Um jólin fær Ásgeir leyfi frá knattspyrnunni og ætlar þá að koma heim. Standard Liege er nú í sjötta sæti f 1. deildinni i Belgíu með 12 stig eftir 10 leiki, efstu tvö liðin eru með 15 stig, en síðan koma þrjú lið með 13 stig. í dag á Stand- ard að leika við meistara fyrra árs, FC Brugge á útivelli og á Ásgeir að leika þennan mikilvæga leik. FRESTANIR í ENGLANDI VEGNA snjóa og kulda á Bretlandseyjum hefur fjöl- mörgum leikjum, sem fram áttu að fara í dag verið frestað. Þar af hefur þremur leikjum f 1. deild- inni verið frestað Þ.e. New- castle—Burnley, Norwick— Birmingham og Stoke— Chelsea. Auk þess er talið óliklegt, að leikur Manchesterlið- anna geti farið fram. Verði fleiri leikjum frestað en þremur af þeim, sem eru á íslenzka get- raunaseðlinum verður varpað hlutkesti um úrslit þeirra. keppni meira þrek og getað keyrt á fullu allan leikinn. Hvernig er hægt að ætlast til þess að lið, sem æfir bara þrisvar í viku, tvo tíma i senn, geti unnið lið, sem æfir þrjá tima á hverjum degi, sagði svo Kent Finager, þjálfari Luther’s skólans. Frá Luther förum við til Debougue, sem er á bökkum Missisippi-árinnar og þar leikum við á mánudagskvöldið. Háskól- inn þar er sagður eiga á að skipa mjög svipuðu liði og Luther, þannig að við vonumst til að geta staðið iþeim. Axel Axelsson eygði þarna góða smugu í vörn Svfanna og sendi knöttinn í netið, 1:0 fyrir Island. (Ljósm. K. Ben.) Tap gegn Svíum ekki svo slakt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.