Morgunblaðið - 01.12.1973, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 1973
DMCBÓK
t dag er laugardagurinn 1. desember, sem er fullveldisdagur tslands,
335. dagur ársins 1973. Elegfumessa. 6. vika vetrar hefst, eftir lifa 30.
dagar.
Árdegisháflæði er kl. 10.15, sfðdegisháflæði kl. 22.45.
Þér elskaðir, nú erum vér Guðs börn, og það er ennþá ekki orðið
bert, hvað vér munum verða. Vér vitum, að þegar hann birtist, þá
munum vér verða honum Ifkir, þvf að vér munum sjá hann eins og
hann er. (1. Jóhannesar bréf, 3.2).
ÁRIMAÐ
HEILLA
I dag verða gef in saman f hjóna-
band í Háteigskirkju af séra
Óskari J. Þorlákssyni, Sigríður
Ragnheiður Jónsdóttir og Gunnar
Briem. Heimili þeirra er að Ægis-
síðu 60, Reykjavík.
1 dag verðagefin saman í hjóna-
band í Þjóðkirkjunni í Hafnar-
firði af séra Garðari Þorsteins-
syni, Guðrún Einarsdóttir og Pét-
ur Arnason, Ölduslóð 30, Hafnar-
firði.
1 dag verðagefin saman í hjóna-
band í Dómkirkjunni af séra Þóri
Stephensen, Þórunn P. Þórisdótt-
ir, Grenimel 6, og Jón Eiríksson,
Hegranesi 26.
í dag verðagefin saman í hjóna-
band í Bústaðakirkju af séra Ólafi
Skúlasyni, María Anna Kristjáns-
dóttir, Kleppsvegi 2, og Jesus
Manuel Potenciano frá Madrid á
Spáni. Heimili þeirra verður fyrst
um sinn að Kleppsvegi 2, Reykja-
vík.
I dag verðagefin saman í hjóna-
band Asgerður Þórisdóttir hjúkr-
unamemi og Kristinn Sigmunds-
son kennari. Heimili þeirra er að
Háteigsvegi 17, Reykjavík.
1 dag verða gefin saman i Bú-
staðakirkju af séra Ólafi Scúla-
syni, Gunnhildur Jakobína Lýðs-
dóttir og Gunnar Helgi Hálfdán-
arson. Heimili þeirra verður að
Garðsenda 11, Reykjavfk.
I dag verða gefin saman í hjóna-
band í Bústaðakirkju af séraÓIafi
Skúlasyni, Bergþóra Oddgeirs-
dóttir og Hörður Harðarson.
Heimili þeirra verður að Lindar-
götu 54, Reykjavik.
í dag verðagefin saman í hjóna-
band i Bústaðakirkju af séra Ólafi
Skúlasyni, Þöra Sigurðardóttir
Hólmgarði 51, Reykjavík, og Arn-
þór Sigurðsson, Hásteinsvegi 53,
Vestmannaeyjum. Heimili þeirra
verður að Faxastíg 31, Vest-
mannaeyjum.
1 dag verðagefin saman í hjóna-
band f Bústaðakirkju af séra Ólafi
Skúlasyni, Biynhildur Björk
Kristjánsdóttir, Ásbraut 15, Kópa-
vogi, og Diðrik Ólafsson, Langa-
gerði 98, Reykjavík. Heimili
þeirra verður að Ásbraut 15.
1 dag verða gefin saman í hjóna-
band í Langholtskirkju af séra
Sigurði Hauki Guðjónssyni, Guð-
laug Anna Sigurfinnsdóttir og
Yngvi Þór Kristinsson. Heimili
þeirra verður að Hrafnhólum 2,
Reykjavík.
ÁHEIT DG BJAFIR |
11aI Igrímskrikja f Saurbæ:
Gamalt og nýtt áheit K.S. 1000,
Ragnheiður 2000,
Breiðholt
Kvenfélag Breiðholts heldur ár-
legan basar sinn í anddyri Breið-
holtsskóla á morgun, sunnudag,
og hefst hann kl. 3 e.h.
Af því, sem þar verður á boð-
stólum, má nefna handunna
muni, lukkupoka og heimatilbún-
ar kökur. Allur ágóði af basarn-
um rennur til liknarstarfs í hverf-
inu.
Kvöld-, nætur- og helgidaga-
varzla apótcka f Reykjavfk vik-
una 30. nóv. — 6. des. er f
Reykjavfkurapóteki og Laug-
arnesapóteki. Nætur- og
helgidagaþjónusta er f Reykja-
vfkurapóteki.
Læknastofur eru lokaðar á
laugardögum og helgidögum, en
læknir er til viðtals f göngudeild
Landspítalans í síma 21230.
Almennar upplýsingar um
lækna- og lyfjabúðaþjónustu í
Reykjavík eru gefnar i símsvara
18888.
Mænusóttarbóiusetning fyrir
fullorðna fer fram í Heilsu-
verndarstöðinni á mánudögum kl.
17.00—18.00.
Vaktmaður hjá Kópavogsbæ —
bilanasími 41575 (símsvari).
Tannlæknavakt er í Heilsu-
verndarstöð Reykjavíkur alla
laugardaga og sunnudaga kl.
17—18. Sfmi 22411.
Heimsóknartími
sjúkrahúsa
Barnaspftali Hringsins: kl.
15—16, virka daga, kl. 15—17
laugard. og kl. 10—11.30 sunnud.
Borgarspftalinn:
Mánud.—föstud. kl. 18.30—19.30.
Laugard. og sunnud. kl.
13.30— 14.30 og kl. 18.30—19.
Flókadeild Kleppsspftala:
Daglega kl. 15.30—17.
Fæðingardeildin: Daglega kl.
15—16 og kl. 19—19.30.
Fæðingarheimili Reykjavfkur:
Daglega kl. 15.30—16.30.
Heilsuverndarstöðin: kl. 15—16
og kl. 19—19.30 daglega.
Hvftabandið: kl. 19—19.30,
mánud.—föstud. laugard. og
sunnud.kl. 15—16 og 19—19.30.
Kleppsspftalinn: Daglega kl.
15—16 og 18.30—19.
Kópavogshælið: Eftir umtali og
kl. 15—17 á helgidögum.
Landakotsspftali: Mán-
ud.—laugard. kl. 18.30—19.30.
Sunnud. kl. 15—16. Heimsóknar-
tími á barnadeild er kl. 15—16
daglega.
Landspftalinn: Daglega kl.
15—16 og 19—19.30.
Sólvangur, Hafnarfirði: Mán-
ud.—laugard. kl. 15—16 og kl.
19.30— 20. Sunnudaga og aðra
helgidaga kl. 15—16.30.
Vífilsstaðir: Daglega kl. 15—16
og kl. 19.30—20.
AÐVENTUK V OLD
Eins og undanfarin ár sér
kirkjunefnd kvenna Dómkirkj-
unnar um aðventukvöld í kirkj
unni að kvöldi 1. sunnud. í að-
ventu, sem nú ber upp á n.k.
sunnudag, 2. desember. Sam-
koman hefst kl. 8.30, og verður
dagskráin hin vandaðasta. Má
nefna, að frá Hulda Stefáns-
dóttir fyrrv. skólastj. flytur er-
indi, sem hún nefnir Jólaminn-
ingar, strengjakvartett úr Tón-
listaskólanum í Reykjavík leik-
ur, Barnakór Hlíðaskóla syngur
jólalög undir stjórn frk. Guð-
rúnar Þorsteinsdóttur söng-
kennara, frú Rut Ingólfsdóttir
leikur einleik á fiðlu og Dóm-
kórinn syngur nokkur lög undir
stjórn Ragnars Björnssonar
dómorganista. M.a. flytur hann
nýtt lag eftir Ragnar við sálm-
inn Þeir hringdu hljómþungum
klukkum, eftir Jóhann Jónsson.
Nýja sálmabókin verður tekin í
notkun i Dómkirkjunni þennan
dag, og þessi sálmur er einn af
þeim, er þar koma fyrst fram í
sálmabók.
Aðventukvöldin eru löngu
orðin fastur liður í safnaðar-
starfi Dómkirkjunnar. Þangað
hefur söfnuðurinn sótt sér
þann hugblæ, sem minnir á, að
jólin eru í nánd. Orðið aðventa
þýðir koma, koma Jesú til safn-
aðarins. Og vegna þess að hún
er væntanleg, þurfa menn að
undirbúa hug sinn og hjarta,
svo að sú blessun, sem jólaboð-
skapnum fylgir, megi fá þar
varanlegan bústað.
Jafnan hefur verið húsfyllir
á aðventukvöldum Dömkirkj-
unnar. Eg vona, að svo verði
enn. Verið öll velkomin.
Þórir Stephensen.
Arið 1970 lét kvenfélagið
Hringurinn gera fyrsta „platt-
ann“ af fjórum, og er síðasti
„plattinn" f þessari samstæðu nú
kominn til landsins, en postu-
línsverksmiður Bing & Gröndals í
Kaupmannahöfn hafa séð um
framleiðsluna. Ágóði af sölunni
rennur, eins og raunar allur ágóð
af fjáröflunarstarfsemi félagsins,
til Barnaspítala Hringsins í Land-
spítalanum og barnageðdeildar-
innar við Dalbraut.
Hattarnir eru aðeins seldir á
einum stað, hjá Halldóri á Skóla-
vörðustíg 2 í Reykjavik. Hver
„platti“ kostar 1200 krónur, og er
sá fyrsti nú að verða uppseldur.
Þann 26. desember n.k. verður
félagið 70 ára, en núverandi for-
maður þess er Ragnheiður Einars-
dóttir.
Á morgun, sunnudag, er Hring-
urinn með sína árlegu kaffisölu
og basar, sem hefst kl. 3 e.h. að
Hótel Borg.
FRÉT T IR 1
Félagsstarf eldri borgara hefur
„opið hús“ að Hallveigarstöðum
mánudaginn 3. desember frá kl.
1.30 e.h. Fyrirhugaðri skoðunar-
ferð í nýju lögreglustöðina hefur
verið frestað til 10. desember.
Þriðjudaginn 4. desember hefst
handavinna kl. 1.30 e.h að Hall-
veigarstöðum.
Jólabasar til styrktar lömuðum
og fötluðum verður við fjölbýlis-
húsið að Iláaleitisbraut 26 — 30 1.
og 2. desember.
Fóstrunemar halda basar að
Hallveigarstöðum í dag, og hefst
hann kl. 14.00. Nemarnir hafa
sjálfir unnið munina, sem á boð-
stólum eru, en einnig verða til
sölu heimabakaðar kökur.
| TAPAD - FUIMDHD ~|
í portinu á bak við Ingólfsapó-
tek fannst nýlega alveg ný Heklu-
úlpa, dökkblá að lit. Hettan er
með loðkanti. Ulpan er merkt
með upphafsstöfum og í vasa eru
lopavettlingar. Ulpan gæti verið
af strák, sem er á að gizka 12 — 13
ára. Eigandinn getur vitjað henn-
ar I Ingólfsapótek.
1 SÁ MÆSTBESTI 1
Sigga og Stfna stóðu í biðröð f
mjólkurbúðinni á laugardags-
morgni. Þegar röðin var í þann
veginn að koma að þeim, heyrðist
Stína segja við Siggu:
— Heyrðu, við skulum annars
fara aftast í biðröðina aftur, ég er
ekki nærri búin með allar kjafta-
sögurnar.
. . . að bera sams
konar tilfinningar
í brjósti
IM R. <j U 5 Po' OH A)1 (Iql.'v ..•s.-fv.:.l
. 197? by lo% Amp-les T.mes
| BRIDBE
Eftirfarandi spil er frá leiknum
milli Bretlands og Grikklands í
kvennaflokki í Evrópumótinu
1973.
Norður
S. 10-7-6-4-3
H. 4-3-2
T. Á
L.7-6-3-2
Vestur
S. —
H. Á-K-D-9-8
T. 6
L. A-K-D-G-9-8-4
Austur
S. Á-G-9-8-5-2
H. 5
T. K-G-8-5-3-2
L. —
Suður
S. K-D
H. G-10-7-6
T. D-10-9-7-4
L. 10-5
Við annað borðið sátu grisku
iömurnar A — V og þar opnaði
vestur á 2 laufum. Austur mis-
heyrði sögnina, hélt að félagi
hans hefði opnað á 3 laufum og
sagði því pass!!
Við hitt borðið sátu brezku
dömurnar A — V og sögðu þann-
ig:
V estur Austur
4g 5s
61 p
Þetta er mjög óvenjulegt og
skemmtilegt spil. Eina útspilið,
sem hindrar, að sögnin vinnist, er
tigul ás, því sagnhafi kemst ekki
hjá þvi að gefa til viðbótar slag á
hjarta. Sagnhafi var heppinn,
því norðurlét út spaðaog þarmeð
losnaði sagnhafi við tígul heima í
spaða ásinn í borði.
Opnun vesturs bíður um upp-
lýsingar um ása og svarhöndin 5
grönd. — brezka sveitin græddi
15 stig á spilinu.
--------♦ »■>------
Basar skáta
Þessir skemmtilegu handunnu
munir eru á meðal þess, sem selt
verður á basar skátanna i Kópa-
vogi á morgun, sunnudag. Basar-
inn verður i Félagsheimili Kdpa-
vogs og hefst kl. 15.00.
Að vanda munu jólasveinar verða
á basarnum og selja lukkupoka.
Skátarnir halda basar fyrir hver
jól, til ágóða fyrir starfsemi sína.