Morgunblaðið - 18.12.1973, Page 2

Morgunblaðið - 18.12.1973, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1973 * 54 höfundar hlutu 220 þúsund krónur hver ÚTIILUTUNARNEFND viðbótar- ritlauna hefur nú lokið störfum. en nefndin var skipuð 8. nóvent- ber s.l. í samræmi við reglur um viðbótarritlaun til fslenzkra rit- höfunda og hiifunda fræðirita. Að þessu sinni hafði nefndin um 12 millj. kr. til umráða og fengu 54 rithöfundar viðbótarritlaun. 220 þús. hver. Þorleifur Hauksson lektor, sem var formaður nefndarinnar, sagði i samtali við Morgunblaðið í gær, að nefndin hefði starfað eftir þeim reglum, sem henni voru settar í haust, og hefðu menn bæði fengið viðbótarritlaun fyrir skáldverk og fræðirit. Ekki væri enn búið að ganga frá framtíðar- starfi nefndarinnar, en sérstök nefnd ynni nú að því. Með Þorleifi Ilaukssyni f út- hlulunarnefndinni voru Rann- veig G. Agústsdóttir B.A. sam- kvæmt tilnefningu Rithöfunda- félags Lslands og Bergur Guðna- son, lögfræðingur, samkvæmt til- nefningu Félags íslenzkra rithöf- unda. Nefndin auglýsti eftir upp- K'singum frá hiifundum um rit- verk. útgefin eða flull á ár- tinum 1972. 1971 og 1970. Nefnd- inni bárust upplýsingar frá 121 aðila, en skilafrestur rann út 10. desember s.l. Eins og fyrr seg ir urðu 54 höfundar fyrir valínu og nam veiting til hvers þeirra rúmum 220 þús. kr. Greiðsla þessa fjár fer frani eftir áramót. Ilér á eftir fer listi yfir þá höf- unda, sem viðbótarritlaun hlutu: Aðalgeir Kristjánsson Agnar Þórðarson Annann Kr. Einarsson Ami Larsson Ami Öla Asi f Bæ Birgir Engilberts Björn J. Blöndal Einar Bragi Einar Pálsson Erlingur E. Halldórsson Geir Kristjánsson Gréta Sigfúsdóttir Guðbergur Bergsson Guðmundur Danfelsson Guðmundur Frímann Guðmundur G. Ilagalín Guðrún frá Lundi Gunnar Gunnarsson Gunnar Karlsson Gunnar M. Magnúss Ilalldór Kiljan Laxness Ilannes Pétursson Hannes Sigfússon Haraldur Sigurðsson Söguleg skáldsaga IDUNN hefur sent frá sér skáld- söguna Yfirvaldið eftir Þorgeir Þorgeirsson og er hér um heim- i Idaskáldsögu að ræða. Fyrir nokkrum árum var flutt í útvarp framhaldsleikrit eftir Þor- geir. Börn dauðans, og fjallaði það um þjóðfrægt morð Natans Ketilssonar í Húnavatnssýslu og persónur þær sem fléttuðust inn í örlög hans. Þessi skáldsaga, sem nú liggur fyrir, fjallar enn um þetta sama efni, skjöl og heim- ildir færð i skáldsöguhúning. Morgunblaðinu hefur ekki borizt bók þessi til umsagnar, en í aug- Alfred Schmidt viðeitt verka sinna á Mokka. Hér hugsa menn meira um náungann — segir Alfred Schmidt, sem opn- aði málverkasýningu á Mokka ÞÝZKI listmálarinn, Alfred Schmidt, opnaði í gær sýningu á 20 grafík- og vatnslitamyndum á Mokkakaffi. Þetta er ekki fyrsta sýning Schmidts á íslandi, en hér hefur hann verið með annan fótinn síðan 1956, síðast sýndi hann á lslandi 1971. „Allar myndirnar, sem eg sýni nú á Mokka," sagði Sehmidt, er við ræddum við hann í gær,“ eru málaðar á íslandi, en fullgert gat ég eki grafíkmyndirnar hér, því engin aðstaða er til þess á íslandi. ísland á alltaf gífurleg ítök i mér. Náttúran er stórkostleg, og litirn- ir óteljandi. Ég vildi geta dvalið í nokkrar vikur á Reykjanesinu og málað þar.“ „Það er svo margt á islandi, sem grípur mann,“ segir Sehmidt, „margt af þvi er ekki hægt að mála, en væri hægt að koma á framfæri í texta, og þvi hef ég áhuga á að skrifa eitthvað um island og Islendinga á næst- unni. Islendingar eru stórkostleg- ir ekki síður en náttúra landsins. Hér eru menn bæði heiðarlegir og einstaklega frjálsir, og ekki sízt hér lítið snobb, en þetta þrennt kann ég að meta.“ Sehmidt segir, að margar sínar beztu minningar séu úr Axar- firðinum í nánd við VTgabergs- foss. „Þar er hreint stórkostlegt að vera. Þar finnur maður hvað islenzkt landslag er. og þar fæ ég alltaf þörf fyrir að mála Ísland. Nú ég nefni þessa sýningu island, en sýningin er til minningar um Vilhjálm Guðmundsson, fram- kvæmdastjóra, sem var einstakur maður. Hann var einn af þessum íslendinghm, sem hugaði meira um náungann en sjálfan sig.“ Að lokum sagði Sehmidt, að sýningin yrði opin til 5. janúar n.k. Sjálfur yrði hann hér til 15. janúar, færi þá til New York í tvær vikur, en kæmi sfðan aftur til íslands og m.vndi dvelja í nokkrar vikur við aðk.vnnast „ís- lenzku landslagi og Islendingum betur". Iýsingu frá forlaginu segir: „Skáldsaga eftir bestu heimildum og skilrfkjum um nafnkenndar persónur í Húnaþingi: Natan Ketilsson, Skáld-Rósu, Friðrik og Agnesi, Blöndal sýslumann o.fl. Yfirvaldið er kynngimögnuð saga og listilega vel skrifuð. Hún mor- ar af lifandi og eftirminnilegum persónum og snjöllum umhverfis- lýsingum. Höfundurinn beitir nú- tímaaðferðum heimildaskáld- sögunnar með frábærum árangri." Ileiðrekur Guðmundsson Indriði G. Þorsteinsson Jakob Jónsson Jenna og Hreiðar Stefánsson Jón Öskar Jón úr Vör Jónas Guðmundsson Jónas Kristjánsson Jökull Jakobsson Kristmann Guðmundsson Magnea frá Kleifum Matthías Johannessen Nína Björk Arnadóttir Ólafur Jóhann Sigurðsson Ólafur Haukur Símonarson Páll Sigurðsson Sigurður Róbertsson Stefán Hörður Grímsson Stefán Júlíusson Steinar Sigurjónsson Thor Vilhjálmsson Tómas Guðmundsson Vésteinn Lúðvíksson Vilborg Dagbjartsdóttir Yngvi Jóhannesson Þórbergur Þörðarson Þorsteinn frá Hamri Þorsteinn Thorarensen Þráinn Bertelsson Góðar loka- sölur í Þýzkalandi FJÖGUR skip seldu afla í Þ.vzkalandi I gærmorgun og öll fengu þau sæmilegt verð fyrir aflann, en hann var misjafn að gæðuin. Nú eiga aðeins þrjú íslenzk skip eftir að selja erlendis á þessu ári, og fyrstu sölurnar á næsta ári \erða ekki fyrr en 7. janúar, en þá opnast markaðurinn f Bret- landi aftur. Skipin, sem seldu í gær, voru Sigfús Bergmann GK, sem seldi 50.5 lestir í Bremerhaven f.vrir 64.052 mörk eða rúmar 2 millj. og var meðalverðið kr. 40.00. 5.9 lestir af afla Sigfúsar Bergmann voru dæmdar ónýtar. Jóhannes Guðni seldi einnig í Bremerhaven 52.4 lestir fyrir 73.692 mörk eða 2.3 millj. Meðalverðið er kr. 44.39 . 3 lestir af afla bátsins voru dæmdir ónýtar. Hrönn frá Vestmannaeyjum seldi 77.3 lestir í Cuxhaven fyrir 112.263 mörk eða 3.5 millj. Meðalverðið var kr. 45.78. Togarinn Neptúnus seldi á sama stað 79.1 lest fyrir 120.283 mörk eða 3.7 millj. Meðalverðið var kr. 47.93. BSRB-samningarnir: Um 7% hækkun eða aðeins leiðrétting? NYIR kjarasamningar voru und- irritaðir milli fulltrúa Bandalags starfsmanna ríkis og bæja ann- ars vegar og fulltrúa launamála nefnda ríkisins hins vegar klukk- an eitt aðfararnótt sunnudagsins. Samkvæmt þessu samkomulagi fá nokkrir opinberir starfsmenn í lægstu launaflokkunum allt að 25% ha-kkun, en meginregla þeirra er 7% launahækkun frá 10. — 14. flokks en síðan er jöfn krónutala þannig að prósentu- hækkunin minnkar eftir því sem ofar dregur I launaflokkum. Mið- að við núgildandi verðlag munu þessar launahækkanir kosta rfkis- sjóð um 300 milljónir króna, en tilsamanburðar má geta þess, að sfðustu kjarasamningar opin- berra starfsmanna kostuðu ríkis- valdið tæpar 400 milljónir króna miðað við verðlag í desember 1970 og nam hækkunin þá frá 15 — 50%. Samkomulagið nú gildir frá áramótum og fram á mitt ár 1976. I samtali við Morgunblaðið í gær sagði Kristján Thorlacíus for- maður BSRB, að eins og alltaf við slíka samningagerð hafi fulltrúar bandalagsins í nefndinni orðið að vega og meta allar aðstæður, og einnig minnti hann á það, að upp- haflega kröfugerðin væri jafnan sett fram með hliðsjön af því, að báðir aðilar slægju eitthvað af. I því sambandi sagði hann, að því væri ekki að leyna, að viðhorfin hafi gjörbreytzt frá því að kröf- urnar voru fyrst settar fram og þar til að lokum viðræðnanna dró. „Undir lok samningaviðræðn- anna urðum við mjög vör við og vorum raunar nauðbeygð að taka tillit til ástandsins, sem alls stað ar hefur skapazt vegna olíu- kreppunnar í heiminum." sagði Kristján. En miðað við allar að- stæður kvaðst hann telja, að rétt hafi veriðaðgera þettasamkomu- lag fremur en að deilan færi til kjaradóms. Um einstök atriði samkomu- lagsins minnti Kristján á, að i surnar hefði sú stefna verið mörk- uð í kjaramálum BSRB, að stefnt skyldi að mestri hækkun meðal hinna lægst launuðu, og kvaðst hann álíta, að þetta hefði tekizt í þessum samningum. Samkvæmt samkomulaginu eru allir flokkar fvrir neðan 10. flokk felldir niður og þeir launþegar, sem þar voru, flytjast nú upp í 10. flokk. Þannig fær sá. sem var i 7unda flokki hækkun, sem nemur 24,7%, laun- þegi sem var í 8unda flokki fær nú hækkun. sent svarar 18,4%. og launþegi sem var í 9unda flokki fær nú um 12% hækkun. Laun- þegar i 10. — 14. flokki fá 7% hækkun en síðan er jöfn krónu- tala upp úr. Þannig fær launþegi f 15. flokki 6,6% hækkun, launþegi i 18. flokki fær 5,7% hækkun, launþegi i 20. flokki fær 5,3% hækkun en í efsta flokki B5 er hækkunin aðeins 2,9%. Kristján gizkaði á, að alls væru það um 600 manns, sem væru i lægstu flokkunum. Kristján vékþessu næst aðýms- um kjaraatriðum og nefndi þar fyrst orlofið. Almennt orlof er eftir sem.áður 24 dagar en sú breyting fékkst fram, að eftir 10 ár bætast þrír dagar við — var áður eftir 15 ár, og eftir 20 ára starf bætast enn við 3 dagar, þannig að orlofið verður þá 30 dagar. Einnig kemur nú til fast orlofsframlag að upphæð 10 þús- und krónur og er 5 þúsund króna hækkun frá í sumar. Þetta er föst greiðsla með hverjum starfs- manni og kemur i stað fyrir orlof á yfirvinnu. Eins nefndi Kristján ákvæði i samkomulaginu um vaktavinnu- menn, en þar segir, aðstarfsmenn i' fullu starfi, sem vinna á reglu- bundnum vinnuvöktum og skila til jafnaðar 40 kl.st vinnuviku allt árið, geti í stað greiðslna fengið frí á óskertum launum i 12 daga á ári. Þá hækkar einnig vaktaálag — úr kr. 65 upp i 96 kr. fyrir starfsmenn i 10. — 14. launa- flokki, og úr 83 kr. i 112 kr. hjá starfsmönnum, sem eru f 20. launaf lokki og þar fyrir ofan. Loks gat Kristján þess að nú hefði fengizt inn i samninginn ákvæði um trúnaðarmanna á vinnustað, sem ætti aðgæta hags- muna starfsfólksins á vinnustaðn- um og vera milligöngumaður þess viðyfirboðarana. Þá hafði Morgunblaðið sam- band við Jón Sigurðsson, ráðu- neytisstjóra í fjármálaráðuneyt- inu, sem var formaður samninga- nefndar rikisins, og spurði hann álits á þessu samkomulagi. Jón sagði, að hann vildi líta á þetta samkomulag sem samning- inn frá 1970 með þeim breyting- Framhald ð bls. 16. Guðrún Björnsdóttir frá Kornsá látin Guðrún Björnsdóttir frá Kornsá lézt að heimili sfnu í Hveragerði sl. laugardag, 89 ára að aldri. Guðrún var fædd 28. júní 1884, dóttir hjónanna Björns Sigfús- sonar bónda og alþingismanns á Kornsá í Vatnsdal og Ingunnar Jónsdóttur. Guðrún var skóla- stjóri barnaskólans í Siglufirði um árabil og síðar skólastjóri unglingaskólans þar. Ilún var um skeið bæjarfulltrúi á Siglufirði og vann að öðru leyti mikið að félags- málum og ritaði margar greinar í blöð og tímarit. Eiginmaður henn- ar var Þormóður Eyólfsson, konsúll og kennari. Hann er lát- inn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.