Morgunblaðið - 11.01.1974, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. JANUAR 1974
Gísli Halldórsson borgarfulltrúi:
Iþróttasvœði, sundlaug og
íþróttahús
við
Seliahverfi
Við afgreiðslu á f já: hags-
áætlun Reykjavíkur íyrir
árið 1974 var sainþvkkt til-
laga frá borgarfulltrúum
Sjálfstæðisflokksins um
umfangsmiklar fram-
kvæmdir á sviði íþrótta-
mála.
í tillögunni er bent á
hinn veigamikla stuðning
sem borgin hefur veitt
íþróttafélögunum og það
góða samstarf sem tekizt
hefur milli fræðsluráðs og
íþróttafélaga þar sem
félögin hafa nú í auknum
mæli fengið afnot af
íþróttahúsum við skóla
borgarinnar. Þá er og
minnt á samþykkt borgar-
stjórnar frá 19. júní 1973
um að auka stuðning við
íþróttafélögin í borginni á
sviði byggingarfram-
kvæmda og verður nú veitt
tii þess 21,3 milljónum
króna. Bláfjallasvæði er
einnig tekið til meðferðar í
tillögunni og vakin athygli
á því að svæðið hefur nú
verið gert að fólkvangi og í
ráði er að koma þar upp
vetraríþróttamiðstöð fyrir
höfuðborgarsvæðið. t
framhaldi af þessu lögðu
borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins fram eftir-
farandi tillögur um fram-
kvæmdir í íþróttamálum á
næstunni:
1. Haldið verði áfram fram-
kvæmdum f Bláfjöllum og
byggðar tvær fullkomnar
skíðalyftur á næsta ári.
2. I nýjum hverfum verði fþrótta-
svæði kostuð afsborgarsjóði á
sama hátt og þegar hefur átt
sér stað.
3. Þar sem Alþingi hefur nú veitt
heimild til þess að hefja megi
framkvæmdir við gerð vél-
frysts skautasvells, þá sam-
þykkir borgarstjórn að fram-
kvæmdir við það hefjist á
næsta vori. Mannvirkið verði
hannað á þann hátt, að síðar sé
hægt að byggja yfir það.
4. Auk þess sem lokið verður við
byggingu grasvalla og
kastsvæðis f Laugardal, verði
byggður malarvöllur og
hlaupabraut á næsta ári, og
hafinn undirhúningur að upp-
hitun grassvarðar á aðalleik-
vangi.
5. Hafinn verði undirbúningur á
næsta ári að gerð íþrótta-
svæðis, sundlaugar og íþrótta-
húss við Seljahverfi, en nú er
unnið að skipulagningu
svæðisins.
Gísli Halldórsson (S): Eins og
fram kemur í þessum tillögum
okkar sjálfstæðismanna í íþrótta-
málum eru þær byggðar á fyrri
stefnu borgarstjórnar og eru rök-
rétt framhaid þess mikla skiln-
ings og velvilja, sem borgin hefur
ávallt sýnt íþróttamönnum og
félögum þeirra.
Þann 19. júní s.l. var því sam-
þykkt i borgarstjórn tillaga frá
fulltrúum Sjálfstæðisfiokksins
um að fela íþróttaráði að endur-
skoða reglur um styrkveitingar
borgarinnar til mannvirkjagerðar
íþróttafélaganna með það fyrir
augum að auka stuðning borgar-
innar við félögin. íþróttaráð lagði
til að styrkveitingin yrði aukin úr
30% byggingarkostnaðar i 40%.
Þessi 30% styrkur borgarinnar
hefur verið greiddur gegnum
Í.B.R. og hafði á undanförnum
árum safnast nokkur skuld við
félögin, sem þó hefur verið
minnkuð nokkuð hin síðustu ár.
íþróttaráð lagði til að þessi skuld
yrði greidd að fullu á næsta ári
þannig að félögin fengju allan
styrkinn greiddan af framkvæmd-
um félaganna árið 1974 á fjár-
hagsáætlun 1975 og fengju þau
FRA
BORGÁR-
STJÓRN
því styrkinn allari greiddan árið
eftir framkvæmdir. Til þess að ná
þessu marki er áætlað til
byggingastyrkja Í.B.R. kr. 6.3
millj. í stað3.3 millj. s.l. ár.
Þá lagði íþróttaráð til að sér-
stakt átak yrði gert til þess að
ljúka framkvæmdum félaganna á
næstu 4—5 árum.
Til þess að auðvelda félögunum
framkvæmdir láni borgarsjóður
félögunum sem svari þátttöku
íþróttasjóðs í byggingarkostnaði
er fengi síðan lánið greitt er fjár-
framlög kæmu frá íþróttasjóði.
Við þessar framkvæmdir yrði
með öðrum orðum greitt úr
borgarsjóði nokkurn veginn eftir
því sem framkvæmdum miðaði
bæði framlag borgarsjóðs og
íþróttasjóðs. Til þessara fram-
kvæmda er áætlað að verja kr.
15.0 millj. á næsta ári eða samtals
til mannvirkjagerðar íþrótta-
félaganna kr. 21.3 millj. í stað kr.
3.3 s.l. ár.
Á undanförnum árum hefur
það komið fram, að félög í nýjum
Tillögur sjálfstæðis-
manna í íþróttamálum
Þetta eru helztu atriðin úr tillögum sjálfstæðis-
manna um framkvæmdir Reykjavfkur á sviði
íþróttamála á næstunni:
Tvær skíðalyftur verði byggðar í Bláfjöllum í ár.
Borgarsjóður kosti íþróttasvæði í nýjum hverfum.
Gerð vélfrysts skautasvells verði hafin í vor.
Framkvæmdum í Laugardal verði sem næst lokið
á árinu og hitalögn lögð á grasvöllinn.
Undirbúningsframkvæmdir við fullkomið íþrótta-
svæði á Seljahverfi verði hafnar á árinu; þar verði
m.a. sundlaug og íþróttahús 55 milljónum verði
varið til gerðar íþróttasvæðis í Fellahverfi.
hverfum hafa ekki bolmagn til
þess að reisa sín eigin íþróttahús
og — velii. íþróttaráð hefur því
lagt til við borgarráð að þar verði
reist iþróttamannvirki, sem til
þarf og kostuð af borginni. Hefur
þegar verið byrjað á þessum
framkvæmdum með byggingu
íþróttavallar í Árbæjarhverfi. Þar
var byggður malarvöllur á s.l. ári
og hefur hverfisfélagið fengið
hann til afnota. Næsti áfangi er
að byggja búningsherbergi og
halda siðan áfram með vallar-
framkvæmdir.
Á síðustu árum hefur tekizt
mjög gott samstarf milli skóla og
íþróttafélaga. Félögin hafa fengið
íþróttaaðstöðu skólanna til afnota
á kvöldin og yfir sumarmánuðina.
Þetta samstarf sparar mikið fé og
auðveldar íþróttamönnum að fá
lausn á sínum vandamálum.
Vegna þessa góða samstarfs
varð að samkomulagi milli
íþróttaráðs og fræðsluráðs að
skólarnir byggðu íþróttamann-
virki í Féllahverfi í Breiðholti
sem gætu bæði þjónað skólastarf-
inu og verið íjjróttaaðstaða fyrir
félögin í hverfinu og almenning.
Samkvæmt þessu samkomulagi
var byrjað á vallargerð á s.l.
hausti, og verður fyrsti völlurinn
tilbúinn á miðju næsta sumri. Þá
er langt komið að hanna þarna
stórt íþróttahús, með sal 22,0 m X
44,0 m að stærð og nokkru
áhorfendarými, svo og sundlaug
með tilheyrandi búningsklefum.
Samkvæmt fjárhagsáætlun er
gert ráð fyrir að varið verði á
næsta ári kr. 55,0 millj. til þessara
framkvæmda.
A s.l. ári voru hafnar fram-
kvæmdir við lokaáfanga íþrótta-
leikvangs í Laugardal. Þegar
þeim framkvæmdum lýkur verða
þarna í raun 9 íþróttavellir. Af
þessum völdum eru 4 grasvellir,
tveir til keppni með áhorfenda-
rými og tveir æfingavellir, þá
verður þarna rúmgott kastsvæði
fyrir frjálsar íþróttir, þrir hand-
knattleiksvellir, sem einnig er
hægt að nota fyrir körfubolta og
fl. Á næsta ári er áætlað að ljúka
einnig malarvellinum og hlaupa-
braut við hann.
Nýlega samþykkti íþróttaráð,
að fara þess á leit við borgarráð
að fá heimild til þess að láta
hanna hitaleiðslu í grassvörðinná
Laugardalsleikvanginum. Sam-
þykkti borgarráð þessa beiðni.
Þegar völlurinn var byggður var
nokkuð rætt um slfka fram-
kvæmd, en horfið frá því, vegna
þess að engin reynsla var þá til
um slíka tilhögun. En nú á seinni
árum héfur þetta verið gert á
nokkrum völlum i Norður-Evrópu
með ágaétum árangri. Jafnframt
er lögð plastþynna yfir völlinn til
þess að halda hitanum í gras-
rótinni, sem lengst og hlífa vellin-
um í rigningartíð.
Á s.l. ári var samþykkt að hefja
framkvæmdir við vélfryst skauta-
svell á þessu ári. Var áætlað fé á
fjárhagsáætlun til þessara fram-
kvæmda að upphæð 20,0 millj. kr.
En fjárveitinganefnd Alþingis
synjaði um leyfi til að hefja fram-
kvæmdir við þetta mannvirki.
Fyrir ötult starf fþróttafulltrúa,
meirihluta íþróttanefndar og
nokkurra þingmanna hefur
Alþingi hins vegar nú veitt leyfi
fyrir byrjunarframkvæmdum. Er
því nú reiknað með að fram-
kvæmdir geti hafist með vorinu,
enda er fé áætlað fyrir þeim i
fjárhagsááetluninni.
Eins og áður er sagt byggja
skólarnir íþróttamannvirki i
Fellahverfi, sem kemur að fullum
notum fyrir skólana, iþróttafélög-
in og almenning. En í hinum
þremur hverfum í Breiðholti
verða um 24.000 ibúar í hverfun-
um fullbyggðum.
íþróttaráð, samþykkti því fyrir
nokkru að byggja þyrfti nýtt stórt
íþróttasvæði fyrir þessi hverfi. Er
nú verið að skipuleggja þetta nýja
iþróttasvæði og hefur íþróttaráð
samþykkt það i megindráttum.
íþróttasvæðið verður 14—15
ha. að stærð. Á svæðinu er fyrir-
hugað að gera eftirtalin íþrótta-
mannvirki:
1. íþróttaleikvang með grasvelli,
hlaupabrautum og öðru til-
heyrandi. Völlurinn sé girtur
þannig að hægt verði að selja
inn á hann. Við hann verða
áhorfendasvæði fyrir um 10
þús. áhorfendur.
2. 1 malarvöllur.
3. Grassvæði til knattspyrnu-
æfinga 140X140 metrar.
4. Kastsvæði til æfinga í spjót,-
kringlu-, og sleggjukasti.
5. íþróttahús 50X70 metrar með
áhorfendarými.
6. Sundlaug.
7. Búningsherbergi og böð fyrir
öll mannvirkin ásamt bílastæð-
um.
Þessi aðstaða verður síðan
nýtt bæði fyrir íþróttafélög og
borgarbúa almennt, bæði til
æfinga, keppna og almennrar
heilsuræktar.
Með byggingu iþróttahúss af
þessari gerð er farið inn á
braut, sem mjög er tiðkuð í
nágrannalöndum okkar og
þykir gefast mjög vel. Þarna
verður t.d. hægt að æfa á 3
fullstórum handboltavöllum í
senn. Aðstaða verður þar fyrir
hlaup og stökk og sum köst
munu njóta sín þar fullkom-
lega.
Þegar litið er yfir þessar fram-
kvæmdir, sem nú er verið að
vinna að og framundan eru, sést
glögglega að borgarstjórn hefur
markað stórhuga stefnu á sviði
íþróttamála, sem mun tryggja öll-
um aðgang að íþróttamannvirkj-
um i borginni, sem vilja iðka holl-
Framhald á bls. 20.