Morgunblaðið - 11.01.1974, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 11.01.1974, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. JANUAR 1974 Þútur í skóginum Eftir Kenneth Grahame „Þessu er öllu lokið,“ sagði hún. „Mér skilst, að hreysikettirnir, sem voru nógu taugaspenntir fyrir, hafi orðið svo hræddir, þegar þeir heyrðu óhljóðin í mörðunum, að þeir fleygðu strax frá sér vopnum og Hvaða myndir eru eins? UIUIIJ •ju 8o nfjíf ju puXj\i :usnKri lögðu á flótta. Sumir þeirra að minnsta kosti. Hinir stóðu vörðinn heldur lengur, en þegar merðirnir komu æðandi í áttina til þeirra, þá héldu þeir, að nú hefðu þeir verið sviknir. Og hreysikettirnir tókust á við merðina og merðirnir reyndu allt hvað þeir gátu til að komast undan. Þeir bitust og klóruðu og veltust hver um annan þveran, þangað til flestir lentu í ánni. Að minnsta kosti sést hvorki tangur né tetur af þeim núna. Og ég náði rifflunum þeirra, svo allt er í himnalagi.“ „Ágæta, hugprúða dýr,“ sagði greifinginn með munninn fullan af kjúklingakjöti. „Nú ætla ég að- eins að biðja þig að ljúka við eitt verkefni enn, áður en þú sezt að snæðingi með okkur. Mér þykir leitt að vera að snúa þér þetta, en ég veit, að þér má treysta til verka. Ég vildi óska, að sama gæti ég sagt um alla, sem ég þekki. Ég mundi senda rottuna, ef hún væri ekki svo skáldlega sinnuð. Ég ætla að biðja þig að fara með þessa vesalinga, sem liggja þarna á gólfinu, upp með þér og láta þá gera hreint og þokkalegt í nokkrum svefnherbergjum. Sjáðu um, að þeir sópi líka undan rúmunum og setji hreinan sængurfatnað í þau og bretti niður annað hornið á ábreiðunum, eins og þú veizt að gera ber. Og þeir eiga að láta heitt vatn í könnurnar, taka fram hrein handklæði og ný sápustykki og setja í öll herbergin. Og svo geturðu löðrungað þá hvern og einn obbolítið, ef þér er þægð í því og látið þá síðan fara út um bakdyrnar. Ég geri ekki ráð fyrir að þeir ónáði okkur í bráðina. Og komdu svo og fáðu þér sneið af þessari ágætu tungu. Hún er alveg fyrsta flokks. Þú ert mér mjög að skapi, moldvarpa.“ Hin hugprúða moldvarpa tók sér lurk í hönd, lét fangana raða sér í einfalda röð, gaf þeim skipanir: DRATTHAGI BLYANTURINN £Nonni ogcTVIanni eftir Jón Sveinsson Freysteinn Gunnarsson þýddi „Ég hugsa, að það sé stórskip, sem farið hefur fram- hjá okkur“, svaraði ég. „Eða kannske jarðskjálfti“. Varla hafði ég sleppt orðinu, þegar báturinn okkar hófst á loft enn hærra en áður. Og það gerðist svo snögglega og óvænt, að okkur rak í rogastanz. Við litum í áttina, sem aldan kom úr. Þá blasti við okkur sú sjón, sem fyllti okkur hrolli og skelfingu. Við sáum örskammt frá okkur, livar óhemjustór, biksvört og gljáandi ófreskja kom upp úr yfirborði sjávarins. í sama bili heyrðum við sama blásturinn og áður, og um leið gaus upp heljarmikil hvít stroka úr þessari ófreskju lóðrétt upp í loftið. Stroka þessi, sem fyrst sýndist eins og reykur, breyttist í regn, sem steyptist yfir okkur að nokkru leyti. Nú skildum við, hvemig í öllu lá. Við höfðum lent inni í miðri hvalaþvögu. Þeir byltu sér á yfirborðinu og blésu vatnsstrókum hátt í loft. Ég skildi það undir eins, að við vorum í mikilli hættu, því að smábátur eins og okkar er leikfang eitt í hvalaþröng. Ef svo færi, að hvalur lenti undir bátnum, gat hann kastað honum frá sér eins og leiksoppi og hvolft honum. Við urðum því að forða okkur sem allra bráðast úr þessum háska. Ég settist undir árar í snatri og bað Manna að stýra sem skjótast burt frá hvalnum, sem við höfðum séð. Ég reri af öllu afli, og brátt fjarlægðumst við. Samt sá ég hvalina skjóta framhlutanum af heljar- kroppi síniun upp úr sjónum og síga svo hægt og hægt niður aftur. (IkÖino^unkQffinu 't’M — Það er í lagi, viS tökum buffið aftur, en þér verðið að greiða bætur fyrir hnífa- pörin.. . — Það er gott, að þú kannt ekki að tala Snati minn... því að annars gæti ég aldrei skotið orði inn í... P.EMSU.UU. — Þú og þínar ódýru sumar leyfisferðir...

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.