Morgunblaðið - 13.01.1974, Page 1
10. tbl. 61. árg.
SUNNUDAGUR 13. JANÚAR 1974
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Sovétríkin:
Þessa mynd tók Sigurgeir í
Eyjum f Herjólfsdal fyrir
skömmu, þegar frostin miklu
réðu rfkjum. Peyjarnir í Eyj-
um notuðu strax tækifærið og
sigldu á jökunum á tjörninni í
Herjólfsdal. Þarna eru tveir og
það er auðséð. að jakinn er
kominn á siglingu, þvf að skip-
stjórinn brosir sínu bl iðasta.
Skiala-
smygl
• •
Moskvu, 12. jan. AP.
SOVÉZKIR tollverðir gerðu
nýlega upptæk skjöl af ýmsu tagi,
þar á meðal skjal eftir skáld-
konuna Lidiyu Chukovskayu,
sem brezkur ferðamaður ætlaði
að re.vna að smygla úr landi. I
skjalinu veitti Chukovskaya
landa siðnum Zhores Medvedev
umboð til að taka út ritlaun sín á
Vesturlöndum, að því er sovézk
blöð greindu frá í dag.
Mörg af skjölunum höfðu að
geyma „heiftúðugan andsovézkan
áróður" sagði í tilkynningu
blaðanna. Bretinn, sem heitir
Michael Scammel, er ritstjóri
menningarritsins „Index" og
hann hefur þýtt margt sovézkra
verka á ensku. Scammel mun
hafa verið leyft að fara
heimleiðis, eftir að plöggin höfðu
veriðtekin úrpússi hans.
Lidiya Chukovskaya var rekin
úr sovézka rithöfundasamband-
inu fyrir fáeinum dögum fyrir að
verja vísindamanninn Andrei
Sakharov opinberlega. Hún er
þékktust á Vesturlöndum fyrír
skáldsögu sina, sem ber á ensku
titilinn „The deserted house“, og
fjallar sú bók um hreinsanir
Stalíns á árunum milli 1930 og
1940.
Kissinger og Sadat
ræddu saman í gær Hækka
Ákærðir
fyrir morð
Carrero
Blancos
SEX menn, sem álitnir eru
morðingjar Luis Carrero Blanoos
forsætisráðherra Spánar, hafa nú
verið formlega ákærðir fyrir
morðið af sérlegum dómara, sem
annast málið. Kom þetta m.a. í
frétt Cifa-fréttastofunnar í gær,
og segir fréttastofan, að
dómarinn hafi einnig farið fram
á, að mennirnir yrðu framseldir,
en nokkrir þeirra eru sagðir vera
í Frakklandi.
Fyrir nokkrum dögum fór
spánska ríkisstjórnin þess á leit
við alþjóðalögregluna Interpool,
að hún aðstoðaði við handtöku
mannanna. Lögreglan á Spáni
hefur lýst því yfir, að hún telji
morðingja Carrero Blancos vera
sex félaga i skæruliðahreyfingu
Baska, E.T.A.
Aswan, Egyptalandi,
12. jan., AP.
HENRY Kissinger utanrfkisráð-
herra Bandaríkjanna og Anwar
Sadat forseti Egyptalands héldu
áfram viðræðum sínum í Aswan
fram eftir laugardegi og segja
fréttamenn, að þeir hafi virzt f
sólskinsskapi og hafi farið hið
bezta á með þeim, enda þótt farið
sé gætilega f að spá stórbrotnum
árangri af fundum þeirra að
sinni.
Þau atriði, sem þeir ræddu í
morgun, voru meðal annars stærð
hlutlausa beltisins, þar sem eftir-
litssveitir Sameinuðu þjóðanna
myndu halda sig, hversu langt
aðskilnaðarherirnir ættu að fara
og hvernig ætti að tengja aðskíln-
að herjanna og brottflutning Isra-
ela frá Súezskurðinum svo að vel
Kissinger hafði sér til ráðuneyt-
is Ellsworth Bunker sendiherra
og með Sadat var utanrikisráð-
herra hans, Ismail Fahmy.
Áður en fundirnir í morgun
hófust skoðaði Kissinger Aswan-
stífluna og segja fréttamenn, að
hann hafi sýnt hinn mesta áhuga
á þessu mikla mannvirki og spurt
ýmissa spurninga.
Kissinger mun næst fljúga til
Tel Aviv og ræða við Goldu Meir
og fá tillögur ísraelsstjórnar, en
síðan er búizt við, að hann haldi á
ný til Egyþtalands til að bera þær
tillögur undir Egyptalandsfor-
seta.
Var njósnað
um Kissinger
18 millj. dala lausnargjald
Buenos Aires, 12. janúar, A'P.
ARGENTÍSKU skæruliða-
samtökin, sem rændu
bandaríska iðjuhöldinum P.
Samuelson í deseinber sl., hafa
sent tiikynningu til blaða í
Buenos Aires, þar sem segir. að
Essoolíufélagið, sem Samuelsin
veitti forstiiðu, hafi fallizt á að
greiða 18 milljónir dollara f
lausnargjald, sem verður í
formi matarkaupa handa fá-
tækum í landinu.
Talsmenn oliufélagsins vildu
ekki staðfesta þessa frétt. Sé
hún rétt er hér um að ræða
hæsta lausnargjaid, sem
nokkru sinni hefur verið greitt.
Washington 12. janúar AP-NTB
ÁRIÐ 1971 komust hinir svo-
kölluðu „pípulagnangamenn“sér-
leg njósnasveit Hvíta hússins,
sem mjög hefur komið við sögu í
Watergate-málinu, á snoðir um
það, að bandaríska herráðið hefði
haldið uppi njósnum um Henrv
Kissinger, þáverandi öryggis-
málaráðgjafa Nixons forseta, að
þvf er heimildir, sem standa
nálægt rannsókn þessa máls,
sögðu í dag. Hefði þessi upp-
götvun haft f för með sér nokkra
uppstokkun meðal yfirmanna
ráðsins m.a. hafi Robert
Welander, hershöfðingi, sem
gengt hafði lykilstarfi í varnar-
málaráðuneytinu, verið fluttur í
aðra stöðu svo lítið bar á.
Segir blaðið Chicago Tribune
m.a. í dag, að þeir ráðuneytis-
menn hafi verið gramir út í
Kissinger vegna þess, að hann
hafi neitað starfsmönnum þeirra
aðgang að mikilvægum leyni-
þjónustugögnum, sem ekki komu
hermálum beinlínis við, og því
hafi þeir brugðið á það ráð, að ná
þessum upplýsingum á annan
hátt. Einn af starfsmönnum
Kissingers á þannig að hafa verið
sagt upp fyrir að láta gögnin
„leka“ til varnarmálaráðuneytis-
ins og njósnahauka þess.
Þessar fregnir hafa verið
bornai’ til baka í dag af talsmönn-
um ráðuneytisins.
olíuna
samt
Caracas, 12. janúar — Ntb.
VENEZUELA gerði það lýðum
Ijóst í gær, að landið mundi
hækka olíuverðiö 1. febrúar næst-
komandi eins og upphaflega
hafði verið gert ráð fyrir, þrátt
fyrir ákvörðun samhands olfuút-
flutningsríkja (OPEC) uin að
halda verðinu föstu fram til 1.
aprfl.
Venezuela á aðild að OPEC, en
tekur þessa ákvörðun i blóra við
samþykkt sambandsins. 1. janúar
næstum því tvöfaldaðist verðið á
olíu frá Venezuela, og Hernandez
námumálaráðherra landsins sagði
f gær, að verðið fyrir febrúar yrði
ákveðið á næstu tveimur vikum.
Solzhenitsyn landráða-
maður eins og Hamsun
segir sovézkt menningartímarit
Moskva, 12. jan., NTB.
Sovéska menningarmálgagnið
Sovetskaia Kultura, bar í dag
saman rithöfundinn Alexander
Solzhenitsyn og Knut Ilamsun,
sem var leiddur fyrir rétt sem
landráðamaður eftir síðari
heimsst.vrjöldina vegna
föðurlandssvika og fylgi-
spektar við nasista í Noregi á
stríðsárunum. Þá hélt Pravda,
flokksmálgagniö, áfram árás-
um sínum á Solzhenitsyn vegna
þess, að hann hefði látið gefa
nýjustu bók sína út í Frakk-
landi. Nóbelshöfundurinn
Heinrich Böll, bar í dag fram
þá tillögu að Solzhenitsyn fengi
að gefa verk sitt út í Sovét-
rfkjunum.