Morgunblaðið - 13.01.1974, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JANUAR 1974
3
úr verinu
EFTIR EINAR SIGURÐSSON
Tíðarfarið
Ekki er að búast við góðri tíð
eða miklum aflabrögðum um
þennan árstíma, enda hefur ekki
brugðið út af vananum í þessum
efnum, þar sem af er árinu, og
gæftir verið stopular.
Aflabrögð
Enn sem komið er hafa sárafáir
bátar hafið róðra hér sunnan-
lands. Nokkrir bátar eru byrjaðir
með linu frá Suðurnesjum og ein-
staka með botnvörpu.
Frá Vestmannaeyjum róa
nokkrir bátar með net, en fiskur-
inn hefur viljað verða nokkurra
nátta í netunum, allt upp í 4ra, og
þykir það síður en svo gott.
Annars hefur bátum, sem ætla
að veiða loðnu, ekki enn verið
haldið til veiða, mönnum hefur
ekki þótt taka því að byrja annan
veiðiskap. Það er lika mikið um
lagfæringar á skipum og vélum.
Togararnir hafa yfirleitt verið
vestur af landinu bæði fyrir vest-
an, þar sem þeir hafa verið að fá
mikið af flatfiski og eins út af
Jökli. Afli hefur verið tregur, eitt
skip, Þormóður goði, landaði í
Reykjavík i vikunni 135 lestum.
Erlendar sölur.
Svo að segja allir togararnir
hafa veitt fyrir erlendan markað
og nokkrir bátar, enda hefur
verðið verið geysihátt, einkum i
Bretlandi.
Þessi skip seldu erlendis í vik-
unni:
England: Lestir Krónur Kg
Dagstjarnan 82 5.133.000 62/60
Uranus 82 6.323.000 77/10
Ögri 130 9.676.000 74/43
Kaldbakur 71 5.200.000 73/23
Maí 153 10.288.000 67/24
Harðbakur 74 5.445.000 73/58
Þýzkaland
Víkingur 147 7.564.000 51/45
Forðabúrið
Mikið hefur verið talað og skrif-
að undanfarið um olíuvanda-
málið. Það er engu líkara en
menn hafi vaknað við martröð.
Allir sváfu svefni hins áhyggju-
lausa manns, en allt i einu var
likast því, sem verið væri að
kyrkja hinn iðnvædda, vestræna
heim og Japan. Menn drógu úr
framleiðslunni, fækkuðu vinnu-
dögum, spöruðu hita og ljós,
fækkuðu flugferðum, óttúðust,
að þeir fengju ekki olíu í
erlendum höfnum til að koma
skipum sínum leiðar sinnar.
Alls staðar greip oliuskorturinn
og óttinn við hann inn í daglegt Iif
manna.
Guð hjálpi okkur. eigum við að
fara að sitja í óupphituðum hús-
um og í dimmunni. Og allt þetta
var samt ekki nóg til að fylla
mælinn. Heimsstyrjöld gat orðið
næsta skrefið. í síðustu viku lýsti
varnarmálaráðherra Bandaríkj-
anna því yfir, að héldu Arabarik-
in áfram að eyðileggja iðnað
hinna vestrænu þjóða, gæti það
leitt til styrjaldar. Þessa skoðun
var raunar einn af þingmönnum
Bandaríkjanna búinn að láta í ljós
snemma i haust, Iöngu áður en
olíuskorturinn varð slíkur sem
hann átti eftir að verða síðar. Hér
er á ferðinni sama fyrirhyggju-
leysið og hjá Bretum um fisk-
stofnana.
Komið var til sögunnar nýtt
vopn, sem fylgdi jafnvel enn
meiri eyðilegging en kjarnorku-
og vetnissprengjunni. Þótt það
væri seinvirkara, náðu áhrif þess
um mikinn hluta heimsins.
Enginn hafði gert sér grein fyr-
ir því, að oliuna kynni að þrjóta í
olíulindum i löndum Arabanna.
Nýlega sagði íranskeisari, að með
sömu notkun entist olían ekki
nema í þrjátiu ár. Þrjátiu ár, hvað
er það? Ekki hálfur mannsaldur.
íslendingar ætla á þessu ári að
halda upp á 1100 ára byggð í einu
yngsta landi veraldar.
Er þessi keisari eini raunsæi
maðurinn i heiminum Af hverju
hefur engum dottið það fyrr i
hug, að þjóðir hins norðlægari
hluta heims yrðu að flýja suður á
bóginn eins og á ísaldartima-
bilinu til þess að b.jarga lífinu.
Og er þá olían eina hráefnið i
heiminum, sem er að ganga til
þurrðar? Hvað um algengustu
fæðutegundir mannsins, kjöt og
fisk, jafnvel korn? Allt er þetta
háð þvi, að olía sé til. En þótt svo
væri ekki, hvað Iíður matvæla-
framleiðslunni handa hinu sí-
fjölgandi mannkyni?
Við sjáum hér á íslandi, hvern-
ig þorskfiskurinn hefur minnkað
á hverju ári þrátt fyrir aukna
sókn. Alltaf stækka þau svæði,
sem árlega blása upp og verða að
svörtum sandi öræfanna eða ber-
um klöppum. Hér er ýmist um að
kenna of mikillli beit eða skorti á
áburði. Eða þá að náttúran fær
ekki staðist samskiptin við hina
óblíðu veðráttu. Framleiðsla
áburðar er líka háð olíu þrátt fyr-
ir alla okkar raforku.
Island ætti að geta verið auðugt
forðabúr fyrir þessa fámennu
þjöð, ef skynsamlega væri á hlut-
unum haldið og með fyrirhyggju.
Þegar stjórnmálaflokkur er í
mótun, leggjast hugmynda-
fræðingar undir feld og gera til-
Iögur um eitt og annað, sem þjóð-
inni mætti verða til gagns og
gengis, eða verður að vona.
En hvað væri nú, ef þeir, sem
bera öðrum fremur ábyrgð á lífi
og tilveru þjóðarinnar í þeim
heimi, sem er að verða örsnauður
af hvers konar lifsbjörg, hvort
heldur úr ríki náttúrunnar eða
margháttuðum iðnvarningi, sem
hann getur ekki lengur án verið,
skipuðu nú þúsundustu og fyrstu
nefndina til þess að koma með
tillögur um, hvernig Islendingar
ættu að búa sig undir baráttuna
við hungrið og kuldann.
Hér mætti varpa fram nokkrum
ósköp fátæklegum hugmyndum,
meiri til umhugsunar um ýmsa
hluti, sem gætu orðið til þess að
vekja almenning, eins og spáin
um, að olían entist ekki nema til
einnar nætur í sögu þjóðar:
1) Rafvæða landið eins og kost-
ur er, á meðan þjóðin aflar enn
það mikils fisks að hún getur
borgað rafvæðinguna, en þarf
ekki að borða hann allan sjálf. Og
hér þarf auðvitað að hafa fvrst og
fremst í huga þarfir þjóðarinnar.
Gull erlendra þjóða er einskis
virði, þegar ekki fást lengur fyrir
það lifsnauðsynjar. Saga um Mid-
as verður að veruleika.
2) Bæta jörðina á meðan tími er
til, og umgangast hana og fiski-
miðin með skynsemi og með það
fyrir augum, að þessar undir-
stöðulindir Islendinga geti orðið
forðabúr, þegar á reynir. Aukin
ræktun, skógrækt og landgræðsla.
3) Undir það siðasta, er olían
gengur til þurrðar, verður um
hana ógurlegt kapphlaup, svo að
búið getur verið að ráðstafa henni
löngu áður en frestur íranskeis-
ara er útrunninn. Það er þegar
hafið. Það þarf því að fara að
huga að því, hvernig landsmenn
gætu dregið sér björg úr hafinu
án olíu. Og eins hvernig þeir gætu
nýtt jörðina án hjálpar þessa mik-
ilvæga orkugjafa.
4) Stefna þarf að þvi, að landið
geti orðið sjálfu sér nógt á sem
flestum sviðum, og getur þá orðið
að koma upp ýmiss konar verk-
smiðjum, fyrst og fremst til að
framleiða nauðsynjar þjóðarinnar
í algjörum olíu- og hráefnaskorti í
heiminum.
5) Flytja ekki inn erlent verka-
fólk, jafnvel þó að nú séu hávær-
ar raddir um vinnuaflsskort, það
væri aðeins til þess að þurfa að
metta, klæða og veita húsaskjól
fleiri, þegar í nauðirnar ræki.
Mikill skaðvaldur
Það er óhrekjaniega sannað. að
selurinn veldur meiri skaða á
fiskstofnunum hér við land en
janvel nokkur annar skaðvaldui',
og eru þeir þó margir.
Talið er, að selurinn éti sem
svarar jafnmikið af fiski og þýzk-
ir togarar veiða. um 80.000 lestir,
eða jafnvel eins mikið og Bretar,
um 130.000 lestir.
Þar að auki er sannað, að gegn-
um selinn berst hringormurinn,
sem áætlað er, að kosti islenzkan
fiskiðnað ekki minna en 100 millj-
ónir króna árlega í auknum
vinnulaunum auk þess sem hluti
framleiðslunnar fer á verðlægri
markaði af þessum sökum, og
gæti þýtt aðra eins fjárhæð.
Aukin frysting 1973
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
flutti út síðastliðið ár 68.224 lestir
(66.700 árið 1972) af frosnum
sjávarafurðum fyrir kr. 6.580.000
(5.234.000 árið 1972).
Félag sambandsfiskframleið-
enda (SlS) flutti síðastliðið ár út
21.687 lestir (17.720 árið 1972) af
frosnum sjávarafurðum fyrir kr.
2.423.004 (1.758.570 árið 1972).
Verður vel séð fyrir
leitinni?
Norska hafrannsóknastofnunin
sendir leitar- og rannsóknarskip á
loðnumiðin. Alls taka 400 norsk
skip þátt i veiðunum, og mega þau
veiða alls, eins og áður hefu' ver-
ið skýrt frá, 650.000 lest.r af
loðnu.
Hér er talið, að loðnuskipin
verði um 130 talsins. Veiðin í
fyrra varð 430.000 lestir, en gert
er ráð fyrir 1/3 meiri sókn nú en
þá. Með sömu skilyrðum gæti þvi
loðnuveiðin hér orðið upp undir
eins mikil og í Noregi.
Mjög nauðsynlegt er að geta
unnið loðnu i öllum verksmiðjum
landsins, ef á þarf að halda, sem
lítill vafi ér á, ef loðnan hagar sér
líkt og i fyrra og tíðin verður góð.
Hvernig verður séð fyrir loðnu-
rannsóknum og leitinni af ís-
lenzku Hafrannsóknastofnun-
inni? Hvað er ætlunin að hafa
Framhald á bls. 26.
FERÐAALMANAK ÚTSYNAR
1974
4
!
»
*
í
5, 12., 19., 26
7.
7.
11. 09 25
13 og 24.
3 . 10.. 17..
8. og 22
14. og 28
24.
24.
Janúar:
ENGLAND: LONDON — 7 dagar
AUSTURHlK!: SkiBalerí lil LECH — 2,1 dagur
NORÐURLÖND: KAUPMANNAHÖFN — vikudvöl
SKOTLAND: GLASGOW — 3 dagar
KANARÍEYJAR — 12—22 dagar
Febrúar:
ENGLAND: LONDON — 7 dagar
SKOTLAND: GLASGOW — 3 dagar
KANARÍEYJAR — 15 dagar
AUSTURRÍKI: Skiöaferð til ZELL AM SEE — 16 dagar
NORÐURLÖND: KAUPMANNAHÖFN — vikudvöl
2.. 9 . 16.. 23.. 30 ENGLAND LONDON — 7 dagar
2 NORÐURLÖND: KAUPMANNAHÖFN — vikudvöl
2 AUSTURRÍKI. Skiðaferð til ZELL AM SEE — 16 dagar
8 og 22. SKOTLAND: GLASGOW — 3 dagar
14 KANARÍEYJAR — 22 daqar
Apríl:
4 og 18
5 og 19
6
6 og 9
7., 21.. 28
7
21
2
5.. 12.. 19., 26
10. og 24
12
30
31
KANARÍEYJAR — 15 dagar
SKOTLAND: GLASGOW — 3 dagar
AUSTURRÍKI Skiðaferð til ZELL AM SEE — 16 dagai
NORÐURLÖND: KAUPMaNNAHÖFN — vikudvöl
ENGLAND LONDON — 7 dagar
SPÁNN: COSTA DEL SOL — 15 dagar — PÁSKAFERÐ
SPÁNN: COSTA DEL SOL — 22 dagar — VORFERÐ
KANARÍEYJAR — 22 dagar
ENGLAND LONDON — 7 dagar
SKOTLAND: GLASGOW — 3 dagar
SPÁNN: COSTA DEL SOL — 22 dagar — BLÓMAFERÐ
NORÐURLÖND: KAUPMANNAHÖFN — vikudvöl —
ÍTALÍA: LIGNANO — GULLNA STRÖNDIN —21 dagur
1 SPANN: COSTA DEL SOL — 19 dagar
6 , 9 og 16 NORÐURLÖND: KÁUPMANNAHÖFN — vikudvöl — (má framlengja)
9 og 23 ENGLAND LONDON — vikudvól (má framlengja)
19 SPÁNN: COSTA DEL SOL — 15 dagar
20. ÍTALÍA: LIGNANO — GULLNA STRÖNDIN — 15—29 dagar
23. NORÐURLÖND: KAUPMANNAHÖFN — vikudvöl — (má framlengja)
23 ÞÝZKALAND: MOSEL/RÍN — vikuferð með bil i vikudvöl i Kaupmanna
höfn (má framlengja) (TJÆREBORG)
30. SPÁNN COSTA BRAVA — LONDON — 18 dagar
30 NORÐURLÖND: KAUPMANNAHÖFN — vikudvöl — (má framlengja)
•3
4
7
7
11
11
17
18
18
21
‘24
25
25
26
31
SPÁNN COSTA DEL SOL — 15—29 dagar
ITALÍA LIGNANO — GULLNA STRÖNDIN — 15—29 dagar
NORÐURLÖND: KAUPMANNAHÖFN — vikudvöl — (má framlengja)
ENGLAND LONDON — vikudvöl (má framlengja)
SPÁNN COSTA DEL SOL — 14 dagar
NORÐURLÖND: KAUPMANNAHÖFN — vikudvöl — (má framlengja)
ÞÝZKALAND: MOSEL/RÍN — vikuferð með bil *■ vikudvöl I Kaupmanna
höfn (má framlengja) (TJ/EREBORG)
NORÐURLÖND KAUPMANNAHÖFN — vikudvöl — (má framlengja)
SPÁNN COSTA DEL SOL — 15—22—29 dagar
ÍTALÍA: LIGNANO — GULLNA STRÖNDIN — 15—29 dagar
NORÐURLÖND KAUPMANNAHÖFN — vikudvöl — (má framlengja)
ENGLAND. LONDON -- vikudvöl (má framlengja)
SPÁNN COSTA DEL SOL — 15—22—29 dagar
NORÐURLÖND KAUPMANNAHÖFN — vikudvöl — (má framlengja)
SPÁNN COSTA DEL SOL — 14 dagar
OSLO — vikudvol (má framlengja)
SPÁNN COSTA DEL SOL 15—22—29 dagar
Agúst:
ÍTALÍA: LIGNANO — GULLNA STRÖNDIN — 15—29 dagar
NORÐURLÖND: KAUPMANNAHÖFN — vikudvöl — (má framlengja)
MALLORCA — LONDON — 17 dagar — (má framlengja)
SPÁNN: COSTA DEL SOL — 15—22—29 dagar
SPÁNN: COSTA DEL SOL — 15 dagar
NCRÐURLQND: KAUPMANNAHÖFN — vikudvöl — (má framlengja)
FERÐASKRIFSTOFAI\l<
AUSTURSTRÆTI 1 7 (SILLA OG VALDA)
SÍMAR
26611
20100.
8 ÍTALÍA: GARDAVATN — 14 daga bilferð * 3 dagar i Kaupmannahöfn
(má framlengja) (TJÆREBORG)
11. ÞÝZKALAND MOSEL/RÍN — vikuferð með bil) - vikudvöl i Kaupmanna-
höfn (má framlengja) (TJÆREBORG)
11 NORÐURLÖND: KAUPMANNAHÖFN — vikudvöl — (má framlengja)
11. ENGLAND: LONDON — vikudvöl (má framlengja)
11 ÍTALÍA: GARDAVATN — 1—2 vikur — flugferð ♦ vikudvöl i Kaup-
mannahöfn (má framlengja) (TJÆREBORG)
11 SPÁNN COSTA BRAVA — LONDON — 18 dagar
14 SPÁNN: COSTA DEL SOL — 15—22—29 dagar
15. AUSTURRÍKI ZILLERTAL — 14 daga billerð Kaupmannahöfn (TJÆREBORG)
15. NORÐURLÖND: KAUPMANNAHÖFN — vikudvol — (má framlengja)
15. ÍTALÍA: LIGNANO — GULLNA STRÖNDIN — 15—29 dagar
19 GRIKKLAND AÞENA/LOUTRAKI — 15 dagar Kaupmannahofn (TJÆREBORG)
19 NORÐURLÖND KAUPMANNAHÖFN — vikudvöl — (má framlengja)
20 SPÁNN COSTA DEL SOL — 15 dagar
21. SPÁNN COSTA DEL SOL — 15—22—29 dagar
22. MALLORCA — LONDON — 17 dagar — (má framlengja)
22. ÍTALÍA GARDAVATN — 14 daga bilferð 3 dagar i Kaupmannahöfn
(má framlengja) (TJÆREBORG)
22 NORÐURLÖND: KAUPMANNAHÖFN — vikudvol - (má framlengia)
22 SPÁNN COSTA DEL SOL — 15—22—29 dagar
25. SPÁNN, COSTA BRAVA — LONDON — 18 dagar
25. ENGLAND: LONDON — vikudvól (má framlengja)
27. MALLORCA — LONDON — 17 dagar (má framlengja»
28. SPÁNN COSTA DEL SOL — 15- 22—29 dagar
29. ÍTALÍA LIGNANO — GULLNA STRÖNDIN 15 dagar
September:
1. GRIKKLAND RHODOS — 14 dagar Kaupmannahofn (TJÆREBORG)
1. GRIKKLAND AÞENA, LOUTRAKI — 14 dagar ■ Kaupmannahofn (TJÆREBORG)
1. NORÐURLÖND: KAUPMANNAHÖFN — vikudvol — • (má framlengja)
3 MALLORCA — LONDON — 17 dagar (má framlengja)
4 SPÁNN COSTA DEL SOL — 15-22- 29 dagar
5 SPÁNN COSTA DEL SOL — 15 dagar
8 ENGLAND. LONDON — vikudvol (ma framlengja)
8 NORÐURLÖND: KAUPMANNAHÖFN — vikudvol — (má framlengja)
11 SPÁNN: COSTA DEL SOL — 15—22 dagar
15 ENGLAND: LONDON — vikudvöl (má framlengja)
15 NORÐURLÖND KAUPMANNAHÖFN — vikudvöl (má framlengja)
15 GRIKKLAND AÞENA/LOUTRAKI Kaupmannahöfn — 18 dagar (má
framlengja) (TJÆREBORG)
18. og 19 SPÁNN COSTA DEL SOL — 15 dagar
22 ENGLAND: LONDON — vikudvöl (má framlengja)
25 SPÁNN COSTA DEL SOL — LONDON — 18 dagar
Október:
27 SPANN COSTA OEL SOL — 14—30 dagar
6 . 13 . 20.. 27 ENGLAND LONDON — 7 dagar
16. SPÁNN COSTA OEL SOL — LONDON — 18 dagar