Morgunblaðið - 13.01.1974, Qupperneq 4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. .IANÚAR 1974
ÍMjl Ití t.A I.IU.X \
Æ'AIAIt;
22-0-22-
RAUDARÁRSTIG 31
x;
BILALEIGA
CAR RENTAL
TS 21190 21188
tel 14444 • 25555
VI
pHverfisgölu 1 81
SENDUM 0 86060 J
(c*
BÍLALEIGAN
51EYSIR
CARRENTAL
'«‘24460
í HVERJUM BÍL
niOMŒCEn
ÚTVARP OG STEREO
KASSETTUTÆKI
SKILTI A GRAFREITI
OG KROSSA
Flosprent s.f.
Nýlendugötu 1 4,
sími 1 6480.
SAFNAST ÞEGAR
SAMAN
^ SAMVINNUBANKINN
InnlánMiiðNkipti lcið
til Ián«viðskipta
BÚNAÐARBANKI
ÍSLANDS
lÉk
margfoldar
markað yðar
Hvað um útsýnið? - Hvernig er framrúðan?
A helgumstaðstandaþessiorð:
„Ef auga þitt er heilt mun allur
líkami þinn vera í birtu. Sé
auga þitt sjúkt, þá mun allur
líkami þinn vera í myrkri.
Augaðer lampi líkamans."
En við getum byrgt fyrir sýn.
Lokað gluggum, unz ekki eru
eftir annað en kýraugu. Horft á
heiminn gegnum litað gler
blekkinganna eða spégler ósk-
hyggju og ósanninda.
Þá fer fljótlega verr en
skyldi. Öðar en varir stefnt út í
hættur og fram af hengiflugi.
Hvernig horfir þú á heiminn?
Hvað viltu sjá? Hvað sérðu?
Njóta augun sín? A framrúðu
bifreiðar þinnar er þurrkan. Sé :
glerið óhreint verður útsýnið
óskýrt og grámóskulegt. Þú
býður hættunni heim.
En þá er auðvitað hægt aðýta
á takka. Þurrkan fer af stað og
fágar rúðuna. Og sé hún þess
ekki umkomin, er ýtt á annan
takka og hreint vatn streymir
um rúðuna. Og innan stundar
er hún hrein og tær. Nú ertu
ekki lengur i hættu. Og um
vitund þína streymir gleðigeisli
öryggis og ánægju. Þú leggur af
stað. Þetta er líkt og að þurrka
af gleraugunum sínum.
Umhverfið breytir um svip. Og
inn í hugans hyl leggur æðri
birtu.
Ösköp er þetta hversdagslegt,
hugsar einhver, sem les.
En hversdagslegir hlutir eru
oft myndir hins mikla og
heilaga úr heimi spekinnar. Og
þessir hlutir minna á, hvort
þessi tæki séu í lagi í hugar-
heimi og hjartafylgsnum. Þar
eru þau ennþá mikilsverðari.
Svo mikilsverð, að vafamál
yrði, hvort önnur tæki, til
dæmis í bílnum, væru til án
þeirra eða hugsað um að nota
þau.
Það er svo auðvelt tómlátum,
lötum og kærulausum að láta
rykið sitja óáreitt á framrúðum
bifreíðar. En hvað gæti af þvi
jarðar smáu
er blað, sem margt er skrifað
á um þig.'“
Svona er allt, ef það er séð
glöggt og í réttu ljósi. Annað
ljóð segir með jafnmiklum
sanni:
„Þóttkóngar fylgdust-allir að
með auð og veldi háu.'
þeir megnuðu ei hið minnsta
leitt? Slys, tap, örkuml,
harmar, dauði.
En það er Iíka auðvelt að láta
sína eigin sálarsjón byrgða,
rykfallna, gretta og gráa —
greina ekki sólskin né unað
dagsins, loka sig inni í sinni
eigin „ég“-gaddavirsgirðingu,
þar sem þú situr við símann á
skrifstofunni, innan við búðar-
borðið, gangandi á götunni,
sitjandi í strætisvagni eða
krjúpandi við kirkjuskör
safnaðar þins.
I ijómandi fallegu Ijóði eru
þessi orð:
„Guð, allur heimur,
eins i lágu og háu
er opin bók um þig,
er fræðir mig,
já, hvert eitt blað á blómi
blað
að mynda á blómi smáu."
Svona liggur dýrð lífsins
fyrir opnum augum, þar sem
hversdagsblindan sér ekki neitt
og tótum treður fegurðina. Mér
var sagt um daginn af efna-
verkfræðingi ungum, sem
kom heim um jólin. Hann hafði
sagt:
„Þið ættuð bara að sjá einn
vatnsdropa stækkaðan tíu
þúsund sinnum. Það er heill
heimur," bætti hann við,
„fullur af lifi, baráttu, sigrum
og ósigrum, undrum og ráð-
gátum."
Svona er að sjá — sjá glöggt
opnum augum, gegnum skærar
rúður vísindanna einn einasta
vatnsdropa. Og hvað er hér
stórt og hvað er smátt?
„1 hverju strái er
himingróður.
i hverju dropa reginsjór."
En hvar sem við göngum og
hvert sem við stefnum, ætti að
hafa augun opin, byrgja ei
sólarsjón. Þá verður líf hvers
dags auðugra, slysum fækkar,
sælan og þroskinn eiga þá
greiðari aðgang að fjárhirzlum
sálar. Myrkrið í vitundinni
verður ljós.
Og þótt mikið sé og margar
furður við veginn, ef virt eru
fyrir sér blóm og vötn, lönd og
höf, þá eru samt undur mann-
lífsins meiri.
Þar er sannarlega margt að
sjá út um gluggann, ef hrein er
rúðan. En hversu oft skortir
þar útsýni, framsýni, víðsýni og
bjartsýni?
Einkum eru það leiðtogar
lýðsins, sem þurfa að þurrka af
rúðunni sinni. Þeir, sem vísa
öðrum veg, þurfa að vanda
útsýnið. Ef blindur leiðir
blindan, falla báðir í gryf ju.
Stundum fer ekki mikið fyrir
víðsýni og framsýni forystu-
manna á Vesturlöndum — og
víðar.
Þar er olíukreppan skýrasta
dæmið. Öll bíladellan i stór-
borgunum er líkt og sorinn á
framrúðum fallegrar bifreiðar.
Glapin sálarsjón leiðir fljót-
lega til falls og mengunar.
Hafið því framrúðuna hreina,
svo að Ijós sálarinnar, sjón
hugans megni að njóta sín. „Ef
Ijósið í þér er byrgt — er
myrkur — hve mikið verður þá
myrkrið?"
Ný kenning á ferðinni
Björgvin Ilólm kerfisfræð-
ingur, sem m.a. er kunnur
íþróttamaður, kom á dögunum
með einkennilega hellu, sem
hann kvaðst hafa fundið. Var
því líkast sem hún væri öll
rúnum rist, en öllu fremur
virtust þær rúnir þó náttúru-
smið en mannaverk. En ástæð-
an til þess að Björgvin kom
með helluna er sú, að í sumar
birtist í Lesbók grein eftir
Árna Öla um Flókastein á
Hvaleyri. Jónas Hallgrimsson
skáld rannsakaði á sínum tíma
rúnirnar á Flókasteini og taldi
að þar væri að fínna nöfnin á
skipshöfn Hrafna-Flóka.
Björgvin Hólm hefur nú Ieyst
rúnirnar á sinn hátt. Meðal
annars benda þær á ákveðið
fjal-1 á íslandi, segir Björgvin.
Eftir leiðbeiningum þeim, sem
fram koma á steininum, hélt
Björgvin til fjallsins og fann
þar helluna. Undanfarin 15 ár
hefur hann unnið aðrannsókn-
um á táknmáli mannsins og
þess vegna rannsakaði hann
Flókastein. Að svo stöddu vildi
hann ekki segja neitt frekar
um þetta, en kvaðst mundu
birta niðurstöður sínar seinna.
Hellan, sem Flókasteinn vísaði Björgvin á.
Bak jólum
ORÐ I EYRA
Þá er nú árið liðið í Al-Dana
skaut og rúmlega það, einsog
kéllingin sagði, og sjálft þjóð-
hátíðarárið runnið upp með
pomp og þó aðallega pragt,
hvað sem hvur seigir, einsog
Indriðigje veit manna bezt.
Skagamenn byrjuðu árið með
mestum menníngarbrag. Seigir
sagan, að þeir hafi kveikt svona
tíusínnum fleiri ekla en þeir
bræður Þormóður og Ketill
Brésnef fyrir margt laungu, og
var það nú líka annaðhvort.
Heldur hefði það nú verið klén
frammistaða, — þó olíuskortur-
inn, sem nú er fyrirhugaður,
sé'tekinn með í reiknínginn —,
ef þeir hefðu ekki sleigið
sæhröktum íruin og laungu
dauðum i þokkabót við sem
brennuvargar. Hitt er afturá-
móti mikið spursmál, hvort þeir
bræður hafa haft á að skipa
jafnmiklum bílakosti til að rún-
ta á milli brennanna og afkom-
endur þeirra á tímum hvuð-
bergs eymingjans og steinars
skálds sigurjónssonar.
Þá létu stútendar ekki sitt
eftir liggja um áramót framar
venju, þó skutilsveínum lægju
verk öll hendi firr. Tókst þeim
á skammri stundu að breyta
íþróttamusteri Reykjavíkínga í
tröllaukna fensali, þar sem
spýjur þustu upp kverkar
manna yfir kvikt og dautt og á
gólf niður. Varð ýmsum á að
spurja, fyrir hverra fjármuni
stútendar keyptu mjöðinn, því
þeir hafa jafnan brugðist i
gervi bónbjargálýðs ár hvert,
þá Alþíng hefur sneitt fjárlaga-
kökuna á jóladiska svokallaðra
landsmanna.
Enn má géta þess, að lands-
feður hófu þjóðhátíðarárið með
því árvissa sjálfshóli, sem tröll-
ríður slíkum í þann mund, sem
álfaþjóð í brúðardansinn
býður. — Að vísu hefur einginn
boðið Ölavíu litlu í brúðardans-
inn enn, svo vitað sé, enda vafa-
samt, að slík álfaþjóð fyrirfinn-
ist á gervallri krínglu heimsins,
að hún treystist til slíkra svipt-
ínga.
En þegar allt kemur til alls
má þjóðhátiðarnemd vel við
una: Því sirkusinn hefur opnað
og firverkeríið er byrjað, þó
menningarvitarnir Flosi og
ólafurjónsson séu ennsem-
komiðer svolítið rotinpúrulegir
á nýja árinu.
D m d 0 0 é
Frá Tafl- og bridgektúbbn-
um.
Aðalsveitakeppni félagsins
sl. fimmtudag. Spilað er í
tveimur flokkum, meistara- og
fyrsta flokki og eru 10 sveitir í
hvorum flokki.
Úrslití meistaraflokki:
Þórarins vann Rafns 16—4
Þórhálls vann Gests 20—0
Guðlaugs vann Jóns B. 12—8
Tryggvaog Kristínar gerðu
jafntefli 10—10
Sigríðar og Vernharðs gerðu
jafntefli 10—10
Fyrsti flokkur:
Þorsteins vann Erlu 15—5
Birgis vann Guðmundíu 20—0
Sigurjóns vann Gísla 19—1
Guðmundar vann
Hannesar 20—:0 *
Kristínar Öl. vann Guðm.
G. 20—0
Á fimmtudaginn kemur
verður gert hlé á sveitakeppn-
inni og spilað í bikarkeppni
BSÍ. Öllum er þar heimil þátt-
taka og eru upplýsingar veittar
í síma 24856.
Frá Bridgefél. Ásunum,
Kópavogi.
Jólahraðsveitakeppni félags-
ins fór fram mánudaginn 19.
des. sl. og tóku 9 sveitir þátt i
keppninni. Sigurvegari varð
sveit Sverris Armannssonar.
Aðrir spilarar í sveitinni voru
Hermann Lárusson, Ármann
Lárusson og Lárus Hermanns-
son.
7. umferð sveitakeppni
félagsins var spiluð mánudag-
inn 7. jan.
Úrslit urðu þessi:
Sv. Jóns Andréssonar vann
Þorsteins Jónssonar 20:0
Sv. Lárusar Hermannss. vann
Hrólfs Hjaltasonar 20:0
Sv. Vilhjálms Þórssonar vann
Kristjáns Jónssonar 20:0
Sv. Eyjólfs Ólafssonar vann
Guðmundar Asmundss. 20:0
Sv. Einars Hafliðasonar vann
Baldurs Bjartmannss. 20:0
Röðefstu sveita er nú þessi:
1. sveitJóns 123stig
2. s'veit Lárusar 97 stig
3. sveit Þorsteins 93 S(jg
Á morgun verður spilað um
þátttökurétt í íslandsmót'i í tví-
menningi
• A.G.R.