Morgunblaðið - 13.01.1974, Side 15
15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JANUAR 1974
Plötur og
flytiendur
ársins 1973
Bretland:
Þetta er listi brezka blaðsins
Melody Maker yfir plötur og
flytjendur ársins 1973 þar í
landi. Listinn er byggður á
stigafjölda fyrir tíðni og lengd
dvalartíma á vikulegum vin-
sældalistum blaðsins yfir árið.
PLÖTUR ÁRSINS
(LITLAR).
1. Tie a Yellow Ribbon- Dawn.
2. Welcome Home — Peters
and Lee
3. Yesterday Once More —
Carpenters.
4. And I Love you So — Perry
Como
5. Spanish Eyes — A1 Martino
6. See My baby Jive — Wizzard
7. Blockbuster — Sweet
8. Eye Level — Simon Park
Orchestra
9. For the Good Times — Perry
Como
10. Rubber Bullets — locc.
FLYTJENDUR ÁRSINS:
1. David Bowie
2. Gary Glitter
3. Slade
Pal Brothers — vinsælasta platan á tslandi
4. Wizzard
5. Sweet
6. Dawn
7. Donny Osmond
8. Perry Como
9. Elton John.
10. Wings
ÍSLAND:
Samkvæmt útreikningum
Arnar Petersen umsjónar-
manns þáttarins 10 Á
TOPPNUM lítur islenzki vin-
sældarlistinn þannig lít:
1—2 Candy Girl ...Pal Brothers (Magnús og'Jóhann)
1—2 Saturday Night ...............Bay City Rollers
3. Give Me Love ..................George Harrison
4—5. LetMeln ...........................Osmonds
4—5. My Friend Stan........................Slade
6—7—8. Going Home ......................Osmonds
6—7—8. YoungLove .......................Osmonds
6—7—8. Free Elictric Band........Albert Hammond
9. Jenny Jenny Dreams Are Ten a Penny ...Kincade
10. Daydream........................David Cassidy
52 Stig
52 stig
50 stig
45 stig
45 stig
44 stig
44 stig
44 stig
41 stig
40 stig
David Bowie efstur í
Bretlandi.
Flytjendur:
1. Osmonds ..........96stig
2. Slade ............80 stig
3. David Cassidy.....76 stig
4. Carpenters ...:...62 stig
5. Donny Osmonds ....56 stig
6. Magnús og Jóhann..52 stig
7. David Bowie ......52 stig
8. Bay City Rollers..52 stig
9. Kincade...........51 stig
10. Nazareth ........49 stig
Þess ber að geta, að þátturinn
10 Á TOPPNUM hóf ekki
göngu sína fyrr en í mai á sl. ári
ög breytir það að sjálfsögðu
nokkru. Stigin voru gefin þann-
ig, að 10 stig voru gefin fyrir
lag nr. 1 og svo stiglækkandi
niður í 1 stig í 10. sæti.
Hljómar
aftur til U.S.A.
Hljómar eru nú aftur á förum
til Bandaríkjanna til að ganga frá
gerð L.P. plötu sinnar. Auk þess
munu þeir ganga frá gerð lítillar
plötu, sem væntanleg verður á
markað um mánaðamótin jan,-
febr. Á þessari plötu verða tvö
lög, Slamad Djalan Mas eftir Rún-
ar Júlíusson og Let It Flow eftir
Gunnar Þórðarson. Eru bæði
þessi lög af L.P. plötunni, en hún
mun væntanleg á markaðinn um
mánuði á eftir þeirri litlu.
Ennfremur mun Rúnar Júlíus-
son hljóðrita tveggja laga
sólóplötu með lögum og textum
eftir sjálfan sig, sem væntanleg
er á markað í febrúar eða marz.
Einn af lesendum Slagsíð-
unnar, Guðni Andrésson, hafði
samband við okkur og vakti at-
hygli á því ósamræmi, sem virt-
ist vera í verðlagningu á hljóm-
plötum í hljómplötuverzlunum
Reykjavíkur, þ.e.a.s. að hægt er
að selja sömu plötuna á mis-
munandi verði eftir því, hvaða
verzlun á í hlut. Raunar höfðu
Slagsiðumenn haft ávæning af
þessu áður. En eftir ábendingu
Guðna gerði síðan skyndikönn-
un á þessum efnum. Teknar
voru af handahófi fimm plötur
og spurzt fyrir um verð þeirra í
fimm hljómplötuverzlunum.
Af þessum plötum var ein
íslenzk og kom i Ijós, að hún var
alls staðar seld á sama verði,
eins og kannski var við að bú-
ast. En þegar að erlendu plöt-
unum kom var greinilegt
mjög svo flöktandi verðlag.
Þessar plötur voru þrjár LP, og
ein lítil plata (Merry Xmas
Everybody með Slade). LP
plöturnar voru Photograph
með Ringo Starr (tiltölulega ný
plata), Chicago VI (nokkru
eldri) og Bridge over Troubled
Water með Simon og Garfunkel
(nokkurra ára gömul). Eftir-
farandi er listi yfir plöturnar
með verði þeirra í nokkruverzl-
•unum:
Ríó: Allt í gamni ' 790
Ringo: Photograph (LP) 800
Chicago VI 710
Sim./Garf.: Bridge ... 680
Slade: Merry Xmas ... 190
Sums staðar var plata upp-
seld, en að ofan er þá verðið
eins og það var fyrir.
Tvær meginástæður munu
vera fyrir þessum verð-
mismun. í fyrsta lagi er verð
lagning á hljómplötum ekki
■bundin verðlagsákvæðum og er
þannig i rauninni frjáls. I öðru
lagi kaupa verzlanirnar plötur
sínar úr ýmsum áttum, og mun
þetta atriði skipta hvað mestu
máli. Þannig eru plötur frá
Bandaríkjunum yfirleitt dýrari
i innkaupi en plötur frá t.d.
Bretlandi. En til þess að flýta
fyrir afgreiðslu kaupa sumar
verzlanir plötur beint frá fram-
leiðslulandinu, þótt það hafi í
för með sér hærra verð. Þannig
er neytendum gefinn kostur á
að velja um það að fá plötuna
fyrr og þá dýrari eða bíða eftir
ódýrari sendingu. Hljóðfæra-
verzlun Sigriðar Helgadóttur
mun vera verst sett í þessum
efnum, því að hún mun að veru-
legu leyti flytja inn vörur sínar
i gegnum umboðsmann, sem
hins vegar fær allar plotur um
Hljóðf.
húsið
790
870
710
680
195
(* ekki til).
Italiu. Hlýzt af þessum króka-
leiðum mikill flutningskostnað-
ur og þar með hærra verð til
neytenda. Verzlunin mun hins
vegar hafa i hyggju að lækka
álagningu á næstu sendingum
sínum, en nokkuð var áberandi
hærra verð hjá HSH i skyndi-
könnun Slagsíðunnar, eins og
sjá má af listanum hér að ofan.
Fleiri atriði getur Slagsíðan
nefnt í þessu sambandi varð-
andi hinar ýmsu verzlanir, en
mál þessi virðast öll æði rugl-
ingsleg og veitti ekki af að
koma einhverju samræmi á
hlutina. Ekki verður þó farið
frekar út í þessa sálma nú. Slag-
siðan ætlar sér að sjálfsögðu
ekki þá dul að halda því fram,
að þessi skyndikönnun gefi hár-
rétta mynd af ástandinu al-
mennt. Hún var aðeins „stikk-
prufa“, en ætti engu að síður að
geta gefið vissar vísbendingar.
Slagsíðan þakkar Guðna fyrir
ábendinguna og skorar á les-
endur sina að hafa samband ef
þeim þykir einhvers staðar
pottur brotinn.
Ein plata - ólíkt verð
Sigr.
Eálkinn Karnabær Helgad.1 Faco
790 790 790
790 840 790
710 850 *
790 850 790
195 200
„SLAGSÍÐAN”
MORGUNBLAÐIÐ
PÓSTHÓLF 200
REYKJAVÍK
Þórunn í Kópavogi spvr:
Hvað geturðu sagt mér um
Demis Roussos?
Svar: Slagsíðan getur sagt
þér sitt af hverju um Demis
Roussos, en þetta helzt: Þessi
þéttholda Grikki (100 kíló)
með sina grófu, stríðþöndu
rödd, varð frægur á síðasta ári
fyrir lagið „Goodbye my Love,
Goodbye". Komst lagstúfur
þessi í efsta sæti vinsældalista
víða um heim, m.a. hér á landi.
Roussos er fæddur 15. júlí
1946, í Alexandríu á Egypta-
landi. Hins vegar býr hann í
Paris og var áður liðsmaður
hljómsveitarinnar Aphrodite’s
Child. Nýlega gaf hann út nýja
plötu á þýzku, „So wie du
bist“, og ef menn vilja, geta
þeir reynt að hafa samband við
kappann gegnum Þýzkalands-
heimilisfangið: Demis
Roussos, c/o Philips, 2 Ham-
burg 1, Mönckebergstrasse 7,
Deutschland.
Ásta Öladóttir, Hofteigi 10,
Reykjavík, spyr:
Hvað geturðu sagt mér um
Marc Bolan?
. . . og Áslaug Karlsdóttir:
Hvar á Marc Bolan heima?
... og tveir Garðhreppingar:
Er Marc Bolan giftur, og ef
svo er, hvað á hann mörg
börn?
Svar: Þegar stórt er spurt
verður oft lítið um svar,
elskurnar mínar. Enn á ný get-
ur Slagsíðan sagt sitt af
hverju, en þó ekki um barn-
eignir meistara Bolans. Svo
mikið er nokkuð víst, að hann
er ekki kvæntur og býr á
sveitasetri fyrir utan Lundúni
á Bretlandi. Að öðru leyti er
Marc Bolan það átrúnaðargoð í
poppheiminum, sem á sínum
tíma nálgaðist mest vinsældir
á borð við Bítlana. Bolan
stofnaði árið 1968
Tyrannosaurus Rex ásamt
Steve Took, en nokkur fími
leið þar til vinsældirnar létu
sjá sig. Urðu þeir félagar að
spila hér og þar á ódýrum stöð-
um fyrir slikk eða jafnvel
ókeypis. Þá var það, að hinn
áhrifamikli plötusnúður John
Peel hjá BBC uppgötvaði þá og
hjálpaði þeim áleiðis á topp-
inn. Upphaflega hafði tónlist
þeirra verið órafmögnuð, sér-
kennileg hljóðlát lög við
goðsagnalega texta Bolans.
Siðan kom Micky Finn I stað
Tooks, og I næsta albúrni sínu
var tónlist Tj'rannosaurus Rex
orðin þrumandi rafmagns-
músík, en hana hafði Bolan
leikið áður í hljómsveitinni
John’s Children. Frægðingekk
í garð árið 1970, þegar þeir
félagar styttu nafnið í T. Rex
og gáfu út plötuna „Ride a
White Swan”, Var ekki að
sökum að spyrja, að algert
Bolanæði greip um sig, og hver
platan á fætur annarri fór í
efstu sæti vinsældalista. Fyrri
helmingur ársins 1972 var
blómaskeið T. Rex, en plötur
þeirra gerðust einhæfari og
ómerkilegri, tóm verksmiðju-
framleiðsla, og að undanförnu
hefur Marc Bolan & Co verið
smátt og smátt að falla í
gleymsku.