Morgunblaðið - 13.01.1974, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JANÚAR 1974
— Sigurður Bjiirnsson syngur
hlutverk Eisensteins f 60. sinn á
kvöld.
„Æ, ég er í heldur slæmu skapi
þessa stundina," sagði Sigurður
Björnsson óperusöngvari, þegar
blaðamaður Morgunblaðsins
hafði sem snöggvast samband við
hann í vikunni í tilefni þess, að á
sýningu Þjóðleikhússins á Leður-
lökunni í kvöld, syngur hann hlut-
verk Eisensteins i sextugasta
sinn. Jafnframt er þetta síðasta
skiptið, sem hann syngur hlut-
verkið hér að þessu sinni, en ráð-
Ovæntur „jólaglaðningur”
frá ísl. skattyfirvöldum
gert er, að hann komi aftur undir
mánaðamótin og syngi þá á
sýningunum 29., 30., 31. jan. og 2.
og 3. febrúar.
En hvers vegna skyldi söngvar-
inn vera í slæmu skapi? Kvefaður
kannski eftir veðurbreytingarnar
síðustu vikur?
Jú, víst er ég það, sagði Sigurð-
ur, fékk kvef strax á fyrsta degi
eftir að ég kom og hef ekki ennþá
losnað við það, sem er slæmt.
Verði maður að syngja með kvef
er hætt, við að'syngja sig fastan ef
svo má segja, það er bæði þreyt-
andi og kemur niður á söngnum.
En meginástæðan til þess, að ég
er í slæmu skapi er hins vegar sú,
að ég var að fá dálítinn „jóla-
glaðning" frá íslenzku skattayfir-
völdunum; kröfu upp á um það
bil 150.000 kr. skatt fyrir árið
1972, en það ár hafði ég i tekjur á
íslandi samtals 28.906 krónur.
— A hvaða forsendu er krafan
byggð?
— Sennilega á því, að ég hafi
haft lögheimili á íslandi, — sem
er rétt, því að mig hefur langað til
að halda tengslunum við island
og eiga hér lögheimili, en ekki
vitað, að þessar gætu orðið afleið-
ingarnar. Nú gera þeir líka kröfu
til, að ég gefi upp tekjur minar úti
vegna húgsanlegrar skattlagning-
ar af þeim hér heima, en í Austur-
ríki á ég mitt heimili og ibúð og
greiði þar skatta af öllum mínum
tekjum.
— Mér kemur þetta mjög á
óvart, hélt Sigurður áfram, því að
öll þau ár, sem ég hef verið bú-
settur erlendis, hef ég aldrei
fengið skattskýrslu senda heim,
fyrr en á síðasta ári, að skýrsla
barst til foreldra minna. Þau
sendu hana til baka með þeim
ummælum að ég væri búsettur
erlendis, og þetta virðist vera
svarið. Hins vegar skilst mér á
Hagstofunni, að samkvæmt is-
lenzkum lögum hafi ég hreint
ekki getað átt lögheimili á ís-
landi, svo að þetta er allt eitthvað
undarlegt.
— Hvernig hefur þér annars
fundizt að syngja á fjölum Þjóð-
leikhússins eftir öll þessi ár. Það
eru víst orðin ein tuttugu ár frá
því þú söngst í Pilti og Stúlku eða
hvað?
— Já, tíminn líður hratt; — ég
hefði gjarnan viljað koma og
syngja hér heirna á sviði fyrr, en
þetta hefur verið ákaflega
skemmtilegt og gaman hve sýn-
ingin hefur tekizt vel og orðið
vinsæl.
— Hvað tekur nú við?
— Ég fer utan á mánudag og
syng á næstu vikum í „La Gazza
Ladra" eftir Rossini, Töfraflaut-
unni eftir Mozart og Rínargulli
Wagners. Kem svo að öllum
líkindum aftur hingað undir
mánaðamótin og verð fram til 4.
febrúar, en þá þarf ég aftur að
fara utan til að syngja hlutverk
Cassios í operunni Othello eftir
Verdi, þar sem hinn heimsfrægi
tenórsöngvari James King syngur
titilhlutverkið, — en sú upp-
færsla var frumsýnd um miðjan
nóvember sl.
Félagshelmili Kðpavogs
Getum bætt við okkur nokkrum þorrablótum. Tökum að
okkur brúðkaupsveizlur og árshátíðar. Upplýsingar í síma
41391.
Muslang árgerð ’66
Nýinnfluttur Mustang Hardtop, sjálfskiptur með vökva-
stýri, power bremsur. Til sölu og sýnis í Ásgarði 7 kl.
5 — 7 í dag.
Upplýsingar í síma 34905.
Borðlennlsklúb&urlnn Ornlnn
heldur aðalfund I Kristalssal Hótel Loftleiða í dag kl. 1 4. í
lok fundarins er skráning eldri félaga til æfinga á
vormisseri. Skráning nýrra félaga fer fram þriðjudaginn
1 5. janúar í Borðtennissal Laugardalshallar, niðri kl. 18
LÍTIL KJÖRBÚÐ TIL SÖLU
TILBOÐ ÓSKAST í TÆKI OG AÐSTÖÐU
Semja má um greiðslu með skuldabréfum. Lysthafendur
leggi nöfn siðn inn á afgr. blaðsins merkt:
„MJÓLKURALA — 3122."
Útsaia
Útsala byrjar á mánudag. Mikill afsláttur á stökum
karlmannabuxum, peysum o.fl.
Andrés, Skólavörðustíg 22.
Sími 18250.
Árshátíð
Átthagafélags Snæfellinga og Hnappadæla á Suðurnesj-
um verður í Félagsheimilinu Stapa föstudaginn 25.
janúar 1 974 Nánarauglýst síðar.
Nefndin.
löja, félag verksmlðjufðlks
Hér með auglýsist eftir listum til stjórnarkjörs I Iðju. Kjósa
skal 7 menn í aðalstjórn, 3 menn í varastjórn, 2
endurskoðendur, 1 varaendurskoðanda, 1 2 menn I trún-
aðarmannaráð og 8 varamenn í trúnaðarmannaráð.
Hverjum lista skulu fylgja meðmæli minnst 1 00 fullgildra
félagsmanna.
Listum ber að skila á skrifstofu félagsins að Skólavörðu-
stíg 1 6, þriðjudaginn 1 5. jan. kl. 1 1 f.h.
Stjórn Iðju, félags verksmiðjufólks
TilboÖ óskast
eftirtaldar bifreiðir, sem skemmst hafa ! umferðaróhöppum:
Ford Bronco, árgerð 1 974
Volkswagen 1300, árgerð 1971
Vauxhall Viva, árgerð 1 969
Rambler American, árgerð 1965
Rambler Ambassador, árgerð 1969
Hillman Minks, árgerð 1 966
Bifreiðarnar verða til sýnis á morgun (mánudag) að Smiðshöfða 1 7, frá
kl. 1 3 til 18.
Tilboðum sé skilað til Samvinnutrygginga Tjónadeild, fyrir hádegi á
þriðjudag 1 5. janúar 1 974.
Elnbýllshús I vesiurborglnnl
Til sölu 9 herb. vandað einbýlishús m. bílskúr á eftirsóttum stað í
vesturborginni. Innréttingar allar óvenju vandaðar, m.a. sérsmíðað-
ar hurðir, ný vönduð innrétt í eldhúsi m. frysti- og kæligeymslum. I
dag skiptist húsið þannig: 2. hæð: 4 herbergi, bað o.fl. 1. hæð: 3
saml. stofur, hol, eldhús, W.C. o.fl. í kj.: góð 2ja herb. íb.,
þvottahús o.fl.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofunni
Eignamiðlunin,
Vonarstræti 1 2,
Símar 1 1928 — 24534
Minning:
Ester H.
Olafsdóttir
Góð og elskuleg húsmóðir, Est-
er H. Ólafsdóttir, er fallin í val-
inn. Hún lézt íLandspítalanum 16.
desember sl. Utför hennar var
gerð frá Bústaðakirkju 21. desem-
ber að viðstöddu fjölmenni.
Ester var komin af miklu
sæmdarfólki. Foreldrar hennar
voru hjónin Jónasína Sigmunds-
dóttir og Ólafur Magnússon tré-
smiður, er lengi höfðu búsetu á
Þingeyri, þar til þau fluttust til
Reykjavíkur árið 1928.
Ester var fædd á Þingeyri 30.
sept árið 1900, og ólst upp í for-
eldrahúsum, þar sem hún var í
góðum skóla undir Iífið hjá móður
sinni, er var mikilhæf kona og
húsmóðir. Þessi skóli var henni
mikils virði, er hún sjálf, tiltölu-
lega ung að árum, tók við eigin
hússtjórn.
Ester giftist 30 maí 1926 Sigurði
bryta Guðbjartssyni, alkunnum
sæmdarmanni. Heimili þeirra var
ávallt með miklum rausnar og
myndarbrag. Mann sinn missti
Ester árið 1959, og sem geta má
nærri, varð það mikið áfall fyrir
hana. Sjálf gekk hún ekki heii til
skógar seinni árin og átti við van-
heilsu að stríða.
Börn þeirra hjóna, sem öllu eru
á lífi. eru þessi: Lára, Halldóra,
Helga, Bára, Ólafur og Jónas, öll
vel metnir borgarar hér í Reykja-
vík.
Ester var kona fríð sýnum,
frjálsleg og prúðmannleg í fram-
komu. Við hjónin, sem þekktum
hana svo vel, kveðjum hana með
söknuði. Börnum hennar og
ættingjum sendum við ljúfar
samúðarkveðjur.
„Friður guðs þér fylgi hafðu
þökk fyrir allt og allt."
Sigmundur Jónsson.